Morgunblaðið - 10.12.1986, Side 60
60
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVHCUDAGUR 10. DESEMBER 1986
Margrét G. Guðjóns
dóttir - Minning
Fædd 26. apríl 1899
Dáin 12.maí 1986
Það er margs að minnast þegar
ég læt loks af því verða að skrifa
nokkur minningarorð um Grímlaugu
Margréti Guðjónsdóttur sem átti sér
fáa líka. Margrét kunni og hafði þá
miklu hæfileika að lifa og njóta þessa
jarðneska iífs. Hún var alltaf lífsglöð
og flölhæf kona, sjá handavinnu
hennar og heimili sem alltaf ilmaði
af hreinlætislykt og glaðværð, það
voru svo góðir andar sem sveimuðu
yfir því, enda var gestagangur hjá
þeim heiðurshjónum og veitingar
góðar og miklar og allt brauð heima-
bakað. Þau hjónin bæði skemmtileg
og elskuleg og kunnu að taka á
móti gestum og báru mikla virðingu
hvort fyrir öðru þó ólík væru. Það
voru ógleymanlegar stundir sem ég
átti í heimsókn hjá þeim hjónum,
þar fann ég alltaf svo gott andlegt
veganesti. Hún giftist ung manni
sínum, Bimi Bjömssyni frá Rangá
og hófu þau búskap á Stóra-Steins-
vaði. Árið 1933 fluttust þau á Eyrar
við Seyðisflörð og áttu þar heimili
til 1960 en þá flytja þau tii Eskiflarð-
ar. Margrét og Bjöm eignuðust 15
böm og ólu upp eitt bamabam.
Bömin em: Pétur, maki Valgerður
Emilsdóttir, 4 böm, búsett á Seyðis-
firði. Unnur Margrét, maki Hjálmar
Jaeobsen, 1 bam, búsett í Færeyjum.
Sigmar, maki Guðrún Pálína Vil-
hjálmsdóttir, 3 böm, búsett í
Hafnarfírði. Anna Bima, maki Jó-
hann Jónsson, 7 böm, búsett í Garði.
Guðbjörg, maki Svein Sörensen, 3
böm, búsett á Eskifírði. Bjöm Hólm,
maki Elva Bjömsdóttir, 5 böm,
heimili Stangarási, Völlum. Elsa
Petra, maki Ingimar Þorláksson, 9
böm, búsett á Siglufirði. Aðalbjörg,
maki Siguijón Sigurðsson, 5 böm,
heimili Hlíðargarði, Jökulsárhlíð.
Einar Siguijón, ókvæntur, 6 böm.
Helga, maki Kristján Georgsson, 8
böm, búsett í Vestmannaeyjum. Sig-
urborg, maki Ólafur Runólfsson, 4
böm, búsett í Vestmannaeyjum.
Jóna, maki Gylfi Einarsson, 3 böm,
búsett í Reykjavík. Skúli, ókvæntur.
Guðjón Valur, maki Auður Valdi-
marsdóttir, 3 böm, búsett á Eski-
firði. Birgir, maki Guðrún Þórarins-
dóttir, 4 böm, heimili Höfn,
Homafírði. Bima Bjöms uppeldis-
dóttir, maki Sigurbjöm Bjömsson, 3
böm, búsett á Vopnafirði. 3 af böm-
unum em látin, Unnur Margrét,
Einar Siguijón og Skúli. Afkomend-
ur Margrétar og Bjöms em orðnir
hátt í tvö hundmð. Ég kynntist
Margréti árið 1962 er við hjónin
fluttumst með böm okkar til Eski-
fjarðar og er ég þakklát Margréti
fyrir allar þær gjafír sem hún gaf
bamabömum mínum og ekki síst
þeirri höfðinglegu gjöf sem hún gaf
sonardóttur minni i fermingargjöf
nokkmm vikum áður en hún dó, þá
orðin mikið veik, en með fulla rænu.
Ég var oft hissa á því hvað Margrét
gat gefið mikið af sínum litlu tekj-
um, gjafimar sem hún gaf vom svo
höfðinglegar eins og hún var sjálf.
Það vora falleg hjón, Maigrét og
Bjöm maður hennar, þau vom bæði
tignarleg og bám mikla persónu.
Ég var oft í veislum hjá þeim og sá
þá flest böm og tengdaböm þeirra
og var það myndarlegur hópur og
TIL JOLAGJAFA
Pennasett • Pennastatíf • Töfl • Servíettur • Leikspíl •
Vönduö tréleikföng • Kertaglös • Kerti • Óróar •
Allar jólabœkurnar • Hnattlíkön • Jólakort • Spil •
Jólaskraut • Slaufur og boröar • Skrifborösmottur •
Merkimiöar • Jólapappír • Skjalatöskur •
O.m.m. fl.
Meö nyjungarnar og nœg bílastœöi
Sioumula 35 — Simi 36811
mikið söngfólk. Það vom ógleyman-
legar veislur í Dagsbrún hjá þeim
hjónum. Þeim hjónum leið alltaf vel
í Dagsbrún enda bjuggu þau á efri
hæðinni hjá Guðbjörgu dóttur sinni
og manni hennar, Sveini Sörensen.
Guðbjörg var foreldmm sínum mikil
hjálparhella í ellinni því það er eins
og allir vita mesta álag á þeim hjón-
um sem hafa foreldra sína og
tengdaforeldra í sama húsi á efri
ámm. Einnig bjó Auður tengdadótt-
ir þeirra í næsta húsi við þau, og
hjálpaði hún oft tengdaforeldmm
sínum með miklum sóma og nær-
gætni. Fræðandi var að tala við þau
hjónin, enda vom þau búin að ganga
sinn lífsins skóla og hann langan
og stundum strangan eins og gengur
og gerist í þessu jarðneska lífi.
Margrét heitin sagði mér oft að sínar
ánægjustundir hefðu verið mestar
þegar hún var búin að baða bömin
og þau sofnuð, þá leit hún yfir böm-
in sín og signdi þau og bað guð um
að þau yrðu góðir þjóðfélagsþegnar
og yrðu íslensku þjóðinni til heilla í
nútíð og ffamtíð. Margrét saumaði
á böm sin á nóttunni þegar allir
aðrir sváfu. Kallar nútímafólk þetta
gleðistundir, sem mér virðist ailtaf
óánægt með öll sín þægindi? Margr-
éti varð að ósk sinni, öll bömin
hennar dugmikið og gott fólk, sem
fóm fljótt að vinna og láta pening-
ana heim til foreldra sinna eins og
gangur lífsins var þá að hjálpa yngri
systkinum sínum til mennta. Já, þá
vom ekki heimtuð af ríkinu nein
námslán og keyrslur fram og til
baka í bamaskóla eins og nú er. Ég
vona og veit að vinkona mín, Margr-
ét Guðjónsdóttir, fái góða heim-
komu, því hún var búin að undirbúa
sig vel og lengi um að skipta um
vemstað.
Regína Thorarensen
KVENNADEILD REYKJAVIKURD.
RAUÐA KROSS ÍSLANDS
Félagskonur
20 ára afmælishátíð verður haldin að Hótel Loftleiðum
Víkingasal, föstudaginn 12. desember kl. 19.00.
Dagskrá:
Borðhald
Píanóleikur: Þóra Fríða Sæmundsdóttir
Einsöngur: Kristinn Sigmundsson
Undirleikari: Jónas Ingimundarson
Danssýning: Dansflokkur frá Dansskóla Auðar Haralds-
dóttur
Happdrætti o.fl.
Aðgöngumiðar seldir áður í sölubúðum sjúkrahúsanna og
á skrifstofunni Öldugötu 4 kl. ,8-16.
Fjölmennum. Skemmtinefnd.
Rauói Kross'lslands
LANDSBANKINN
BYÐUR ÖRUGG
SKULDABRÉF
NY UTGAFA:
BANKABREFLANDSBANKANS
andsbankinn hefur nú hafið
útgáfu bankabréfa. Þau fást í
verðbréfadeild Aðalbanka, Austurstræti
11. Bankabréfin eru til 4 ára. Ársávöxtun
er 10% umfram verðtryggingu.
Endursölutrygging Landsbankans tryggir
að ávallt er hægt að innleysa bréfin innan
tveggja mánaða.
já fjármálasviði, Laugavegi 7,
og verðbréfadeild Aðalbanka
eru til sölu skuldabréf ýmissa fyrirtækja.
Ársávöxtun umfram verðtryggingu er
10,5-11,5%.
Vegna endursölutryggingar Landsbank-
ans er ávallt hægt að innleysa bréfin með
mánaðar fyrirvara.
nnumst kaup og sölu spari-
skírteina Ríkissjóðs í gegnum
Verðbréfaþing íslands. Bjóðum lægstu
kaup og söluþóknun aðeins 0,75%.
Nánari upplýsingar veitir fjármálasvið,
Laugavegi 7, símar 27722 og 621244.
L
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna