Morgunblaðið - 10.12.1986, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. DESEMBER 1986
61
Minning:
Matthildur Guð-
mundsdóttir frá Bæ
Fædd 19. júli 1905
Dáin 3. desember 1986
Matthildur Guðmundsdóttir
fæddist á Drangsnesi við
Steingrímsfjörð 19. júlí 1905. Hún
var dóttir hjónanna Guðmundar
Guðmundssonar sjósóknara og
bónda í Bæ á Selströnd og Ragn-
heiðar Halldórsdóttur konu hans.
Þau áttu saman 14 böm. Þrettán
þeirra komust til manndómsára, öll
svipmikið og dugandi fólk. Fjöl-
skyldan átti heima á Drangsnesi í
ellefu ár og þá var lífsbjörg heimilis-
ins því nær eingöngu til sjávar sótt.
Þótti Guðmundur öðrum fremri sem
aflasæll og glöggur árabátaformað-
ur.
Árið 1914 keypti Guðmundur
hálfa jörðina Bæ á Selströnd, og
þá víkkaði athafnasviðið, því nú
varð landbúnaður stærri þáttur í
heimilisumsvifunum.
Þegar fjölskyldan fluttist að Bæ
voru þar fyrir á eign Guðmundar
tvær fjölskyldur bammargar í fastri
ábúð á hluta jarðarinnar. Fyrstu
árin var því þröngt setinn bekkur
þar sem þijár flölskyldur bjuggu í
sömu baðstofú, þar af 18—20 böm
innan fermingar.
En öllu þessu fólki famaðist vel
og samskiptin vom þægileg. Þar
ríkti oftast söngur og gleði þegar
tóm gafst til frá fjölskyldustörfun-
um. Bæjarsystkinin urðu ung
hlutgeng og athafnasöm á þeim
vettvangi. Systumar jafnt sem
bræðumir máttu ganga að hveiju
því verki sem þau vom talin duga
til, en þama var starfssviðið Qöl-
þætt til sjós og lands.
Öll vom systkinin kjarkmikil og
létu lítt á sig fá þótt stundum
þyrfti að leggja nótt með degi þeg-
ar mestar annir kölluðu að. Hún
Matthildur varð því ung að taka til
hendinni við heimilisstörfin.
Hún óx upp og varð mjög falleg
kona, glaðvær og sönghneigð. Það
er ekki ofmælt að eftir henni var
tekið hvar sem hún fór. Margir
ungir menn litu hým auga heim
að Bæ þegar hún var þar í blóma
ungmeyjaráranna.
Eg sem þessar línur set á blað
þekkti vel Bæjarheimilið á þeim
ámm. Ég var á svipuðu reki og
sumir krakkamir þar og við Gunn-
ar, bróðir Matthildar, stóðum
saman á kirkjugólfínu á Kaldrana-
nesi þegar við fermdumst. Milli
bæjanna er aðeins stuttur háls sem
aldrei var svo örðugur yfirferðar,
að ekki væri hægt að komast þar
um til að njóta saman leikgleði
æskunnar. Og vináttubönd sem þá
vom tengd urðu furðu haldgóð þótt
ámnum fjölgaði og oft væri vík
milli vina.
Ragnheiður, móðir Matthildar,
var greind kona og hög bæði til
munns og handa. Hún kenndi dætr-
um sínum að feta þá sömu slóð
hvað viðkom verkshætti og heimilis-
haldi, enda kom það í ljós þegar
Matthildur sjálf fór að halda heim-
ili að henni var í engu áfátt á því
sviði. Hún giftist árið 1927 Hall-
dóri Magnússyni ættuðum úr
Borgarfirði. Þau bjuggu fyrst tvö
ár í Bæ en fluttust svo í Hamars-
hæli innar við Steingrímsíjörð,
þaðan stundaði Halldór útgerð og
sjómennsku.
Arið 1947 fluttust þau svo á
Akranes og áttu þar heimili þangað
til Halldór lést 6. október 1966.
Þau hjón vom bamlaus en tóku
í fóstur frá fmmbemsku Bjöm M.
Bjömsson frá Smáhömmm. For-
eldrar hans vom Bjöm Halldórsson
og Elínborg Benediktsdóttir. Þau
em bæði látin. Hann er því af sama
stofni og Matthildur fósturmóðir
hans því hún og Bjöm faðir hans
vom systraböm.
Ekki þarf að draga í efa að piltur-
inn sá hefur fengið góðan samastað
hjá frændkonu sinni og manni
hennar, enda mun mega sjá þess
merki. Hann er nú hafnarstjóri á
Akranesi, kvæntur Gýgju Gunn-
laugsdóttur og eiga þau sex böm.
Éftir að Matthildur missti mann
sinn var hún fyrst þijú ár á Akra-
nesi, en síðla árs 1969 fór hún
bústýra til Þorláks Jónssonar raf-
virkjameistara frá Súgandafírði,
sem þá hafði misst konu sína og
bjó einn með syni sínum á heimili
þeirra í Reykjavík.
Þessi þáttaskil í lífi Matthildar
hygg ég að hafí orðið upphaf þess
auðnuvegar sem hún síðan gekk í
17 ár eða til banadægurs.
Þorlákur var í sámm þegar hún
kom til hans. Sjálf hafði hún reynt
þau umskipti og átti því auðvelt
með að skilja hvemig málin stóðu.
Það kom líka fljótt í ljós að hún
var þessum vanda vaxin. Eðlislæg
glaðværð hennar og hlýhugur færði
birtu inn á heimilið, sem gerði þeim
feðgum ljúfara lífíð og auðveldara
að sætta sig við orðinn hlut.
Þau Þorlákur og Matthildur urðu
vinir og félagar. Hún stjómaði
heimili hans af myndarskap og
smekkvísi. Þannig urðu þessi sam-
vistarár þeim báðum góð ár laus
við einsemd og ama ellinnar sem
oft vill hijá þá sem einir ganga.
Vinátta tókst með Matthildi og
bömum Þorláks og ættmennum.
Hún naut hjá því fólki þeirrar virð-
ingar sem hún hafði til unnið með
stjómsemi, heiðarleika og vinarþeli
í starfi sínu. Og líklega eru heilindi
í vináttu engum nauðsynlegri en
þeim sem famir eru að fella flug-
fjaðrirnar.
Matthildur var ljóðelsk og orðhög
og eru til eftir hana vel dregnar
lífsmyndir bæði í bundnu og
óbundnu máli. Hún skilur eftir sig
ljúfar minningar hjá þeim sem hana
best þekktu. Þannig ganga góðar
konur um garð hvar sem þær fara.
Ég votta vinum hennar og að-
standendum öllum dýpstu samúð.
Þorsteinn frá Kaldrananesi
Matthildur fæddist 19. júlí 1905
á Drangsnesi við Steingrímsfjörð
og voru foreldrar hennar Ragn-
heiður Halldórsdóttir og Guðmund-
ur Guðmundsson á Drangsnesi. Ólst
hún þar upp til 9 ára aldurs eða
þegar faðir okkar hætti sjómennsku
og kaupir hálfa bújörðina Bæ á
Selströnd.
Þegar hugurinn reikar til liðinna
ára er svo margs að minnast frá
áhyggjuleysi og glöðum stundum.
Systkini Matthildar vom 12, níu
bræður og þijár systur. Er nóg að
starfa bæði til sjós og lands. Matt-
hildur var í foreldrahúsum að Bæ,
utan einn vetur sem hún dvaldi hjá
frændkonu sinni á Akureyri við
menntun og hafði af því bæði gagn
og gleði.
Hún giftist manni sínum, Hall-
dóri Magnússyni, fæddum 4. júlí
1898. Þau bjuggu að Bæ frá
1927—1929. Þá er að rísa vísir að
útgerð í svokölluðu Hamarsbæli.
Þar byggir Halldór myndarlegt
tveggja hæða hús og flytja þau
þangað 1929. Hann kaupir bát
ásamt svila sínum, Áma Andrés-
syni, og síðar Hermanni Guðmunds-
syni mági sínum. Það urðu fljótt
mikil umsvif og reyndi þar mikið á
dugnað Matthildar, þar sem hún tók
í fæði og aðhlynningu háseta sem
vom aðkomnir.
Þau Halldór eignuðust engin
böm, en Matthildur tók dreng sem
misst hafði foður sinn á besta aldri.
Ekkjan stóð uppi með fjögur böm
og eitt ófætt. Þegar það fæddist,
sem var drengur, sótti Matthildur
hann nýfæddan og var hann svo
skírður eftir föður sínum, Bimi
Halldórssyni, er bjó á Smáhömmm.
Móðir hans hét Elínborg Benedikts-
dóttir. Bjöm Bjömsson komst í
hlýjan móðurfaðm, þar sem hún
Matthildur var, einnig mun hún
hafa fengið útrás fyrir óuppfylltar
móðurtilfinningar.
Næst flytja þau hjón á Akranes
1947. Þar vann Halldór við vél-
smiðju Þorgeirs Jósepssonar á
meðan heilsan entist.
Bjöm fóstursonur þeirra hjóna
giftist Gígju Gunnlaugsdóttur
kennara og eiga þau 5 böm, svo
Matthildur fékk óspart að kynnast
ömmuhlutverkinu. Það bjó í sama
húsi, þó hún væri á sinni hæð.
Bömin urðu fullorðin og mun Matt-
hildi hafa fundist hún vera meira
ein.
En fyrir nokkmm ámm gerðist
hún ráðskona hjá Þorláki Jónssyni
hér í bæ, rafvirkja á Grettisgötu
6. Þeir vom tveir feðgar og þurftu
umhirðu. Að fara í þá stöðu var
hennar stóra lán. Hann er góður
og glaðsinna maður og hún er full-
komin húsmóðir, enda virtu þau
hvort annað. Matthildur var fijáls
og hún naut þess að skemmta sér
og f ara í smá ferðalög með honum.
|| MAUII
|| SVART
Matthildur var falleg kona og
meira gaf Guð henni, hún var vönd-
uð til orðs og æðis og mátti ekki
vamm sitt vita í einu eða neinu.
Hún sótti ekki á að kynnast fólki,
en trygg og hinn góði félagi þeim
sem hún umgekkst og glöð í vina-
hópi.
Eftir að Matthildur flytur suður
vann hún mikið að líknarmálum
s.s. byggingu Hallgrímskirkju sem
hún bæði gaf fé og vinnu og fleiri
félögum vann hún á þann hátt.
Enn var höggvið skarð í þrettán
systkina hópinn frá Bæ. Fimm
bræður hafa kvatt af níu og þijár ■
systur af fjórum. Við Matthildur
vomm svo lánsamar að fylgjast að
mest á æfinni.
Matthildi á ég svo margt að
þakka, friður Guðs geymi hana og
blessi, leysta frá jarðlífsþrautum. —
Með systurlegri kveðju,
Þuríður frá Bæ
í Steingrímsfirði.
ODYKT GOÐMETI
65,00
65 00
29 00
65,00
44 90
44,90
36 50
4990
96 00
96 00
Rauð epli 1 kg kr.
Appelsínur 1 kr.
Rósakál 1 kg kr.
Blómhál 1 kg kr.
AN appel5ínu5afi 1 Itr kr.
AM eplasafi 1 -Itr kr.
AM majones .. 350 gr kr.
A plus túnfiskur Parm Frites franskar kartöflur .. kr.
Oven fried 907 gr '
Crincle cut ovenfried .. 907 gr kr. 1
Btraight cut ovenfried . 1,8 kg kr J
SPARAÐU FTIUIi jÓLIN
HAGKAUP
REYKJAVÍK AKUREYRI NJARÐVÍK