Morgunblaðið - 10.12.1986, Síða 68

Morgunblaðið - 10.12.1986, Síða 68
68 MORGUNBLAJÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. DESEMBER 1986 ■: - Séð yfir hluta af áhorfendapöllum og sviði í Skemmunni. Morgunbiaíið/Einar Faiur LR Skemman: Djöflaeyjan um miðjan janúar í GÖMLUM bragga við Kapla- slqólsveg er Leikfélag Reykja- víkur að æfa „Djöflaeyjuna“ um þessar mundir. Það er Kjartan * Ragnarsson, leikari, sem hefur samið leikgerðina eftir sögum Einars Kárasonar „Þar sem Djöflaeyjan rís“ og „Gulleyjan." „Við fengum leyfir hjá Borgar- stjóra til að nýta húsið í vetur, en vitum ekki hvert ffamhaldið verð- ur,“ sagði Kjartan Ragnarsson, aðspurður um þetta nýja leikhús. Þótt leikhús þetta sé nýtt, er húsið gamalt og kannast líklega flestir við það undir nafninu Grandi h/f. Til að breyta þessum gömlu fískvinnslubröggum í leikhús þurfti m.a. að brjóta niður 15 tonn af steypu. Grandi h/f hætti vinnu í húsnæðinu þann 15. október og fyrsti samlestur Leikfélagsins var 25. október. Lítið hefur þó verið æft frá þeim tíma, því leikarar hafa unnið við að breyta húsnæðinu. Hafa þeir keyrt í burtu einn gám af timbri og einn af steini. Að sögn Kjartans hefur verið útbúið leikararými: búningsher- bergi, baðherbergi og kaffistofa. í anddyri voru fjarlægð þijú herbergi til að útbúa anddyri, því aðkoma fyrir áhorfendur var ansi bágborin. Síðast en ekki síst hafa verið settir upp áhorfendapallar og rúmar hú- sið nú um 265 áhorfendur. Æfingar hófust því ekki fyrr en í lok nóvember, en eru nú komnar á fullt: Aðspurður um það afhverju Leikfélagið hefði kosið að sýna Djöflaeyjuna á þessum stað sagði Kjartan að húsið hentaði þessu verki sérstaklega vel, þar sem það Ótcljandi verk þarf að vinna áður en hægt verður að sýna í skem- munni. Soffía Jakobsdóttir, leikkona, vopnuð gúmmíhönsk- um og tusku, við hreingerningar. er hæfílega hrátt. Áhorfendur og leikarar eru í sasma rými og það er leikið allt í kringum áhorfendur. „Það sem okkur fínnst mest spennandi, er að nota þetta hráa umhverfí. Leikritið gerist í sjúskuðu braggahverfí og við erum í bragga. Hér er allt mjög ekta, til dæmis ekta landgangur og skítugar ösku- tunnur utan úr porti. Húsið er element sem maður getur notað eftir eigin höfði. Það er enginn arki- tekt sem þarf að gefa leyfi, við getum þessvegna tekið þakið af.“ „Helstu vandamál okkar voru hitamálin. Húsið var hitað upp með Talsmaður stjórnar Verkamannabústaða, Ríkharð Brynjólfsson, til hægri, afhendir Jóni Halldórssyni, eiganda hússins, lykla að húsinu. Fyrsti verkamannabústaðurinn á Hvanneyri. Morgunbiaðií/DJ. Andakílshreppur: Stjórn Verkamannabústaða af- hendir fyrsta húsið á Hvanneyri Hvannatúni í Andakíl. STJÓRN Verkamannabústaða í Andakílshreppi afhenti fyrir helgina fyrsta bústaðinn af þremur, sem í byggingu eru á Hvanneyri. Húsið er 110 fm og kostar innan við 4 millj. kr. Við formlega afhendingarathöfn á Hvanneyri sagði talsmaður stjóm- ar Verkamannabústaða í Andakíls- hreppi, Ríkharð Brynjólfsson, að þetta hús væri 110 fm að stærð og kostaði með fullfrágenginni lóð tæplega 4 milljónir kr. Uttektar- menn höfðu orð á því, að frágangur væri allur óvanalega góður. Húsið er úr timbri, verktaki var Pétur Jónsson húsasmíðameistari á Hvanneyri. Það er einangrað með 20 cm steinull í lofti, 15 cm stein- ull á veggjum og þreföldu gleri í gluggum. Allar innréttingar em mjög snyrtilegar. Fyrr á árinu hafði verið flutt í fyrsta húsið, sem byggt er á þessum grundvelli í hreppnum. Það hús er í Bæjarsveit. Hinu megin við götuna á Hvann- eyri eru grunnar að tveim einbýlis- húsum, 130 fm að stærð. Áætlaður afhendingartími þessara húsa er 1. október 1987. Á meðan viðstaddir dvöldust í húsinu var verið að reisa veggi annars nemendabústaðarins, sem Morgunblaðið skýrði frá fyrr í haust. Einnig risu sperrur sama dag á húsi ísunga hf. Þessar byggingar eru nánast einu framkvæmdimar í Borgarfirði í ár og ef miðað er við fólksíjölda, eins og oft er gert, samsvarar þetta að unnið hefði verið við 1370 verka- mannabústaði í Reykjavík á þessu ári. D.J. Líkan af Hall- grímskirkju í SAMRÁÐI við byggingarnefnd Hallgrímskirkju hefur verið gert lítið likan af kirkjunni, sem steypt er i tin og silfurhúðað. Hæð tumsins er ca 13 cm og önnur mál eftir því. Á fyrstu eintökunum er merki 200 ára afmælisnefndar Reykjavíkur. Þessi eintök em nú til sölu á vegum Kvenfélags Hallgrímskirkju, í skrifstofu Hins íslenska Biblíufélags og hjá nokkr- um minjagripaverslunum. Dregið í happ- drætti Kaldár í Hafnarfirði DREGIÐ var í happdrætti Lionessuklúbbsins Kaldár í Hafnarfirði föstudaginn 5. des- ember sl. Vinningurinn, Subaru Coupe bif- reið árgerð 1987, kom á miða nr. 263. Vinningsnúmer er birt án ábyrgðar. 4

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.