Morgunblaðið - 10.12.1986, Page 72

Morgunblaðið - 10.12.1986, Page 72
/MENN /MÖNNUM MIÐVIKUDAGUR 10. DESEMBER 1986 VERÐ í LAUSASÖLU 50 KR. Deila beitningarmanna og útgerðar- manna í Kef lavík harðnar: V erkf alls ver ðir hirtu fjölda bjóða Eigandinn kærði þjófnað til lögreglunnar MIKILL hiti var í gær kominn í kjaradeilu beitningarmanna og útvegs- manna i Keflavik og nágrenni. Beitningarmenn tóku i sina vörslu 47 bjóð af vörubíl fyrir utan heimili Garðars Magnússonar, útgerðar- manns, þar sem þeir töldu að verkfallsbrot hefði verið framið er þau voru beitt. Garðar var ekki heima er bjóðin voru tekin og kærði hann þjófnað á þeim til lögreglunnar. Sáttafundur í deilu þessari hófst á miðnætti i gær. Verkfallsverðir beitningarmanna tóku 47 bjóð af vörubíl Garðars Magnússonar, útgerðarmanns Boða GK, fyrir framan heimili hans í gærkvöldi. Fyrr hafði hann reynt að koma þeim um borð í bátinn, en •j*_A'erkfallsverðir hindruðu þá ætlan. Ók hann að svo búnu heim með bjóð- in á vörubíl, en beitningarmenn fylgdu honum eftir og urðu sér út um vörubfl og tóku bjóðin í sína vörslu. Þau eru nú geymd fyrir utan hús Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis. Beitning- armenn töldu að framið hefði verið verkfallsbrot með beitningu þessara bjóða og útgerðarmaðurinn hafi fengið menn til að beita bjóðin á fölskum forsendum. Garðar Magnússon sagði í sam- við Morgunblaðið, að þessi atburður væri rétt eins og hver ann- ar þjófnaður og ætti ekkert skylt við verkfallsvörslu. Beitningarmenn hefðu hindrað sig í að koma bjóðun- um í borð um bátinn án þess að hafa til þess nokkum rétt. Hann hefði þá haldið heim og farið á fund útvegsmanna til að ræða hvað gera skyldi. Er hann hefði komið heim, hefði allt verið horfið, 47 bjóð, og ekkert annað að gera en að kæra þjófnað. Hann sagði að bjóðin hefðu verið beitt í beitningarskúr sínum og ekkert hefði verið athugavert við Helztu kröfur beitningarmanna eru að réttur þeirra til launa í veik- indum eða vegna slysa verði sá sami og hjá landverkafólki, kauptrygging verði samsvarandi 13 setningum á mánuði, en hver setning samsvarar 8 bjóðum. Þeir vilja fá hækkun á greiðslu fyrir hvem bala úr 375,60 í 440,20 krónur, hvort tveggja með orlofi. Halldór Ibsen, framkvæmdastjóri Útvegsmannafélags Suðumesja, sagði í samtali við Morgunblaðið, að útvegsmenn vildu að þeir tælqu laun samkvæmt hlut eins og aðrir, sem lifðu af þessum veiðum. Við það öðluðust þeir sömu fríðindi og sjó- menn. Það vildu beitningarmenn ekki fallast á og heldur vera í ákvæðisvinnu en með réttindi fast- ráðins fólks. Sjá bls. 28. Morgunblaðið/Bjöm Blöndal Verkfallsverðir flytja bjóðin af vörubU Garðars Magnússonar, útgerðarmanns, yfir á eigin vörubíl fyr- ir utan heimili Garðars á ellefta tímanum í gærkvöldi. Mikil fundahöld sjálfstæðismanna um Borgarspítalann: Ákvörðun um sölu spítal- ans tekin imian fárra daga það. MIKIL fundahöld voru í gær um fyrirhugaða sölu Borgarspítal- ans. Fundur var með starfsfólki Borgarspítalans, þingmönnum Reykjavíkur og borgarfulltrúum, þar sem starfsfólk mótmælti fyr- irhugaðri sölu spítalans. Að sögn Daviðs Oddssonar borgarstjóra verður ákvörðun um framtíð spftalans tekin innan fárra daga. Þingflokksfundur sjálfstæðis- manna var haldinn í gærkvöldi þar sem hugmyndir um sölu spitalans voru ræddar og verður annar fundur haldinn í dag. Sam- kvæmt heimildum blaðsins munu sumir sjálfstæðismenn vera andvígir sölunni og enn aðrir vilja fresta ákvörðun málsins um a.m.k. ár. Miklar umræður urðu á fundi með starfsfólki Borgarspítalans, þing- mönnum og borgarfulltrúum. Ólafur Þ. Jónsson, formaður læknaráðs Borgarspítalans sagði að enginn þeirra er tóku til máls hefði verið meðmæltur sölu spítalans, nema Ragnhildur Helgadóttir heilbrigðis- ráðherra. Fundur var haldinn í fulltrúaráði Sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík í gær og mættu Davíð Oddsson og Ragnhildur Helgadóttir á fundinn Þorsteinn Pálsson formaður Sjálfstæðisflokksins: Ný kynslóð í ríkisstjóm fyrir sjálfstæðismenn ÞORSTEINN Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði í beinni útsendingu í Stöð 2 í gærkvöldi, að færi hann með forystu í flokknum við myndun ríkisstjórnar að loknum þingkosningum myndi ný kynslóð manna skipa ráðherraembætti að hálfu sjálf- stæðismanna. Þá sagðist hann ætla að breyta starfsháttum á * þann veg, að hann myndi sjálfur gera tillögur um menn í embættin. Þorsteinn Pálsson sagði, að það hefðu orðið kynslóðaskipti í for- ystu Sjálfstæðisflokksins. Það væri eðlilegt, að það yrðu fleiri fulltrúar nýrrar kynslóðar í ríkis- stjóm fyrir flokkinn en nú er, þegar hann gengi næst til stjóm- armyndunar. Það væri ljóst, að einhveijir af núverandi ráðherrum flokksins yrðu að víkja. Þorsteinn sagði, að það myndi að sjálfsögðu ráðast af því, hvaða ráðherraembætti flokkurinn fengi í sinn hlut, hvemig tillaga sín yrði. Hann minnti á, að þingflokk- ur sjálfstæðismanna hefði síðasta orðið um ráðherraefni flokksins. Hann ætlaði á hinn bóginn að breyta um starfshætti frá því, sem verið hefði undanfarin ár og taka að nýju upp þá skipan, að formað- ur flokksins legði ákveðna tillögu um menn fyrir þingflokkinn. Hann taldi ekki tímabært að nefna nokkra einstaklinga. og kynntu fyrirhugaðar söluhug- myndir. Engar samþykktir voru þó gerðar á fundinum, en í fulltrúaráð- inu kom fram andstaða við hug- myndimar í fyrradag. Fundur var haldinn í þingflokki Sjálfstæðisflokksins í gærkvöldi. Fundurinn hófst klukkan níu og stóð fram yfir miðnætti, og verður annar fundur haldinn í dag. Að sögn Ragn- hildar Helgadóttur heilbrigðisráð- herra voru málin rædd vandlega. Morgunblaðið/Þorkell Mjög fjölmennur fundur var haldinn í Borgarspítalanum í gær með starfsfólki spítalans, ráðherrum, þingmönnum og borgarfulltrúum. Ágfreiningfur tefur talninefu verulesfa ísafirði: ^ ^ TALNING atkvæða I próflqöri Alþýðuflokksins á Vestfjörðum var enn ekki hafin á miðnætti í nótt vegna ágreinings í kjödæmisráði. Þó var búist við að talning hæfist I nótt. Meginágreiningsefnin munu tvö. Deilt er um 12 atkvæði frá Hólmavík, sem stuðningsmenn Sighvats Björg- vinssonar telja að hljóti að hafa verið greidd eftir kjördag og 28 atkvæði frá Bolungarvík, sem menn Sighvats segja að greidd hafi verið af mönnum flokksbundnum í öðrum flokkum. Baráttan milli Sighvats og Kar- vels Pálmasonar er mjög tvísýn. Um 1300 manns greiddu atkvæði í próf- kjörinu, en í síðustu kosningum fékk Alþýðuflokkurinn 903 atkvæði. Úlfar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.