Morgunblaðið - 14.12.1986, Síða 52
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 1986
52
Tími hetjulund-
ar og hugleysis
„Grágæsamóðir“
Békmenntir
Jóhanna Kristjónsdóttir
Régine Deforges: í blíðu og
stríðu - stúlkan á bláa hjólinu 2
Þýðandi: Þuríður Baxter
Útg. ísafoldarprentsmiðja h.f
NÚ heldur áfram að segja frá
frönsku stúlkunni Leu og fjölskyldu
hennar, sem Frakkland hefur verið
hemumið af Þjóðverjum. Þessi bók
spannar árin 1942-1944. Frönsku
andspyrnuhreyfingunni hefur vaxið
•fiskur um hrygg og margir ungir
menn og konur sýna hugdirfsku í
skiptum við herraþjóðina þýzku og
grimmd hemámsliðsins vex að
sama skapi. Gyðingaofsóknirnar
em löngu hafnar, en það er varla
fyrr en um þessar mundir, að áreið-
anlegar og trúanlegar fréttir fara
að berast um þær.
Þrátt fyrir, að mjög er að fjöl-
skyldu Leu kreppt, nýtur hún þó
sambands systurinnar Francoise við
þýzkan foringja. Honum hefur hún
alið barn og þau dreymir um að
geta fengið leyfi til að giftast, Leu
til mikillar gremju, sem leggur fæð
á allt sem þýzkt er af sínu alkunna
offorsi. Auk þess hefur einn föður-
bróðir hennar gengið til liðs við
Þjóðverja. En skortur og hrelling
ýms konar er óhjákvæmileg og
kunningjar og vinir hverfa langtím-
um saman og kemur það Leu í
góðar þarfir að eiga að vin sinn og
elskhuga sinn Francouis Tavernier
að, sem hún veit að vísu ekki ná-
kvæmlega hvaða hlutverki gegnir.
Hann á, að einhveiju leyti hylli og
traust Þjóðveija, en ýmsar gerðir
hans benda til að hann sé þeim
ekki trúr.
Það er meira um að vera í þess-
ari bók en hinni fyrri, Lea tekur
virkari þátt í andspymunni og hin
veikbyggða Camille, reynist sterk-
ari, þegar á reynir en nokkum hafði
órað fyrir. Lýsing Regine Deforges
á Camille er skýr, en eftirminnile-
gusta mannlýsing bókarinnar
fannst mér vera homminn og rithöf-
undaspírann Rafhael Mahl. Hann
hefur margsinnis svikið landa sína
í hendur Þjóðveija og látið eins og
hann kærði sig kollóttan um afdrif
þeirra. Nú er hann sjálfur hand-
tekinn og til að kaupa sér frelsi á
hann að ljósta upp um þá and-
spymumenn sem hann þekkir í
fangelsinu. Það gerir hann að vísu,
en þegir sem fastast, þegar hann
áttar sig á að ein helzta hetja and-
spymumanna, múnkurinn Adrien
Delmas- annar föðurbróðir Leu -
hefur verið gripinn, en fangaverðir
átta sig ekki á hver hann er. Hann
geldur fyrir með hroðalegum dauð-
daga. En kannski ekki til einskis.
Höfundur fer ekki í launkofa með
það, að ótrúlega margir Frakkar
gengu til liðs við Þjóðveija á þessum
fyrri ámm stríðsins og hún telur
gefur á stundum ekki mikið fyrir
hetjulundina, sem þessir aðilar töldu
að lægi til grundvallar, að ekki sé
nú minnzt á „hugstjónir" þessara
manna. Það flýtur líka blóð um
síður þessarar bókar, en það gerist
eitthvað jákvætt líka, og söguper-
sónumar em farnar að kunna að
meta þær stundir sem gefast, þótt
fáar séu, til að njóta lífsins. Kannski
þarf fólk að horfast í augu við voð-
ann til að skilja og fínna gleði litlu
atburðanna. Stúlkan Lea er sem
fyrr aðalpersónan. Hún er alltaf
ráðvillt, þegar elskhuginn kemur á
vettvang, þótt hún gefí sig honum
Regine Deforges
á vald af miklum ákafa. Þó má
ekki viðurkenna, enn sem komið
er, hversu mikill og snar þáttur
hann er orðinn í lífí hennar. Kannski
þau nái almennilega saman í næsta
bindi. Lea þessarar bókar stendur
á nokkmm tímamótum. Hún er
ekki lengur áhyggjulausa smástúlk-
an, en hún hefur ekki náð þeim
þroska sem margir ættu að öðlast
við slíka lífsreynslu. Sveiflur hennar
í gleði og sorg em ekki jafn sann-
færandi og fyrr, enda leggur
höfundur einhverra hluta vegna
minni rækt við hana og meira kapp
á að lýsa framvindu stríðsins. Og
gerir það ágætlega, þótt Qarri sé
því að hér sé á ferðinni stríðsbók í
venjulegri merkingu orðsins.
Þeir sem komust í kynni við
fyrsta bindi þessarar þríbókar munu
sjálfsagt taka þessari með þökkum,
enda nægar ástæður til. Þýðing
Þuríðar Baxter er lipur í öllum
meginatriðum. Hún mætti þó að
skaðlausu hafa meiri tilbreytingu í
öllum „hrópum“ Leu. Og á stundum
er einhver þýðingarkeimur af bók-
inni, þótt sjálfsagt sé að taka fram
að fleira er vel gert en hitt.
Erlendar bækur
Siglaugur Brynleifsson
Konrad Lorenz: Das Jahr der
Graugans. Photos von Sybille
und Klaus Kalas. R. Piper & Co.
Verlag 1985.
Þetta er mynda- og textabók um
gæsir. Þetta er ekki vísindarit held-
ur samantekt í myndum og texta
og ástæðan er einskær ánægja yfír
viðkynningu fuglaskoðarans
Konrads Lorenz við þá geðþekku
og vitm fugla, gæsimar, grágæs-
imar. Veraldarsaga gæsanna er á
margan hátt merkileg. Aristoteles
getur þeirra í Historia animalium
(anser cinereus og anser segetum).
Fundist hafa leifar þessara fugla í
uppgreftri Tróju II og í leifum
byggðra bóla frá forsögulegum
tímum í Sviss. Á Ítalíu er gæsa
snemma getið og þá í sambandi við
oddaflug þeirra í norðurátt snemma
vors og viðkomu í nýsánum ökmm,
þar sem þær þóttu ekki auðfúsu-
gestir. Plinius getur þeirra í nátt-
úrasögu sinni svo og Plautus. I
Illionskviðu er þessara fugla getið.
Frægasti atburður í veraldarsögu
gæsanna er tvímælalaust sá, þegar
gæsir Júnó björguðu Rómaborg
með gargi sínu.
í umsátri Galla um Róm 390 f.
Kr. hafði Göllum nær tekist að klífa
hamra hjá Carmenta eina stjömu-
bjarta nótt. Varðmenn Rómveija
urðu einskis varir, ei heldur ágætir
varðhundar, en helgar gæsir Júnó,
sem vom vel aldar, þrátt fyrir kom-
skort vegna umsátursins, tóku að
slá vængjum og garga í þann mund
sem fyrsti Gallinn var að hefja sig
upp á vamarvegginn. Þetta varð
til þess að Marcus Manlius vakn-
aði, greip sverð sitt og skjöld og
tókst að hrinda fyrsta Gallanum af
múmum.
Virgilíus getur þessa atburðar í
Eneasarkviðu (8. lína 655 og
áfram). Fleiri höfundar minnast
þessa.
Saga tamdra gæsa er mjög göm-
ul, myndir af gæsum em til frá
dögum 4. konungsættar í Egypta-
landi. Þeirra er einnig getið sem
heilagra dýra í Egyptalandi. Sæl-
kerar í Róm komust snemma uppá
að neyta kjötsins og ekki hvað síst
lifrarinnar, en gæsalifrakæfa er
talin einhver mesta krás sem um
getur. Frægasta Paté de foie gras
er gerð í Elsass.
Lorenz skrifar í inngangi, að
bókin hafí verið tilbúin, þegar hann
hóf samantekt hennar, röðun mynd-
anna lá fyrir og auðveldast var að
skrifa textann við lífsháttalýsingu
fuglanna sem birtist í myndunum.
Hér segir frá Ölmu og Markúsi og
þremur ungum þeirra, Flikku, Astro
og Árel, útungun, uppvexti og öllum
lífsháttum. Fjöldi annarra gæsa
koma við sögu. Það kemur skýrt
fram í textanum að tilfínningalíf
þessara fugla, svo sem tryggð og
næmi, virðist algjörlega meðfæddir
eiginleikar og leiðbeiningar foreldr-
anna í uppvexti verða til þess að
vekja meðfædda eiginleika og
„kunnáttu" Flikku, Astro og Árels.
Það kemur skýrt í ljós í texta og
myndum að ungamir skríða ekki
úr eggjunum sem einhverskonar
„tabula rasa“. Meðvitundin og hæfí-
leikinn til aukinnar meðvitundar er
þegar „skapaður".
Lýst er ástarsorg eins gassans,
sem stóð misseri eða lengur. Það
er furðulegt hversu Lorenz hefur
tekist að fylgjast með lífshræring-
um þessara fugla, en til þess þarf
meira en litla athyglisgáfíi og ein-
staka þolinmæði.
Lorenz segir í eftirmála að nú
sé svo komið að meginhluti manna
í þróuðum ríkjum heimsins hafi
meira og minna slitnað úr öllu sam-
>
LEITIN AÐ
G m m
ENDAR HJÁ ESSO
Á bensínstöðvum ESSO fast ódýrar en vandaðar
vörur af ýmsu tagí, sem eru tílvaldar I jólapakkann.
Þar fæst líka jólapappír ásamt merkispjöldum og
margs konar vamíngí tíl jólaundírbúníngs s.s. Iítaðar
perur í útíseríuna, framlengíngarsnúrur og öryggi,
að ógleymdum reykskynjurum og slökkvítækjum.
TVEIR KERTASTJAKAR
MEÐ KERTUM.
VÖNDUÐ SÍMTÆKI
MEÐ TÓNVALI
STEREÓ ÚTVARP
VHS MYNDBAND
3 KLUKKUSTUNDIR
Komdtt víð á næstu bensínstöð ESSO og gerðti góð kaup.
Athugaðu að það er opíð bæðí á kvöldín og um helgar.
Olíufélagið hf