Morgunblaðið - 14.12.1986, Síða 76

Morgunblaðið - 14.12.1986, Síða 76
76 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 1986 -'V Skriðjöklarnir. Á myndina vantar Díónýsos. Morgunbiaðia/Bjami Bonnie Tyler asamt gítarleikaranum sem ekki var. Á efri myndinni sjást Richard Scobie og Sigurður Gröndal í léttri sveiflu. Þrátt fyrir myndina hértil hliðar er Ijóst að Rikshaw veður engan reyk. Bót er hins vegar í máli þar sem að íslensku hljómsveitirnar voru fylli- lega 1.000 króna virði og verðum við að vona að þær troði sem oftast upp. Meira af slíku! Ekki er hægt að Ijúka þessu spjalli án þess að geta kynnisins, en það var enginn annar en Pétur Steinn, hinn almagnaði útvarpsmaður Bylgjunnar. Stóð hann sig með slíkri prýði að varla verða haldnir aðrir tónleikar á næstunni án hans. A.M. Foringjarnir með Eika Hauks í heimsókn. Morgunblaðið/Helena Stefánsdóttir það vægast sagt fárán- legt að sjá þessa lúa þykjast syngja bakraddir, sem allir vissu að voru kvenraddir á segulbandi. Bjarni Ijósmyndari gerði ítrekaðar tilraunir til þess að finna segulbandið, sem um var að ræða, en það tókst því miður ekki. Ann- ars hefðum við birt mynd af því. Hérmeð er skorað á Bonnie Tyler og hennar nóta að halda sig sem fjærst skerinu meðan svona óþverrabrögð eru viðhöfð. sem þeir fluttu nú var toppefni og rík ástæða til þess að hlakka eftir plöt- unni. Víkur nú að Bonníar þætti Tyler. Það var nú Ijótan! Hnátan getur að vísu sungið sæmilega, en ég hélt að þeir dagar væru liðnir að reynt væri að bjóða fólki upp á lát- bragðsleik við undirleik segulbands. Rétt er að Bonnie hafi sungið þarna um kvöldið, en hljómsveit- in gerði ekkert annað en að hreyfa varirnar. Var VÆRI þetta ekki jafn- ábyrgt blað og raun ber vitni hefði maður freistast til þess að láta Bonnie-Bömmer vera fyrirsögn þessar- ar greinar. Föstudag- inn 6. voru nefnilega haldnir tónleikar í Laugardagshöll, þar sem Bonnie Tyler átti að vera aðalnúmerið. Svo var alls ekki. Þeir sem áttu kvöldið voru nefnilega íslensku hljómsveitirnar For- ingjarnir, Skriðjökl- arnir og Rikshaw. Það voru Foringjarnir sem hófu tónleikana með fautaþéttu rokki og kom- ust áheyrendur fljótt í stuð þrátt fyrir að hljóm- burður hefði mátt vera betri í upphafi. Merkilegt má heita hvað þessi hljómsveit hefur náð mik- illi samstillingu, þegar til þess er litið að hún er aðeins nokkurra mánaða gömul. Eiríkur Hauksson heiðr- aði Foringjana með nærveru sinni undir lokin á dagskrá þeirra, en þá rokkaði hann með þeim við mikinn fögnuð áheyr- endanna og luku þeir því með iaginu „The Final Countdown", sem Europe hefur gert frægt að und- anförnu. Að leik Foringjanna loknum skriðu Skriðjöklar inn á sviði. Hljómsveitar- stjóri sýndist mér nú reyndar vera lávarðurinn af Alkóhóli, en það kom ekki að sök, þess líflegri var flutningurinn. Fyrir ut- an að taka slagara eins og „Hestinn", minntu þeir einnig á sígild lög eins og „Manjana" og tóku þá áheyrendur allir undir sem einn maður væri. í raun uppgötvaði maður þar pg þá að rokktónleikar á ís- landi eru bara húmbúkk. Þetta eru allt sveitaböll. Síðasta íslenska hljóm- sveitin var Rikshaw og í raun hefði hún átt að vera síðasti dagskrárliðurinn. Piltarnir í Rikshaw sýndu það og sönnuðu að þeir eru komnir á atvinnu- mannastigið með fum- lausum leik og sviðsfram- komu. Þó mætti Richard Scobie, söngvarinn, sækj- ast meira eftir jarðsam- bandi við áheyrendur. Eftirtektarvert var að heil hrúga af aðstoðarfólki var með Rikshaw á sviði, bak- raddir, saxófónleikari. aðstoðarhljómborðsleik- ari, bongóleikari og hvað ekki. Þeim var flestum of- aukið. Líklegast hefði nægt að vera með saxist- ann og annan stýrimann á hljómborð. En burtséð frá hljóð- færaleiknum er auðheyri- legt að þeim hefur líka farið fram í lagasmíðum. Ekki svo að skilja að þeir hafi sent frá sér eitthvað rusl áður, en nýju lögin rokksíðan UMSJÓN ANDRÉS MAGNÚSSON U
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.