Morgunblaðið - 14.12.1986, Síða 86

Morgunblaðið - 14.12.1986, Síða 86
86 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 1986 Jólasveinabók AB Hernaðar stefna Sovétríkjanna ^ ÚT ER komin jólasveinabók njá AB eftir Iðunni Steins- dóttur, myndskreytt af Búa Knstjánssyni. I fréttatilkynningu frá AB segir um íslensku jólasveinana: „Það gerist margt sögulegt þegar þeir leggja af stað til byggða með pok- ana úttroðna af gjöfum. Þeir eru komnir í rauð föt sem eru fínni heldur en mórauðu ullarflíkumar sem þeir gengu í í gamla daga. Innst inni eru þeir samt sjálfum sér líkir. Kjötkrók dreymir um hangikjöt, Skyrgám um skyr, Bjúgnakræki um bjúgu og þannig mætti lengi telja. Þeir eru hættir að hrekkja — en stundum gleyma þeir sér.“ Bókin er 69 bls. að stærð. Prent- un og bókband annaðist Prent- smiðjan Oddi. Iðunn Steinsdóttir. ÖRYGGISMÁLANEFND hefur gefið út rit, sem ber heitið Hern- aðarstefna Sovétríkjanna eftir Þórð Ægi Óskarsson stjóm- málafræðing. í ritinu er rakin söguleg þróun hernaðarstefnu Sovétríkjanna m.a. með hliðsjón af þróun kjarnorkuvígbúnaðar. Gerð er grein fyrir þeim megin- atriðum sem móta sovéska hernaðarstefnu en þær em hug- myndir Sovétmanna um hernað, marx-leninisk hugmyndafræði, landfræðileg lega Sovétríkjanna, söguleg reynsla og hagkerfið. Einnig er greint frá stofnunum sovéska þjóðfélagsins, sem móta og framkvæma hemaðarstefnuna. I ritinu er jafnframt að finna yfirlit um herstyrk Sovétríkjanna og rætt um framkvæmd hemaðarstefnunn- ar á alþjóðavettvangi. í því sambandi er rætt um Varsjárbanda- lagið, Kína, vopnasölu og afvopnun- armál. Rit þetta er liður í rannsóknar- verkefnum á vegum nefndarinnar um þann þátt alþjóðamála sem snýr að samskiptum austurs og vesturs. Fyrsta ritið í þessari verkefnaröð kom út á árinu 1984 og tók til grundvallaratriða í stefnu og þróun kjamorkuvígbúnaðar risaveldanna. Það verk sem nú birtist um hemað- arstefnu Sovétríkjanna er annað ritið en auk þess hafa verið gefnar út ritgerðir sem falla undir þennan lið verkefna. Ritið er 139 bls. að stærð. Það er til sölu í bókaverslunum en má einnig fá gegn póstkröfu frá skrif- stofu Öryggismálanefndar, Lauga- vegi 26. (Fréttatilkynning). Svarti riddarinn eftir Alistair MacLean " SVARTI riddarinn, ný bók eftir Alistair McLean er komin út hjá Iðunni. Um efni bókarinnar segir m.a. í kynningu forlagsins: „Auglýst er eftir vísindamönnum til starfa er- lendis. Sérfræðiþekkingar á sviði eldflaugatækni er krafist og óvenju há laun í boði. Vonin um skjótan gróða hefur sín áhrif. Átta menn eru ráðnir, en hverfa síðan spor- laust ásamt eiginkonum sínum . .. En síðasti umsækjandinn er ekki alvegjafn grandalaus og hinir fyrri. John Bentall er sérfræðingur á sviði eldflaugatækni, en hann er einnig sérfræðingur í ýmsu öðru sem kem- ur eldflaugum ekkert við.“ Sigurður G. Tómasson þýddi bók- ina. AFBURÐA TÆKNI SEM SPARAR ÞÉR TÍMA, FÉ OO FYRIRHÖFN Undanfarin ár hafa VICTOR tölvurnar skapað sér virðingarsess ■ á íslenskum markaði. Þær em hraðvirkar, ömggar og tæknilega fullkomnar. Reynslan hefur sýnt að þær eru vandaðar, sterk- byggðar og hafa lága bilanatíðni. Mikið framboð er af tölvum á markaðinum sem virðast líkar við fyrstu sýn. Gjarnan em gylliboð auglýst sem auðvelt er að láta ginnast af. Við ráðleggjum viðskiptavinum að kynna sér vandlega VICTOR VPC II hvað á boðstólum er, til að kaupa ekki köttinn í sekknum. Reynslan sýnir að ódýmstu tölvurnar em yfirleitt ekki ódýrastar þegar upp er staðið. Einar J. Skúlason er gamalgróið fyrirtæki sem starfað hefur í hartnær hálfa öld. Fyrirtækið hefur á að skipa reyndu og vel menntuðu starfsfólki, sem kappkostar að veita viðskiptavinum trausta og góða þjónustu. VICTOR V286 Síðastliðið vor kom á markað- inn ný og endurbætt tegund einmenningstölva frá Victor, VPC II. Fyrirtæki, skóiar og einstaklingar tóku Victor VPC II opnum örmum og hafa á þessum stutta tíma u.þ.b. 500 tölvur verið teknar í notkun hérlendis. Victor VPC II ein- menningstölvan er mjög vel útbúin, hún hefur vinnsíuminni í fullri stærð, þ.e. 640 kb, og er hraðvirkari. Victor VPC II er IBM PC samhæfð, sem þýðir að úrval staðlaðra forrita er mikið. Hún er með tveimur lágum disklingadrifum, 14" skjá, graf- ísku skjákorti, raunvemlegum 16 bita örgjörva (Intel 8086, sem gerir vélina hraðvirkari), MS-DOS 3.1. stýrikerfi, GW- BASIC, 3 vönduðum handbók- um, endurstillingarhnappi og innbyggðum rað- og hliðar- tengjum. Victor VPC II tekur lítið pláss á skrifstofunni en er gífurlega öflug. Victor V286 er öflug einkatölva með mikið geymslurými. For- senda þess er 16 bita örgjörvi af gerðinni Intel 80286 og Winchester diskur sem er ým- ist 20 eða 40 MB. Intel 80286 hefur tiftíðnina 6 eða 8 MHz sem gerir Victor V286 jafn af- kastamikla og raun ber vitni. Victor V286 er búin endurstill- ingarhnappi til að tryggja ör- yggi gagna á diskum. Victor V286 hentar mjög vel sem móðurtölva í töivuneti. í Victor V286 er það innbyggt sem í öðrum tölvum telst aukabún- aður. Victor V286 hentar vel þar sem gögn eru fyrirferðar- mikil. Val á Victor V286, af- burðatölvu, leiðir til aukinna afkasta og hagkvæmni á skrif- stofunni. i—mim w v/sa MHH Hringið eða komið á Grensásveg 10 og við veitum góðfúslega ailar nánari upplýsingar. VKnvfi Einar J. Skúlason hf. Grensásvegi 10, sími 68-69-33 &
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.