Morgunblaðið - 21.12.1986, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. DESEMBER 1986
27
:
©
Við getum á svo margan hátt látið aðra fínna að hann eða
hún hafí veitt okkur ánægju sem við viljum gjarnan viður-
kenna og þakka fyrir. Sjálf þurfum við af og til að fá lof fyrir
» vel unnið verk, og það sama á við um aðra. Á það bæði við
um okkar nánustu og þá sem eru okkur minna tengdir. Ég
þekki mann sem ég hef alltaf metið mikils, meðal annars vegna
þess að hann hefur alltaf kunnað að hrósa og hvetja, til að
gleðjast með öðrum. En hann hefur einnig, þegar tilefni var
til eða nauðsynlegt, getað borið fram heilbrigða og skynsam-
lega gagnrýni, sem var enn áhrifaríkari fyrir þá sök að hann
kunni að meta það jákvæða.
Vingjamleg hrósyrði gætu ef til vill bætt hversdagsleg sam-
skipti manna, sem annars einkennast svo af gagnrýni, öfund
og ólund. Sannarlega umhugsunarvert, ekki satt?
Þar sem þetta er síðasta Dyngjan fyrir jól, vil ég nota tæki-
færið og óska öllum lesendum Dyngjunnar nær og fjær,
gleðilegra jóla með kveðju, Jórunn
Ætli við höfum ekki flest okkar einhverntíma lent
í því að hafa lagt okkur öll fram við að ljúka ein-
hveiju verkefni eins vel og vandlega og okkur var
auðið. Það hefur vissulega veitt okkur ánægju, en ekki hefði
nú skaðað að fá lof og hrós fyrir vel unnið verk frá öðrum —
sem lét á sér standa. Við emm nefnilega öll mjög spör á hrós-
yrðin, og erum fljótari að sjá það sem miður fer. Það góða sem
við getum sagt hvert um annað er þyngra í vöfum en gagnrýnin.
Að sjálfsögðu eigum við ekki í samskiptum okkar við aðra
að reyna að stofna til samtaka um gagnkvæma dýrkun, enginn
hefur áhuga á því. Hinsvegar hafa svo til allir þörf fyrir hrós
eða uppörvun stöku sinnum að loknu vel unnu verki. Sumir
eru haldnir þeim misskilningi að hrós og smjaður séu eitt og
það sama, og eru því tregir til að hrósa öðrum, því fæstir
kæra sig um smjaður.
Þessi tregða birtist ljóslega í flestum okkar samskiptum.
Er okkur ekki oft gjarnt í samskiptum okkar við bömin okkar
að einblína á það neikvæða, skamma og ávíta ef eitthvað var
gert rangt eða alls ekki gert. Eða hefur ekki maki okkar feng-
ið homauga eða fylusvip oftar en einu sinni fyrir það eitt að
eitthvað smáatriði var ekki í lagi, þótt okkur hafí alveg láðst
að minnast alls hins, sem vissulega átti skilið hrós og jákvæða
umijöllun.
Ef eitthvað hefur farið í taugamar á okkur fínnst okkur
alveg nauðsynlegt að láta óánægju okkar í ljós við fyrsta tæki-
færi. Ef hinsvegar eitthvað hefur glatt okkur höfum við hljótt
um það og geymum ánægjuna með sjálfum okkur.
. ÆSISPENNANDI
FOTBOLTASPIL fyrir aua
FJOLSKYLDUNA
1-5 CETA SPILAÐ í EINU
auur texti auk leiðbein/nca
A ISLENSKU
„SIGURVEGARINN"
œS S*ha «1“ ^ lancfsftðsins
og Man. Utd., þetta skemmtilega spil.
DREIFINGARSÍMI 24711.
KYNNING í DAG!
Spilið verður kynnt í
Nýja Bæ í dag milli kl. 1 og 6.
Þeir sem kynna eru m.a. m
landsliðsmennirnir
ÞORGRÍMUR ÞRÁINSSON,
s SÆVAR JÓNSSON OG
| GUÐNI BERGSSON.
! ÖÍNVIBÆR