Morgunblaðið - 31.12.1986, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. DESEMBER 1986
15
breyta þessari skipan mála.
Hins vegar er nú um helmingur
allra utanríkisviðskipta okkar við
EB, síðan Spánn og Portúgal gengu
í bandalagið, og okkur er mikilvægt
að halda þeim viðskiptum og efla
þau án þess að missa í nokkru rétt-
indi yfír fiskveiðilögsögu okkar.
Fyrir tveimur árum varð deila milli
íslands og EB þegar aðilar innan
EB vildu tengja saman viðskipta-
fríðindi og fiskveiðiréttindi þannig
að saltfiskur og skreið frá Islandi
yrðu ekki lengur tollfrjáls nema
togarar frá bandalagsríkjum fengju
fiskveiðiréttindi á Islandsmiðum.
Deiluna tókst að leysa án þess að
láta í té fiskveiðiréttindi í lögsögu
okkar, en víst er að við þurfum að
vera vakandi yfír hagsmunum okk-
ar í þessum efnum.
í annan stað hefur verið sam-
þykkt áætlun sem stefnir að við-
skiptalegri sameiningu 12 aðild-
arríkja EB fyrir árið 1992. Þessi
sameining mun væntanlega styrkja
samkeppnishæfni evrópskra fyrir-
tækja og hafa áhrif á viðskipti
utanaðkomandi aðila við þessa risa-
stóru viðskiptaheild eða markað.
Jafnframt mun hún væntanlega
leiða af sér pólitískar breytingar
sem margar hljóta að vera ófyrir-
séðar. Samvinna Evrópuþjóða á
sviði vísinda og tækni er þegar
hafín með EUREKA-áætluninni en
Islendingar hafa einmitt nýlega
gerst aðilar að því samstarfí.
Islendingar verða sem Evrópu-
þjóð að vaka yfír samskiptum sínum
við aðrar Evrópuþjóðir á tímum
hraðfara breytinga og þurfa að
gæta viðskiptahagsmuna og ann-
arra hagsmuna við markaðsheild
sem er í örri þróun.
6
Orðið kirkja kemur af gríska orð-
inu ekklesia sem þýðir hópur fólks
eða söfnuður. Lærisveinar Jesú
stofnuðu samfélag kristinna manna
sem þeir kölluðu kirkju. Þótt kirkjan
yrði síðar að stofnun, sem háði
valdabaráttu innbyrðis og við ver-
aldlega höfðingja, boðar hún þó enn
í dag þann boðskap sem hún gerði
í upphafi.
Sá boðskapur varðar ekki ein-
ungis breytni mannanna gagnvart
Guði en líka gagnvart öðrum mönn-
um, þ.e.a.s. hegðun manna í þvi
samfélagi þar sem þeir búa.
Jesús Kristur lét sig skipta bæði
andlega og veraldlega líðan
samtímamanna sinna og tók upp á
arma sína og umgekkst þá sem
fyrirlitnir voru af valdhöfum þeirra
tíma. Hann tók virka afstöðu í þjóð-
málum ef því var að skipta og þorði
að flytja boðskap sinn án tillits til
afstöðu valdhafa. Til þess kom hann
í heiminn.
Sú kirkja sem vill vera lifandi
meðal manna, vera hreyfíng en
ekki fyrst og fremst stofnun eða
hús hlýtur að þurfa að taka þátt í
því lífi sem samfélagið þekkir.
Prestur, sem flytur boðskap sem
hvorki skírskotar til né finnur við-
miðun við það líf sem söfnuður
hans reynir á hveijum degi, getur
átt á hættu að messa yfir tómum
bekkjum.
Kirkja sem er trú þeim boðskap
friðar og kærleika sem hún flytur
hlýtur að taka afstöðu gegn vígbún-
aði og ójöfnuði. Hún hlýtur að taka
pólitíska afstöðu gegn þeim öflum
sem virðast vilja bæði manninn og
lífríki jarðar feig. Hún hlýtur að
taka afstöðu með þeim sem minna
mega sín, hvar sem er og hvenær
sem er. Sú afstaða er ekki og á
ekki að vera flokkspólitísk, forsend-
ur hennar liggja skýrar í boðskap
kirkjunnar sjálfrar. Kirkja sem þor-
ir að standa við boðskap sinn verður
ekki brúður valdsins. Sú kirkja sem
tekur þá stefnu að verða virkari í
þjóðmálaumræðu hlýtur jafnframt
að eiga ríkara erindi til safnaðar
síns.
Með ósk um gleðilegt ár.
Guðrún Agnarsdóttir
■Hróóleikur og
JL skemmtun
fyrirháa semlága!
i'iÝrW
..............................................•• .................................................................................
r
m
llilÍllllllilSill
iiliiiilll
i)tM> ! .**■> «s-<, UW
ijiiiíV:;;:;
. ‘ ' . ■ ■' :!■
. .
YTTNYTT
JAZZBALLET
fyrir börn 5-6 ára
SKÍÐEROBIKK
LEIKFIMI
fyrir fullorðna
M'b^Se^s<
&*£«**■
ví ekki að heita
á sig heil-
brigðu nýju ári
við bestu að-
stæður á
íslandi?
Viö óskum öllum gleðilegs,
heilsuríks komandi árs um
leið og við þökkum fyrir
gömlu árin.
Innritun hefst 5.janúar
ísímum: 68- 77-01 og
68-78-01.
ENNARAR OKKAR ERU:
CornelíusCarter
Bjargey Ólafsdóttir ísl.m. í Aerobik
Hafdís Jónsdóttir
Ásta Sigurðardóttir ísl.m. í diskódansi
SóleyJóhannsdóttir
ENGJATEIGI 1,S:687701-687801
■ i 19 m IHs: i BR íí
iilil ■■■■1 19 [■■■■]
I lltJII HIISI
ið í Dansstúdíói Sóleyjarfögn-
um nýju ári í nýja húsinu okkar
að Engjateigi 1 við Sigtúnsreit.
Þar opnum við glæsilegustu
dans og líkamsræktarstöð
landsins 1 2. janúar 1 987.
aUa
IMÝJA HÚSINU SEM ER SAMTALS
1600 FM ERU:
4 stórirdanssalir
3 glæsilegir búningsklefar
2 gufuböð
Ljósbekkir
Nuddherbergi
Matsalur þar sem boðið verður upp á létta rétti
allan daginn.
, a\\öfi
MO- a
so