Morgunblaðið - 31.12.1986, Side 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. DESEMBER 1986
Breyttar aðstæður í sjávar-
útvegi og landbúnaði
Þó að gróandi sé í þjóðlífí og velmegun meiri en í annan
tíma eru víða óleyst viðfangsefni og vandamál sem bíða
úrlausnar. Þetta á ekki síst við í hinum rótgrónu fram-
leiðsluatvinnugreinum, landbúnaði og sjávarútvegi. Stöðug-
leiki í gengi, nýir viðskiptahættir með fisk í gámum,
kvótakerfi og breyttar neysluvenjur hafa breytt aðstæðum
bæði í landbúnaði og sjávarútvegi. Bændur, útvegsmenn
og sjómenn glíma því við margháttuð ný verkefni.
Öllum er ljóst að ótakmörkuð og óheft sókn í gullkistu
fískimiðanna umhverfis landið getur ekki átt sér stað. A
sama hátt dylst engum, að það er ekki unnt að halda áfram
að auka framleiðslu búvara á kostnað skattborgaranna
langt umfram það sem markaðurinn tekur við.
Kvótakerfið er aðferð til aðlögunar að markaðsaðstæð-
um. Auðvitað eru til fleiri leiðir og lengi má deila um
réttmæti þeirra viðmiðana, sem stuðst er við þegar kvóti
er ákveðinn. Þetta kerfí styrkir að sumu leyti þær byggð-
ir, sem í hlut eiga, en veikir þær að öðru leyti.
Kvótakerfi, hvort sem er í landbúnaði eða sjávarútvegi
veitir forréttindi. Meginágallinn er í því fólginn að kerfíð
hindrar jafna möguleika allra til atvinnustarfseminnar.
Þegar til lengri tíma er litið er því mikilvægt að menn fínni
leiðir er feli ekki í sér ágalla kvótakerfisins, en tryggi að
markmiðin náist um aðlögun að markaði vegna búvöru-
framleiðslunnar og sókn í samræmi við afrakstur auðlindar-
innar vegna fískveiðanna. En þá fyrst væri atvinnulífínu
og landsbyggðinni stefnt í tvísýnu ef menn ætluðu með
öllu að virða að vettugi lögmál markaðarins og náttúrunnar.
Hagsmunagæsla á erlendum
markaðssvæðum
En íslenskt atvinnulíf er ekki eyland. Þó að við íslending-
ar séum bæði fáir og smáir í samfélagi þjóðanna erum við
og verðum hluti af því samfélagi. Við erum meir háðir
milliríkjaviðskiptum en flestar aðrar þjóðir. Helmingurinn
af viðskiptum okkar er við Evrópubandalagið.
Það var því eðlileg og tímabær ákvörðun að opna nýja
skrifstofu sendiráðsins í Briissel í þeim tilgangi að vinna
að viðskiptahagsmunum okkar á þeim vettvangi. Hjá þvi
verður ekki komist að endurmeta og styrkja þau tengsl.
Við verðum að vera á varðbergi gagnvart því að útlending-
ar komist bakdyramegin inn í íslenska landhelgi. Hér eru
atvinnuhagsmunir við fiskvinnslu í húfí, Það er með öllu
ástæðulaust að flytja þá vinnu til útlanda. En ekki kemur
til álita að landhelgisréttindin komi til umræðu við hugsan-
legt endurmat okkar á tengslunum við Evrópubandalagið.
Á miklu ríður að okkur takist að varðveita og styrkja
markaðsstöðu okkar bæði í Evrópu og Ameríku. Það eru
því hagsmunir íslensks atvinnulífs að stjómvöld verði vak-
andi í hagsmunagæslu sinni á erlendum vettvangi. Nýja
skrifstofan í Briissel er ljós vottur um að verið er að stíga
ný skref í þessari hagsmunagæslu. Við eigum markvisst
að feta okkur áfram á þeirri braut.
Staðfesta í utanríkismálum
Lega Islands miðja vegu milli Evrópu og Ameríku kallar
á að við mótum markvissa stefnu í utanríkis- og viðskipta-
málum til þess að treysta sem best viðskiptalega og
stjómmálalega hagsmuni okkar. Aðildin að Atlantshafs-
bandalaginu og varnarsamstarfíð við Bandaríkin eru
gmndvallaratriði í því efni. Það var staðfesta íslendinga
en ekki undanlátssemi í afstöðu til mála á alþjóðavett-
vangi sem réði því að leiðtogar Bandaríkjanna og Sovétríkj-
anna völdu ísland til mikilvægra fundahalda á haustdögum.
Á taflborði leiðtoganna var tekist á um frið. Það er stórt
orð og við það bundnar miklar vonir. Okkar afstaða er sú
að kaupa ekki frið án frelsis og mannréttinda. Það er sam-
eiginleg afstaða lýðræðisríkjanna innan Atlantshafsbanda-
lagsins. Nú hefur Sakharov verið leystur úr einangmn.
Spumingin er sú, hvort þetta er til marks um undanhald
nýja Sovétleiðtogans eða hvort gera á þennan virta og
hugprúða baráttumann að einskonar sýnisblómi, sem draga
eigi athyglina frá raunvemleika hinnar sósíalísku harð-
stjómar.
Kirkjan og pólitíkin
Umræður um frið og afvopnun hafa eðlilega verið fyrir-
ferðamiklar í íslenskri þjóðmálaumræðu. Við eigum þar
sömu hagsmuni og aðrir. Þjóðkirkjan hefur í vaxandi
mæli tekið þátt í þessari umfjöllun. Friður, frelsi og mann-
réttindi em svo samofín boðskap kristinnar kirkju að
vandséð er, hvemig hún getur látið umræður um þau efni
eins og vind um eyru þjóta.
Vandi kirkjunnar er hins vegar sá, að hefðbundin friðar-
umræða hlýtur að tengjast gmndvallaratriðum íslenskrar
utanrikisstefnu, sem miðar að varðveislu friðar og sókn
fyrir frelsi og mannréttindum. En einmitt þar emm við
komin að pólitískum ágreiningsefnum. Það hefur ekki kom-
ið að sök fyrir kirkjuna, vegna þess að um þessi atriði
utanríkisstefnunnar er nú orðin svo víðtæk samstaða með-
al þjóðarinnar. Hinu er ekki að leyna að Þjóðkirkjan kann
að rata í erfiðleika ætli hún sér að gerast boðberi póli-
tískra skoðana, sem ágreiningur er um.
Að vísu getur kirkjan verið ákjósanlegur vettvangur
fyrir pólitíska hugmyndabaráttu séð frá sjónarhóli stjóm-
málaflokka. En hætt er við að það yrði á kostnað kristins
boðskapar, siðgæðisvitundar og mannúðar. Það yrði skaði
í augum allra þeirra, sem vilja hlú að þessum dýpri þáttum
í mannlegu samfélagi. Þótt stjómmálaumræðan sé mikil-
væg má hún ekki gegnsýra allt þjóðfélagið svo að engin
önnur hugsun komist að. Með slíkri stefnubreytingu gæti
kirkjan því allt eins verið að varða veg til andlegrar fátækt-
ar og trúarlegrar hnignunar. Enginn stjómmálaflokkur
hefur stefnuskrá, sem tekur fram 2000 ára stefnuskrá
kirkjunnar og vandséð að hún þurfí endurskoðunar við.
Að varðveita og byggja upp
Á skömmum tíma hefur mikið áunnist. Við blasa stór
verkefni, sem bíða úrlausnar. Straumur tímans kallar stöð-
ugt á ný viðhorf. Mannúð og markaðsbúskapur er leið
okkar sjálfstæðismanna. Við leggjum verk og stefnumið í
dóm kjósenda á vori komanda. Oðmm látum við eftir sýnd-
armennskuna.
Á nýju ári verður tekist á um, hvort varðveita á það
sem áunnist hefur og byggja upp á þeim gmnni eða hvort
því verður öllu spillt í eyðslu, glundroða og skattheimtu
nýrrar vinstri stjómar. Fremur nú en nokkm sinni fyrr
eiga íslendingar sameiginlega erindi eftir braut sjálfstæðis-
stefnunnar.
Landsmönnum öllum óska ég friðar og farsældar á nýju
ári.
Helgi Hálfdanarson:
Orðið „eyðniu
í grein í Morgunblaðinu í dag
er mér eignað orðið eyðni um
sjúkdóm þann, sem nefndur hefur
verið aids upp úr erlendri skamm-
stöfun. Þetta vil ég fyrir hvem
mun leiðrétta. Að orði þessu á ég
engan hlut. Höfundur þess er
Páll Bergþórsson veðurfræðingur.
Hitt er rétt, að ég hef sýnt af
mér þá framhleypni að mæla mjög
eindregið með notkun þessa orðs,
sem mér virðist hafa hvem kost-
inn öðmm betri, ekki sízt ef það
mætti verða til að útrýma orðinu
alnæmi, sem áður hafði farið á
flot, en er býsna varasamt, þó
ekki sé fyrir annað en það, hve
mjög það líkist orðinu ofnæmi.
Raunar mætti ætla að þar væri
um samheiti að ræða, og má aug-
ljóst vera, hver vandræði gætu
sprottið af slíkum misskilningi
manna á meðal.
Sem betur fer virðist orðið
eyðni vera á góðri leið að sigra.
Og þar ber að hrósa læknastétt-
inni fyrir þá víðsýni að veita
viðtöku íðorði, sem upp er mnnið
utan stéttarinnar. En að jafnaði
fer vissulega bezt á því, að íðorð
verði til í samvinnu málfræðinga
og þeirra fræðimanna, sem eiga
í hlut.
GENGIS-
SKRANING
Nr. 247 - 30. desember 1986
Kr. Kr. Toll-
Ein. Kl.09.15 Kaup Sala gengi
Dollari 40,350 40,470 40,520
St.pund 59,173 59,349 58,173
Kan.dollari 29,232 29,319 29,272
Dönsk kr. 5,4509 5,4671 5,4225
Norsk kr. 5,4281 5,4443 5,3937
Sænsk kr. 5,9134 5,9310 5,8891
Fi. mark 8,3489 8,3737 8,2914
Fr. franki 6,2510 6,2696 6,2492
Belg.franki 0,9910 0,9940 0,9846
Sv.franki 24,7091 24,7826 24,5799
Holl. gyllini 18,2807 18,3350 18,1135
V-þ. mark 20,6552 20,7167 20,4750
Ít.líra 0,02970 0,02979 0,02953
Austurr. sch. 2,9324 2,9411 2,9078
Port. escudo 0,2752 0,2761 0,2747
Sp. peseti 0,3046 0,3055 0,3028
Jap. yen 0,25172 0,25246 0,25005
Irskt pund 56,107 56,274 55,674
SDR (Sérst.) 49,3915 49,5379 48,9733
ECU, Evrópum. 42,8921 43,0196 42,6007
jMttgpttsiMfifrifr
Gódan daginn!
Hækkun minka-
skinna í London
MIKIL hækkun hefur orðið á
minkaskinnum á fyrstu loð-
skinnauppboðum vetrarins. Á
uppboði hjá Hudson's Bay í Lon-
don fyrir jólin var góð sala og
mikil hækkun miðað við desemb-
eruppboð í fyrra. Pastelskinn af
högnum voru seld á 1.470 krónur
að meðaltali. 94—100% af fram-
boðnum skinnum seldist.
Ágætt verð hefur einnig verið á
refaskinnum. Á refaskinnauppboði
sem nýlega var haldið í London
fóm blárefaskinnin á 1.760 krónur
íslenskar að meðaltali. Skuggaref-
urinn fór á 2.120 krónur, „blue
frost“ á 5.075 krónur og gullna
eyjan á 4.658 krónur. 97% af fram-
boðnum blárefaskinnum seldist á
uppboðinu, 86% af skuggarefa-
skinnunum, 96% af „blue frost“
afbrigðinu og gullna eyjan seldist
upp.
Nokkur þúsund íslensk refaskinn
vom á uppboðinu hjá Hudson's Bay
en örfá hundmð minkaskinna, sam-
kvæmt upplýsingum Skúla Skúla-
sonar hjá Kjörbæ hf., umboðsmanni
Hudson's Bay á íslandi.
Loðnuverðið
frjálst til
vertíðarloka
VERÐLAGSRÁÐ sjávarútvegs-
ins hefur samþykkt að verð á
Loðnu til bræðslu verði frjálst frá
áramótum til vertíðarloka.
Loðnuverðið hefur verið fijálst
frá því í septembermánuði.
Ákvörðun um framlengingu
fijáls loðnuverðs var tekin í
bræðsludeild Verðlagsráðs í gær.
Vom allir fulltrúar í ráðinu sam-
mála um þessa ákvörðun, enda er
það forsenda slíkrar ákvörðunar.
BYGGIINIGAIVIEIMIM
Fylgist með nýjungum.
Byggingavörusýningin Buildings for Billions ’87 í Bella Center, Kaupmannahöfn,
10.—18. janúar.
Brottför 9. og 10. janúar.
Heimkoma 15. janúar.
Park Hotel — Imperial Hotel.
i FERÐASKRIFSTOFAN
SOOO.
Verð frá
24.380,-
Tjarnargötu 10, gengið inn frá Vonarstrætiw JSímar 28633 og 12367