Morgunblaðið - 31.12.1986, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 31.12.1986, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. DESEMBER 1986 Hvers er helst að minnast frá árinu 1986 á árinu, hefur Morgunblaðið, eins og undanfarin ár, leitað til nokkurra fréttaritara sinna víðsvegar um landið og fengið þá til að rifja upp það, sem þeim hefur þótt markverðast af innlendum og erlendum vettvangi og úr heimabyg’g’ð. Pistlar fréttaritaranna fara hér á eftir: Þegar árið er að Iíða í aldanna skaut líta menn oft til baka, ekki síður en fram á við, og rifja upp atburði líðandi árs. Man þá hver eftir því sem hann hefur mestu skipt á einn eða annan hátt. Til þess að gefa nokkra mynd af því, sem markverðast kann að virðast í byggðum landsins Garðar Rúnar Sigurgeirsson Garðar Rúnar Sigur- geirsson, Seyðisfirði: Merkur sigur yfir verðbólgu- ófreskjunni egar litið er til baka til helstu atburða ársins sem er að kveðja kemur hjöðnun verðbólgu og kjarasamningarnir í febrúar fyrst upp í hugann. Með þeim samn- ingum og þeim tökum, sem ríkis- stjómin náði á verðbólguófreskj- unni, sem hijáð hefur landslýð undanfama áratugi, vannst merkur sigur. Sigur sem var innsiglaður nú á aðventunni með nýjum kjara- samningi, þar sem kjör hinna lægst launuðu em stórbætt. Ný þjóð- hagsspá gefur einnig tilefni til að horfa björtum augum til komandi árs. Reykjavíkurfundur Reagans og Gorbachevs mun vonandi, er tímar líða, draga úr spennu og gefa til- efni til bjartsýni á alþjóðastjóm- málum. Það vekur einnig sérstaka athygli hversu vel íslendingum tókst að annast skipulagningu og framkvæmd þessa fundar. Þama leystu Islendingar af hendi verk- efni, sem vakið hefur athygli á alþjóðavettvangi. Það er líka víst að sú mikla umfjöllun, sem ísland fékk í fjölmiðlum um víða veröld, mun í framtíðinni færa okkur fjölda erlendra ferðamanna á næstu árum með tilheyrandi gjaldeyristekjum. Fyrir okkur Austfírðinga og þjóð- ina alla hafði sölusamningur á tvöhundmðþúsund tunnum af salt- síld til Sovétríkjanna geysileg áhrif á afkomu okkar. En síldveiði og síldarsöltun er snar þáttur í atvinn- ulífí hér á fjörðunum á hveiju hausti. Einnig vekur eftirtekt sú mikla veiði er átti sér stað inni á fjörðum, t.d. hér á Seyðisfirði, en slík veiði inni í fjarðarbotnum hefur ekki verið frá því í upphafí aldarinn- ar. _ A árinu fengum við Austfírðingar góða gesti er forseti íslands, Vigdís Finnbogadóttir og Margrét Dana- drottning komu í heimsókn hér austur og ferðuðust um Múlasýslu. Atvinnuástand hér á Seyðisfirði var gott á árinu. Loðnuvertíðin var sérstaklega góð og var hér metlönd- un. Afkoma útgerðar og fískvinnslu er með betra móti um þessar mund- ir og menn því bjartsýnir, þó gætir nokkurs uggs vegna þess að bolfísk- veiðiskipum sem leggja upp afla sinn á Seyðisfírði hefur fækkað. Á árinu var á vegum heilsu- gæslustöðvarinnar í samvinnu við Hjartavemd og Krabbameinsfélag- ið gerð mjög yfírgripsmikil könnun á heilsufari Seyðfírðinga. Einnig voru huglægari atriði eins og svefn- venjur, draumfarir og mataræði könnuð. Þátttaka var einstaklega góð eða yfír níutíuprósent þeirra hópa sem kannaðir voru. Fullyrða má að með svona könnunum á heilsufari manna séu heilsugæslu- stöðvamar famar að sinna uppr- unalegu hlutverki sínu þegar þær em famar að leita að sjúkdómnum áður en hann fer að hijá fólk. Baldur Rafn Sigurðsson, Hólmavík: 1986 getum við ekki nefnt ár friðar > Aaðventu og hugur reikar til baka. í upphafi árs gerði fólk sér almennt um heim allan vonir um að einhver árangur næðist í að takmarka vígbúnaðarkapphlaupið. Alls staðar vom og em menn og konur úr ýmsum hópum að hrópa og biðja um frið og óska þess að vitfírringu gereyðingar verði bægt frá mannkyni. Jú, svo kom fréttin, leiðtogar stórveldanna ætluðu að þinga í Reykjavík. Heimsbyggðin Baldur Rafn Sigurðsson öll fylgdist með og vonaði svo heitt og innilega að eitthvað jákvætt gerðist. Ég, íbúi íslands, sem horfði á allt umstangið heima í stofu, gat ekkert gert. Eg var aðeins áhorf- andi að þessari stóm og miklu þráskák en mennimir tveir, leið- togamir, gátu gert allt ef vilji hefði verið fyrir hendi. Það varð enginn árangur af þessum fundi eða svo fannst mörgum. Vom þeir kannski aðeins að reyna að hafa betur í áróðursstríðinu? Og nú heldur sama vitfírringin áfram. Milljörðum er hent til einsk- is. Árið 1986 getum við því ekki nefnt ár friðar en verðum samt að vona að þeir er hafa örlög heimsins í hendi sér, leiðtogarnir stóm, reyni að semja um áþreifanlegan hluti áður en það er of seint. Við, Islendingar, getum lagt hönd á plóg í baráttunni gegn vígbúnaðarkapphlaupinu, ef við tökum öll höndum saman. Við tölum á móti pyntingum og kúgunum í öðmm löndum. Utanríkisráðherra okkar gerði það á þingi Sameinuðu þjóðanna og á það var hlustað. Það var einnig eftir okkur tekið á haust- dögum og hversu vel okkur tókst að halda leiðtogafund. Öll öryggis- gæsla, fréttaflutningur og annað er viðkom fundinum stóra, var virki- lega vel af hendi leyst. íslendingar geta staðið saman og leyst erfið verkefni. Það gerðu þeir og mega vera stoltir af. Jakob Ágústsson, Ólafsfirði: Birti yfir í atvinnu- málunum egar litið er til baka yfír árið 1986, sem nú er senn á enda, er manni minnisstæðast veðráttan, atvinnumálin og hvernig þau hafa þróast, samgöngumálin og hvað ber hæst í félagsmálum og samskipti við fólk nær og fjær. Þetta ár hefur verið okkur hag- stætt þegar á heildina er litið. Framan af árinu var góð veðrátta, veturinn snjóléttur, sumarið í góðu meðallagi, en haustið heldur rysjótt og sjósókn á smærri bátum því erf- ið. Það hefur birt yfír horfum í atvinnumálum. Hlutafélagið Sæ- berg hf. hefur keypt 1.000 smálesta togskip sem nú er verið að endur- byggja úti í Noregi. Meðal annars er verið að setja í skipið frystibúnað og standa vonir til að skipið, sem áður hét Bjarni Benediktsson RE, verði tilbúið til veiða í febrúarlok. Þá hefur sama fyrirtæki hafið rekstur á saumastofu í nýjum og vistlegum húsakynnum við Páls- bergsgötu. Þá voru keyptir hingað þrír smærri bátar í byijun ársins. Kavíarverksmiðjan sem hefur verið Jakob Ágústsson í uppsetningu mun taka til starfa næstu daga. Hún er í eigu Sævers hf. Laxeldisstöðin Óslax hf., sem starfrækir hafbeit, laxeldi og seiða- framleiðslu, hefur gengið vel á árinu. 380 laxar skiluðu sér úr haf- beit, seld hafa verið um 90 þúsund seiði og slátrað hefur verið 4 tonn- um af laxi. Loðnubræðsla hefur gengið vel á þessari vertíð, búið er að bræða um 7.000 tonn. Af félags- og menningarmálum ber hæst vinabæjarmót sem hér var haldið um miðjan júlí. Heimsóttu okkur um 120 manns frá vinabæj- um Ólafsfjarðar í Finnlandi, Svíþjóð, Noregi og Danmörku. Voru þetta mjög ánægjulegir dagar enda voru veðurguðimir okkur ákaflega hliðhollir. Til nýbygginga vega fengum við ekkert framlag á árinu. Okkar von- ir í þeim málum byggjast á jarð- göngum í Ólafsfjarðarmúla. Við vonumst því eftir skynsemi stjóm- málamanna á þessu sjálfsagða réttlætismáli sem framtíð Ólafs- §arðar byggist á. Það sem hefur snert mig mest af erlendum vettvangi er frammi- staða íþróttamanna okkar á heims- meistaramótinu í handknattleik og ekki síður glæsileg frammistaða skákmanna okkar á Ólympíuskák- mótinu. Hér heima stendur upp úr fundur leiðtoga stórveldanna í Reykjavík. Albert Eymundsson, Höfn: Gladdist mest yfir árangri skák- sveitarinnar Leiðtogafundurinn í Reykjavík kemur fyrst upp í hugann þeg- ar rifjaðir eru upp minnisstæðir atburðir á árinu. Þessi heimsvið- burður var sannkallaður hvalreki á íjörur fjölmiðlanna og yfirgnæfði allt annað, nema ef vera skyldi hið hörmulega kjarnorkuslys í Sov- étríkjunum. Þrátt fyrir viss von- brigði með árangur fundarins á tíminn vonandi eftir að leiða í ljós að allt þetta tilstand hafi ekki verið til einskis. Kringum leiðtogafundinn feng- um við að sjá og kynnast ótrúlegum öryggisráðstöfunum og það eru ekki aðeins þjóðhöfðingjar risaveld- anna sem hætta er búin eins og morðið á Olof Palme sannar. Með morðinu á Olof Palme fannst manni hryðjuverkin færast okkur nær og segja má að við fengjum smjör- þefínn af þeim þegar sjálfskipaðir, ofstækisfullir umhverfíssinnar sökktu hvalbátunum og unnu skemmdarverk á Hvalstöðinni. Umræðan um málefni Hjálpar- stofnunar þjóðkirkjunnar kom • ónotalega við mann. Stofnun sem þessi á allt sitt undir tiltrú og stuðn- ingi almennings og vonandi tekst henni að endurvekja það traust, því líknarstarf stofnunarinnar er svo sjálfsagt og óþijótandi án þess að hún þurfi að standa í bíla- og húsa- braski. Ánægjulegustu fréttimar af inn- lendum vettvangi eru fréttir af góðum bata og horfum í efnahags- málum þjóðarinnar. Þó ytri skilyrði séu góð hefði þessi árangur aldrei náðst án markvissra aðgerða stjórn- valda og skynsamlegra viðbragða aðila vinnumarkaðarins. Heimsmeistarakeppnin í knatt- spymu var mikill viðburður fyrir íþróttaáhugafólk eins og mig en mest gladdist ég yfír glæsilegum árangri skáksveitarinnar okkar á Ólympíumótinu í Dubai og góðum árangri knattspyrnulandsliðsins gegn snillingum Frakka og Rússa. Við Hafnarmenn minntumst þess á árinu að það em liðin 40 ár frá þvi að Höfn varð sérstakt sveitarfé- lag, sem er ekki hár aldur miðað við þau sveitarfélög, sem vom að fagna 200 ámnum og sjónvarpið sá um að við fengjum að taka þátt í þeim með Reykvíkingum. Á Höfn Albert Eymundsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.