Morgunblaðið - 31.12.1986, Blaðsíða 36
§§
SíÖRdÖNBÍAÐÍÐ, ^léHrrkUDÁGUR 3í. DÉSEMBER 1986
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Sjallinn á Akureyri óskar að ráða
Yfirmatreiðslumann
til starfa sem allra fyrst.
Með breyttu rekstrarfyrirkomulagi er nú þörf
á virkilega færum matreiðslumanni til starfa.
Allar nanari upplýsingar gefur Ólafur Ragn-
arsson í síma 641441 á skrifstofutíma og
heima í síma 45529.
Sendill
Óskum eftir að ráða röskan sendil.
Upplýsingar á skrifstofunni.
BÓKAVER2UUN
SIOFÚSAR EYHUNDSSONAR
Austurstrœti 18 - P.O. Box 868 - 101 Reykjavik -
Á
Álafoss hf.
Verkafólk
Vegna aukinna verkefna vantar okkur starfs-
fólk á fastar næturvaktir fimm daga vikunnar
a.m.k. til að byrja með.
Fríar ferðir eru úr bænum og úr Kópavogi.
Hafið samband við starfsmannahald í síma
666300.
Starfsmannastjóri.
RIKISSPITALAR
LAUSARSTÖÐUR
Hjúkrunarfræðingar óskast við geðdeild
Landspítalans.
Sjúkraliðar óskast við geðdeild Landspítalans.
Starfsmenn á deild óskast við geðdeild
Landspítalans.
Starfsmenn til ræstinga óskast við geðdeild
Landspítalans.
Um er að ræða störf á ýmsum deildum geð-
deildar Landspítalans bæði á Landspítalalóð,
að Kleppi og á vistheimilinu Vífilsstöðum.
Upplýsingar veita hjúkrunarframkvæmda-
stjórar geðdeildar Landspítalans í síma
29000.
Reykjavík,
30. desember 1986.
Heilsugæsla
Hjúkrunarfræðingar — Ijósmæður
Við eftirtaldar heilsugæslustöðvar eru stöður
hjúkrunarfraeðinga og Ijósmæðra lausar til
umsóknar nú þegar:
Heilsugæslustöðin á Patreksfirði, staða
hjúkrunarforstjóra.
Heilsugæslustöð Miðbæjar, Reykjavík, staða
hjúkrunarfræðings.
Heilsugæslustöðin á Þórshöfn, staða hjúkr-
unarfræðings eða Ijósmóður.
Heiisugæslustöðin á Sauðárkróki, staða
hjúkrunarfræðings.
Heilsugæslustöðin í Reykjahlíð, Mývatns-
sveit, staða hjúkrunarfræðings.
Heilsugæslustöðin í Ólafsvík, staða hjúkr-
unarfræðings eða Ijósmóður.
Heilsugæslustöðin á Dalvík, 50% staða
hjúkrunarfræðings.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf, sendist heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðuneytinu.
Reykjavík, 29, desember 1986.
Heiibrigðis- og tryggingamálaráðune.ytið.
Bíldudalur
Umboðsmaður óskast til að annast dreifingu
og innheimtu fyrir Morgunblaðið.
Upplýsingar hjá umboðsmanni í síma 2268
og hjá afgreiðslunni í Reykjavík í síma
91-83033.
Skrifstofustarf
Þjónustufyrirtæki á góðum stað í borginni
vill ráða starfskraft til starfa á skrifstofu fljót-
lega.
Viðkomandi sér um almenn gjaldkerastörf
ásamt tilfallandi skrifstofustörfum.
Verslunarpróf eða hliðstæð menntun áskilin
ásamt starfsreynslu og tölvuþekkingu.
Mjög gott framtíðarstarf. Góð laun í boði.
Nánari uppl. á skrifstofu.
Umsóknir er tilgreini aldur, menntun og fyrri
störf, sendist skrifstofu okkarfyrir 10. janúar
nk.
Qjðnt TÚNSSON
RÁÐGJÓF & RÁPNI NCARÞJÓN USTA
TÚNGÖTU 5. 101 REYKJAVÍK - PÓSTHÓLF 693 SÍMI 621322
Yfirmaður
markaðsmála
Öflugt þjónustufyrirtæki í borginni vill ráða
yfirmann markaðsmála til starfa.
Starfið er laust samkvæmt samkomulagi.
Starfið felst m.a. í að stjórna markaðsmál-
um og vöruþróun fyrirtækisins ásamt
skyldum verkefnum.
Til greina kemur í þetta starf t.d kennari,
viðskiptafræðingur eða aðili með fjölmiðla-
reynslu; sem er góður í mannlegum sam-
skiptum, hugmyndaríkur, vinnur sjálfstætt
og skipulega; hefur trausta og örugga fram-
komu, opinn fyrir nýjungum og fljótur að
tileinka sér þær. Allar fyrirspurnir og um-
sóknir algjört trúnaðarmál.
Góð laun í boði.
Umsóknir er tilgreini aldur og menntun
ásamt starfsreynslu sendist skrifstofu okkar
fyrir 10. janúar nk.
QjðntTónsson
RÁDGJÖF &RÁÐNINGARÞJÓNUSTA
TÚNGÖTU 5, 101 REYKJAVÍK — PÓSTHÓLF 693 SfMI621322
Fulltrúi
birgðaeftirlits
Sláturfélag Suðurlands vill ráða starfsmann
í stöðu fulltrúa birgðaeftirlits á aðalskrifstofu
fyrirtækisins.
Starfið er sjálfstætt, fjölbreytt og krefjandi
og er aðallega fólgið í hönnun á nýju birgða-
kerfi ásamt eftirliti og umsjón með birgða-
haldi afurðadeildar fyrirtækisins.
Við leitum að viðskiptafræðingi sem hefur
einhverja tölvukunnáttu.
í boði er starf hjá traustu fyrirtæki, ágæt
laun, krefjandi og skemmtilegt verkefni þar
sem starfið er sjálfstætt og skipulögð vinnu-
brögð njóta sín.
Allar nánari upplýsingar um starf þetta veitir
starfsmannastjóri á skrifstofu fyrirtækisins
að Frakkastíg 1.
Sláturfélag Suðurlands,
v starfsmannahald.
Starf við
birgðabókhald
OITufélag vill ráða starfsmann til starfa í
birgðabókhaldi. Æskilegt að viðkomandi
geti hafið störf fljótlega til að komast inn í
starfið.
Starfið er sjálfstætt, krefjandi og fjölþætt,
felur m.a. í sér eftirlit og umsjón með flutn-
ingum og birgðahaldi hjá fjölmörgum birgða-
stöðvum fyrirtækisins á landsbyggðinni.
Leitað er að aðila með góða viðskiptamennt-
un ásamt bókhalds- og tölvukunnáttu og
hefur tamið sér sjálfstæð og skipulögð vinnu-
brögð.
Nánari upplýsingar á skrifstofu.
Umsóknir er tilgreini aldur, menntun og fyrri
störf, sendist skrifstofu okkar fyrir 10. janúar
nk.
QjðmTónsson
RÁÐCJÖF & RÁÐN I NGARÞJÚN USTA
TÚNGÖTU 5. 101 REYKJAVÍK — PÓSTHÓLF 693 SÍMl 621322
Fulltrúi í
fjárreiðudeild
Stórt deildaskipt þjónustufyrirtæki í borg-
inni vill ráða innheimtufulltrúa til starfa í
fjárreiðudeild sem fyrst.
Starfssvið: Umsjón með fjárreiðum hinna
ýmsu rekstrarreikninga fyrirtækisins ásamt
innheimtu hjá viðskiptamönnum.
Leitað er að aðila með góða undirstöðu-
menntun, sem er vanur mannlegum sam-
skiptum, hefur trausta og örugga framkomu,
er ákveðinn en samt sveigjanlegur.
Framtíðarstarf sem gæti hentað mörgum.
Nánari upplýsingar á skrifstofu.
Umsóknir er tilgreini aldur, menntun og
starfsreynslu, sendist skrifstofu okkar fyrir
8. janúar nk.
QjðmTónsson
RÁÐGJÖF &RÁÐN1NCARÞJÓNL1STA
TÚNGÖTU 5, 101 REYKJAVÍK — PÓSTHÓLF 693 SÍMI621322
1. vélstjóra
vantar strax á v/s Arnarborg HU 11 sem
stundar skelfiskveiðar frá Skagaströnd.
Upplýsingar í síma 95-4747.
Hólanes hf.
©
Ýmisstörf
Sláturfélag Suðurlands er stórt fyrirtæki með
fjölbreytta starfsemi. Nú þegar nýtt ár er
framundan viljum við ráða nokkra starfs-
menn bæði karlmenn og konur til ýmissa
framtíðarstarfa.
Störf þessi eru m.a.:
★ Við sölustörf á framleiðslu- og innflutn-
ingsvörum.
★ Afgreiðslustörf í SS-búðunum.
★ Framleiðslustörf í kjötiðnaðardeild og
sútunarverksmiðju.
Við leitum að duglegum og kraftmiklum ein-
staklingum, sem tilbúnir eru til að ná árangri
í starfi og eiga þátt í að framleiða og selja
fyrsta flokks vörur.
í boði er starf hjá traustu fyrirtæki og ágæt
laun.
Allar nánari upplýsingar um störf þessi veit-
ir starfsmannastjóri á skrifstofu fyrirtækisins
að Frakkastíg 1.
, , SláturfélagSuðurlands,
. starfsrriannaháld.