Morgunblaðið - 31.12.1986, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. DESEMBER 198.6
45
Kveðja:
Berglind Bjarna-
dóttir söngkona
Engum er ljóst hvaðan lagt var af stað
né hver lestinni miklu ræður.
Vér sláumst í fórina fyrir það
jafnt fúsir sem nauðugir bræður.
Og hægt hún fer en hún færist um set
þessi fylgd yfir veginn auðan.
Kynslóð af kynslóð og fet fyrir fet
og ferðinni er heitið í dauðann.
Tómas Guðmundsson
Þetta fallega ljóð Tómasar kom
upp í huga mér er ég nú skrifa
fáein kveðjuorð um vinkonu mína
Berglindi er lést þann 10. des. sl.
eftir erfið veikindi. Ég kynntist
Lindu en svo var hún ávallt kölluð,
þegar hún kom til liðs við okkur í
söngflokknum „Lítið eitt“, þá að-
eins 15 ára gömul. Nafn Lindu bar
fljótt á góma er við Gunnar vorum
að svipast um eftir söngkonu. Frá
barnæsku hafði hún vakið athygli
þeirra er unna góðum söng og korn-
ung hóf hún að syngja með Öldu-
túnsskólakómum í Hafnarfirði.
Það var stór ákvörðun fyrir hana
og ekki síður fyrir foreldra hennar
að hún skyldi taka þátt í hringiðu
skemmtanalífsins með öllu því um-
róti sem æfingar, ferðalög og umtal
höfðu óhjákvæmilega í för með sér.
En við strákamir lofuðum að gæta
hennar vel.
Þá strax komu hin sterku per-
sónueinkenni hennar í ljós sem
fylgdu henni alla tíð, vilji og kjark-
ur til þess að gera eins vel og henni
var unnt hvað sem hún tók sér fyr-
ir hendur. Ekkert var of vel gert.
Og vegur söngflokksins óx hratt
eftir að Linda bættist í hópinn, enda
rödd hennar einstaklega hljómþýð
og túlkun hennar á lagi og texta
næm.
Við sungum saman í fjögur
skemmtileg, viðburðarík og góð ár
og á þeim tíma bundumst við vin-
áttuböndum sem aldrei rofnuðu. I
þá daga vorum við fjögur áhyggju-
laus og glaðvær ungmenni sem
áttum framtíðina fyrir okkur.
Síðan skildi leiðir, önnur áhuga-
mál tóku við en söngurinn átti hug
og hjarta Lindu sem lauk einsöngs-
prófi hér heima og fluttist síðan til
Svíþjóðar ásamt manni sínum til
frekara náms, til frekari afreka á
söngsviðinu.
Fyrir tæpum tveimur árum komu
þau heim í jólaleyfi og hélt Linda
þá mjög eftirminnilega tónleika í
Norræna húsinu. Þá fylltist ég
stolti og gleði yfir að sjá hana sem
fullþroskaða og mótaða söngkonu,
sem greinilega var búin að finna
það söngsvið er átti best við hana.
Hér var komin ljóðasöngkona í
hæsta gæðaflokki þar sem fóru
saman frábær túlkun á ljóði og lagi
og yndislegt og hlýtt viðmót, sem
hafði ekkert breyst. Þá sagði hún
mér hvað hún hlakkaði til að koma
heim og taka þátt í íslensku tónlist-
arlífí, því hér ætlaði hún að starfa
í framtíðinni.
En skjótt skipast veður í lofti.
Illvígur sjúkdómur, sem læknavís-
indin ráða enn ekki við, hefur enn
einu sinni náð að sigra. Og ósjálf-
rátt verður mér hugsað til textans
hans Tómasar við lagið hans Jodda
sem Linda söng svo fallega á plöt-
unni okkar. Nú syngur hún í
himneskum herskara og rödd henn-
ar nýtur sín fullkomlega í þeim
góða hópi.
Það var ljúft að eignast Lindu
sem sannan vin og hafa fengið að
taka þátt í lífsstarfi hennar, söngn-
um, sem var henni svo kær og
mikils virði.
Kæri Rúnar, foreldrar og systk-
ini. Öll orð eru vanmegnug á þessari
stundu en megi góður Guð blessa
minninguna um yndislega stúlku
og veita ykkur styrk á þessum erf-
iðu tímum.
Steinþór Einarsson
Skiphofti 50C Suðurveri Stigahiíð Glerárgötu 26,
@688040 @681920 Akureyri
@ 26088
EKKERT AUKAGJALD FYRIR LOKAÐAN DAG!
Þökkum
viðskiptin
á árinu
upio um
áramótin
1 n nn_i5 00
Ð
z-. jan. x .\j\j- -23.00
Viðskiptavinir athugið
Werslanir okkar verða lokaðar vegna
vörutalningar föstudaginn 2. janúar.
Gleðilegt nýtt ár
HAGKAUP
REYKJAVÍK AKUREYRI NJARÐVÍK