Morgunblaðið - 31.12.1986, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 31.12.1986, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. DESEMBER 1986 47 Argentína: Menotti til Boca Juniors CESAR Luis Menotti, þjálfari arg- entíska landsliðsins, sem sigraði á HM 1978, hefurtekið við stjóm- inni hjá félaginu, sem hann lék með á árum áður, Boca Juniors. Menotti, sem er 47 ára, þjálfaði argentíska landsliðið 1974 til 1982, en hann sagði starfi sínu lausu, þegar landsliðið náði ekki að verja heimsmeistaratitilinn á Spáni. Hann tók við hjá Barcelona, en hefur ekkert þjálfað í tvö ár. Menotti gerði 18 mánaða samn- ing við Boca Juniors sem hann getur framlengt. Boca Juniors varð siðast Argentínumeistari 1981 með Maradona í broddi fylkingar, en síðan hann fór hefur ekkert gengið og skuldir félagsins hafa hlaðist upp. Morgunblaðið/Ámi Sæberg • Verðlaunagripurinn, sem fylgir sæmdarheitinu íþróttamaður árs- ins, verður til sýnis í Miklagarði fram að valinu. íþróttamaður ársins: Hver hlýtur titilinn í ár? í NÆSTU viku verður kynnt val á fþróttamanni ársins 1986 á veg- um samtaka fþróttafréttamanna og verður verðiaunagripurinn, sem fylgir sæmdarheitinu, til sýn- is f Miklagarði næstu daga. Samtök íþróttafréttamanna hafa valið íþróttamann ársins und- anfarin 30 ár og hefur sami verð- launagripurinn fylgt nafnbótinni frá byrjun, en í reglugerð samtakanna segir að gripurinn skuli veittur 50 sinnum, en síðan geymdur í Þjóð- minjasafninu. Bikarinn var á sínum tíma keyptur í Bandaríkjunum og er einn sá glæsilegasti, sem veitt- ur er hér á landi. Fram að vali íþróttamanns árs- ins verður verðlaunagripurinn til sýnis í Miklagarði. Þar getur fólk tekið þátt í getraun um hver verði íþróttamaðurársins 1986, en Einar Vilhjálmsson, spjótkastari, hlaut nafnbótina í fyrra. Dregið verður úr réttum lausnum og verða vegleg verðlaun í boði, sem Mikligarður gefur. Igor Belanov knattspyrnu- maður SOVÉSKI landsliðsmaðurinn Igor Belanov var kjörinn knattspyrnu- maður Evrópu 1986. Að kjörinu stóðu íþróttafréttamenn 26 Evr- ópulanda undir stjóm franska vikublaðsins France Football. Belanov leikur með Dynamo Ki- ev, sem varð Evrópumeistari bikarhafa. Hann var einn besti maður sovéska landsliðsins á HM Sovétríkin: Sergei Bubka íþróttamaður ársins SERGEI Bubka hefur verið valinn íþróttamaður ársins í Sovétríkj- unum þriðja áríð f röð. Bubka setti heimsmet í stangarstökki á fríðaríeikunum í Moskvu f sumar, 6,01 m, og var það sjötta heims- met hans f greininni. Evrópu í Mexíkó, en liðið lék þar sérlega skemmtilega sóknarknattspyrnu. Belanov er þriðji sovéski leik- maðurinn, sem hlýtur þessa eftir- sóttu nafnbót. Lev Yashin, einn besti markvörður fyrr og síðar, var kosinn árið 1963 og Oleg Blokhin 1975, en hann leikur enn með landsliðinu. Michel Platini, fyrirliði franska landsliðsins, hefur verið kosinn knattspyrnumaður Evrópu undan- farin þrjú ár, en hann hafnaði í 11. sæti að þessu sinni. Annars varð röð efstu manna þessi, stigin til hægri: Igor Belanov, Sovétríkjunum, 84 Gary Lineker, Englandi, 62 Emilio Butragueno, Spáni, 59 Manuel Amoros, Frakklandi, 22 Preben Elkjær, Danmörku, 22 lan Rush, Englandi, 20 Alexander Zavarov, Sovétr., 20 Marco van Basten, Hollandi, 10 Helmut Ducadam. Rúmenfu, 10 Sandro Altobelli, Italfu, 9 Getraunir: Engin með tólf rétta ENGIN röð kom fram með 12 réttum leikjum f 19. leikviku hjá Getraunum, aðeins þrjár raðir voru með 11 rótta leiki og 40 með 10 rétta. Vinningur fyrir 11 rétta var 204.805 krónur, en 10 réttir gáfu 6.583 krónur. Vinningsröðin var þessi: 111-12X- 2 2 1 -2 2 X. Heil umferð verður í ensku knattspyrnunni 1. janúar, en næsta leikvika í Getraununum verður á laugardaginn, 3. janúar. Skíði: Stock sigraði í samhliða- svigi LEONHARD Stock, Austurrfki, sigraði f samhliðasvigi heims- bikarsins sem fram fór f Vestur- Berlín á sunnudaginn. Þetta var fýrsta keppnin sem Stock vinnur síðan hann varð Olympíumeistari f bruni 1980. Leonahard Stock vann Júgósla- vann, Bojan Krizaj, í úrslitum. í undanúrslitum sigraði Stock Júgó- slavann, Grega Benedik og Krizaj sigraði Michael Eder frá Vestur- Þýskalandi. Þessi keppni gefur ekki stig til einstaklinga í heimsbikarnum held- ur aðeins til landsliða. Sigurinn var þó mikilvægur fyrir Stock sem ekki hefur unnið keppni í sex ár, og aldrei svig í heimsbikarnum. Hann getur vel við unað því hann sló út kappa eins og Ingemar Stenmark, Gunter Mather, Mathis Bertold og Grega Benedik 15 þúsund áhorfendur fylgdust með keppninni sem var í fyrsta sinn haldin í Vestur-Berlín. Brautin var frekar auðveld 400 metrar að lengd og fallhæð 80 metrar. • Bikarmeistarar Gerplu í fimleikum 1986. Fimleikar: Keppni íHöllinni um helgina Á laugardaginn verður fimleika- keppni f Laugardalshöll á milli stúlkna í Gerplu og þýsks liðs frá Saarbrucken. Keppnin hefst klukkan 15.30. Tveir hópar frá Gerplu voru í æfingabúðum í Saarbrcken í fyrra og eru þýsku stúlkurnar að endur- gjalda heimsóknina. Þær eru sjö og með þeim er þjálfari og kven- dómari. Gerpla varð bikarmeistari í öll- um flokkum stúlkna í bikarkeppni FSÍ í byrjun desember og má því gera ráð fyrir spennandi keppni í Höllinni á laugardaginn. 1X2 Morgunblaðlð Q Tíminn c c 1* 3 '£* Dagur Rikisútvarplð Byigjan Sunday Mirror Sunday People News of the World Sunday Express Sunday Telegraph SAMTALS 1 2 4 Aston Villa — Nott’m Forost 2 X X 1 2 2 2 — — — — — 1 2 4 Leicester — Sheffield Wed. 2 2 2 2 X 2 1 X 2 X 2 X 1 4 7 Uverpool — West Ham 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 12 0 0 Man Cfty — Oxford X 1 1 X 1 1 X X X 1 1 X 6 6 0 Newcastle — Coventry 1 1 X 1 1 1 1 1 2 1 1 1 10 1 1 QPR — Everton 2 1 2 2 X X 2 X X 2 2 X 1 S 6 Southampton — Man. Unita i 2 2 1 2 X 2 1 1 1 X X 1 5 3 4 Wimbledon — Watford X X 2 1 1 1 1 1 X 1 1 1 8 3 1 Blackburn — Portsmouth 2 2 X 2 2 2 2 2 2 2 X 2 0 2 10 Crystal Palace — Derby X X 1 2 X 2 X X X X X 1 2 8 2 Sheff. United — WBA 1 X 1 X X 1 1 1 2 1 X X 6 S 1 Shrewsbury — Ipswich X X 2 X 1 X 1 1 2 X X 2 3 6 3

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.