Morgunblaðið - 08.01.1987, Side 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 1987
Frumraun
Fyrsti bamatími Stöðvar 2 var á
dagskránni síðastliðinn þriðjudag
klukkan 18:00 og var honum lýst
svo í dagskrárkynningu: Þrettánd-
inn. Bamatími. Kynnir er Hólm-
fríður Karlsdóttir (fv. Ungfrú
alheimur.) í þættinum er leikþáttur
fyrir bömin og ýmis skemmtiatriði.
Umsjónarmaður er Sverrir Guðjóns-
son.
Já hún Hófí blessunin kemur víða
við, ekki aðeins á bókamarkaðinum
heldur og í barnatímanum. Að venju
kom hún vel fyrir og gladdi augu
pabbans rétt einsog hún Bryndís
forðum. Annars sá ég ekki betur
en þessi fyrsti bamatími Stöðvar 2
hefði aðsetur á sviði Hótels Sögu
þar sem þeir bræður Finnbogi og
Magnús Kjartanssynir sátu við
hljóðfærið. Eg býst ekki við því að
krakkarnir hafi tekið sérstaklega
eftir sviðinu á Hótel Sögu og því
til lítils fyrir undirritaðan að gagn-
rýna sviðsmyndina sem var reyndar
hvergi sjáanleg. En svona emm við
fullorðna fólkið, að við skoðum
gjaman heiminn frá eigin sjónar-
hóli og þá líka þann heim er
smáfólkið gistir.
Undirritaður hefír venjulega
þann háttinn á að skoða bamatím-
ana í bamafansi og reynir þá af
fremsta megni að meta bamaefnið
út frá viðbrögðum bamanna. Hvað
bamatíma Stöðvar 2 áhrærir þá
virtust bömin hrifin af leikþættin-
um hennar Grýlu og einnig hreif
töframaðurinn þau uppúr skónum
en fleira var nú eiginlega ekki á
dagskrá þessa fyrsta bamatíma
Stöðvar 2. Bömunum fannst sum
sé bara gaman að flestu því er bar
fyrir augu á þrettándagleði Stöðvar
2. Undirrituðum þótti hins vegar
dagskráin fremur fátækleg þótt
vissulega sé virðingarvert að semja
sérstakan leikþátt fyrir bömin. En
mjór er mikils vísir og vissulega
gætu umsjónarmenn Stundarinnar
hjá Ríkissjónvarpinu lært þá lexíu
af þessum fyrsta bamatíma Stöðvar
2 að hætta þeim ljóta sið að kjafta
endalaust um ekki neitt við bömin
og á ég þá einkum við hann Stulla
blessaðan sem ætlar aldrei að
þagna. Bömin virðast fremur una
sér við leikþætti og skemmtiatriði
ýmiss konar svo sem töfrabrögð.
Og nú kviknar hugmynd.
Hvemig væri að efna til hug-
myndasamkeppni meðal bamanna
um hvemig bamatímanum skuli
háttað? Máski væri skoðanakönnun
frekar við hæfi og þá á ég við al-
vöm skoðanakönnun framkvæmda
af sérfræðingum félagsvísinda-
stofnunar. Bömin yrðu spurð
hvemig þau myndu vilja haga
bamatímanum og síðan fengju
umsjónarmenn bamaefnis hið hæ-
fasta fólk til að uppfylla óskir
bamanna. Þá fínnst mér vel koma
til greina að virkja skólana í þágu
bamatímans. í bamaskólum lands-
ins er fullt af hæfileikaríkum og
hugmyndaríkum kennurum er gætu
lagt til efni í bamatíma sjónvarps-
stöðvanna. Fyndist mér ekki svo
fráleitt að ætla ákveðnum skólum
svo sem viku af skólaárinu til undir-
búnings slíkra bamatíma og yrði
kostnaðinum af umstanginu skipt
jafnt á milli sjónvarpsstöðvanna og
skólanna.
Er ekki í tíma og ótíma verið að
þusa um kennslusjónvarp og
fræðsluútvarp? Orð eru til alls fyrst
og vona ég svo sannarlega að þessi
hugmynd verði sem allra fyrst að
veruleika undir handaijaðri Sverris
eða hins nýja menntamálaráðherra.
Og svo sannarlega er ekki langur
tími til stefnu: Hver nýr dagur fær-
ir okkur nær 21. öldinni, þess tíma
er hneppir jarðarbúa í eitt sam-
félag. Viljum við að böm okkar nái
taki á veruleika 21. aldar eða er
stefnan sú að hangsast í aldamóta-
hugsjóninni þar sem lestur, skrift
og reikningur voru efst a blaði
þeirra er fóru með fræðslumál? Er
hugsanlegt að borgarar 21. aldar
megni ekki að tjá sig á hinu víða
upplýsingasviði nema kunna frá
bemsku tökin á myndmáli ljósvaka-
miðlanna ekki síður en rit- og
lesmáli, og þá á ég við að bömin
kunni þá list að tjá sig á skerminum.
Ólafur M.
Jóhannesson
ÚTVARP / SJÓNVARP
Stöð tvö:
Önýtir hjálmar
■■■■ í kvöld er á dag-
0040 skrá Stöðvar tvö
breska sjón-
varpsmyndin „Ónýtir
hjálmar". Hún gerist í
Norður-Frakklandi þegar
síga fer á seinni hluta fyrra
stríðs. Frakkar og Englend-
ingar börðust hlið við hlið,
en oft var grunnt á því góða
og á stundum var andúðin
á Þjóðverjum vart nóg til
þess að koma í veg fyrir
að upp úr syði.
Marcel Bozzuffi leikur
franskan hermann, færan í
manndrápum, en bugaðan
af endalausum skotgrafa-
hemaði, sem engan endi
ætlar að taka. Mick Ford
leikur ungan enskan her-
mann, sem er sárreiður
þessum óendanlega hildar-
leik, sem hann skilur ekki,
sér ekki ástæðu fyrir og
telur fráleitt að hann komist
lifandi úr.
Smám saman breytist
gagnkvæm, en stirðleg
virðing þeirra í vináttu og
leiðin verður léttari. Þá
verður á vegi þeirra ung
Marcel Bozzuffi S hlut-
verki franska hermans-
ekkja, leikin af Catherine
Lachens. Saman ganga þau
norður Valland og láta
styijöldina afskiptalausa,
en örlögin verða þó ekki
umflúin.
Rás 2:
Rósa Ingólfsdótt-
ir á Gestagangi
í Gestagangi
O-! 00 Ragnheiðar
Davíðsdóttir í
kvöld knýr Rósa Ingólfs-
dóttir, leikmyndteiknari
Sjónvarpsins, dyra. Rósa
er þúsundþjalasmiður, því
hún er lærður auglýsinga-
teiknari, leikkona, söng-
kona og þula, eins og
landsmenn hafa orðið varir
við.
Þá hefur Rósa staðið að
auglýsingagerð og muna
sjónvarpsáhorfendur vafa-
laust eftir innheimtuaug-
lýsingum, sem Rósa gerði
fyrir Ríkisútvarpið og þóttu
í alfrumlegasta lagi.
Rósa hefur ákveðnar
skoðanir á flestum málum
og þar á meðal kvenrétt-
indamálum og eru ekki allir
henni sammála. Verður
vafalítið bæði fróðlegt og
skemmtilegt og að hlýða á
tal þeirra Ragnheiðar.
/Z
UTVARP
FIMMTUDAGUR
8. janúar
6.45 Veðudregnir. Bæn.
7.00 Fréttir.
7.03 Morgunvaktin. — Jón
Baldvin Halldórsson, Sturla
Sigurjónsson og Guðmund-
ur Benediktsson. Fréttir eru
sagðar kl. 7.30 og 8.00 og
veöurfregnir kl. 8.15. Til-
kynningar eru lesnar kl.
7.25, 7.55 og 8.25.
7.20 Daglegt mál. Guömund-
ur Sæmundsson flytur
þáttinn.
9.00 Fréttir.
9.03 Morgunstund barn-
anna: „Hanna Dóra" eftir
Stefán Jónsson. Ragnheiður
Gyða Jónsdóttir les (4).
9.20 Morguntrimm. Tilkynn-
ingar.
9.35 Lesið úrforustugreinum
dagblaðanna. Tónleikar.
10.00 Fréttir.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 Ég man þá tíð. Her-
mann Ragnar Stefánsson
kynnir lög frá liðnum árum.
11.00 Fréttir.
11.03 Morguntónleikar.
a. „Scheherazade", svíta
eftir Rimsky-Korsakoff.
Reiner Kuchl leikur á fiðlu
með Fílharmóníusveitinni í
Vín; André Previn stjórnar.
b. Slavneskir dansar op. 46
eftir Antonín Dvorák. Kon-
unglega fílharmóníusveitin í
Lundúnum leikur; Antal
Dorati stjórnar.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Fréttir.
12.46 Veðurfregnir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
13.30 [ dagsins önn — Efri
árin.
Ásdís Skúladóttir ræðir við
Margréti Siguröardóttur.
(Áður útvarpaö 12. júní s.l.).
14.00 Miödegissagan:
„Menningarvitarnir" eftir
Fritz Leiter. Þorsteinn Ant-
onsson les þýðingu sína (5).
14.30 Textasmiöjan. Lög við
texta Steins Steinarrs.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
Tónleikar.
15.20 Landpósturinn. Frá
svæðisútvarpi Reykjavíkur
og nágrennis.
16.00 Fréttir. Dagskrá.
16.16 Veðurfregnir.
16.20 Barnaútvarpið. Stjórn-
andi: Sigurlaug M. Jónas-
dóttir.
17.00 Fréttir.
17.03 Tónskáldatími. Leifur
Þórarinsson kynnir.
17.40 Torgið — Menningar-
mál. Umsjón: Óðinn Jóns-
son. Tilkynningar.
18.46 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.30 Tilkynningar.
Daglegt mál. Endurtekinn
þáttur frá morgni sem Guð-
mundur Sæmundsson
flytur.
19.40 Að utan. Fréttaþáttur
um erlend málefni.
19.55 Um hvað yrkja ungu
skáldin? Hrafn Jökulsson
tók saman þáttinn. (Áður
útvarpað á mánudags-
kvöld.)
20.30 Frá tónleikum Sinfóníu-
hljómsveitar íslands í
Háskólabíói. Stjórnandi: Páll
P. Pálsson. Einleikari: Eliza-
beth Zajak-Wiedner.
a. „Þrjár myndir" eftir Jón
Leifs.
b. Sinfónía nr. 4 (Concert-
ante fyrir pfanó og hljóm-
sveit) eftir Karol
Szymanowsky.
Kynnir Jón Múli Árnason.
21.20 Sumarleyfi i skammdeg-
inu. Helga Ágústsdóttir
segir frá.
22.00 Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins. Orð kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Fimmtudagsumræöan
— í upphafi kosningaárs.
Stjórnandi: Elías Snæland
Jónsson.
23.10 Kvöldtónleikar.
SJÓNVARP
■O.
Tf
FOSTUDAGUR
9. janúar
18.00 Litlu prúðuleikararnir
(Muppet Babies.) 24. þáttur.
Teiknimyndaflokkur eftir Jim
Henson. Þýðandi 'Guöni
Kolbeinsson.
18.25 Stundin okkar.
Endursýndur þáttur frá 4.
janúar.
18.50 Skjáauglýsingarogdag-
skrá
19.00 Á döfinni
19.10 I deiglunni
Stutt mynd um Helga Gísla-
son myndhöggvara og list
hans. Helgi hlaut nýlega
verðlaun fyrir tillögu sína að
listaverki við nýja útvarps-
húsið við Efstaleiti.
19.25 Fréttaágrip á táknmáli
19.30 Spítalalif
(M*A*S*H). Fjórtándi þáttur.
Bandariskur gamanmynda-
flokkur sem gerist á neyðar-
sjúkrastöð bandaríska
hersins i Kóreustríöinu. Að-
alhlutverk: Alan Alda.
Þýðandi Kristmann Eiðsson.
20.00 Fréttir og veöur
20.30 Auglýsingar
20.36 íþróttir.
21.10 Rokkarnir geta ekki
þagnað — Annáll ársins
1986. Stjórn upptöku: Björn
Emilsson.
21.50 Sá gamli
(Der Alte) — 29. þáttur.
Þýskur sakamálamynda-
flokkur. Aöalhlutverk Sieg-
fried Lowitz. Þýðandi
Þórhallur Eyþórsson.
22.60 Kastljós
Þáttur um innlend málefni.
Umsjónarmaður Helgi E.
Helgason.
23.25 Seinni fréttir
23.30 Paradine-málið
(The Paradine Case).
Bandarísk bíómynd frá árinu
1948. Leikstjóri Alfred
Hitchcock. Aðalhlutverk
Gregory Peck, Ann Todd
og Charles Laughton. Sak-
borningur í morðmáli er ung
kona sem verjandinn í mál-
inu verður ástfanginn af.
Honum er því venju fremur
mikið I mun að fá skjólstæð-
ing sinn sýknaðan af
ákærunni. Þýðandi Stefán
Jökulsson.
00.35 Dagskrárlok
STODTVO
FIMMTUDAGUR
8. janúar
17.00 Myndrokk. Sunnudags-
bíó. Sýnt er úr nýjustu
kvikmyndunum og mynd-
rokki við þær. Stjórnandi er
Súní.
18.00 Teiknimynd. Furðubú-
arnir (Wuzzles.)
18.26 l'þróttir. Umsjónarmaö-
ur er Heimir Karlsson.
19.30 Fréttir.
20.00 Ljósbrot
Kynntir eru ýmsir dagskrár-
liðir á Stöð tvö ásamt því
að stiklað er á ýmsum við-
burðum í menningarlifinu.
Umsjón annast Valgerður
Matthíasdóttir.
20.25 Bjargvætturin.
(Equalizer.)
Bandarískur sakamálaþátt-
21.20 McCarthy — Tímabiliö
(Tail Gunner Joe.)
Bandarísk kvikmynd með
Peter Boyle, John Forsythe,
Tim O’Connor, Ned Beatty
og John Carradine í aöal-
hlutverkum.
I myndinni er sagt frá upp-
gangi og falli Josephs
McCarthy, múgæsinga-
mannsins sem alræmdur
varð á siötta áratugnum,
þegar hann gegndi for-
mennsku i þingnefnd, sem
fjallaði um „óameriskt at-
hæfi". Leikstjóri er Jud
Taylor.
23.40 Ónýtir hjálmar (Bad
Hats.)
Bresk sjónvarpskvikmynd
frá 1984.
I myndinni er sögð saga
tveggja hermanna í fyrri
heimsstyrjöldinni, sem
mynda stormasamt banda-
lag til þess að flýja til ír-
lands. Með í förina slæst
ung ekkja sem hefur strokið
frá fjölskyldu sinni.
01.40 Dagskrárlok.
a. Hörpusónata i Es-dúr op.
34 eftir Ladislav Dussek.
Ann Griffiths leikur.
b. Kvintett í C-dúr op. 29
eftir Ludwig van Beethoven.
Félagar í Vínaroktettinum
leika.
24.00 Fréttir. Dagskrárlok.
FIMMTUDAGUR
8. janúar
9.00 Morgunþáttur í umsjá
Kristjáns Sigurjónssonar og
Sigurðar Þórs Salvarssonar.
Meðal efnis: Barnadagbók
í umsjá Guðriðar Haralds-
dóttur að loknum fréttum
kl. 10,00, tónleikar helgar-
innar, Matarhorniö, tvennir
tímar á vinsældalistanum
og fjölmiölarabb.
12.00 Hádegisútvarp með
fréttum og léttri tónlist i
umsjá Margrétar Blöndal.
13.00 Hingað og þangaö um
dægurheima með Inger
Önnu Aikman.
16.00 Djass og blús. Vern-
haröur Linnet kynnir.
16.00 Tilbrigði. Þáttur í umsjá
Hönnu G. Siguröardóttur.
17.00 Hitt og þetta. Stjórn-
andi: Andrea Guðmunds-
dóttir.
18.00 Hlé.
20.00 Vinsældalisti rásar tvö.
Gunnlaugur Helgason kynn-
ir tiu vinsælustu lög vikunn-
ar.
21.00 Gestagangur hjá Ragn-
heiði Davíðsdóttur.
22.00 Rökkurtónar. Stjórn-
andi: Svavar Gests.
23.00 Á mjúku línunni. Kristján
Sigurmundsson kynnir róleg
lög úr ýmsum áttum.
24.00 Dagskrárlok.
Fréttir eru sagöar kl. 9.00,
10.00, 11.00, 12.20, 15.00,
16.00 og 17.00.
SVÆÐISUTVARP
AKUREYRI
SVÆÐISÚTVARP VIRKA
DAGA VIKUNNAR
17.30-18.30 Svæðisútvarp
fyrir Reykjavík og nágrenni
- FM 90,1
18.00-19.00 Svæðisútvarp
fyrir Akureyri og nágrenni -
FM 96,5
Má ég spyrja? Umsjón:
Finnur Magnús Gunnlaugs-
son. M.a. er leitað svara við
spurningum hlustenda og
efnt til markaðar á markað-
storgi svæðisútvarpsins.
FIMMTUDAGUR
8. janúar
07.00—09.00 Á fætur með
Siguröi G. Tómassyni. Létt
tónlist með morgunkaffinu.
Sigurður lítur yfir blöðin og
spjallar við hlustendur og
gesti. Fréttir kl. 7.00, 8.00
og 9.00.
09.00—12.00 Páll Þorsteins-
son á léttum nótum. Palli
leikur öll uppáhaldslögin
ykkar, gömul og ný. Tapað
fundið, opin lína, matarupp-
skrift og sitthvað fleira.
Fréttir kl. 10.00, 11.00 og
12.00.
12.00—14.00 Á hádegismark-
aði með Jóhönnu Haröar-
dóttur. Fréttapakkinn,
Jóhanna og fréttamenn
Bylgjunnar fylgjast með því
sem helst er í fréttum, segja
frá og spjalla við fólk. Flóa-
markaöurinn er á dagskrá
eftir kl. 13.00. Fréttir kl.
13.00 og 14.00.
14.00—17.00 Pétur Steinn á
réttri bylgjulengd. Péturspil-
ar síödegispoppiö og spjall-
ar við hlustendur og
tónlistarmenn. Tónlistar-
gagnrýnendur segja álit sitt
á nýútkomnum plötum.
Fréttir kl. 15.00, 16.00 og
17.00.
17.00—19.00 Hallgrimur
Thorsteinsson í Reykjavík
siðdegis. Þægileg tónlist
hjá Hallgrími, hann lítur yfir
fréttirnar og spjallar við fólk
sem kemur við sögu. Fréttir
kl. 18.00.
19.00—20.00 Tónlist með
léttum takti.
20.00—21.30 Jónína Leós-
dóttir á fimmtudegi. Jónina
tekur á móti kaffigestum og
spilar tónlist eftir þeirra
höfði.
21.30—23.00 Spurningaleikur
Bylgjunnar. Bjarni 0. Guð-
mundsson stýrir verðlauna-
getraun um popptónlist.
23.00—24.00 Vökulok. Frétta-
tengt efni og þægileg tón
list.
24.00—07.00 Næturdagskrá
Bylgunnar. tónlist og upp
lýsingar um veður.
ALFA
Krlstileg útvsrpsstM.
FM 102,9
FIMMTUDAGUR
8. janúar
13.00-16.00 Hitt og þetta
umsjón John Hansen.