Morgunblaðið - 08.01.1987, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 1987
7
Valdimar Harðarson, arkitekt,
með stólinn „Sóley“ á öxl. Mynd-
in var tekin árið 1984 þegar
stóllinn var fyrst kynntur hér á
landi.
Sóleyjarstóll Vald-
imars Harðarsonar:
Hlaut viður-
kenningu
japanska
iðnaðar- og
viðskipta-
ráðuneytisins
VALDIMAR Harðarson, arki-
tekt, hlaut nýlega viðurkenningu
japanska iðnaðar- og viðskipta-
ráðuneytisins fyrir hönnun sina
á stólnum „Sóley“. Viðurkenning
þessi er veitt i flestum greinum
iðnhönnunar og var stóll Valdim-
ars í hópi þeirra húsgagna sem
þóttu best hönnuð auk þess sem
framleiðsluþátturinn hlaut sér-
staka viðurkenningu.
í kjölfar þessarar viðurkenningar
mun stóllinn „Sóley" verða kynntur
sérstaklega, ásamt öðrum verð-
launahöfum, en meðal annars hefur
verið gefíð út kynningarrit, sem
sent er víða um heim, þar sem sér-
staklega er mælt með viðkomandi
hönnun og vakin athygli á fram-
leiðslugæðum. Meðal annarrar
hönnunar sem hlaut viðurkenningu
japanska iðnaðar- og viðskiptaráðu-
neytisins að þessu sinni voru
Mercedes Benz 300 E og hinn
þekkti Bellini skrifstofustóll.
Viðurkenningarskjal Valdimars
Harðarsonar, með undirskrift
japanska iðnaðar- og viðskipta-
ráðherrans H. Tamura.
_/\pglýsinga-
síminn er 2 24 80
Sýning á lokaverk-
efnum nýútskrif-
aðra arkitekta
SÝNING á lokaverkefnum nýútskrifaðra arkitekta verður
opnuð fimmtudaginn 8. janúar kl. 20.00 í Ásmundarsal,
húsi Arkitektafélags íslands.
í þrjú ár hafa slíkar sýningar
verið árviss viðburður. A þeim
gefur að líta lokaverkefni fólks
sem á að baki langt nám í ólíkum
löndum og bera verkefnin óneit-
anlega keim af því. í tengslum
við sýninguna munu höfundar
kynna verkefni sín fímmtudags-
kvöldin 8. og 15. janúar kl. 20.00.
Þátttakendur í sýningunni eru
Ari M. Lúðvíksson (ráðhús í
Kuppenheim), Baldur Ó. Svav-
arsson (safnahús í Vestmanna-
eyjum), Gíslína Guðmundsdóttir
(skrifstofuhús í Rungsted), Guð-
rún Stefánsdóttir (listamanna-
íbúð í Hafnarfírði), Jakob E.
Líndal (efnaverksmiðja og iðnað-
arskipulag á Suðumesjum),
Pétur H. Armannsson
(Reykjavíkurhöfn ogtengsl henn-
ar við miðborgina), Sigurður
Einarsson (pappírsverksmiðja á
Húsavík) og Smári Smárason
(tónlistarhús í Reykjavík.)
Sýningin verður opin alla daga
kl. 14.00-22.00 frá 8. til 18. jan-
úar. Aðgangur að sýningunni er
ókeypis og eru allir velkomnir,
bæði á sýninguna og kynningar-
kvöldin.
, Kæri lesandi.
I upphafi nýs árs langar mig til að
senda þér fáeinar línur um málefni sem skiptir
okkur öll miklu máli, en það eru umferðarmálin.
Á þessum tímamótum blasir sú staðreynd við
okkur, að við stóðum okkur hvergi nógu vel í
umferðinni 1986.
Hverjar eru ástæðurnar fyrir öllum
þessum gífurlegu umferðarslysum sem kosta
ómældar fjárhæðir, svo ekki sé talað um
þjáningar sem aldrei verða mældar í peningum?
Sem dæmi vil ég greina frá því að Almennar
Tryggingar greiddu á fyrstu ellefu mánuðum
ársins 1986 yfir 110 milljónir vegna tjóna í
umferðinni. Þessar háu tölur sýna að allt of
mikið er af óhöppum og slysum í umferðinni.
Það undirstrikar virðingarleysi ökumanna fyrir
algengustu umferðarreglum.
Fiv t.d. ekki svo, að of margir ökumenn
virða ekki reglur og umferðarmerkingar á
gatnamótum? Ýmsir sinna ekki stöðvunarskyldu
við aðalbrautir. Enn aðrir aka eftir fjölförnum
umferðargötum eins og þeir séu einir í
heiminum og skipta jafnvel um akreinar
fyrirvaralaust án þess að gefa merki. Svona
dæmi eru dapurlegur vitnisburður um
umferðarmenningu okkar.
Fi igum við ekki öll sem einn að gera
betur á nýju ári í umferðinni. Eigum við ekki að
sýna aukna tillitssemi og kurteisi hvert við
annað. Fylgjum umferðarreglum og hugsum um
öryggi samferðamannsins í umferðinni.
Mea samstilltu átaki getrnn við dregið
stórlega úr umferðarslysum. Takist okkur það
kemur það öllum til góða.
*
Fg skora á þig, kæri samferðamaður,
að standa þig enn betur í umferðinni í ár. Hafðu
hugfast að þitt framlag, eins og mitt, er
mikilvægur hlekkur í öryggiskeðjunni.
Með bestu nýárskveðjum,
ÆhiSTSJíííEI?
TRYGGINGAR
AUK hf. 104.13/SlA