Morgunblaðið - 08.01.1987, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 1987
ULL ORÐINSFRÆÐSLA
VERZLUNARSKÓLA
ÍSLANDS
ÖLDUNGADEILD:
Kennsla hefst 19. janúar.
Eftirtaldar námsgreinar verða kenndar: Bókfærsla,
enska, hagfræði, íslenska, efnafræði, stærðfræði,
stjórnun, vélritun, þýska.
STARFSNÁM
Kennsla hefst 26. janúar.
BÓKHALDSBRAUT:
Verslunarreikningur, bókfærsla I, rekstrarhag-
fræði, tölvunotkun, bókfærsla II, bókfærsla III,
tölvubókhald, kostnaðarbókhald.
SKRIFSTOFUBRAUT:
Vélritun I, bókfærsla I, verslunarreikningur,
íslenska, vélritun II, ritvinnsla, lögfræði, skjala-
varsla og stjórnun, enska.
Innritun er hafin. Ekki komast fleiri en 25 á hvert
námskeið.
Umsóknareyöubiöð fást á skrifstofu Verzlunarskól-
ans að Ofanleiti 1, 108 Reykjavík.
Er lygin
lífsskilyrði?
Vegna ummæla Sigurðar A.
Magnússonar um útvarpsráð
eftir Magnús „Það verður erfitt f yrir
Erlendsson Sigurð A. Maguússon
Þýski heimsspekingnrinn Fried-
rich Wilhelm Nietzsche lét mörg
stóryrði frá sér fara á sinni stuttu
dapurlegu lífsgöngu undir stöðugu
skini kalstjömu. M.a. sagði
Nietzsche að „lygin væri lífsskil-
yrði“. Þessi orð koma upp í hugann
þegar lesin eru ummæli Sigurðar
A. Magnússonar rithöfundar í DV,
laugardaginn 3. janúar sl., en þar
er hann fenginn til að ræða „sínar
væntingar fyrir árið 1987 fyrir hönd
íslenskrar menningar og lista“ eins
og segir í formála.
Undirritaður er sér fyllilega með-
vitaður að varla er þess virði að
standa í orðaskaki við þennan
lífsbitra stóryrta mann, þó væri það
rangt ef þessum rithöfundi á að
líðast átölulaust að fara með helber
ósannindi í annað víðlesnasta dag-
blað landsins, án þess að þau séu
hrakin.
Sá sem þessar línur ritar hefur
undanfarin ár átt sæti í útvarps-
ráði, og setið þar fundi að jafnaði
einu sinni í viku árið um kring. Um
þetta sama útvarpsráð segir Sigurð-
ur A. Magnússon í fyrmefndri
blaðagrein orðrétt: „Síðan er spenn-
andi að fylgjast með hvort
formanni útvarpsráðs og út-
varpsráði tekst að setja útvarps-
stjóra af. Það virðist eins og þau
hafi hreinlega tekið af Markúsi
Emi völdin og það verður fróðlegt
að fylgjast með því á árinu hvort
honum tekst að ná þeim til sín aft-
ur. Útvarpsstjóri gegnir mikilvægu
menningarhlutverki og mér finnst
það mjög ískyggileg þróun ef
pólitískt útvarpsráð ætlar að
hrifsa til sín öll ráð í jafnmikil-
vægri menningarstofnun og útvarp-
ið er.“ Svo mörg vom þau orð, og
að komast heim aftur
eftir fyrrgreind stór-
yrði, þeg-ar hér og nú
skal upplýst að ekki í
eitt einasta skipti síðan
sá mikli heiðursmaður
Markús Orn Antonsson
tók við starfi útvarps-
stjóra hefur komið upp
alvarlegur ágreining-ur
milli hans og- útvarps-
ráðs — varla getur
betra samstarf.“
þau ekki hógvær fremur en flest
annað úr penna Sigurðar A. Magn-
ússonar á liðnum áram. Fyrir þá
sem ekki þekkja til mála, verður
vart annað lesið úr þessum ummæl-
um hans, en grimmilegt heilagt
stríð geisi milli útvarpsráðs annars-
vegar og útvarpsstjóra hinsvegar.
Slíkt er fjarri öllum sanni. Gam-
Magnús Erlendsson
alt máltæki segir að maður komist
á heimsenda á lyginni — en ekki
heim aftur. Það verður erfítt fyrir
Sigurð A. Magnússon að komast
heim aftur eftir fyrrgreind stóryrði,
þegar hér og nú skal upplýst að
ekki í eitt einasta skipti siðan sá
mikli heiðursmaður Markús Öm
Antonsson tók við starfi útvarps-
stjóra hefur komið upp alvarleg-
ur ágreiningur milli hans og
útvarpsráðs — varla getur betra
samstarf.
Það er hinsvegar alvarlegt um-
hugsunarefni þegar landskunnur
rithöfundur fer með slík ósannindi
sem hér hafa verið gerð að umræðu-
efni og tilgangurinn óskiljanlegur
öllu venjulegu fólki. — En ef til
vill er lygin lífsskilyrði þeirra sem
ganga ævibrautina undir kal-
stjörnu.
Höfundur er einn afþremurfull-
trúum Sjálfstæðisflokksins í
útvarpsráði.
2 skákmót Taflfé-
lags Seltjarnarness
TAFLFÉLAG Seltjarnarness
mun standa fyrir tveimur helg-
ar-skákmótum. Annað mótið
verður nú í janúar og hitt í
febrúar.
Fyrra skákmótið verður laug-
ardag 17. janúar og sunnudag
18. janúar og hefst kl. 14.00. Það
síðara verður laugardag 21. fe-
brúar og sunnudag 22. febrúar
og hefst það mót einnig kl. 14.00.
Á þessum skákmótum Taflfé-
lags Seltjamamess verða tefldar
9 umferðir Monrad. Umhugsun-
artími verður 30 mínútur á skák.
Að loknum mótunum verða pen-
ingaverðlaun veitt, alls kr.
BOLHOLTI 6
Námskeið hefjast í næstu viku fyrir
ungar stúlkur, dömur og herra.
■MÆmenn námskeiö
2. Módelnámskeið
3* Herranámskeið
4. Framhaldsnámskeið
5. Stutt snyrtinámskeið
AÐALKENNARAR
Elín Fríða
ur módelkennari
snyrtifræöingur
Heiðar
snyrtir
Unnur
framkvæmdastjóri
INNRITUN DAGLEGA í SÍMA 36141 FRÁKL. 16—19
■CTi
ms&æmssm
15.000.
Háskólabíó:
Breytingar á
sýningartíma
fyrirhugaðar
FYRIRHUGAÐ er að breyta sýn-
ingartíma á kvikmyndum í
Háskólabíói.
Að sögn Friðberts Pálssonar, for-
stjóra Háskólabíós, hefur enn ekki
verið endanlega ákveðið með nýjan
sýningartíma. Friðbert sagði að
vegna þessara fyrirhugðú breytinga
hefði 18 manns verið sagt upp störf-
um hjá Haákólabíó, af um 60 manns
sem þar störfuðu.
-----*
*
Olympíuget-
raun Skáksam-
bands Islands
DREGIÐ hefur verið í Ólympíu-
getraun Skáksambands Islands,
sem efnt var til í haust í tilefni
Ólympíuskákmótsins í Dubai
1986.
Þrettán gátu rétt til um árangur
íslensku skáksveitarinnar og var
dregið úr réttum lausnum og ein
verðlaun veitt.
(Fréttatilkynning)