Morgunblaðið - 08.01.1987, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 1987
Sovétmenn ætla
að láta Finna vita
um útgeislun
Helsinki, Reuter.
SOVÉTMENN hafa heitið Finnum því að láta þá tafarlaust vita um
útgeislun frá kjarnorkuverum, samkvæmt sérstöku samkomulagi,
sem Nikolai Ryzhkov og Kalevi Sorsa, forsætisráðherrar Sovétríkj-
anna og Finnlands, hafa undirritað.
Samkomulagið er viðbót við al-
þjóðasamning um upplýsingaskyldu
vegna kjamorkuslysa, sem gerður
var í Vínarborg í fyrra og 58 ríki
hafa undirritað. Samningurinn nær i
aðeins til almennra raforkuvera, en
kjamorkuveldin fimm, Sovétríkin,
Bandaríkin, Kína, Frakkland og
Gengi
gjaldmiðla
London, AP.
BANDARÍKJADOLLAR
hækkaði í gær gagnvart
flestum helztu gjaldmiðl-
um heims. Var þetta rakið
til aðgerða seðlabanka
nokkurra aðildarríkja að
Evrópska gjaldeyriskerf-
inu. Gullverð lækkaði.
Síðdegis í gær kostað’
brezka pundið 1,4690 dollara
(1,4760), en annars var gengi
dollarans þannig, að fyrir
hann fengust 1,9305 vestur-
þýzk mörk (1,9230), 1,6217
svissneskir frankar (1,6152),
6,4225 franskir frankar
(6,4050), 2,1770 hollenzk
gyllini (2,1725), 1.3505,50
ítalskar lírur (1.340,50),
1,3735 kanadískir dollarar
(1,3737) og 158,25 jen
(159,18).
Gullverð lækkaði og var
399,75 dollara únsan
(401,40).
Bretland, hafa heitið að senda út
viðvömn um leka frá hemaðarleg-
um mannvirkjum.
Alþjóðasamningurinn og sam-
komulag Finna og Sovétmanna
siglir í kjölfarið á kjamorkuslysinu
í Chemobyl í apríl í fyrra. Finnar
urðu einna harðast úti vegna geisla-
virks úrfellis, sem barst frá Chemo-
byl. Finnar og Sovétmenn eiga
sameiginleg landamæri, sem em
um 1.300 km löng.
Samkvæmt upplýsingum fínn-
skra stjómarerindreka lögðu Finnar
að Sovétmönnum að bjóða ríkis-
stjómum Svíþjóðar, Noregs og
Danmerkur samskonar samninga
og þeir hafa nú gert við Finna um
skjóta viðvömn vegna kjamorku-
slysa.
V estur-Þýskaland:
m m
AP/Símamynd
Sneisafullir brautapallar
Starfsmenn frönsku ríkisjámbrautanna efndu
til mótmælaaðgerða í Parísarborg í gær til að
mótmæla afstöðu ríkisstjórnar Jacques Chirac,
sem neitað hefur að ræða við verkfallsmenn um
kröfur þeirra. Umferðaröngþveiti eykst dag frá
degi og hópur manna, sem starfa hjá gas- og
raforkufyrirtækjum, lögðu niður vinnu i gær tíl
stuðnings járabrautarstarfsmönnum. Verkfall
frönsku rikisjárnbrautanna hefur nú staðið i
þijár vikur. Starfsemi neðanjarðarbrautanna í
París var í lágmarki i gær og var meðfylgjandi
mynd tekin er þúsundir manna biðu eftir fari á
Saint Lazare-stöðinni í höfuðborg Frakklands.
Hjálparmaður Gadhafis
njósnari Sovétmanna?
Hamborg, AP.
VESTUR-ÞJÓÐVERJINN Helm-
ut Lang, sem hefur að talið er
aðstoðað Moammar Gadhafi við
að smíða flugskeyti, er einnig
grunaður um njósnir í þágu Sov-
Sovétríkin:
Spillingin í Kaz-
akhstan skal upprætt
Moskvu, AP.
DAGBLAÐ sovéska kommúnistaflokksins, Pravda, birti í gær harð-
orða grein þar sem gagnrýnd var spilling sú, er viðgengist hefur
í Kazakhstan-lýðveldinu í Sovétríkjunum undir stjórn fyrrum
flokksleiðtoga þar, D.A. Kunaev, sem sviptur var embætti í síðasta
mánuði.
Kunaev hefur verið gagnrýndur
mjög að undanfömu og í hinu virta
vikublaði Literatumaya Gazeta,
var gefið í skyn nýlega, að óeirðir
þær er brustust út í Alma Ata,
höfuðborg Kazakhstan-lýðveldis-
ins 17. og 18. desember, hefðu
verið skipulagðar af stuðnings-
mönnum Kunaevs. Allt er nú sagt
þar með kyrrum kjörum, en vest-
rænir fréttamenn hafa ekki enn
fengið að fara til borgarinnar.
Búist er við því, að Kunaev verði
sviptur sæti sínu í forsætisnefnd
sovéska kommúnistafiokksins,
næst þegar miðstjóm flokksins
verður kölluð saman, en fundi
hennar sem vera átti í desember
var frestað um óákveðinn tíma.
Að undanfomu hefur Mikhail
Gorbachev, aðalritari sovéska
kommúnistaflokksins, verið að
styrkja tök sín í flokknum. Skipt
ERLENT
hefur verið um menn í ýmsum
lykilstöðum, Leonid Brezhnev,
fyrrverandi aðalritari, og spilling
er þreifst í skjóli hans og sam-
starfsmanna hans hefur verið
gangrýnd og talið er líklegt að enn
einn flokksleiðtogi verði látinn
hætta á næstunni, formaður
flokksins í Úkraínu, Vladimir V.
Shcherbitsky. Hinn nýi flokksleið-
togi í Kazakhstan, Gennady V.
Kolbin, er Rússi og þykir það sýna
merki um ákveðni Gorbachevs í
valdabaráttunni að senda hann til
Asíulýðveldisins.
í áðumefndri grein í Pravda
segir að undir stjóm Kolbins sé
verið að vinna að umbótum og
láta heiðarlegt, duglegt fólk taka
við störfum hinna spilltu fylgis-
manna Kunaevs. Spillingaröflin
reyni að bregða fæti fyrir allar
umbætur, en slíkt verði ekki liðið.
Haft er eftir Kolbin að flokkurinn
þurfi að endurheimta traust al-
mennings, sem liðið hefði vegna
óstjómar forvera hans í starfí. Til
dæmis hafí tíðkast að fólk þyrfti
að bíða í 15-17 ár eftir því að fá
íbúð til að búa i. Kolbin sagði að
meðal þess sem hann ætlaði sér
að koma á- væri endurskoðun
stöðuveitinga á tveggja ára fresti.
étmanna, að því er segir í
vikublaðinu Stera í dag.
Lang, sem er sérfræðingur í raf-
magnsbúnaði flugskeyta og býr í
Miinchen, er sagður hafa haft sam-
skipti við njósnara sovésku leyni-
þjónustunnar KGB, sem nefíiist
Vladimir Koltchenko.
í Hamborgarblaðinu sagði í
síðasta mánuði að Lang væri yfir-
maður vestur-þýskra sérfræðinga
um flugskeyti og rafmagnsfræð-
inga, sem ynnu við leynilega áætlun
Líbýumanna um að smíða og gera
tilraunir með eldflaugar.
Vestur-þýskur saksóknari, sagði
í gær að hann vildi ekki staðfesta
frétt Stem, sem greint var frá fyr-
ir birtingu blaðsins, en sagði þó að
verið væri að rannsaka hvort tengsl
væru á milli KGB og aðildar þýskra
manna að smíði flugskeyta í Líbýu.
í frétt Stem segir að rannsóknar-
menn hafí komist að því að tengsl
• »•
Norður-Kóreubúi:
Flúði land
er til Dan-
merkur kom
Kaupmannahöfn. AP.
NORÐUR-kóreskur sendiráðs-
starfsmaður bað nýlega um aðstoð
danskra yfirvalda við að flýja til
Vesturlanda, að sögn Knut And-
ersen, yfirmanns lögreglunnar á
Kastrupflugvelli.
Sendiráðsstarfsmaðurinn var að
koma til landsins og rétti starfs-
manni á vellinum pappírsmiða, er
hann fór í gegnum vegabréfaskoðun
ásamt sendiherra Norður-Kóreu í
Danmörku. Á miðanum stóð „Ég er
njósnari, hjálpið mér“. Andersen
sagði að Kóreumaðurinn hefði að eig-
in ósk farið til Vestur-Þýskalands,
eftir að hafa svarað spumingum
dönsku leyniþjónustunnar. Hvorki
danska utanríkisráðuneytið né leyni-
þjónustan hafa viljað segja neitt um
málið.
væm milli Koltchenkos og Langs
þegar þeir vom að rannsaka annað
njósnamál fyrir nokkmm mánuð-
um. Kemur þar fram að Koltchenko
og Lang hafi a.m.k. átt einn fund
í ferðamannabænum Zell am See
skammt frá Salzburg í Austurríki.
Vestur-Þjóðveijar banna hemað-
araðstoð við ríki, sem eiga í stríði.
Líbýumenn eiga þátt í átökum, sem
fram hafa farið í Chad undanfamar
vikur. Þess utan hafa stjómir
margra vestrænna ríkja lagt bann
við vopnasölu til Líbýu vegna þess
að Gadhafi hefur verið bendlaður
við alþjóðleg hiyðjuverk.
Afganistan:
Skæruliðar í sókn
Islamabad, AP.
SKÆRULIÐAR úr frelsisveitun-
um i Afganistan réðust fyrir
nokkrum dögum á margar stöðv-
ar stjóraarhersins í norðurhluta
landsins nærri sovézku landa-
mærunum og lögðu þær undir
sig. Felldu þær um 40 hermenn
í þessum bardögum en tóku um
70 til fanga. Skýrði talsmaður
Yunis Khailis, sem er einn armur
f relsissveitanna, frá þessu í gær.
Skæruliðar hefðu hins vegar aðeins
misst 8 mann fallna og 10 úr þeirra
hópi hefu særzt. Talið er þó, að
manntjón þeirra hafi verið mun
meira, þar sem álitið er, að þeir
geri oft of lítið úr eigin manntjóni.
Kabúlstjómin, sem nýtur stuðn-
ings 115.000 manna sovézks her-
liðs, hefur lagt til, að vopnahlé verði
gert í landinu frá og með 15. jan-
úar nk. Frelsissveitimar hafa hins
vegar hafnað þessu tilboði og lýst
því sem bragði einu. Segjast þeir
ekki munu hætta baráttu sinni fyrr
en kommúnistastjómin í landinu sé
farin frá völdum og sovézki herinn
á burt frá Afganistan.
Noregur:
Mestu heimabruggar-
ar á Norðurlöndum
Ósló. Frá Jan Erík Laure, fréttarítara Morgunblaðsins.
NORÐMENN standa öðrum Norðurlandabúum framar í heimabruggun
víns og smygli, ef miðað er við heildaráfengisneysluna, að því er
Sturla Nordlund, starfsmaður á norsku áfengisrannsóknastofnuninni
greindi frá í gær.
Samkvæmt upplýsingum Nord-
lunds er . heildaráfengisneysla
Norðmanna með því lægsta sem
gerist á Norðurlöndum; var 5,22
lítrar á mann á árinu 1985. í þeirri
tölu er þó ekki talin mikil en leynd
drykkja heimabruggs.
-Við teijum, að allt að Qórðungur
heildaráfengisneyslunnar í Noregi
komi hvergi á skrá, segir Nordlund,
-þ.e.a.s. neysla þess hluta, sem
bruggaður er í heimahúsum og hins,
sem smyglað hefur verið inn í landið.
Danir eru stórtækastir í áfengis-
drykkjunni af Norðurlandaþjóðunum
með 12,2 lítra á hvem íbúa á ári,
en Finnar drekka 8,06 lítra af hrein-
um vínanda á mann.