Morgunblaðið - 08.01.1987, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 1987
23
AP/Símamynd
Camille Chamoun fyrrum forseti Líbanon (með hatt) yfirgefur
sjúkrahús í Beirút í fylgd slasaðs lífvarðar í gser.
Bílsprengja í Beirút:
Fyrrum f orseti
slapp naumlega
Beirút, Reuter. AP.
Puerto Rico:
Kona, sem
lif ði af
hótelbrun-
ann, myrt?
San Juan, Reuter.
KONA, sem lifði af hótel-
brunann í San Juan í Puerto
Rico á gamlárskvöld, þar
sem 96 manns biðu bana,
fannst látin á öðru hóteli í
gær. Haft var eftir lögregl-
unni, að sennilega hafi konan
verið myrt.
Útvarpsstöð í San Juan hafði það
eftir einum rannsóknarlögreglu-
mannanna, að konan kunni að
hafa verið myrt til að „þagga
niður í vitni um skemmdarverk."
Yfirvöld í Puerto Rico halda
því fram, að bruninn í Dupont
Plaza-hótelinu hafí orðið fyrir
íkveikju af völdum manna, sem
borið hafi eld að húsgögnum í
danssal hótelsins.
Lík konunnar, Marilyn Zar
D’Stephano, sem var 38 ára
gömul, fannst í farangurs-
geymslu Condado Beach-hótels-
ins. Að mati rannsóknarlögregl-
unnar er mjög líklegt, að konan
hafi verið myrt, þar sem á líkinu
voru sjáanlegir áverkar. Ekki var
greint frá því, hveijir þeir voru.
Konan sást síðast á lífi daginn
eftir brunann í Dupont Plaza-
hótelinu.
AÐ minnsta kosti 260.000 manns
af þýskum ættum vilja flytjast
frá heimkynnum sinum i Aust-
ur-Evrópu til Vestur-Þýska-
lands, og þeir kunna að vera
miklu fleiri, að því er vestur-
þýska innanríkisráðuneytið
sagði í dag.
Horst Waffenschmidt, embætt-
ismaður í innanríkisráðuneytinu,
sagði, að í fyrra hefðu 42.788
manns fengið leyfi yfirvalda í aust-
antjaldsríkjunum til að setjast að
í Vestur-Þýskalandi. Þar af hefði
SJÖ MENN biðu bana og 20
særðust þegar bílsprengja
meira en helmingurinn verið frá
Póllandi. Er þetta lítils háttar
aukning frá árinu 1985, þegar
38.968 fluttust vestur yfir.
Waffenschmidt sagði, að yfir-
völd í Bonn væru mjög áhyggjufull
yfír, hve fáu þýskfæddu fólki hefði
verið leyft að flytjast frá Sovétríkj-
unum. Þar hefði verið um að ræða
innan við 1000 manns á ári síðast-
liðin þijú ár, og aðeins 753 hefðu
fengið brottflutningsleyfi þaðan í
fyrra, þrátt fyrir óskir „mikils
fjölda“ þar að lútandi.
sprakk í Nahr-hverfinu í austur-
hluta Beirút í gær. Talið er að
sprengjan hafi verið ætluð Cam-
iile Chamoun fyrrum forseta, en
hann slapp naumlega frá tilræð-
inu.
Sprengjunni hafði verið komið
fyrir í bifreið af gerðinni Peugeot
504 og var í henni 75 kíló af
sprengiefni. Hún var sprengd með
fjarstýringu þegar Chamoun var á
ferð um hverfí kristinna í austur-
hluta Beirút. Þrír lífverðir Chamoun
biðu bana og fjórir óbreyttir borgar-
ar, sem voru skammt frá bílnum
þegar sprengjan sprakk.
Chamoun var ekið í skyndingu á
Hotel Dieu sjúkrahúsið en leyft að
fara þaðan stuttu síðar þar sem
hann sakaði hvergi. Amin Gemay-
el, forseti, var meðal þeirra sem
heimsóttu Chamoun meðan hann
dvaldist í sjúkrahúsinu. Forsetinn
fyrrverandi hefur margsinnis verið
sýnt banatilræði en jafnan sloppið.
Hann er 86 ára að aldri og kunnur
fyrir andstöðu sína við íhlutun Sýr-
lendinga í Líbanon.
Austur-Evrópa:
260.000 þýskættaðir vilja
flytjast til V-Þýskalands
Bonn. Reuter.
Finnland og Sovétríkin:
Samið um viðskipti
fyrir 255 milljarða
Helsinki, Reuter.
FINNAR og Sovétmenn undirrituðu í gær samning um gagnkvæm
viðskipti á þessu ári og felur hann í sér vöruskipti upp á jafnvirði
30 milljarða marka, eða jafnvirði 255 milljarða ísl. króna, að sögn
finnskra embættismanna. Undirritun samningsins var liður í opin-
berri heimsókn Nikolai Ryzhkov, forsætisráðherra Sovétrikjanna,
til Finnlands.
Samkvæmt langtímasamningi
Finna og Sovétmanna um viðskipti
verður að ríkja jöfnuður í viðskipt-
um ríkjanna. Kaupa Finnar einkum
olíu af Sovétmönnum í skiptum fyr-
ir vélar og vinnutæki ýmiss konar.
Vegna verðfalls á olíuvörum hafa
Finnar reynt að auka olíukaup frá
Sovétríkjum til þess að jöfnuður
haldist. Þannig hugðust Finnar
kaupa 9 milljónir tonna af olíu frá
Sovétríkjunum í fyrra en vegna
verðfallsins urðu þeir að kaupa
þijár milljónir tonna til viðbótar.
Þá o|íu seldu þeir síðan þriðja aðila.
Á þessu ári hyggjast Finnar
kaupa 11,5 milljónir tonna af olíu
frá Sovétríkjunum. Samkvæmt
samningnum, sem gerður var í
gær, geta Finnar aukið olíukaup frá
Sovétríkjunum taki olíuverð að
lækka á ný.
I Finnlandi er næststærsti mark-
aður sovézkra útflutningsvara á
Vesturlöndum. Sovétmenn selja
meira til Vestur-Þýzkalands. Und-
anfarin ár hefur fjórðungur ut-
anríkisverzlunar Finna verið við
Sovétríkin, en í fyrra féll hlutfallið
niður fyrir 20%.
Helztu útflutningsvörur Finna til
Sovétríkjanna eru vefnaðarvörur,
ísbijótar, skip og verkfæri til skóg-
arhöggs og tijávinnu.
RÚMGÓÐ ÍBÚÐ ÓSKAST
Við leitum að íbúð fyrir einn af starfsmönnum okkar.
íbúðin þarf að vera í miðbæ, vesturbæ eða á Seltjarnar-
nesi.
Upplýsingar gefnar í síma 20535 eftir kl. 17.00
Slysavarnafélag íslands.
Hef flutt
lækningastofu mína
í Skógarhlíð 8.
Tímapantanir daglega frá kl. 1 —6 í síma 622922.
Steinn Jónsson læknir.
Sérgrein: lyflækningar og lungnasjúkdómar.
INDJANASTIGVEL
Loðfóðruð úr leðri með siitsóla.
Verð 3.690,-
Litur: Ijósbrúnn
Stærð: 37-42
Teg.: 497
Ath. einnig
mjög gott úr-
val af góðum
kuldaskóm.
Ýmsar gerðir
t.d. Puffins’,
Tops, Oswald
o.fl. 5% stað-
greiðsluaf-
sláttur.
T0HP
--SKÚRIHN
VELTUSUND11
21212
WordPerfect
Islensk ritvinnsla
ítarlegt og vandað námskeið í notkun WordPerfect.
Forritið er á íslensku og með íslensku orðasafni.
Dagskrá:
• Grundvallaratriði við notkun
PC-tölva.
• Ritvinnsla með tölvum.
• WordPerfect ritvinnslukerfið.
• Æfingar í WordPerfect.
• íslenska orðasaf nið og notkun þess.
• Útprentun á laserprentara.
• Umræður og fyrirspurnir.
Tími: 13.—16. janúar kl. 13—16.
INNRITUN í SÍMUM 687590 OG 686790.
Tölvufræðslan
Borgartúni 28.