Morgunblaðið - 08.01.1987, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 1987
Víetnam:
500 kínverskir her-
menn sagðir drepnir
Bangkok, Peking. Reuter.
TIL BLÓÐUGRA átaka hefur komið undanfarna daga við
landamæri Kina og Víetnam og segir hin opinbera frétta-
stofa Víetnam, að 500 kínverskir hermenn hafi verið felldir.
Báðir aðilar saka hinn um að
eiga upptökin og sagði víet-
namska fréttastofan, að kínversk-
ir hermenn hefðu á mánudag, í
skjóli slæms veðurs, reynt að ná
á sitt vald íjórum hæðum í Ha
Tuyen héraði í Víetnam, um 275
kílómetra fyrir norðan höfuð-
borgina, Hanoi. Talsmaður
kínverska utanríkisráðuneytisins
neitaði því á blaðamannafundi í
Peking í gær, að Kínveijar hefðu
átt upptökin að átökunum. Ekki
vildi hann nefna neinar tölur um
mannfall, en sagði Víetnama að
venju fara með rangt mál, til þess
að blekkja víetnömsku þjóðina og
almenningsálitið í heiminum.
Sameiginleg landamæri Kína
og Víetnam eru um 1.400 km löng
og hefur ítrekað komið til átaka
milli beija ríkjanna við þau á und-
anfömum árum, sérstaklega eftir
innrás Víetnama inn í Kambódíu
árið 1979. Norodom Sihanouk,
fursti, sem er í forsvari fyrir
skæruliða er berjast gegn innrás-
arliði Víetnama í Kambódíu segir,
að stjómvöld í Peking hafí heitið
sér því, að láta Víetnömum blæða,
þar til þeir kalli hina 140.000
hermenn sína heim frá Kambódíu.
Vestrænir sendiráðsstarfsmenn í
Peking og Bangkok í Thailandi
hafa bent á, að e.t.v. séu Kínveij-
ar að minna hina nýju stjómar-
herra í Hanoi á þetta loforð.
ERLENT
Júgoslavía:
Félagar
ganga úr
flokknum
Belgrad, Reuter.
MORG þúsund Júgoslavar
hafa á undanförnum árum
gengið úir júgoslavneska
kommúnistaflokknum að því
er sagði í dagblaðinu Politíka,
sem gefið er út í Belgrad.
í blaðinu sagði að undanfarin
þrjú ár hefðu tíu þúsund íbúar
í Belgrad, aðallega verkamenn
og stúdentar, skilað inn flokks-
skírteinum sínum. Var greint frá
því að flestir hefðu gengið úr
flokknum vegna óánægju og
brostinna vona, fólkinu virtist
sem flokkurinn væri þess ekki
umkominn að leysa úr efnahags-
vanda landsins.
Ekki voru skýrt frá því hve
margir hefðu gengið úr flokkn-
um annars staðar í Júgoslavíu.
Júgoslavar skulda um 19,5
milljarða dollara erlendis og
verðbólga í landinu er um 90
prósent.
Fyrsta flugLavi
ísraelar reyndu splunkunýja orrustuþotu á Gamlársdag í fyrsta sinn. Þotan, sem ber heitið Lavi, fór
í 30 mínútna reynsluflug sem gekk að óskum. ísraelar hönnuðu og smiðuðu þotuna að öllu leyti
sjálfir. Fyrsta flugið var farið frá Ben Gurion flugvellinum við Tel Aviv.
Bandaríkin:
„Torséðar" stýriflaugar
settar upp eftir 1990
Washington, AP.
CASPAR W. Weinberger, vamarmálaráðherra Bandaríkjanna, sagði
á þriðjudag að vamarmálaráðuneytið hygðist setja upp „torséðar"
(stealth) stýriflaugar og „torséðar" flugvélar í upphafi næsta áratug-
ar
Weinberger sagði að „torséðar"
flaugar yrðu fyrst settar upp í K.I.
Sawyer flugherstöðinni í Michig-
an-fýlki.
Robert Sims, talsmaður í vamar-
málaráðuneytinu, sagði síðar um
daginn að fyrstu flaugamar yrðu
settar upp í herstöðinni 1989 og
undirbúningur hæfist innan árs.
Weinberger var spurður um þess-
ar stýriflaugar og flugvélar á
blaðamannafundi eftir að stjómin
hafði lagt fram fjárlagaframvarp
fyrir ijárhagsárið 1988 á Banda-
ríkjaþingi.
I frumvarpinu kemur fram að
vamarmálaráðuneytið fer fram á
89,3 milljónir dollara á næsta fjár-
hagsári til að smíða ýmis konar
aukabúnað fyrir „torséðar" flugvél-
ar í Whiteman-herflugstöðinni í
Missouri. Þetta er fyrsta vísbending
um að vamarmálaráðuneytið hygg-
ist nota þessa „felu“ flugvél
V orumundirbúin
undir eilífa útlegð
- seg’ir Andrei Sakharov í viðtali við Der Spiegel
„ÉG HEF farið á tvo fyrir-
lestra, en ekki haft tíma til að
gera fleira. Fréttaritarar vest-
rænna fjölmiðla hafa í raun
tekið mig eignarnámi. Mér hef-
ur ekki enn gefist tími til að
pakka upp úr töskunum
mínum.“ Þannig tók eðlisfræð-
ingnum Andrei Sakharov til
orða þegar fréttamenn þýska
vikuritsins Der Spiegel spurðu
hvað á daga hans hefði drifið
síðan hann kom til Moskvu.
Sakharov segir í viðtalinu, sem
birtist á sunnudag, að hann hafí
verið látinn laus úr útlegðinni í
Gorkí vegna herferðar bæði
vísindamanna og ríkisstjóma utan
ráðstjómarríkjanna. Hann viður-
kennir að þessi hreyfíng hafí verið
lengi til staðar en bendir á að í
upphafí hafi þess ætíð verið kraf-
ist að hann fengi að fara frá
Sovétríkjunum. „Sovésk yfírvöld
gátu þá auðveldlega haldið fram
að ég vissi ýmislegt, sem ekki
mætti fara lengra, hvort sem það
er rétt eða rangt. Á síðasta ári
varð þar breyting á og höfuð-
áhersla var lögð á að ég fengi að
fara aftur til Moskvu."
AP/Símamynd
Andrei Sakharov og Yelena Bonner í íbúð sinni í Moskvu.
Sakharov segir að ýmislegt
bendi til breytinga í Sovétríkjun-
um. Bandarískri sjónvarpsstöð var
t.d. leyft að taka við hann viðtal
í kvikmyndaveri í Moskvu: „Breyt-
ingar hafa átt sér stað í landi
okkar. Ég vona að þetta sé ekki
einungis til að ná fram
skammtíma markmiðum heldur
beri þessi umskipti því vitni að
stórfelldar breytingar séu í vænd-
um.“
Sakharov var spurður hvort
hann hefði búist við að losna úr
útlegðinni: „Ég bjóst ekki við því
að ég og kona mín yrðum látin
laus. Við höfðum undirbúið okkur
andlega undir mjög langa og jafn-
vel eilífa útlegð."
Sakharov kveðst í viðtalinu
vona að hann hafí ekki einungis
verið látinn laus í áróðursskyni
og segir að ummæli sín um að
geimvamaráætlunin (SDI) fái
ekki staðist eigi síður en svo að
vera vatn á myllu Mikhails
Gorbachevs, leiðtoga Sovétríkj-
anna. „Pakkinn sem Gorbachev
lagði fram í Reykjavík hafði í
raun í för með sér að afvopnunar-
mál standa í stað nema Banda-
ríkjamenn hætti við geimvamar-
áætlunina. Þetta tel ég ekki
uppbyggilega stefnu. Röksemda-
færsla Sovétmanna er ósannfær-
andi.“
í viðtalinu er einnig rætt um
kjarnorku og virkjun hennar. „Ég
tel að mannkynið geti ekki án
kjamorku verið. Þar liggja að
baki ýmsar ástæður meðal annars
umhverfísvemd. Kolaofnar og
annars konar orkuver valda einnig
náttúruspjöllum," segir Sakharov
og heldur fram að allir kolaofnar
í heiminum hafí valdið meiri
mengun en slysið í kjamaofninum
í Chemobyl.
„Aftur á móti verður að reisa
örugg kjamorkuver, þar sem slys
eru útilokuð, og á því sviði mun
ég láta að mér kveða," segir Sakh-
arov í viðtalinu við Der Spiegel.
svokölluðu.
„Torséðar" flugvélar eru þannig
úr garði gerðar að sýnu erfíðara
er að sjá þær í ratsjá, en nú er
yfirleitt um flugvélar. Þessi tækni
virðist einkum byggð á framfömm
í gerð flugvélahreyfla og þeim
möguleikum í hönnun flugvéla, sem
þær leyfa. Þar er einkum átt við
ávalar útlínur, minni vængfleti,
minni hreyfla og fleira. Þá er notað
sérstakt efni, sem drekkur í sig
geisla ratsjár. Efnið er borið á
vængi og bol vélarinnar. Líklega
koma þar einnig til framfarir í flug-
leiðsögutækjum, sem gera flugvél-
um kleift að fljúga langar leiðir að
skotmörkum í mjög lítilli hæð, og
ýmis rafeindabúnaður, sem truflar
ratsjár andstæðingsins. „Torséðar"
stýriflaugar eru byggðar á sömu
atriðum.
Eftir að venjulegri stýriflaug hef-
ur verið varpað úr flugvél er henni
stýrt sem næst joröu til að hún sjá-
ist ekki á ratsjám.
Mikil leynd hefur ríkt yfír bæði
„torséðum" flugvélum og stýri-
flaugum. Hingað til hefur vamar-
málaráðuneytið aðeins viðurkennt
tilvist þessara vopna. í fréttum hef-
ur aftur á móti komið fram að
flugvélin líkist einna helst fljúgandi
væng og að takmörkuð framleiðsla
á „torséðum" stýriflaugum hafí
hafíst á fjárhagsárinu 1986.
V estur-Þýskaland:
Landamæra-
vörður flýr
vestur yfir
Widdershausen, Vestur-Þýskalandi, AP.
AUSTUR-þýskum landamæra-
verði tókst í gær að flýja vestur
yfir og er hann sá fyrsti á þessu
nýbyrjaða ári. Fór hann þannig
að við flóttann, að hann afvopn-
aði yfirmann sinn og tók af
honum lyklana að einu landa-
mærahliðanna.
Vestur-þýskir landamæraverðir
segja, að austur-þýski hermaðurinn
hafi verið í einum varðtumanna á
landamærunum þegar hann af-
vopnaði yfirboðara sinn og hirti af
honum lykla að einu landamæra-
hliðanna. Tókst honum síðan að
komast vestur yfír án þess að eftir
honum væri tekið. Á nýliðnu ári
flýðu 200 Austur-Þjóðveijar vestur
yfír víggirðingamar á landamæmm
þýsku ríkjanna.