Morgunblaðið - 08.01.1987, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 1987
29
Réttur
dagsins
Margrét Þorvaldsdóttir
Vitur maður sagði eitt sinn;
Að ala með sér reiði
er að hefna yfirsjóna annarra
— á sjálfum sér.
Meðhöndla skal með gætni hið
öfluga vopn — tunguna.
Saltfiskréttur sá sem hér fylgir
er ljúfur á tungu og því tilvalinn til
að sefa ýfðar sálir, enda er salt-
fiskurinn „ramm-íslenskur". Að
þessu sinni er í boði
Bakaður salt-
fiskur
500 gr saltfiskur, soðinn
(þurrfiskur, blautfiskur)
500 gr kartöflur
50 gr smjörlíki
1/2 laukur
1/2 græn paprika
2 matsk. hveiti
1 1/2 bolli mjólk (ca. 3 1/2 dl)
2 msk. parmesanostur
eða 2 msk. brauðmylsna
1. Saltfiskurinn er útvatnaður.
Ef um útvatnaðan þurrfisk er að
ræða er best að setja hann í kalt
vatn og láta suðuna koma hægt upp
og hann soðinn í 5—10 mín. Fiskur-
inn er síðan hreinsaður vel af beinum
og roði og látinn í smurt eldfast fat.
2. Kartöflurnar eru snöggsoðnar
og afhýddar, þær eru síðan sneiddar
niður og raðað yfir fiskinn í fatinu.
3. Smjörlíkið er brætt í potti.
Laukurinn og paprikan eru söxuð
smátt og sett út í feitina og hún
látin krauma þar til grænmetið er
orðið mjúkt.
4. Því næst eru 2 msk. af hveiti
sett út í feitina með grænmetinu og
jafningurinn hrærður út (þeyttur)
með mjólkinni (eða undanrennu).
Það er best að nota vírþeytara. Jafn-
ingurinn á að vera fremur þunnur.
5. Jafningurinn er síðan settur
yfir kartöflumar og saltfiskinn, par-
mesanosti er stráð yfír. Ef hann er
ekki tiltækur er notuð brauðmylsna.
Saltfiskrétturinn er bakaður í
meðalheitum ofni í 20 mín. og borinn
fram með kjamgóðu brauði.
Einfaldur
saltfisk-
bakstur
1. Suðan er látin koma upp á
saltfiskinum (500 gr) og hann
hreinsaður af roði og beinum.
2. Kartöflurnar (500 gr) em af-
hýddar hráar og skornar í mjög
þunnar sneiðar.
3. Hvítlauksrif er skorið í sundur
og eldfast mót nuddað vel að innan
með skorna hluta hvítlauksins. Síðan
er fatið smurt vel að innan með feiti.
4. Því næst er kartöflusneiðum
og saltfiski raðað á víxl í lög í eld-
fasta fatið. (Fínsaxaðan lauk má
setja með fiskinum). 1/2 tsk. af
paprikudufti er stráð yfir, því næst
er 1/2 1 af mjólk hellt yfir og að
síðustu 3—4 msk. af brauðmylsnu.
Rétturinn er bakaður í ofni í
40—50 mín. eða þar til kartöflumar
eru bakaðar í gegn.
Verð á hráefni:
Saltfiskur 500 gr
Kartöflur 700 gr kr. 110,00
kr. 20,00
Laukur kr. 4,00
Paprika kr. 40,00
Mjólk kr. 14,00
Kr. 188,00
Reykholtsdalur:
Gamla árið kvatt með brennu
Kleppjámsreykjum
GAMLA árið var kvatt með
brennu í Reykholti og á Klepp-
járnsreykjum. Kiwanisklúbbur-
inn Jöklar sáu mönnum fyrir
skoteldum og púðri eins og
venjulega. Að sögn Sigurðar
Bjarnasonar í Nesi, forseta
klúbbsins, var salan óvenju góð
eins og víðast hvar annarsstaðar
um landið. Allt fór vel og slysa-
laust fram og var mikið sungið
og skiptust menn á nýársóskum.
Annars em lítil tíðindi úr þessu
blómlega landbúnaðarhéraði, það
er eins og nokkur skuggi hvfli yfir
þeim sem stunda landbúnað sem
áður fýrr var helsta atvinnugrein
þessa lands. Það er sama hvort það
em þessar hefðbundnu búgreinar,
garðyrkja eða refarækt. Heyskapur
gekk vel á liðnu sumri svo og upp-
skera í gróðurhúsum. Sem dæmi
um hvert stefnir nú um þessi ára-
mót í byggðarstefnu skal það
upplýst að ekki er stundaður bú-
skapur á 13 búum í Reykholtsdals-
hreppi. í sveitarstjómarkosningun-
um fyrir 4 ámm vom 315 íbúar í
hreppnum, en í sveitarstjómarkosn-
ingunum í vor 269 íbúar, 17%
fækkun. Þetta er mikil blóðtaka
fýrir ekki stærra sveitarfélag. Segja
má að eina nýsköpunin í hreppnum
síðastliðið sumar var þjónusta við
ferðamenn.
A Kleppjámsreykjum ráku hjónin
í Runnum, Þorvaldur Pálmason og
Sigríður Einarsdóttir, veitinga- og
ferðamannaþjónustu. Einnig var
Morgunblaðið/Bemhard
Þegar komið var fram fyrir Heiluvað var veðrið farið að spillast,
snjóa og hvessa. Agæt reynsla því sjaldnast er björgunarsveit kölluð
út í góðu veðri.
Ferð björgunar-
sveitarinnar Oks
á Arnarvatnsheiði
Kleppjársnreykjum.
BJÖRGUNARSVEITIN Ok hefur eignast nýjan bfl sem
keyptur var af hjálparsveit skáta í Hafnarfirði og er þessi
nýji bfll töluvert öflugri en eldri bíll sem hann leysir af hólmi.
Á hveijum vetri fara nokkrir vélsleðum af stað á laugardegi
félagar björgunarsveitarinnar
Oks í Borgarfirði fram á Amar-
vatnsheiði. Er oftast valinn
tíminn milli jóla og nýárs, og
ræður veður nokkuð hvaða dag-
ur er valin.
Amarvatnsheiði er leitar- og
björgunarsvæði Oks. Stærð þess
er um það bil 1500 ferkílómetr-
ar. Er alltaf töluverður kvíði í
mönnum að þurfa að leita þetta
svæði, en sem betur fer kemur
það ekki oft fyrir. Ferð á Amar-
vatnsheiði að vetri til er því ágæt
reynsla í því að læra að þekkja
aðstæður sem þar era á þessum
tíma, svo sem snjóalög og ís á
ám og vötnum. En miklar hætt-
ur geta leynst á þessu mikla
vatnasvæði. Að þessu sinni fóra
nokkrir félagar á fjórhjólum og
27. desember. Fóra þeir frá Þor-
vajdsstöðum fram Þorvaldsháls
í Álftarkróksskála og gistu þar
um nóttina. Daginn eftir fóra
svo 15 félagar á 5 jeppum á
móts við þá og ætluðu að verða
samferða þeim til byggða. En
þegar komið var fram fyrir
Helluvað var veðrið farið að spill-
ast, snjóa og hvessa. Var ákveðið
að snúa við áður en færð spillt-
ist um of. Mjög dimmt var og
erfitt að átta sig þar sem fennt
var í slóðina. Reyndu menn að
taka stefnu eftir umhverfinu við
réttar aðstæður, því sjaldnast
verður að kalla björgunarsveit
út í góðu veðri. Áð öðra leiti
gekk ferðin yel og vora allir
ánægðir með |ferðina.
Bernhard
rekin ferðamannaverslun í Reyk-
holti af þeim Ósk M.S. Guðlaugs-
dóttur og Þómý H. Eiríksdóttur.
Gekk það nokkuð vel enda mikill
ferðamannastraumur hingað til að
skoða vatnsmesta hver í heimi,
Deildartunguhver, svo og Reyk-
holtsstað.
Reykdælir óska öllum nær og
fjær árs og friðar og óskir um
bjarta framtíð.
Bernhard
Ungmennaf élag
Gnúpverja sýnir
„Týnda teskeiðin“
Gamla árið kvatt með stjörnuljósi.
Geldingaholti.
Á MILLI jóla og nýárs frum-
sýndi Ungmennafélag Gnúp-
veija leikritið „Týnda
teskeiðin" eftir Kjartan Ragn-
arsson í félagsheimilinu
Ámesi. Leiksljóri er Halla
Guðmundsdóttir í Ásum og er
þetta fjórða leikritið sem hún
leikstýrir hjá Ungmennafé-
lagi Gnúpverja.
Halla er fædd og uppalin í
Ásum, en Ásaskóli, er var í ára-
tugi leikhús okkar hér, er í
túnjaðri Ása, svo að Halla komst
snemma í snertingu við leik-
starf. Síðan stundaði hún nám í
Leiklistarskóla Þjóðleikhússins
og útskrifaðist þaðan 1972.
Leikendur í „Týnda teskeiðin“
era alls níu og er það mál þeirra
sem þessa sýningu sáu, að hér
hafi vel til tekist, leikendur skil-
uðu hlutverkum sínum með
sóma. Sýningin gekk hratt og
vakti kátínu meðal áhorfenda og
virðast leiðbeiningar og hug-
kvæmni leikstjóra komast vel til
skila.
Leikmynd er gerð af Höllu
leikstjóra, en félagar í ung-
mennafélaginu sáu um leiksmíði.
í leikslok vora ieikendur og leik-
stjóri hylltir með langvinnu
lófataki og leikstjóra var færður
blómvöndur.
Þá era ráðgerðar sýningar í
Félagslundi laugardaginn 10.
janúar og Njálsbúð fímmtudag-
inn 15. janúar. Allar sýningar
heQast kl. 21.00. Síðar era fyrir-
hugaðar sýningar að Borg,
Hafnarfírði og í Árnesi og ef til
vill víðar.
- Jón
Leikarar I „Týndu teskeiðinni" bregða á leik.