Morgunblaðið - 08.01.1987, Qupperneq 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 1987
Frá Þrettándagleði Þórs.
Jólin kvödd
á hefðbund-
inn hátt
JÓLIN voru kvödd með hefðbundnum
hætti með Þrettándagleði Þórs á
svæði félagsins við Glerárskóla. Mik-
ill mannfjöldi var við hátíðarhöldin,
enda veður kyrrt þó kalt væri.
Að sögn lögreglunnar var Þrettándinn
friðsamur. Á skemmtuninni mættu að
venju álfakóngur og drottning hans, en
þeim fylgdi hirð trölla, púka og fleiri
kynjavera. Ýmislegt var tii skemmtunar,
þjóðdansar og einsöngur Páls Jóhannes-
sonar. I lok skemmtunarinnar var síðan
stórglæsileg flugeldasýning Hjálpar-
sveitar skáta.
Morgunblaðið/ Fríða Proppé.
Yandasamt
vegarheiti
Bæjarstjórn ákvað að vegurinn yfir
Eyjafjörð skuli heita Leiruvegur
EFTIR miklar umræður ákvað bæjarstjórn með leynilegri
atkvæðagreiðslu að leggja til að nýi vegurinn yfir Eyja-
fjörð, norðan flugbrautar, heiti Leiruvegur. Hreppsnefnd
Ongulstaðahrepps hefur einnig með nafn þetta að gera og
sagði oddviti hreppins, Birgir Þórðarson, í gær, að hann
væri ekki ánægður með málsmeðferð bæjarstjórnar.
Þrjár tillögur lágu fyrir bæjar-
stjórnarfundi sl. þriðjudag, þegar
ákveðið var að ganga til leyni-
legrar atkvæðagreiðslu um
málið, þ.e. Leiruvegur, Vaðla-
braut og Vaðlavegur og hlaut
Leiruvegur flest atkvæði. Bygg-
ingarnefnd hafði áður lagt til að
vegurinn yrði nefndur Vaðla-
braut, þó svo nafnið Leiruvegur
hafi festst í umræðu manna á
meðal.
Birgir Þórðarson oddviti í
Öngulstaðahreppi sagði í gær,
að hann væri mjög óánægður
með hvernig bæjarstjóm hefði
staðið að máli þessu. Hann hefði
verið búinn að fara fram á það
við forseta bæjarstjómar, að
málið yrði afgreitt sameiginlega,
til dæmis með því móti að sveit-
arfélögin tvö skipuðu nefnd með
fulltrúum beggja aðila, sem gerði
tillögu um nafn á veginn. Hann
kvaðst því hafa reiknað með, að
staðið yrði að málinu á annan
hátt en gert hefði verið. Hann
sagði ennfremur: „Ég sé ekki
betur en það sé verið að bjóða
upp á að samþykkt verði tvö
nöfn á veginn. Þetta er þó ekk-
ert stórmál, en slæmt ef bjóða á
upp á úlfúð um það. Ég reikna
þó ekki með að svo verði. Við
ræðum þetta á hreppsnefndar-
fundi hjá okkur sem líklega
verður um miðjan mánuðinn."
Sjónvarp Akureyri:
Rugluð dagskrá
frá mánaðamótum
Framboðslisti Stefáns Valgeirssonar og stuðningsmanna:
Lagður fram 15.janúar
Frambjóðendur tilbúnir í þrjú efstu sætin
FRAMBOÐSLISTI Stefáns
Valgeirssonar og stuðnings-
manna hans fyrir alþingiskosn-
Sjónvarp
Akureyri
Dagskrá Sjónvarps Akur-
eyrar verður sem hér segir
í kvöld, fimmtudagskvöld:
Kl. 20.30 Mikki og Donald.
Teiknimynd fyrir yngstu
áhorfendurna.
Kl. 20.55 Myndrokk. Tón-
listarþáttur með myndböndum
og léttu spjalli.
Kl. 21.50 íþróttir.íþrótta-
þáttur í umsjón Heimis
Karlssonar, sem kemur frá
stöð 2.
Kl. 22.45 Hitchock. Stuttar
sögur Hitchcoks færðar í kvik-
myndabúning.
Kl. 23.30 Giftingarhugleið-
inar frú Delafields.
Bandarísk kvikmynd sem
fjallar um ættmóður stórrar
og auðugrar fjölskyldu. Hún
verður ástfangin af lækni
sínum, þrátt fyrir ólíka fortíð
þeirra.
Kl. 01.00 Dagskrárlok.
ingarnar í Norðurlandskjör-
dæmi eystra verður lagður
fram til samþykktar á fundi
stuðningsmanna hans fimmtu-
daginn 15. janúar n.k. Stefán
sagði í viðtali við blaðamann
Morgunblaðsins á Akureyri í
gær, að komið hefði til tals að
merkja listann með listabók-
stöfunum BB og láta síðan á
það reyna hvað forusta Fram-
soknarflokksins hefði um það
að segja.
Að sögn Stefáns er nú ljóst,
hverjir gefa kost á sér í fyrstu
þrjú sæti listans. Hann verður
sjálfur í fyrsta sætinu. Annað
sætið skipar séra Pétur Þórarins-
son á Möðruvöllum og hið þriðja
hefur Auður Eiríksdóttir oddviti
í Saurbæjarhreppi ljáð jáyrði við
að skipa.
Stefán var spurður, hvort hann
hefði fengið leyfi hjá flokksfor-
ustu Framsóknarflokksins til að
nota listabókstafina BB á listann.
Hann sagði, að ekki hefði verið
falast eftir því en bætti við, eins
og að framan greinir, að til um-
ræðu hefði verið að merkja
listann með listabókstöfunum BB
og láta síðan reyna á hver við-
brögðin yrðu fyrir sunnan, eins
og hann orðaoi það. Ekkert væri
þó ákveðið um þetta, það yrði
gert á fundinum þann 15., þegar
gengið yrði frá listanum.
RUGLUN dagskrár hefst hjá
Sjónvarpi Akureyrar um mán-
aðarmótin janúar febrúar. Nú
hafa á milli 500 til 600 afruglar-
ar verið pantaðir.
Að sögn Hallgríms Óskarssonar
dagskrárstjóra Sjónvarps Akur-
eyrar hefst afruglun á efni
væntanlega um næstu mánaðar-
mót. Hann sagði að stór hluti
útsendingartímans yrði sendur út
ruglaður en um leið fengist betra
efni að sunnan til útsendingar.
Aðspurður um hvort nóg yrði
af afruglurum hér á Akureyri til
að sinna eftirspurn, þegar ruglun
hæfíst sagði hann að svo yrði
ekki til að byija með en það myndi
fljótlega lagast. Þegar hafa á
milli 500 til 600 pantað afruglara.
Hallgrímur sagði ennfremur,
að stefnt væri að því að hefja frét-
taútsendingar fljótlega, það yrðu
fréttir sem unnar yrðu hér á
staðnum.
Hús bæjarins við Geislagötu 9 en þar eru bæjar-
skrifstofurnar nú til húsa.
Nýbyggingin við Glerárgötu 26 er í eigu Norður-
verks hf. Mdrgunblaðið/FríðaProppé.
Bæjarráð:
Stefnt að viðbyggingu við Geislagötu
BÆJARRÁÐ hefur samþykkt, að stefna að því að byggja við hús
bæjarins að Geislagötu 9 i stað þess að kaupa hús, sem er í bygg-
ingu við Glerárgötu 26, til að leysa húsnæðisvanda bæjarskrifstofa.
Að sögn bæjarstjóra, Sigfúsar Jónssonar, er áætlað að viðbygging
og breytingar kosti 98 til 99 milljónir króna.
í tillögunni að viðbyggingu við aður við sjálfa viðbygginguna er
Geislagötu er gert ráð fyrir að
slökkvistöð bæjarins, sem er á jarð-
hæð hússins, verði flutt í nýtt
húsnæði og er kostnaður áætlaður
28 milljónir króna. Jarðhæð verður
innréttuð á ný og er kostnaður við
það áætlaður 25 miiljónir kr. Kostn-
áætlaður 45 milljónir króna.
Sigfús bæjarstjóri sagði í viðtali
við blaðamann Morgunblaðsins, að
þessi leið væri ódýrari í krónum
talið en kaup á nýrri húseign við
Glerárgötu 26, en ef talinn væri
kostnaður við hvem fermetra hefði
hin leiðin ekki orðið dýrari þar sem
húseignin við Glerárgötu yrði mun
stærri. Hann sagði þegar ljóst, að
þrátt fyrir viðbygginguna og flutn-
ing slökkviliðsins myndi húsnæðið
ekki nægja til að hýsa ýmsa opin-
bera þjónustu ríkisins.
Ekki er ákveðið, hvenær hafist
verður handa við stækkun hússins
við Geislagötu en ákvörðun um,
hvort hafist verður handa á þessu
ári ætti að liggja fyrir við gerð fjár-
hagsáætlunar nú í þessum mánuði.