Morgunblaðið - 08.01.1987, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 1987
31
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Bíldudalur
Norræn stofnun
Umboðsmaður óskast til að annast dreifingu
og innheimtu fyrir Morgunblaðið.
Upplýsingar hjá umboðsmanni í síma 2268
og hjá afgreiðslunni í Reykjavík í síma
91-83033.
Au-pair
Bandaríska stúlku vantar vinnu strax á höfuð-
borgarsvæðinu.
Upplýsingar í síma 53772 í dag.
Lausar stöður
Lausar eru til umsókna eftirtaldar hlutastöð-
ur (37%) í læknadeild Háskóla íslands sbr.
3. mgr. 10. gr. laga nr. 77/1979.
Dósentsstaða í almennri handlæknisfræði,
dósentsstaða í barnasjúkdómafræði,
dósentsstaða í brjóstholsskurðlækningum,
tvær dósentsstöður í klíniskri handlæknisfræði,
dósentsstaða í líffærameinafræði,
lektorsstaða í félagslæknisfræði,
lektorsstaða í heilbrigðisfræði,
lektorsstaða í heimilislækningum.
Gert er ráð fyrir að stöður þessar verði veitt-
ar til fimm ára frá 1. júlí 1987 að telja. Að
því er varðar dósentsstöðurnar í klíniskri
handlæknisfræði er gert ráð fyrir að önnur
tengist sérfræðingsstöðu við handlæknis-
deild Landspítalans en hin sérfræðingsstöðu
við handlæknisdeild Landakotsspítala.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna
ríkisins.
Umsóknir ásamt rækilegri skýrslu um
vísindastörf, rannsóknir og ritsmíðar, svo og
námsferil og störf skulu sendar menntamála-
ráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík,
fyrir 30. janúar nk.
Auglýsing þessi kemur í stað fyrri auglýsingar
um sömu stöður, dags. 15. desember 1986.
Menntamálaráðuneytið,
2.janúar 1987.
Iðnverkamaður
Okkur vantar iðnverkamann í létta verk-
smiðjuvinnu í ryðfrírri deild okkar að Flata-
hrauni 13, Hafnarfirði.
Uppl. gefur Jóhann Jónsson í síma 52711.
HF.OFNASMIflJAN
HATEIGSVEGUR 7 REYKJAVIK
Rafvirkjar
— rafeindavirkjar
Okkur vantar menn til starfa.
Aðstoðum við útvegun húsnæðis og greiðum
flutningskostnaö búslóðar.
Upplýsingar gefur Óskar Eggertsson vinnu-
sími 94-3092, heimasími 94-3082.
Póllinn hf,
ísafirði.
Múrari
Óskum að ráða múrara til starfa í Færeyjum.
Upplýsingar í síma 622700.
ístak,
Skúlatúni 4.
Reykjavík.
um framhaldsmenntun á sviði vinnustaða-
umhverfis (Nordiska institutionen för vidare-
utbilding inom arbetsmiljöomrádet, NIVA),
sem hóf starfsemi sína árið 1982 og heyrir
undir norrænu ráðherranefndina, óskar eftir
að ráða:
Forstöðumann
(Institutionschef)
Um fullt starf er að ræða að því tilskildu að
ráðherranefndin samþykki það fyrirkomulag
annars verður staðan hlutastarf (60%).
Laun samkvæmt launaflokkum finnskra ríki-
starfsmanna A24-A26.
Grunnlaun samkvæmt A24 eru nú 10.368
finnsk mörk. Starfsmenn sem lokið hafa
doktorsprófi fá greitt samkvæmt launaflokk-
um A25 og A26. í vissum tilfellum kunna
hærri laun að verða greidd. Norðurlandabúar
sem koma til starfa í Finnlandi fá greidda
sérstaka uppbót og nemur hún nú 17.400/
34.800 norskum krónum á ári hverju.
Kostnaðurvegna búferlaflutninga er greiddur
samkvæmt reikningum. Þá mun viðkomandi
fá greiddan styrk vegna kostnaðar við að
setjast að erlendis og nemur hann 13.500/
27.000 dönskum krónum.
Forstöðumaðurinn er yfirmaður einnar deild-
ar stofnunarinnar, sem starfrækt er í Hels-
ingfors í tengslum við stofnun sem sérhæfir
sig í aðbúnaði á vinnustöðum. Hann mun
annast stjórnun og skipulagningu í samræmi
við ákvarðanir stjórnar hennar. Hann mun
stjórna og skipuleggja þá kennslu sem fram
fer innan veggja stofnunarinnar og skipu-
leggja framhaldsmenntun á þessu sviði.
Kennsla fer fram á ensku og kennarar koma
jafnt frá Norðurlöndum sem öðrum löndum.
Námskeiðin eru kennd í Finnlandi og víðar
á Norðurlöndum. Forstöðumaðurinn mun
eiga sæti í stjórn stofnunarinnar.
Kröfur:
Krafist er háskólamenntunar auk þess sem
viðkomandi þarf að hafa mjög gott vald á
ensku og að minnsta kosti einu Norðurlanda-
máli (dönsku, norsku eða sænsku). Þá þarf
hann að hafa starfað við skipulagningu fram-
haldsnáms á þessu sviði.
Reynsla af kennslu og rannsóknir á sviði
vinnustaðaumhverfis koma sér vel. Hið sama
gildir um þá umsækjendur sem starfað hafa
við alþjóðlegar stofnanir.
Viðkomandi mun taka til starfa þann 1. mars
eða eftir samkomulagi og ráðningin ertil fjög-
urra ára. Umsóknir verða að hafa borist
stjórn stofnunarinnar fyrir 29. janúar 1987.
Þær skal senda: NIVA, Topeliusgatan 41 a
A, SF-00250, Helsingfors, Finland. Nánari
upplýsingar um stöðuna veitir Kari Eklund
forstöðumaður í síma (+358 0) 474 7499.
Sambýli fyrir aldraða
Forstöðumaður — starfsfólk óskast
Fljótlega verður hafin starfsemi dvalarheimil-
is fyrir 11-13 aldraða íVesturbæ Kópavogs.
Hér með er auglýst laus til umsóknar staða
forstöðumanns heimilisins. Nauðsynlegt er
að viðkomandi hafi reynslu í störfum á sviði
þjónustu við aldraða.
Jafnframt eru lausar til umsóknar 3 stöður
starfsfólks við sambýlið. Hlutastörf koma til
greina. Gengið er út frá því að um vakta-
vinnu verði að ræða.
Umsóknarfrestur er til 18.janúar. Umsóknar-
eyðublöð liggja frammi á félagsmálastofnun
Kópavogs, Digranesvegi 12. Nánari upplýs-
ingar veitir undirritaður í síma 45700.
Félagsmálastjóri.
Laus staða
í lagadeild Háskóla íslands er laus til um-
sóknar dósentsstaða í lögfræði.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna
ríkisins.
Umsóknir ásamt rækilegri skýrslu um
vísindastörf umsækjenda, ritsmíðar og rann-
sóknir, svo og námsferil og störf, skulu
sendar menntamálaráðuneytinu, Hverfis-
götu 6, 150 Reykjavík og skulu þær hafa
borist fyrir 30. janúar nk.
Menntamálaráðuneytið,
2.janúnar 1987.
Kranamaður
óskast í byggingavinnu.
Upplýsingar í síma 641340 milli kl. 13.00
og 17.00.
Álftárós hf.
Atvinna
Ég er 25 ára og óska eftir atvinnu strax. Er
vön útkeyrslu og ýmsu fleiru.
Tilboð leggist inn á auglýsinadeild Mbl. fyrir
13. jan. merkt: „F — 2035“.
Bifreiðaumboð
óskar að ráða sölumann til að selja nýja bíla,
ritara til vélritunar og sölustarfa.
Óskum eftir að ráða lipurt og reglusamt fólk,
helst sem ekki reykir.
Upplýsingar í síma 38636.
Verkamenn
Fjarðarmót hf óskar eftir verkamönnum í
byggingavinnu. Örugg og mikil vinna fram-
undan. Vönum mönnum borgað vel. Vinnu-
staðir í Reykjavík.
Upplýsingar í síma 54844.
Fjarðarmót hf.,
Kaplahrauni 15,
Hafnarfirði.
Starfsfólk
Óskum eftir að ráða starfsfólk í gangastörf,
morgun- og eftirmiðdagsvaktir og einnig í
fullt starf.
Uppl. á skrifstofu fyrir hádegi í síma 26222.
Elli- og hjúkrunarheimilið Grund.
Aðstoðarmenn
trésmfða
Fyrirtækið er umsvifamikill byggingaverktaki
í Reykjavík.
Starfið felst í aðstoð við trésmíði og allri
almennri byggingavinnu.
Hæfniskröfur eru að umsækjendur séu
hressir, röskir, laghentir og að sjálfsögðu
hörkuduglegir. Kostur er ef reynsla er fyrir
hendi.
Umsóknarfrestur er til og með 21. janúar
nk. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið
störf sem fyrst. Góð laun eru í boði fyrir
hæfa starfsmenn.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
á skrifstofunni frá kl. 9.00-15.00.
Skoldvorðusliq la - Wl Reyk/avik - Simi 621355