Morgunblaðið - 08.01.1987, Page 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 1987
Þórey Helga-
dóttir — Minning
Fædd 15. september 1916
Dáin 26. desember 1986
Elskuleg mágkona mín, Þórey,
hefur nú kvatt þennan heim og
eflaust verið fagnað í nýjum. Eftir
skilur hún fagrar minningar sem
ylja syrgjendum og vekja þakkar-
kennd. Mér flnnst það gæfa fyrir
mig og mitt fólk að hafa átt Lúllu,
eins og hún var ævinlega kölluð í
okkar hópi, sem samfylgdarmann
og vin, óslitið í rúma fjóra áratugi.
Mér er minnisstætt þegar Amlaug-
ur bróðir kom með brúði sína heim
í foreldrahús, beint frá vígsluat-
höfn, til þess að taka á móti blessun
móður okkar, sem lá veik, átti að-
eins fáar vikur eftir héma megin
landamæranna og gat þess vegna
ekki setið með þeim í fagnaði. Þessi
stund með brúðhjónunum ungu,
hamingjusömum og brosandi af
gleði, er eftirminnileg. Hið bjarta
bros brúðarinnar er auðvelt að
muna, því það fylgdi henni alla tíð.
Hver man ekki sem hana umgekkst
mildina og ylinn sem frá brosi henn-
ar stafaði?
Samhent byggðu ungu hjónin bú
sitt með bjartsýni og ábyrgðartil-
flnningu fyrir því hlutverki sem þau
ætluðu sér saman. Hlutur mágkonu
minnar varð stór, hún hélt við ást
eiginmanns síns til æviloka, fæddi
þeim þrjá elskulega syni, bjó fjöl-
skyldu sinni gott heimili, sem hún
annaðist með þeirri natni og
smekkvísi sem hlýjar hendur gera.
Synimir þrír, Sigutjón, Teitur og
Helgi, voru lánsamir að eiga á upp-
vaxtarárum sínum móður sem alla
daga var þeim traust og skjól, með
geði sínu og kristilegu siðgæði,
áhrifavaldur í mótum heilbrigðra
lífsviðhorfa. Böm gera sér tæplega
grein fyrir uppeldisáhrifum foreldra
sinna, svo sjálfsagt er líflð, en þeg-
ar líða fer á ævina býst ég við að
mörgum verði ljós sá arfur, sem
faðir en þó sérstaklega móðir skilar
af sér. Hún bæði skildi og vildi
skila af sér góðum arfí til næstu
kynslóðar, það sýndi hún í verki, í
allri umgengni við mannfólkið, dýr
og jörðina.
Við hjónin emm henni þakklát
fyrir hennar hlut í hamingju okkar,
svo oft áttum við samleið með okk-
ar drengjum og hennar fjölskyldu,
á fagnaðarfundum, á alvörustund-
um og í hinu daglega amstri. Okkur
er ljúft að minnast glaðlyndis henn-
ar og bjartsýni.
6. desember 1975 fellur Amlaug-
ur snögglega frá, hnígur niður er
hann var að hjálpa vini sínum við
búslóðarflutninga. Þá byijar nýr
kapítuli í hennar lífl, að búa ekkja
ein í íbúð.
Þessi síðustu ár hennar hefur
okkur hjónunum orðið tíðrætt um
og einlæglega dáðst að stillingu,
kjarki, bjartsýni og aðlögunarhæfni
hennar. Aldrei var kvartað, þrátt
fyrir veikindi og slys. Allan tímann
sem líf okkar tvinnast saman sýndi
hún reisn og mannkosti sem frá
Guði em komnir og í Guðsríki hún
dvelur með ástvinum glöðum. Guði
sé þökk fyrir líf hennar. Megi móð-
urbænir hennar blessa S}mina um
ókomin ár og alla þá sem hún unni.
Kristinn Siguijónsson
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
Dyrasímaþjónusta
Gestur rafvirkjam. — S.. 19637.
I.O.O. F. 11 = 168188V2 =
□Gimli 5987187 = 7
□ Helgafell 5987187 VI - 2
í kvöld kl. 20.30 er almenn sam-
koma í Þríbúðum, Hverfisgötu
42. Mikill almennur söngur
ásamt Samhjálparkórnum.
Hljómsveit leikur. Samhjálpar-
vinir gefa vitnisburði mánaðar-
ins. Allir eru hjartanlega
velkomnir.
Samhjálp.
UTIVISTARFERÐIR
Sunnudagur 11. jan. kl.
10.30
Nýársferð að Saurbæ Hval-
fjarðarströnd
Ekið i Hvalfjörð og farið í stutta
gönguferð, en síðan hlýtt á helgi-
stund hjá sóknarprestinum séra
Jóni Einarssyni og fræðst um séra
Hallgrím Pórursson. Verð aðeins
650. kr. Fritt f. böm m. fullorðn-
um. Missið ekki af árlegri nýárs-
og kirkjuferö Útivistar.
Myndakvöld verður í Fóst-
bræöraheimilinu fimmtud. 15. jan.
Þorraferð og þorrablót í Borg-
arfirði 23.-25. jan.
Útivist Grófinni 1, símar 14606
og 23732. Sjáumst!
Útivist.
1927 60 ára 1987
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU3
SIMAR 11798 og 19533.
Dagsferðir
Ferðafélagsins:
Sunnudagur 11. janúar:
1. Kl. 13.00 Gengiö umhverfis
Elliðavatn. Ekið að Rauð-
hólum og gengið þaöan. Létt
ganga á láglendi. Verö kr.
350.
Brottför frá Umferðarmiöstöð-
inni, austanmegin. Farmiöar við
bil. Frítt fyrir börn í fylgd fullorö-
inna.
Ath.: Næsta myndakvöld veröur
íRisinu miðvikudaginn 14. janúar.
Ferðafélag fslands.
Hvítasunnukrikjan
Fíladelfía
Almenn samkoma ki. 20.30.
Ræöumaður Sam Daniel Glad.
Góðtemplarahúsið
Hafnarfirði
Félagsvist i kvöld, fimmtudag
8. jan.
Verið öll velkomin. Fjölmennið.
Hvítasunnukirkjan
Völvufelli
Almennur bibliulestur í kvöld kl.
20.30. Allir hjartanlega velkomnir.
Almenn lofgjörðar- og vakning-
arsamkoma verður i Grensás-
kirkju í kvöld kl. 20.30.
Fólk segirfrá trúarreynslu sinni.
Allir hjartanlega velkomnir.
Hjálpræðisherinn
Almenn samkoma í kvöld kl.
20.30.
Allir velkomnir.
^Apglýsinga-
síminn er 2 24 80
raöauglýsingar — raðauglýsingar — raöauglýsingar
Atlantshafsbandalagið
ídag
Fimmtudaginn 8. janúar heldur Samband ungra sjálfstæðismanna
umræðufund um Atlantshafsbandalagið, stöðu þess í dag o.fl.
Fundurinn hefst kl. 20.00 í neðri deild Valhallar, Háaleitisbraut 1,
og veröur gestur fundarins dr. Gunnar Pálsson er starfar hjá al-
þjóðastjórnmáladeild NATO i Brussel.
Fundarstjóri verður Haraldur Kristjánsson.
Allir velkomnir.
Utanrikismálanefnd SUS.
Sjálfstæðisfólk
í Skagaf irði
Félag sjálfstæðismanna i Skagafjarðarsýslu heldur aðalfund sinn í
félagsheimilinu á Hofsósi föstudaginn 9. janúar kl. 21.00.
Á fundinn mæta: Pálmi Jónsson, alþm., Vilhjálmur Egilsson, hagfr.
og Karl Sigurgeirsson, framkvstj.
Stjórnin.
Sjálfstæðiskvennafélag
Borgarfjarðar
minnist 20 ára afmælisins nk. laugardag þann 10. janúar 1987 i
Sjálfstæðishúsinu Borgarnesi. Opið hús verður frá kl. 15.00-19.00.
Allt sjálfstæðisfólk hjartanlega velkomið.
Stjórnin.
Framhaldsaðalfundur
Sjálfstæðisfélagsins í
Keflavík
verður haldinn fimmtudaginn 8. janúar kl. 20.30 í Glaumbergi, efri
sal, að Vesturbraut, Keflavik.
Dagskrá:
1. Aðalfundarstörf.
2. Kosning fulltrúa á landsfund.
3. Önnur mál.
Mætum öll.
Stjómin.
Framtíðarsýn
Hádegisveröarfundur Stefnis FUS verður
haldinn á veitingahúsinu A. Hansen í Hafn-
arfiröi laugardaginn 10. janúar kl. 12.00.
Efni fundarins er framtíðarsýn Þorsteins
Pálssonar formanns Sjálfstæöisflokksins.
Allir velkomnir ungir sem aldnir.
Stefnir.
Fulltrúaráð Sjálfstæðis-
félaganna á Akureyri
Aöalfundur Fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna á Akureyri veröur hald-
inn i Kaupangi við Mýrarveg sunnudaginn 11. janúar nk. kl. 16.00.
Fundarefni:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Gestir fundarins verða Halldór Blöndal, Björn Dagbjartsson og Tóm-
as Ingi Olrich.
Stjórnin.
Aðalfundur Sjálfstæðis-
félags Skagafjarðar
veröur haldinn í
Höfðaborg, Hofsósi
föstudaginn 9. jan.
kl. 20.30.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfund-
arstörf.
Kosning fulltrúa á
landsfund.
Önnur mál.
Pálmi Jónsson, Vil-
hjálmur Egilsson og
Karl Sigurgeirsson n
Stjómin.
Dalvíkingar
— nærsveitamenn
Almennur stjórnmálafundur verður haldinn i Bergþórshvoli laugar-
daginn 10. janúar kl. 16.00. Frummælendur veröa:
Matthias Á. Mathiesen utanrikisráðherra,
Halldór Blöndal alþingismaöur,
Tómas Ingi Olrich kennari.
Fyrirspurnir og umræöur. Allir velkomir.
Sjáifstæóisféiag Dalvikur.