Morgunblaðið - 08.01.1987, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. JANUAR 1987
35
Stjörnu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
Gagnrýni
Flestar opinberar persónur á
íslandi verða regiulega fyrir
gagnrýni á einn eða annan
hátt, í fjölmiðlum eg víðar.
Gagnrýni á opinberar persón-
ur er viðtekin og flestir taka
henni hugsunarlaust, sem
væri hún sjálfsögð og óum-
breytanleg. Undirritaður telur
gagnrýni geta verið uppbyggi-
lega og þroskandi, sé henni
beitt af jákvæðum hvötum.
Neikvæðar fylgjur geta hins
vegar verið hættulegar. Eða
eins og segir í ímyndaðri goða-
fræði: „Guðinn Gagnrýni á sér
fimm fylgjur: Aðhald, Réttlæt-
iskennd, Framfaraþörf, Öfund
og Hatur." Þær tvær síðast-
nefndu eiga síðan að vinum,
illt umtal, baktal og rógburð.
Fjölmiðlabylting
í dag, í miðri fjölmiðlabyltingu
og flóðbylgju tjáningar, er sér-
staklega mikilvægt að við
þekkjum fylgifiska ganrýninn-
ar.
Siðferði
Mig langar að skoða gagnrýni
nánar. Fyrsta spumingin er:
Hvað liggur að baki gagnrýni
sem- birtist í persónulegum
árásum á einstaklinga? Stund-
um viljum við sjá réttlæti
fullnægt, við teljum okkur vita
að viðkomandi hafi eitthvað
óhreint í pokahominu. Við
ráðumst á einhvem einstakl-
ing vegna þess að við teljum
hann standa í vegi fyrir fram-
fömm, við viljum veita aðhald
o.s.frv. Þetta er í lagi, ef við
gætum þess að vera málefna-
leg og sanngjöm. Það vill hins
vegar oft gleymast og gagn-
lýni verður að sofandi vana.
Blóraböggull
Það sem einnig vill gleymast
er að oft liggur persónuleg
óánægja að baki árásum á
einstaklinga. Og síðan gleypir
fólk við slíkum árásum vegna
þess að það finnur hljómgrunn
í eigin sál. Við þekkjum öll
að þegar við erum þreytt, eða
t.d. hrúga af ógreiddum reikn-
ingum liggur á borðinu fyrir
framan okkur, verðum við oft
á tíðum geðvond. Við verðum
reið yfir vandamálum sem
virðast eilíf. Við lítum þá oft
í kringum oíckur og leitum að
syndasel fyrir vanmáttuga
reiði okkar. Oft sjáum við
drasl eftir bömin á gólfinu eða
við lítum í dagblað og sjáum
mynd af auðkýfingum ganga
glottandi af fundi hjá Seðla-
bankastjóra. Og við höfum
fundið blóraböggul. Það er
helv. eilífa draslið og hávaðinn
í kringum okkur sem gerir
okkur þreytt. Og við öskrum.
Það er auðkýfingnum að
kenna að við emm blönk. Og
við grípum pennann og skrif-
um í Geðvonskudálkinn. Við
gemm aðra að syndaselum
reiði og ófullnægju sem býr í
okkur sjálfum.
Sjálfsþekking
Þeir sem gagnrýna, við öll,
þurfa að gera sér ljósa grein
fyrir þessu, að persónulega
ófullnægja litar stundum
hugsunina. Ég vil ganga svo
langt að segja að gagnrýnend-
ur verði að ganga í gegnum
sjálfsskoðun eða einhverskon-
ar sálgreiningu áður en þeir
taka að sér það hlutvérk að
bæta þjóðfélagið og gerast
dómarar í sekt, sýkn eða hæfni
annarra. Að öðmm kosti getur
þeim hætt til að falla í gryfju
Ófundar og Haturs. í dag, í
miðri fjölmiðlabyltingu, er
þetta mál brennandi og mikil-
vægt. Ábyrgð þeirra sem
gagnrýna er mikil. Þeir geta
hvatt til réttlætis og framfara
en jafnframt lagt æm ein-
staklinga og tilfinningar
saklausra vandamanna í rúst.
Lítum því í eigin barm áður
en við gagnrýnum aðra.
GARPUR
VOpbHOQAPAM FYLGJASr ME£>
HAtASrJÖRNlNNI, EN BREQPOR
VIPSPKENGINGU i'
FJARSKA
X-9
2£f/l—££//íva/
TOMMI OG JENNI
p>ETTA ER SMBLUtZ. HANN GEF- SVT5NA NÚ- SLAÐO
r OR FFeA SÉR hAtt hljóp, en J aug eins fast og
V /MEIPIR EIGINLEGA EKKERT/7 I SETUR
UOSKA
»GÓA ER 8ÚIH Ap
NÁ SÉR/ NÝJAN KÆR-
ASTA ^
'II'
í FyRSTA SKIPTID VISSI \
HÚN EKKMDHANN ER )
aiolprikur y
FERDINAND
SMAFOLK
50 MERE I AM A6AIN
RIPIN6 ON TME BACK OF
MOM'5 BICVCLE...
5ME MAS UUMAT 15
KN0U)N A5A 10-SPEED..
Þá er ég aftur kominn á Hún á eitt „tíu-gíra“ eins
ferð aftan á hjólinu hennar og það er kallað ...
ALMÁTTUGUR!
Ellefu ef maður telur hlið-
argírinn með!
mommu ..
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
„Brids á ystu nöf“ heitir ný
bók eftir breskan stjarneð is-
fræðing, Eric Mansfield að
nafni. Eins og nafn bókarinnar
og menntun höfundarins gefur
til kynna em spilaþrautimar
fagurfræðilegar teiknistofuæf-
ingar, frekar en raunhæf
vandamál sem menn lenda í við
spilaborðið. Spilið hér að neðan
er úr bókinni. Suður spilar sjö
grönd, og höfundur biður lesend-
ur að halda yfir spil AV og spyr:
Nákvæmlega (og þá er átt við
NÁKVÆMLEGA) hvaða spil
verður austur að eiga til að
slemman standi með hjarta út?
Viltu prófa?
Norður
♦ KDG87
VÁ87
♦ ÁKDG10
Vestur ♦ Austur
♦ - ...... ♦ÁÍ096543
V 65432 II VDG9
♦ 64 4 8
♦ 765432 Suður +D9
♦ 2
♦ K10
♦ 97532
♦ ÁKG108
í fyrsta iagi er ljóst að austur
verður að eiga alla spaðana, því
ella getur vestur hnekkt spilinu
strax með spaða út. Þannig er
hægt að bytja á að staðsetja sjö
spil á hendi hans.
í annan stað verður laufið að
gefa fimm slagi, sem gengur
ekki nema D9 sé blankt. Þar
með er austur kominn með níu
svört spil og getur aðeins átt
fjögur rauð.
Sagnhafi á hins vegar aðeins
12 slagi, og verður að fá þann
þrettánda með kastþröng í spaða
og hjarta. Austur verður því að
valda hjartað, sem þýðir að hann
þarf að eiga DG9 nákvæmlega.
Én hjartaútspilið virðist slita
samganginn fyrir kastþröngina,
nema auðvitað austur haldi líka
á tíguláttunni blankri. Þá er
hægt að henda öllum tíglum
blinds niður í laufin heima og
spila tíglinum heimanfrá. Fljót-
lega kæmi þá upp þessi staða:
Norður
♦ K
¥Á8
♦ -
Suður
Austur
♦ Á
♦ D9
♦ -
♦ -
Vestur
♦ 54 ||
♦ -
+ 7 ♦ 2
♦ 10
♦ 2
♦ -
Spaðakónginum er kastað
tígultvistinn. austur neyðist ti
að henda spaðaásnum til ac
valda hjartað, en þá verðui
spaðatvisturinn 13. slagur sagn-
hafa. Glæsilegt!
SKAK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á opnu móti í V-Þýskalandi í
ár kom þessi staða upp í skák
þeirra Y. Nagler og Winkler, sem
hafði svart og átti leik.
Svartur hefur þegar fómað
manni, en léleg liðsskipan hvíts
gaf honum samt kost á að ljúka
skákinni með glæsilegum leik:
19. — He6!l og hvítur gafst upp,
því 20. dxe6 er auðvitað svarað
með 20. — Bxf2+ og mát fylgir
í kjölfarið.