Morgunblaðið - 08.01.1987, Page 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 1987
fclk í
fréttum
007 kominn
Sexhjóla tryllitæki, sem á að komast allra
sinna ferða. í ár byija Japanir að fjölda-
framleiða sex hjóla bOa, svo að framtíðarspá
hönnuðarins hefur þegar ræst.
Allur málmur i þessum bíl er handpússað messing, sem þar að auki er hulið þunnri gullhúð. GriUið eitt
tók heUan mánuð í vinnslu.
ÁHUGAMÁL EÐA LIST?
Sérsmíðaðir bílar
Inýlistasafni New York-borgar,
„Museum of Modem Art“, er að
finna fjörtíu ára gamlan bfl, sem
er þar vegna sögulegs listgildis síns.
Hann hefur veglegan sess, en vera
hans á safninu hefur fengið marga
„listvini" til þess að draga hæfni
safnstjómar í efa.
En bræðumir Sam og George
Barris, þeir sem smíðuðu bflinn árið
1946, eru nú taldir vera upphafs-
menn sérkennilegrar listar, sumsé
sérsmíði bfla, sem telja má enn eitt
afsprengi bandarískrar menningar.
Það sem er sérstakt við sérsmíðaða
bfla er það að þeir eru að öllu leyti
einstakir, engir tveir eins. Að vísu
eru margir hlutir fengnir að láni,
en smiðimir leggja sig fram um að
Karólína prinsessa
ásamt Stefan, eig-
inmanni sínum, og
bömum tveimur.
smíða frumlega bfla, en ekki ein-
ungis sérkennilega bastarða.
Það var hinn 16. september
1946, sem að bræðumir opnuðu
bflskúrinn og renndu kerrunni út.
í fyrstu sýn líktist bfllinn einhverju
sem afi gleymdi upp á háalofti, en
við nánari athugun kom í ljós að
bak við vatnskassann leyndist átta
strokka vél og krafturinn eftir því.
í þessari svipan varð ný della til,
en spumingin er að sjálfsögðu sú
hvort ekki hafi einfaldlega verið um
nýtt listform að ræða í þessu landi
nýjunganna og uppfýlltra drauma.
Einfaldasta svarið er vitaskuld að
segja þetta vera bæði dellu og list,
enda hafa mörkin þar á milli sosum
löngum verið óskýr.
En burtséð frá því hvort að
sérsmíðin hlýtur gæðastimpil ein-
hverra misviturra listfræðinga eða
ekki, þá er ekki hægt að horfa fram
hjá viðtökum fjöldans. „Listamað-
urinn" George Barris þurfti ekki
að bíða lon og don eftir viðurkenn-
ingu og frægð. Áður en 1946 var
liðið var hann með fullt fang af
pöntunum frá bíladellukörlum (list-
vinum?), hvaðanæva að úr Banda-
ríkjunum.
Það em mismunandi stefnur inn-
an „sérsmíðalistarinnar". Sumir
leggja mest upp úr vélinni og vilja
láta rokkinn vera sem háværastann
og fyrirferðamestan. Aðrir Ieggja
meira upp úr mikilli nostursvinnu
ýmis konar, enn aðrir helga sig
frarntíðarsýnum o.s.frv.
I Bandaríkjunum einum saman
er talið að 25 milljónir manna fylg-
ist grannt með því hvað er á seyði
í þessum geira mannlífsins. Af því
sést að gagnrýndendur Nýlista-
safnsins eiga við ramman reip að
draga.
Nýársgjöf
Karólínu
Karólína prinsessa af Món-
akó fékk velþegna nýárs-
gjöf á dögum. Það var þegar
boð komu úr Páfagarði um það
að hjónaband hennar og fyrri
manns síns, glaumgosans
Philip Junot, yrði lýst ógilt
seinna á þessu ári.
Karólína og núverandi mað-
ur hennar, Stefan Casiraghi,
fengu aðeins borgaralega
hjónavígslu, sem kaþólska
kirkjan hefur enn ekki viður-
kennt, en nú stendur það
væntanlega til bóta, henni,
föður hennar, borgurum
Monte Carlo og páfanum til
mikils léttis.
ákreik
Þegar rithöfundurinn Ian
Fleming reit fyrstu bækur
sínar um James Bond, njósnara
hennar hátignar númer 007, lét
hann fylgja nokkuð greinargóða
lýsingu á hetjunni:
James Bond er 180 cm hár,
vegur 76 kg, hefur ör á hægri
öxl eftir byssukúlu og ör á
hægri hendi eftir skurðaðgerð
(tii þess að fjarlægja byssu-
kúlu). Hann er meistari í
skotfimi, hnefaleikum og
hnífakasti. Hann talar ensku,
þýsku og frönsku reiprennandi
og er veikur fyrir konum,
vodka-martini (hristum, ekki
hrærðum) og kampavíni.
Hinn nýi leikari njósnarans
góða, Timothy Dalton, lýsir sjálf-
um sér hins vegar:
„Ég er 186 cm hár, veg 82
kg og ber hvergi ör. Ég kann
hvorki að skjóta, boxa, né kasta
hnífi, ég tala ensku, en kann
ekki stakt orð í þýsku eða
frönsku. Uppáhaldsdrykkurinn
minn er bjór, kvenfólk er mitt
helsta áhugamál, en mig myndi
ekki dreyma um að upplýsa
hver á hug minn allan.
Að undanfömu hafa tökur á
nýjustu Bond-myndinni, „The Liv-
ing Daylight" staðið yfir, en þeim
mun ljúka á allra næstu dögum.
Gert er ráð fyrir að myndin verði
frumsýnd í júní.
Timothy veit að hann er að
feta í fótspor stórra karla: „Ég
velti þessu mikið fyrir mér og.
gerði mér grein fyrir því að ég
yrði alltaf borinn saman við Sean
Connery og Roger Moore. Þess
vegna ákvað ég að slaka á og
reyna að leika Bond eftir eigin
sannfæringu og skilningi á bókum
Flemings."
Auk Bond-m}mdarinnar hefur
Dalton verið upptekinn við að
leika á móti Brooke Shields í
myndinni „Brenda Starr“, sem er
gerð eftir samnefndri myndasögu.
Dalton leikur þó ekki einungis
einhveija töffara í afþreyingar-
myndum, því að á síðasta ári sló
hann í gegn á ijölunum í Lundúna-
borg, þegar hann lék í leikritinu
„Snegla tamin" eftir Shakespe-
are.
Svo er bara að bíða eftir upp-
yngdum Bond.
Timothy Dalton ásamt Maryam d’Abo í myndinni „The Living
Daylight".