Morgunblaðið - 08.01.1987, Síða 43

Morgunblaðið - 08.01.1987, Síða 43
43 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 1987 Frá Laugarvatni. Hússtjórnarskólinn fyrir miðju. sammála um ágæti þess, en um hvað er þá deilt? Jú, menn deila um 90 km fjar- lægð frá höfuðborgarsvæðinu og spyija hvemig á svo sérhæfur skóli að dafna úti á landsbyggðinni? Því er til að svara, að með fram- angreindri aðstöðu er auðvelt að tryggja skólanum tekjur. Skólann má nota sem hótel allan veturinn, t.d. fyrir námskeið til endurmennt- unar, en algengt er að launþegum innan og utan ríkisgeirans bjóðist endurmenntunamámskeið og þá oftar en ekki til launahækkana. Aðstaða til slíkra námskeiða er mjög til fyrirmyndar í þessu hús- næði og vísast, með hliðsjón til annarra landa, að færri kæmust að en vildu. Þá er ekki fjarri lagi að mat- reiðslunemar á fyrstu önn sæu um matargerð undir handleiðslu kenn- ara fyrir annan eða báða heimavist- arskóla staðarins, að mínu viti er það réttur vettvangur við upphaf matreiðslunáms, þ.e. koma nemum fyrst inn í almenna heimilismat- reiðslu og meðferð hráefna, sem er undirstaða í þessari iðngrein. Á framangreindan hátt má tryggja nýtingu þess hráefnis sem nemar verða að vinna úr. Hugsanlega gætu aðildarfélög þau sem að skólanum standa tryggt honum tekjustofn í einhveijum mæli. Ég nefni þetta ekki til að firra ríkið þeirri fjárfestingu sem það á að leggja til skólans, heldur til að auka mátt hans og getu og hafa fijálsara val um ráðningu á hæfum fagkennurum og jafnvel koma til móts við nema hvað varðar aukaút- gjöld, sem þeir telja sig verða fyrir, staðarins vegna. Það er að mínu viti tfmi til kom- inn að lyfta þessu olnbogabami menntakerfisins á hærra plan, enda hefur tiivist þeirra stétta sem úr þessum skóla skrifast sannað þjóð- hagslegt gildi sitt. Eg vona að með þessum orðum hafi ég svarað helstu mótrökum þeirra manna, sem um Hótel- og veitingaskólann hafa fjallað, hvað varðar nýtingu hráefnis, utan Stór- Reykjavíkursvæðisins, en í þeirra rökum hefur enginn nefnt einu orði hvemig hráefni skólans nýtist í dag. En fleira þarf til, til að af öllu þessu geti orðið. Mörgum kemur eflaust á óvart að engin námsskrá er til fyrir þennan skóla. Hana þarf að vinna sem allra fyrst af fæmstu mönnum. Eftirfarandi tillaga hefur fengið góðan hljómgrunn þeirra fagmanna sem lengst og mest hafa unnið við þessi störf. 1. Hótel- og veitingaskóli Is- lands yrði eingöngu fagskóli, sem kenndi ekki aðeins framreiðslu og matreiðslu, heldur öllum þeim sem honum ber að kenna lögum sam- kvæmt. 2. Að einn fjölbrauta- eða menntaskóli í hveijum landsfjórð- ungi gefi kost á forskólanámi (einn til tvo vetur). 3. Kennsluskrá forskóla væri: Tungumál, stærðfræði, skrift, mat- vælafræði, bókhald samhliða undirstöðu í tölvufræði og jafnvel fleiri greinar. 4. Próf úr þessum forskóla gæfi réttindi til inngöngu í Hótel- og veitingaskóla íslands þó að því til- skyldu að viðkomandi nemi hafi tryggt sér námssamning hjá meist- ara á viðurkenndum hótelum eða veitingastöðum, þar sem það á við. í dag fylla framangreind fög um helming af kennsluskrá skólans. Nái þetta fram að ganga má stytta hveija önn skólans úr fjórum í tvö mánuði á ári. Að þessu fengnu fækkar nemum í hverri önn um helming, hinsvegar bættust við þeir nemar sem ekki hefur verið sinnt hingað til, þar á ég við gestamót- tökufólk, veitingastjóra, hótelstjóra og allt starfsfólk innan vébanda Félags starfsfólks í veitingahúsum, þó er um styttra námskeið að ræða, fyrir síðastnefnda hópinn. Einhveija kenningu heyrði ég um að eðlilegast væri fyrir íslendinga að læra hótelstjóm erlendis. Ég er aldeilis hissa á yfirlýsingu sem þess- ari og trúi því naumast að hún komi frá mönnum sem þekkja til hótela hér á landi. Staðreyndir tala sínu máli um þessar kenningar, því þeir sem lengst hafa náð, eru með almenna fagþekkingu og margra ára reynslu innan veggja hótela og veitingahúsa hérlendis. Ástæðan er augljós, á íslandi er tæpast hægt að tala um stórt hótel á heimsmælikvarða. Tvö þau stærstu hafa aðeins á þriðja hundr- að herbergi, og öll hótel önnur þaðan af minni. Af þessum sökum bera þau einfaldlega ekki hótel- stjóra með staðbundna þekkingu á sérsviðum, sem stórhótel eða hótel- samsteypur úti í heimi eiga auðvelt með, enda allt aðrar forsendur fyr- ir rekstri þeirra hótela. En við þurfum engu að kvíða, lítil hótel em og verða persónulegri en þau stóm, því þarf hótelstjóri hér á landi að vera allt í öllu, og bera fullt skyn á flesta þætti hótel- rekstursins, þannig hefur það verið, og þannig hefur best til tekist í okkar litla þjóðfélagi. Það er gott að hafa háleitar hug- sjónir, en stöldmm við og gemm okkur grein fyrir hver þróunin er hér og gefum okkur forsendur í samræmi við hana. Við megum ekki mgla saman veitinga- og hótelrekstri við hina almennu ferðaþjónustu, þ.e. leið- sögumönnum, sölu- og ferðaskrif- stofufólki, markaðsstjórn ofl. En í umræðum hafa mér fundist allir þessir þættir settir undir sama þak. Þær litlu hóteleiningar sem við íslendingar höfum rekið undanfarin ár og komum vonandi til með að reka í næstu framtíð, er samvinna allra starfsmanna hótelanna, sú samvinna getur ekki orðið nema hver einstaklingur hafi þekkingu og skilning á vinnu hins. Það segir sig sjálft að ólíkir hóp- ar úr ólíkum skólum sameinast síður en þeir einstaklingar sem læra á sama stað og fá um leið yfirsýn og skilning á störfum hvers annars, því allar deilur sem upp kunna að koma milli starfsmanna í þjónustu- greinum bitna fyrst og síðast á þeim sem síst skyldi þ.e. viðskipta- vininum. Því ólíkari sem starfs- hópurinn er, því meiri hætta er á þversögnum, misskilningi og stétt- arríg, sem engan veginn samrýmist mannlegum þáttum í hótel- og veit- ingarekstri, en sá þáttur er stærri en sumir ætla og lærist ekki í skól- um, heldur af reynslu og þekkingu innan veggja þessara fyrirtækja. Hveijum og einum er svo í sjálfs- vald sett hveiju hann vill bæta við þekkingu sína erlendis, enda gera það íjölmargir nú til dags. Fyrir stuttu sendi skólanefnd Hótel- og veitingaskóla íslands frá sér einróma tillögur um framtíð skólans. Nú er það í höndum hæst- virts menntamálaráðherra að taka ákvörðun um staðarval og þjóð- hagslega bestu uppbyggingu hans. Að öllu þessu sögðu er það bjarg- fost trú mín að við hér á íslandi getum auðveldlega kennt hótel- og veitingastörf frá a-z. Hver þjóð hefur sinn metnað og sérstöðu, við í skólanefnd Hótel- og veitingaskóla íslands höfum kynnt okkur þróun mála í þeim löndum sem næst okk- ur standa, af þeirri þróun má margt læra, en margt ber jafnframt að varast. Tillaga okkar er því snið- mynd af þeirri þróun, en heimfærð að okkar hefð. Lifum eins og við brosum Tónleikar Grafík Rauðir fletir Forvitnilegt: Tríó Oddnýjar og Ofris. Húsið opnað kl. 22.00. Sími: 11440. Mé' °9 '5 09 16. jaoúaí- MEL OG KIM Um næstu helgi koma til landsins söngkonurnar Mél og Kim. Þær áttu smellinn "Showing Out" sem sat á toppnum á vinsældalistum um alla Evrópu og víðar í síðasta mánuði. "ROCR & ROLL PARTY" Á laugardaginn 10. janúar verður bein útsending í EVRÓPU á 12 m2 risaskjá frá verðlaunaafhendingu 20 bestu tónlistarmyndbanda í heimi árið 1986. Margir vinsælustu tónlistarmenn heims í dag koma fram. Útsending þessi kemur frá sjónvarpsstöðinni Sky Channel og er í EVRÓPU einn af örfáum „afrugl- urum" fyrir þá stöð á landinu. í KVÖLD í kvöld verður hitað upp fyrir helgina. Daddi plötu- snúður er alveg óstöðvandi eftir allar jólaskemmtan- irnar og verður með tónlistina á hreinu. nýtt efni verður vitaskuld á risaskjánum frá sjónvarpsstöðvun- um Music Box og Sky Channel. Svo verður eins og endranær allt skemmtilega fólkið í EVRÓPU. | BINGO! Hefst kl. 19.30____________________________________ j Aöalvinningur að verðmaeti________ ij _________kr.40bús.________________ il Heildarverðmaeti vinninga _________________ TEMPLARAHÖLLIN _________kr.180 þús.______________ Eiríksgötu 5 — S. 20010

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.