Morgunblaðið - 08.01.1987, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 08.01.1987, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 1987 47 Þakkir til unga mannsins í Hagkaupum Þakklát móðir skrifar: Ég vil koma á framfæri þakk- læti mínu til ungs pilts sem vinnur í Hagkaupum í Skeifunni. Því miður vejt ég ekki hvað þessi ungi maður heitir en það sem hann gerði fyrir mig mættu fleiri taka sér til fyrir- myndar, jafnt ungir sem aldnir. Þannig var mál með vexti að ég fór nú fyrir stuttu að versla í Hag- kaupum ásamt sjö ára syni mínum, sem er fatlaður og gengur við tvær hækjur. í þessari verslunarferð okk- ar var hann óvenju þreyttur og þurfti ég að halda á honum og jafn- framt setja vörurnar sem ég versl- aði í körfuna. Þegar ég kem að kassanum til að borga fer strákur- inn minn fram á gang. En þar sem blautt var á ganginum og gólfið mjög hált komst hann ekkert áfram heldur datt aftur og aftur því gúm- míið undir hækjunum er mjög varasamt, hvort heldur er í bleytu eða hálku. Þegar ég var að verða búin að setja vörumar í pokana kemur til mín ungur maður og segir: „Ég ætla að bera pokana fyrir þig út í bfl“. Ég varð mjög undrandi á þessu og sagðist nú ekki vera slíku vön. Þá sagði hann mér að strákurinn minn hefði dottið á ganginum en jafnframt að til stæði að gera end- urbætur á gólfinu svo að það yrði ekki eins hált og það er nú. Ég vil koma á framfæri þakk- læti mínu til þessa pilts og jafn- framt hvetja fólk til þess að taka meira tillit til bflastæðanna sem eru merkt fötluðum og auðvelda fötluð- um að komast í þau. Þessir hringdu . . . Er aldurstak- mark á al- mennings- salerninu í Bankastræti? E.K. hringdi: Ég var stödd niður á Lauga- vegi rétt fyrir jólin og þurfti þá einn krakkinn, ellefu ára að aldri, að fara á salerpiá: Ég sagði dótt- ur minni að fara á almenningssal- emið í Bankastræti en hún kom til baka að vörmu spori og sagð- ist ekki hafa fengið að fara þar inn þar sem hún væri of ung. Mig langar til að spyijast fyrir um það, hvort þessi salemi séu fyrir einhveija sérstaka aldurs- hópa og þá hveija. Manni finnst það svo lítið undarlegt, að ellefu ára krakki, sem fer allra sinna ferða einn um bæinn í strætis- vagni, sé of ungur til þess að nota almenningssalemi. Brúnt seðla- veski tapaðist María KrSstín Þorleifsdóttir hringdi: Ég tapaði brúnu seðlaveski, sunnudaginn 4. janúar sl., annað- hvort fyrir utan Hrísateig 19 eða Laugamesveg 86. Finnandi vin- samlegast hringi { síma 14621. Dömuveski tapaðist Brynhildur Jónsdóttir hringdi: Ég varð fyrir því óhappi á ný- ársnótt að tapa dömuveski á leiðinni frá Háaleitisbraut að Hollywood. Þetta kemur sér mjög illa fyrir mig þar sem í veskinu vom m.a. skilrfkin mín. Finnandi vinsamlegast hafi samband í síma 43455. Leiðrétting* ávísu Elín Guðmundsdóttir hringdi: Eina línu vantaði í vísu eftir Lárus Thorarensen, sem birtist í síðasta sunnudagsblaði Morgun- blaðsins. Rétt er vísan svona: Af hvaða lesti er hneykslið mest? Hátíðaróskin er gleðileg rest. Óðar þegar hátíð hallar heyra má um götur allar, þar sem einn til annars kallar: Gleðileg rest, gleðileg rest! Gullhringur tapaðist Katrín Sigurðardóttir hringdi: Ég tapaði gullhring með fer- köntuðum rauðum steini í desember, sennilega einhvers- staðar í miðbænum. Finnandi vinsamlegast hafi samband í síma 18908. Vitni vantar að ákeyrslu Páll Hreinsson hringdi: Ekið var á bflinn minn, sem er blá Toyota Corolla árgerð 1981, og var lagt við Amtmannsstíg 2, á milli kl. 10 og 12 á Þorláks- messumorgun. Ef einhver hefur orðið vitni að þessum atburði er hann beðinn um að hafa samband í síma 73029. Stöndum sam- an og neitum að borga Kona úr vesturbænum hringdi: Ég er ekki enn búin að ná mér eftir leikritið sem Sjónvarpið sýndi á nýársdag. Er þetta framlag Sjónvarpsins til útbreiðslu eyðnis, þessa hroðalega sjúkdóms sem nú tröllríður mannkyninu? Ég legg til að við sendum Nínu Björk, Hrafn og Kristínu saman til Svíþjóðar í ævilanga útlegð því þar virðast þau geta notið sín best. Við skulum öll standa saman og neita að borga af Sjónvarpinu meðan Hrafn Gunnlaugsson er þar ráðandi. Hann hefur gert of mikið af klámmyndum nú þegar og er það Sjónvarpinu til mikillar minnkunar. Fékk ekki að taka út á inn- leggs nótuna Þórir Gunnarsson hringdi: Bömin mín gáfu mömmu sinni flík í jólagjöf sem hún fór strax eftir jól og skipti gegn innlegg- snótu í þeirri verslun sem flíkin hafði verið keypt í, versluninni Lilju við Laugaveg. En nú vildi svo til að þegar konan mín fór í verslunina nokkmm dögum síðar, og ætlaði að taka fatnað út á inn- leggsnótuna, var þar hafín útsala og fékk hún þau svör frá af- greiðslukonunni, að henni væri óheimilt að taka út á innleggsnót- una fyrr en útsölunni væri lokið. Þetta finnast mér furðulegir við- skiptahættir, því ég stóð í þeirri trú að innleggsnótur jafngiltu peningum. „Skylda sam- félagsins“ Aðalheiður Sigurbjörnsdótt- ir hringdi: Hagstofan segir að ekki sé hægt að láta skrá lögheimili sitt á pósthólf, bát, hjólhýsi eða eitt- hvað hæli, en til er fólk skráð heimilislaust. Mér dettur í hug að beinast liggi við fyrir vinnuglaðan eyjaskeggjann að láta skrá lög- heimili sitt á vinnustað sinn. En til hvers er ungum íslendingum gefíð sjálfræði, Qárræði, lögræði og umráðaréttur bama sinna þeg- ar svo margir neyðast til þess að bakka heim til mömmu og pabba eftir að hafa farið halloka í frum- skógi allsnægta, sem býður upp á yfirdrifið nóg af húsnæðis- vandamálum? Ekki getur þetta verið þáttur í skynsamlegu hag- ræði fyrir þessa sjálfstæðisáfjáðu þjóð? Eg hefði nú haldið að betra væri fyrir einstaklinginn og ný- útsprungnar fjölskyldumar að fá að nota þennann rétt sinn til þess að vera út af fyrir sig á heimili sem það mótar sjálft, án þess þó að þurfa að leggja allann sinn mátt og eigur í sölumar fyrir samastaðinn sem því miður ansi margir hafa gert. Ég vil taka undir þau orð Jóns frá Pálmholti, í DV 29. des. sl., að það er „skylda samfélagsins að tryggja öllum þau gmndvallar- mannréttindi sem húsnæði er“. Eða eru mannréttindi eitthvað ofan á brauð fyrir aurasálir og ístmbelgi af íhaldsættum? Hvar svo sem fólk stendur í pólítík þá hljóta allar sjálfstæðar manneskj- ur, með lágmarks sjálfsvitund, að vilja ráða einhvetju um sitt eigið líf. Hvað er jákvætt við það, að halda aftur af fólki með því að neyða það til að búa í föðurhúsum eða óíbúðarhæfum skúmaskotum fram á miðjan aldur? Lögheimili er lygi, viðurkennd hilling. Heimil- isrétt hafa einungis þeir sem fæðast inn í erfðafestu. Að lokum vil ég láta undmn mína í ljós á því fólki sem í bestri aðstöðu er til þess að mæla fyrir munn alþýðu, að það skuli ekki reyna að hafa bætandi áhrif á kjör hennar með því að draga fram í dagsljósið sannleikann súra sem geijar undir niðri, þá á ég við fólk sem t.d. starfar að fé- lags- og heilbrigðismálum. Þorrablót Þorrablót brottfluttra Patreksfirðinga og Rauða- sandshreppsbúa verður haldið í Domus Medica fyrsta dag þorra, föstudag 23. jan. Miðar verða seldir í Domus fimmtudaginn 15. jan. frá kl. 17 til 19 og laugardaginn 17. jan. frá kl. 14 til 17. Ath. að ekki verður hringt í fólk að þessu sinni. Stjórnin Lilla s. 73763, Erna s. 671877, Esther s. 36195. IBUÐ ÓSKAST Óska eftir að taka 2—3 herbergja íbúð á leigu. Algjörri reglusemi og skilvísum greiðsl- um heitið. Einhver fyrirframgreiðsla ef óskað er. Upplýsingar í síma 621625 frá kl. 18— 20 í kvöld. V13GG.IA TliAMS 4 j&jýjæS Að stíga á stokk og strengja heit er gamall siður hér á landi. Veggjatennis er hins vegar nýleg íþrótt hérlendis en ekki síður spennandi. Það þart tvo til, góða aðstöðu, spaða, títinn bolta og svo kemur hitt afsjáltu sér. Hjá Dansstúdiói Sóleyjar bjóðum við uppá fjóra fullkomna sali til þess að spila þennan spennandi leik og nú gefst fólki kostur á því að fylqjast með af mikilli innlifun / gegn um stóra glugga. Raffitóttwrt Timar i vegqjatennis eru á sérstaklega hagstxðu verði frá kl. 8-4 á daglnn. Það væri alls ekki svo galið að fara i vegqjatennis kl. 8 á morgnana eða i hádeglnu og fá sér svo iéttan morgun- eða hádegisverð i matsal okkar áður en farið er i vlnnuna. \ i Engjateigi 1 , simar 687701 og 687801.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.