Morgunblaðið - 17.01.1987, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 17.01.1987, Qupperneq 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAtíUR 17. JANÚAR 1987 4" Ný stjóm í Austurríki Vín. Reuter. LEIÐTOGAR tveggja stærstu stjórnmálaflokkanna í Austurríki gengu í gær formlega frá myndun nýrrar samsteypustjórnar. Bíður hennar erfið glíma við efnahagsmálin. Franz Vranitzky, fráfarandi kanslari jafnaðarmanna, og Alois Mock, leiðtogi íhaldsflokksins, und- irrituðu samkomulagið fyrir hönd sinna flokka og munu leggja stefnu- skrá stjómarinnar fyrir þingið. 17 ráðherrar verða í stjóminni, fímm færri en í fyrri stjóm, og mun hvor flokkur fá átta í sinn hluc. Þá er dómsmálaráðuneytinu óráðstafað en í það embætti verður skipaður óflokksbundinn maður og sérfróður í lögum. Meginverkefni stjómarinnar verða efnahagsmálin og sagði Vranitzky, að stefnt væri að því að koma fjárlagahallanum niður í 3% af þjóðarframleiðslu árið 1990. Samstarf þessara flokka, jafnaðar- manna og íhaldsmanna, er jafnan nefnt „Mikla samsteypan" í Aust- um'ki enda var hún við völd allt frá stríðslokum til 1966. Svíþjóð: Sviplegur dauðdagi rannsóknarmanns Stokkhólmi. Reuter. SÆNSKUR rannsóknarmaður, sem var að kanna vopnasölu sænsks fyrirtækis og tölvusmygl, féll í gær fyrir eina neðanjarðar- lestina í Stokkhólmi og lést samstundis. Carl-Fredrik Algemon starfaði hjá því ráðuneyti, sem sér um, að sænskum lögum um vopnasölu sé framfylgt. Var hann að bíða eftir neðanjarðarlestinni þegar hann féli skyndilega fram af brautarpallinum og fyrir aðvífandi lestina. Vildi Stokkhólmslögreglan ekkert frekar um atburðinn segja. Algemon var að taka saman skýrslu um þær ásakanir ýmissa sænskra friðarhreyfínga, að AB Bofors, mesti vopnaframleiðandi í Svíþjóð, hefði selt sprengiefni til ýmissa Miðausturlanda fyrir allt að 11 milljónir dollara. Hafa forsvars- menn Bofors neitað þessum áburði en Claes Ulrik Winberg, sem var forstjóri fyrirtækisins þegar um- rædd vopnasala á hafa farið fram, hefur sagt af sér sem formaður sænska vinnuveitendasambandsins. Algemon hafði einnig á sinni hendi að rannsaka mikið tölvu- smygl, sem upp komst um árið 1983. Þá var á síðustu komið í veg fyrir, að mjög fullkomnar, banda- rískar tölvur væm fluttar til Sovétríkjanna frá Svíþjóð. íranskir hermenn, innan landamæra írak, halda fyrir eyrun þegar stórskotahríðin hefst. Rafsanjani: Úrslitaátök stríðsins verða nálægt Basra Washington, Teheran. Reuter. ÍRAKAR hafa stöðvað sókn írana norðaustur af höfuðborg írak, Baghdad, að sögn talsmanna bandaríska utanríkisráðuneytis- ins og segjast þeir fullvissir um að íranir hafi í raun aðeins verið að láta reyna á styrkleika varn- anna þar. Blóðugir bardagar halda enn áfram við aðra stærstu borg í írak, Basra, og er talið að um 50.000 menn hafí fallið í þessum bardögum síðan 24. desember sl. Forseti íranska þingsins, Rafsanjani, sagði í Teheran í gær, að það væri ekki markmiðið með þessum bardögum að taka Basra, en úrslitaátök stríðsins myndu eiga sér stað þar í nágrenninu, en sagði ekki hvar. Hann réðst að Sovétmönnum í ræðu sinni fyrir stuðning þeirra við fr- aka. íranir gerðu í gær eldflaugaárás á Baghdad, er olli verulegu tjóni og írakar gerðu loftárásir á nokkr- ar borgir í íran þ.á.m. hina helgu borg Qom.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.