Morgunblaðið - 18.01.1987, Side 64
STERKTKDRT
-^áL-
Feróaslysa
trygging
SUNNUDAGUR 18. JANÚAR 1987
VERÐ í LAUSASÖLU 50 KR.
Sakadómur:
Kaffibauna-
máli fram
iialdið
Kaf f ibaunamálinu svo-
nefnda verður fram haldið
I Sakadómi Reykjavíkur á
mánudag. Þá verður lokið
við að yfirheyra vitni. Nœstu
daga fara síðan fram sam-
prófanir og að þeim loknum
verður málið flutt.
Fimm starfsmenn Sambands
íslenskra samvinnufélaga voru
ákærðir í janúar 1986 og gefíð að
sök að hafa á árunum 1980 og
2^981 náð undir SÍS með refsiverð-
um hætti 4,8 miiljónum dollara,
eða um 200 milljónum íslenskra
króna. Rannsókn á vegum skatt-
rannsóknarstjóra hafði leitt í ljós
að endurgreiðslur kaffísala í Bras-
ilíu á árunum 1979, 1980 og 1981
lentu í sjóðum SÍS, en ekki Kaffí-
brennslu Akureyrar, sem flutti
kaffíð inn fyrir milligöngu Sam-
bandsins.
Ensk knattspyrna íLaugardal
ENSKA knattspymuliðið Watford og úrvalslið þriggja Reykjavík- geta farið fram á íslandi í sumarveðri á meðan „Síberíuvetur“
urfélaga léku á gervigrasvellinum i Laugardal í gær. íslandsferð ríkir í Evrópu og flestum knattspymuleikjum á Englandi og
Watford og leikurinn hér hefur vakið töluverða athygli á Eng- Skotlandi frestað.
landi. Mönnum þar finnst undarlegt að knattspyrauleikur skuli
Pompidousafnið kaupir
fjórar myndir af Erró
POMPIDOUSAFNIÐ í Paris, eitt af raerkustu söfnum heims um
nútímalist, hefur keypt af íslendingnum Erró fjórar stórar
myndir. Er viðfangsefni þeirrar stærstu olían í heiminum, önn-
ur nefnist Mao í Feneyjum, sú þriðja Vatnslitur á Rauðatorgi
og fjórða myndin er Stravinski-myndin sem prýðir bókarkápu
íslenskrar Iistaverkabókar AB um Erró.
Forstöðumaður safnsins, Dan- Margt fleira er Erró með í tak-
ique Boso, lét það verða sitt inu, m.a. gríðarstóra veggmynd í
fsíðasta verk áður en hann hætti Ráðhúsið í Lille, tillögu að vegg-
þar að tryggja Pompidousafninu mynd í nýja vísindasafnið í Villette
þessi verk Errós, sem hann hafði í París og skreytingu á heilum
geymt og ekki ætlað að láta frá strætisvagni. Um hátíðamar var
sér. Þetta kemur fram í viðtali í Párís sýning á verkum Erró og
við listamanninn í blaðinu í dag, hann er einn fímm listamanna
þar sem m.a. eru birtar í litum sem valdir vom sýningu til að
myndir af verkunum. Hér með kynna franska menningu í Aust-
fylgir myndin af Mao í Feneyjum. urlöndum. Sjá b!2-13.
Húsnæðisstofnun:
Lífeyrissjóðirnir
lána 3,3 milljarða
15 sjóðir hafa ekki gert samninga um skuldabréfakaup
ALLS hafa 63 lífeyrissjóðir
nú samið við Húsnæðisstofn-
un ríkisins um kaup á
skuldabréfum Bygginga-
sjóðs í ár og á næsta ári.
Munu sjóðimir kaupa
skuldabréf fyrir um 3,3
milljarða króna í ár og ekki
minna næsta ár. Um 15
starfandi sjóðir hafa ekki
samið um skuldabréfakaup
hjá stofnuninni.
Fyrir rúmri viku hafði um helm-
ingur lífeyrissjóðanna gengið frá
samningum um skuldabréfakaup
hjá Húsnæðisstofnun og aðvaraði
stofnunin þá sjóðina sem eftir
voru. Síðan hafa margir sjóðir
samið um skuldabréfakaup, þann-
ig að nú eru aðeins um 15 starf-
andi sjóðir eftir. Komið hefur fram
hjá framkvæmdastjóra Húsnæðis-
stofnunar að félagar í þessum
sjóðum fá ekki lán fyrr en sjóðim-
ir hafa samið og sjóðfélagar
kunna að fá lán sín síðar en aðrir
ef sjóðimir ganga ekki frá sínum
málum fljótlega.
Flestir stærri lífeyrissjóðimir
hafa samið við Húsnæðisstofnun,.
en eftirtaldir sjóðir hafa ekki gert
það: Eftirlaunasjóður Akureyrar-
bæjar, Eftirlaunasjóður atvinnu-
flugmanna, Eftirlaunasjóður
Hafnarijarðarkaupstaðar, Eftir-
launasjóður Keflavíkurkaupstað-
ar, Eftirlaunasjóður starfsmanna
Útvegsbankans, Eftirlaunasjóður
starfsmanna Búnaðarbankans,
Lífeyrissjóður Akranesskaupstað-
ar, Lífeyrissjóður bænda, Lífeyris-
sjóður Iðju á Akureyri, Lífeyris-
sjóður starfsmanna Kópavogs-
kaupstaðar, Lífeyrissjóður
múrara, Lífeyrissjóður starfs-
manna Vestmannaeyjakaupstað-
ar, Lífeyrissjóður Tannlæknafé-
lags íslands og Lífeyrissjóður
trésmiða á Akureyri.
Leitin á Botnsheiði:
Konan lést af slys-
förum í Tungudal
KONAN sem leitað var að á Botnsheiði fannst látin í
Tungudal inn af Skutulsfirði rétt fyrir klukkan hálf eitt í
fyrrinótt. Hún var 69 ára gömul, búsett á Suðureyri við
Súgandafjörð.
Konan var á leiðinni frá Suður- i ógreiðfær og hefur konan fallið á
eyri til ísafjarðar á föstudag. Tók I svelii í brattri brekku og látist.
hún sér far með bíl en bíllinn varð
að snúa við á Botnsheiði vegna
ófærðar. Fór hún úr bílnum um
klukkan 15 og ætlaði að ganga í
bíl sem talað var um að kæmi á
móti henni ísafjarðarmegin. Farið
var að svipast um eftir henni þeg-
ar hún hafði ekki skilað sér í bílinn
um klukkan 17. Félagar úr Hjálp-
arsveit skáta á ísafirði leituðu í
snjóbíl og síðar einnig á vélsleðum.
Skipuleg leit hófst fljótlega og
síðar um kvöldið voru björgunar-
sveitir Slysavamafélags íslands á
Isafírði og í nágrannabyggðarlög-
unum kallaðar út til leitar.
Konan fannst um klukkan 00.20
um nóttina og var þá látin. Hafði
hún farið út af veginum á miðjum
ófæra kaflanum, sem í allt var 2-2
lh km að lengd, og fylgt háspennu-
línu niður í Tungudal í átt til
ísafjarðar. Leiðin niður í dalinn er
Norðursjór:
Leitað að skip-
verja af Karlsefni
MAÐUR féll út af Karlsefni
RE í gærmoi'gun. Skipið var
þá statt í Norðursjó, gmnnt
út af Peterhead í Skotlandi,
á leið heim úr söluferð í
Grimsby.
Talið er að maðurinn hafi
fallið útbyrðis á milli klukkan 6
og 9 um morguninn. Skipveijar
hófu leit og óskuðu eftir aðstoð.
Skipuleg leit, sem stjórnað er
frá björgunarstöðinni í Aber-
deen, hófst um klukkan 10 og
var leitað með skipum og þyrl-
um, en hún hafði ekki borið
árangur um hádegið í gær.