Morgunblaðið - 24.01.1987, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. JANÚAR 1987
17
frtæ
k
Oli,
hurðimar falla að stöfum hljótt og
þétt eins og á ísskápum.
Á rúðuþurrkunum er stiglaus
tiðnistilling á tímarofa og kemur
að góðu haldi í súldinni. Á afturrúð-
unni er hin bráðnauðsynlega þurrka
vel staðsett og sprautan hjálpar til
að halda hreinu nægilega stóru
svæði til að hafa gott útsýni aftur-
fyrir bílinn.
Stjórntækin
Það er með Nissan Sunny eins
og aðra bíla þama að austan, stjóm-
tækjunum er einkar vel fyrir komið
og mjög gott að valda þeim. Fótstig-
in með hæfilegt bili á milli og létt,
rofar og stengur með sama marki.
Þó er ein undantekning þar á. Rof-
inn fyrir afturrúðuþurrkuna er á
vondum stað og erfítt að finna hann
í myrkri.
Mælaborðið er skýrt og íþyngir
ekki með flókinni uppsetningu. Þar
eru hraðamælir og snúningsmælir
í öndvegi, bensín- og hitamælir til
hliðanna. Annað er sýnt með aðvör-
unarljósum. Einn galli er á
mælaborðinu, það nær að speglast
í hliðarrúðunni í myrkri. Ekki stór-
vægilegt, en pirrandi.
Nissan
Sunny
1.5 SLX.
Morgunblaðið/Bjami
Stjórnklefinn í Sunny. Stýrishjólið er þægilegt,
gott að ná gripi á því. Klæðningin er smekkleg og
vönduð.
Morgunblaðið/Bj ami
Fullklædd farangursgeymslan er vel nýtt og stækk-
anleg með því að leggja aftursætið fram, allt eða
að hálfu.
Helstu staðreyndir
Lengd mm 4.215
Breidd mm 1.640
Hæð mm 1.380
Þyngd kg 955
Hlassþyngd kg 460
Veghæð mm 150
Sætafjöldi 5
Dyrafjöldi 5
Vél Gerð Vatnskæld, 4 strokka línuvél m. yfirl. knastás
Slagrúmmál sms 1.487
Hestöfl/sn.min. Togkr. kgm/sn. 84/5.600
mín. 12.3/3.600
Þjöppunarhlutfall 9:1
Eldsn.kerfi Tveggja hólfa blöndungur
Tankur Itr. 50
Gírkassi 5 gira alsamhæfður
Hlutföll 1. 3.063
2. 1.826
3. 1.207
4. 0.902
5. 0.756
Afturáb. 3.417
Drifhlutfall 4.353
Stýri Tannstöng
Fjöðrun Sjálfstæð á hveiju hjóli, gormar.
Hemlar framan/aftan Diskar/skálar, hjálparafl.
J;ím Þaegindin
Svona bíll, eins og venjulegur
Nissan Sunny er, hefur að sjálf-
sögðu ekki uppá að bjóða öll
heimsins þægindi sem finnast í
bílum. Merkilegt hvað bílar í dag
komast þó langt af litlum efnum.
Sunny er dæmigerður að því leyti,
hann er ekki hlaðinn aukabúnaði
og er þó sem ekkert vanti.
Sætin eru góð og halda vel, sér-
staklega er bakið gott í langferðum.
Aftursætin er hægt að leggja niður
og stækka þannig farangurs-
geymsluna. Hægt er að fella hluta
sætisbaksins ef vill 60% eða 40%.
Miðstöðin hitar af miklum móð
og blæs af engu minni krafti. Það
má amast við henni ef maður vill,
hún er hávær á mesta hraða og
hitastillingin er ónákvæm, en hún
virkar og er fljót að vinna sitt verk
á köldum morgni.
Hljóðeinangrunin er líklega veik-
asti bletturinn á þessum Sunny sem
hér um ræðir. Þar er fyrst að nefna
hjólaskálarnar að aftanverðu. Þær
eru ekki nægilega vel varðar, þann-
ig að steinkastið smellur þar hátt
og hvinur hjá hjólunum ágerist með
auknum hraða. Vélarhljóð er ekki
áberandi fyrr en komið er upp á
4.000 snúningana, en hins vegar
drynur nokkuð í pústkerfinu á inn-
gjöfinni, það hljóð hverfur þegar
hætt er að gefa inn og ekið á jöfn-
um hraða. En þrátt fýrir þessa
galla er hljóðeinangrunin engan
veginn alvond. Vindhljóð er lítið og
furðuvel hefur tekist að deyfa veg-
Reynsluakstur:
Nissan Sunny 1.5 SLX
Umboð á íslandi:
Ingvar Helgason hf.
Verð kr.
400.000
hljóðið sem venjulega kemur frá
hjólunum upp í gegnum öxla og
spymur og drynur síðan um allan
bílinn, því meira sem vegurinn er
grófari. Hér heyrist sáralítið eftir
þessari leið og er til mikilla þæg-
inda á lengri leiðum, fátt þreytir
jafnmikið og linnulaus hávaðinn frá
veginum.
Plássið er gott að framanverðu,
jafnvel fýrir stóra menn. Að aftan
er ekki alveg jafn rúmt, en ætti
ekki að vera til vandræða. Fjórir
fullorðnir sitja sem sagt þokkalega
rúmt, hægt að koma fimm í sæti.
Klæðningin
Japanskir bílar virðast hafa
ákveðinn gæðaflokk hvað varðar
flest sem í þeim er. Heyrir til al-
gerra undantekninga ef þar bregður
í einhverju út af. Skýringin er sú,
hve vélvædd framleiðslan er, þar
er lítið svigrúm orðið fyrir mannleg
mistök að eiga sér stað, sérhvetjir
tveir bílar eru fyllilega sambærileg-
ir um gæði, mánudagsbílamir heyra
sögunni til.
Klæðningin í Nissan Sunny er
augljóst dæmi um þetta. Þar er
hægt að ganga að ákveðnum gæða-
flokki vísum og sá maður má verða
hissa sem finnur veilur þar á. Bíllinn
er fullklæddur í hólf og gólf og er
frágangur vandaður og klæðningin
öll smekkleg og þægileg. Áklæðið
sjálft er einkar notalegt og i heild
er hlýlegt að koma inn i vagninn.
Aðeins hillan yfir farangursrýminu
gaf frá sér hljóð á vondum vegum,
annars marraði ekki né brakaði í
neinu.
Farangursgeymslan er klædd
líka og nýtist rýmið þar vel, hún
opnast alveg niður að stuðara og
því ekki erfitt að koma þyngri hlut-
um inn.
Niðurstöður
Nissan Sunny SLX er gott dæmi
um þá þróun sem hvað mest er
áberandi í bílaiðnaði nú á tímum.
Háþróuð tækni við framleiðsluna
gerir kleift að smíða bíla með ákveð-
inn gæðastimpil, hægt er að treysta
á að þau gæði eru fyrir hendi og
öll sjálfvirknin leiðir til þess að
bílarnir eru mun ódýrari en ella
hefði verið. Bíll í þessum gæða-
flokki hefði fyrir fáeinum árum
verið í allt öðrum og hærri verð-
flokki.
Sunny SLX er fyrst og fremst
fjölskyldubíll, meðalstór og fáanleg-
ur í margskonar útfærslu. Hann er
lipur og aflmikill af slíkum bíl að
vera, laglegur útlits og þægilegur
í akstri. Hann er enginn súperbíll
og er ekki heldur gefínn út fyrir
að vera það, en uppfyllir vel þær
kröfur sem til hans eru gerðar.
Helstu kostir:
Gott vélarafl, verðið, góður frá-
gangur.
Helstu gallar:
Hávaði frá afturhjólum, ónákvæm
miðstöðvarstilling, hávær miðstöð.