Morgunblaðið - 24.01.1987, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 24.01.1987, Blaðsíða 59
I I MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. JANÚAR 1987 Þessir hringdu . . . Ókurteisi Einn fúll hringdi: Um daginn hringdi ég í Tennis og badmintonfélag Reykjavíkur. Það var svarað:,, Tennis-og bad- mintonfélag Reykjavíkur“ röddin var þvogluleg og ég heyrði ekki rétt vel, sagði því „ha“. Mér var þá svarað að bragði: „Heyr- irðu ekki neitt mannfjandi, Tennis- og badmintonfélag Reykjavíkur." Ég spurði þá hvort ég gæti innritað mig á námskeið hjá félag- inu en það var ekki að tala um. Röddin sagði: „Þetta kemur mér ekkert við hringdu á morgun kl.9.“ Tímaritið Smell- ur, hvar er það? Hrafnhildur Erlingsdóttir hringdi: í júní á síðasta ári gerðist ég áskrifandi að tímaritinu Smellum. Ég borgaði fyrirfram fyrir 5 blöð en enn hef ég aðeins fengið eitt þeirra. Og það þrátt fyrir að hafa fengið loforð útgefandans fyrir því að hin blöðin yrðu send mér ekki síðar en um mánaðarmótin nóv/des.. Nú vil ég fá að vita hvort blað- ið er dáið út af, má ég þá eiga von á endurgreiðslu, eða má ég enn eiga von á því að fá blöðin? „Að breyttu breytanda“ Þorsteinn Guðjónsson hringdi: Fimmtudaginn 22.jan. fékk ég birta grein eftir mig á síðum Vel- vakanda. Fyrirsögnin, sem ég gerði sjálfur, hafði verið brengluð. Þar stóð „Að breyttum breyt- anda“. Þetta tel ég alrangt og ekki stætt á því að orða þetta öðruvísi en svona: „Að breyttu breytanda" (þ.e. að breyttu því sem á að breyta). Og þannig vil ég hafa þetta. Týndi seðla- veski-hringdu aftur Sigurður Bjarni hringdi: í bytjun nóvember tapaði ég seðlaveski. Skömmu síðar hringdi maður í mig og kvaðst hafa fund- ið veskið, sagðist hann heita Sigurður. Nú vildi svo illa til að ég týndi símanúmeri mannsins. Nú vil ég biðja hann að hringja í mig aftur í s.72039. Ekki okkar að dæma Kristinn hringdi: Réttilega hefur verið bent á það að S.R. Haralds hefur farið rangt með orð Biblíunnar. En þar stend- ur einnig:„Dæmið ekki til þess að þér verðið ekki dæmdir." Það er einnig rétt að kynvilla er röng samkvæmt orði guðs. En það er ekki okkar að dæma þetta fólk því allir höfum við syndgað. Guð elskar syndaran jafnt og aðra og vill að þeir iðrist gerða sinna og snúi sér frá syndinni til hans. „Hann hefur haldið vel á málum“ Ég get ekki látið hjá líða að senda Sverri Hermannssyni ráð- herra kveðju og vil ég lýsa aðdáun minni á því hversu vel hann hefur haldið á máli embættis síns í þessu margfræga deilumáli sem geisað hefur á Norðurlandi eystra. Ég hef fylgst með málflutningi hans á alþingi og í blöðum. Sverrir set- ur mál sitt og skoðanir mjög vel fram og er ekki tvísaga í neinu. Hann er kunnáttumaður mikill og skemmtilegur málflytjandi. Þátt- urinn „Einvígi á Stöð 2 var alveg afbragð þar sem Sverrir sat fyrir svörum. Skemmtilegri þáttur hef- ur varla birst á skjánum áður. Á NÝÁRSDAG1987 „Komið og fylgið mér, og ég mun gjörayður að mannaveiðurum." Matt. 4:20. Þannig talaði Jesús til físki- mannanna við Galfleuvatnið forðum, Símon og Andrés hlýddu kalli hans og fylgdu honum. Þeir hlýddu á orð hans, sem voru „andi og líf“. Jóh. 6:63. Hann sagði: „Ég er ljós heims- ins, hver sem fylgir mér, mun ekki ganga í myrkrinu, heldur hafa ljós lífsins." Jóh. 8.12. Lærisveinar hans hafa í gegnum aldir haldið þessu ljósi uppi, svo aðrir mættu sjá það og njóta leiðsagnar þess. „Hver sem elskar mig, mun varðveita mitt orð.“ Jóh. 14:23. Davíð konungur í ísrael sagði: „Þitt orð er lampi fóta minna, og ljós á vegi rnínum." Sálm. 119:105. Sjó- menn vita hvers virði vitar eru og öll umferðarljós, hvort þau eru á sjó og landi. Það þarf allt að vera í lagi, og þess er krafist að farið sé eftir þeim í öllu, annars er voðinn vís. Salem-sjómannastarfið hefir leit- ast við að beina þessu ljósi til sjómanna og annarra sem á vegi hafa orðið um 40 ára skeið. Guðsorð hefir ævinlega blessun í för með sér, til þeirra sem vilja tileinka sér þau fyrirheit, sem Guð gefur. Guð bregst aldrei orði sínu. Þitt orð er Guðs, vort erfðafé. Þann arf vér bestan fengum. (H.H.) „Sælir eru þeir, sem heyra Guðsorð og varðveita það.“ Lúk. 11:28. Starfið hefír gengið með svipuðum hætti og un .anfarin ár. Orði Guðs hefír verið ð til fólks af 40 þjóðern- um, svo c því sést að akurinn er nokkuð stór. Gefnar voru 40 Biblíur, 60 Nýjatestamenti og 40 Passíusálm- ar og 40 snældur með söng og vitnisburði um Jesú. Aðrir fengu smærri Biblíuhluta hver á sínu máli. Farið var um borð f um 300 íslensk skip og báta og 130 erlend. Nokkrum sinnum voru hafðar guðræknisstund- ir um borð og sýnd kristileg mjmd- bönd. Jólapakkar urðu að þessu sinni 305, liðlega helmingur var til er- lendra sjómanna. Auk þess voru sendar jólakveðjur og blöð til 27 skipa og vitavarðanna á Homi og Galtar- vita. Einnig voru á árinu send blöð á hvert sveitaheimili í sýslunni. Ég er þakklátur öllum, sem á einn eða anna hátt hafa stutt starfíð eða sýnt því viðurkenningu. Ég bið Guð að launa ríkulega þeirra kærleika og fómfýsi. Ég get ekki annað en nefnt færeyska skipafélagið Smyril Line, sem í þriðja sinn bauð okkur hjónun- um far með skipi sínu „Norröna" til Færeyja og Noregs. Var það mjög ánægjuleg ferð, sem gaf okkur tæki- færi til að vera á sumarmóti hvíta- sunnumanna í Hamar í Noregi, þar sem fleiri þúsundir voru saman kom- in í viku til að lofa Drottin og uppbyggjast í samfélaginu við hann. Þama vom m.a. kristniboðar frá 30 löndum. Þaðan fómm við svo til Svíþjóðar og heimsóttum í annað skipti vini okkar á trúðboðsskipinu ELIDA, þar sem við vomm í 4 daga. Það er sérstök upplifun að kynnast þessari starfsgrein í víngarði Drott- ins. Í allri ferðinni var útbýtt kristi- legum smárítum í þúsundatali á mörgum tungumálum. í þessum lönd- um nutum við svo gestrisni og vináttu margra góðra vina. Það er mikil náð að fá að gegna þessari þjónustu meðan Guð gefur mér heilsu og krafta til þess. Þörfin er mikil og viðtökumar hjá sjómönn- Eldri borgari skrifar: Fyrir skömmu var tekin fyrsta skóflustungan að þjónustumiðstöð fyrir aldraða á homi Aðalstrætis og Vesturgötu. Þessu ber að sjálf- sögðu að fagna - sérstaklega af okkur, sem komnir eru yfír miðjan aldur. Vonandi verður ekki látið staðar numið við þessa framkvæmd heldur þetta stórelft þar sem þörfín er gífurleg enda vel skiljanlegt þar sem stór hópur ellilífeyrisþega af öllu landinu streymir til Reykjavík- ur. í nýlegri könnun var sagt, að mig minnir, að þessi hópur væri 17% af þjóðinni. Það gæti þýtt að í Reykjavík væri hlutfallið orðið eða yrði um 25%, þ.e. kalla mætti Reykjavík bráðum borg hinna „öldr- uðu“. Mikilvægt er því fyrir þennan stóra minnihluta að standa vörð um sérhagsmunamál og styðja þá sem vinna að þessum málum. Til dæmis um eru frábærar, svo ég er viss um að orðið ber ávöxt í hjörtum margra, og hefí reyndar sannanir fyrir því. Hinar mörgu vinarkveðjur víðsvegar að bera líka vitni um það. „Guði séu þakkir, sem gefur oss sigurinn fyrir Drottin vorn Jesúm Krist." 1. Kor. 15:57. Orð Jesú, „komið og fylgið' mér,“ hljóma enn í dag. Hann kallar á mig, hann kallar á þig. Guð gefi hverjum þeim sem heyrir náð til að hlýða kallinu. „Hver sem eyra hefír, hann heyri." Op. 3:6. Eins og skínandi ljós, eins og ljúf- asta rós er hans lífsorð á braut vorri hér. Hver fær útmálað slíkt, hversu ununarríkt hann að elska og tilbiðja er. Hlýð þú hans raust. Og til hans ber þitt traust. Þú munt gleðjast í Guði ef þú gegnir hans raust. Guðs náð og blessun hvfli yfír sér- hveijum sæfarenda, landi okkar og þjóð. „Ó, land, land, land, heyr orð Drottins." Jer. 22:29. „Sæl er sú þjóð, sem á Drottin að Guði.“ Sálm. 33:12. í Guðs friði. má nefna svokallað „Borgarspítala- mál“. Með því að selja ríkinu spítalann þá getur borgin losnað við að greiða hallan af honum og notað þá peninga í þjónustumið- stöðvar fyrir aldraða. Þetta eru rökin hjá bæði Davíð Oddssyni borgarstjóra og Ragnhildi Helgad- óttur fyrir sölu spítalans til ríkisins, þ.e. með þessu móti gæti borgin snúið sér að málum okkar eldri borgara. Allt þetta tal starfsfólks spítalans móti sölunni sýnist mér bera keim af eigin hagsmunum. Alltént ber það ekki hagsmuni okk- ar fyrir brjósti. Þessvegna tel ég mikilvægt fyrir okkar samtökum eldri borgara að styðja þá sem mest, sem okkur styðja í þessum málum en snúast á móti þeim stjómmálamönnum Reylq'avíkur, sem em á móti þess- ari sölu og þar með leggja stein í götu okkar vitandi eða óafvitandi. Sigfús B. Valdimarsson Stöndum saman eldri borgarar! stórkostleg húsgögnum i húsgagna- deild ö o & Gerið góð kaup Opið kl. 10-16. J«C I það hefur alltaf borgaö sig að versla á Vörumarkaðinum m ; i Vörumarkaöurinn hf. ^ W 1 Nýjabæ-Eiðistorgi Sími 622-2001
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.