Morgunblaðið - 18.02.1987, Side 1
19. febrúar 1937 - Hvöt, félag sjálfstæðiskvenna í Reykjavík, 50 ára - 19. febrúar 1987
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 1987
BLAÐ
Tryggjum þremur sjátístæðis-
konum í Reykjavík þingsæti
- Rætt við Maríu E. Ingvadóttur,
formann Hvatar
„Sjálfstæðisflokkurinn hefur allan sinn aldur verið
sterkt og þróttmikið þjóðfélagsafl á íslandi,“ sagði María
E. Ingvadóttir, formaður Hvatar, félags sjálfstæðis-
kvenna í Reykjavík, í viðtali í tilefni af 50 ára afmæli
félag-sins, sem er á morgnn, 19. febrúar.
„Þegar Hvöt, félag sjálfstæðis-
kvenna í Reykjavík, var stofnað
19. febrúar 1937 var tilgangur
þess fyrst og fremst sá að vinna
að framgangi sjálfstæðisstefnunn-
ar og auka þátttöku kvenna á
opinberum vettvangi. Hvöt hefur
frá upphafi verið mjög öflugt félag
og hefur haft mikil áhrif á stefnu-
mál Sjálfstæðisflokksins — ekki
síst á sviði jafnréttis- og fjölskyldu-
mála, almannatrygginga-, heil-
brigðis- og menntamála. Eg finn
stöðugt aukinn áhuga hjá konum
á stjórnmálum almennt og stjóm-
málaþátttöku, þannig að áhuga-
svið þeirra er ekki bundið við
ákveðna málaflokka umfram aðra.
Það er mjög mikilvægt að konur
sem karlar taki þátt í stefnumótun
flokksins í öllum málaflokkum svo
stefnan endurspegli þá víðsýni og
framfarahug, sem flokkurinn legg-
ur áherslu á.
Aðstaða Sjálfstæðisflokksins til
að koma fram hugmyndum sínum
og stefnumálum þarf að 'verða enn
sterkari til að raunverulegur ár-
angur náist m.t.t. bættra lífskjara.
Engin önnur stjómmálastefna hef-
ur eins mikinn hljómgrunn hjá
þjóðinni. Stefna flokksins er
sprottin af þjóðernishugsjónum ís-
lendinga og trúnni á frumkvæði
og frelsi einstaklingsins og fram-
kvæmdaþrótt, svo og viljanum til
að ráða sjálfir eigin málum, eins
og nafn flokksins ber með sér.
Þetta er stofninn sem flokkurinn
byggir á og hann hefur barist fyr-
ir stefnu sinni í rúma hálfa öld. í
þessum flokki býr stöðugt afl nýrra
tírna.
Ég finn það að fólk gerir sér æ
betur grein fyrir því, að Sjáifstæð-
isflokkurinn er einn fær um að ná
þeim markmiðum og uppfylla þær
lífskjarakröfur sem þjóðin vill búa
við í nútímaþjóðfélagi."
María tók við formennsku í
Hvöt haustið 1985 — og hún skip-
ar 10. sætið á lista Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavík fyrir
alþingiskosningarnar í vor. Hún
er viðskiptafræðingur að mennt
og tveggja barna móðir. Brosandi
segist hún líta á 10. sætið sem
baráttusæti flokksins í Reykjavík
í kosningunum. Kosningarnar setja
sinn svip á starf Hvatar í vetur og
á 50 ára afmælisári félagsins færi
vel á því að Sjálfstæðisflokkurinn
fengi þrjár konur kjörnar á Alþingi
í Reykjavíkurkjördæmi. „Þijár á
þing“ var baráttumál Hvatar-
kvenna í kosningunum 1971, á
árinu 1987 gæti það baráttumál
komist í höfn.
„Sjálfstæðisflokkurinn gengur
málefnalega sterkur til alþingis-
kosninganna, efnahagsvandinn,
María E. Ingvadóttir,
formaður Hvatar.
mál þessarar ríkisstjómar, hefur
verið leystur með viðunandi
árangri. Óráðsía vinstri stjórnar
má ekki eyðileggja þann árangur.
Sjálfstæðisflokkurinn verður að fá
slíkt fylgi í kosningunum að hann
hafí óbundnar hendur við fram-
kvæmd eigin stjómmálahugmynda
næsta kjörtímabil.
Framsóknarflokkurinn er löngu
staðnaður flokkur gamalla tíma
og gamalla hugmynda — hann
hefur hvenær sem hann hefur
mátt því við koma reynst flokkur
ríkisforsjár og haft vantrú á nýjum
hugmyndum og leiðum. Afstaða
forystumanna hans hefur alltaf
reynst jafn breytileg og hin
íslenska veðrátta — sem erfitt er
að treysta nema til eins dags í
senn. Flokkur sem lifir í hugmynd-
um fortíðarinnar á skammt í að
heyra fortíðinni til. Steingrímur á
ekki eftir að breyta neinu m.t.t.
fylgis Framsóknarflokksins á höf-
uðborgarsvæðinu.
Á tímabili leit út fyrir að Al-
þýðuflokkurinn væri að auka fylgi
sitt meðal lq'ósenda á höfuðborgar-
svæðinu. En hann hefur nú ofboðið
kjósendum rækilega með undar-
legum uppákomum, „showbusi-
ness“ og mótsagnakenndum
málflutningi. Ég sé heldur ekki að
Alþýðuflokkurinn hafi annað og
meira að bjóða þjóðinni í dag, en
þessir sömu menn höfðu að bjóða
fyrir síðustu kosningar.
Pólitískt tómarúm Alþýðu-
bandalagsins er dapurlegt í dag,
og Kvennalistinn hefur ekki reynst
það þverpólitíska stjómmálaafl
sem þær gáfu sig út fyrir að vera
í kosningunum 1983. Þær hafa
reynst veikar málefnalega, úr hófi
neikvæðar í málflutningi og alls
ekki staðið undir þeim væntingum
sem ég gef mér að stuðningsmenn
þeirra hafi bundið við þær.
Stuðningur við vinstri flokkana
er ávísun á vinstri stjóm, sem eng-
inn vill í raun fá yfír sig. Ég veit
reyndar ekki hvemig Kvennalist-
inn gæti tekið þátt í stjómarmynd-
unarviðræðum með ráðherraefnin
á varamannabekknum.
Kosningabaráttan er að hefjast
um þessar mundir og Sjálfstæðis-
menn em enn ákveðnari en áður
í að vinna sameinaðir að mótun
nýrra markmiða á Landsfundi í
A 50 ára afmælisári Hvatar færi vel á þvi að Ragn-
hildur Helgadóttir, ráðherra, Sólveig Pétursdóttir,
lögfræðingur, og María E. Ingvadóttir, viðskipta-
fræðingur, sem sæti eiga á lista Sjálfstæðisflokksins
í Reykjavík, næðu allar kjöri sem þingmenn.
Ragnhildur Helgadóttir, ráðherra, Auður Auðuns,
fyrrum ráðherra, og Geirþrúður Hildur Bernhöft,
fyrrum varaþingmaður, sátu um skeið þrjár á þingi
fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Reykjavík.
marsbyijun. Samþykktir Lands-
fundarins munu marka alla kosn-
ingabaráttuna í vor. I komandi
kosningum verður kosið um ríkis-
stjóm undir forystu Sjálfstæðis-
flokksins eða ríkisstjóm án
þátttöku Sjálfstæðisflokksins.
Hvöt mun ekki fremur en áður
Formaður og varaformaður Sjálfstæðisflokksins á
Frá hægri: Sigríður Arnbjarnardóttir, Friðrik Sophusson, Helga
María E. Ingvadóttir, Guðrún Zoega og Raggý Guðjónsdóttir.
fundi með stjórn Hvatar.
Ólafsdóttir, Þorsteinn Pálsson,
láta sitt eftir liggja í baráttunni
fyrir sigri flokksins.
I tilefni dagsins vil ég óska.öllum
félagskonum Hvatar til hamingju
með 50 ára farsælt félagsstarf —
félagið hefur reynst Sjálfstæðis-
flokknum sú stoð, þessi 50 ár, sem
stofnfélagamir vildu að það yrði.
Flokksbundnar sjálfstæðiskonur í
Reykjavík em ekki allar félagar í
Hvöt, en það er óhætt að fullyrða
að þær konur sem mestan svip
hafa sett á flokkinn í Reykjavík
hafa allar verið virkar í starfí Hvat-
ar.
Félagið hefur enn verk að vinna
fyrir framgangi kvenna á vett-
vangi stjórnmálanna og vonandi
verður hlutur kvenna og karla jafn-
ari á þeim vettvangi á aldarafmæli
félagsins, þegar þjóðfélagið hlýtur
að vera mjög breytt frá því sem
það er í dag — rétt eins og það
er breytt í dag frá því sem var,
þegar þetta virðulega félag var
stofnað af framsýnum konum fyrir
50 arum.“
Á afmælisdaginn, 19. febrúar,
verður opið hús í Valhöll milli kl.
17 og 19 og em velunnarar félags-
ins boðnir hjartanlega velkomnir.