Morgunblaðið - 24.02.1987, Síða 17
nnnt a » r'Trrnrra ► n a'ta t am aia^ /tt/t * mt/' T',UTm/
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. FEBRUAR 1987
stjóm Valdimars Ömólfssonar leik-
fimikennara. FVrir tilstilli Péturs
fékk ég inngöngu í þennan félags-
skap og hafði mikið gaman af. Var
Pétur „foringi" hópsins. Ekki þó í
þeim skilningi, að hann stjómaði
honum með ægivaldi, heldur miklu
fremur, að hann væri fremstur í
samfelldu glensi og gamni, hvort
heldur verið var í leikfimi eða í einni
af fjölmörgum skemmtiferðum
hópsins.
Nú þegar við kveðjum góðan
dreng minnumst við þessara
ánægjustunda með miklu þakklæti.
Þær hafa gert líf okkar sem þekkt-
um hann miklu auðugra. Blessuð
sé minning hans.
Óiafur H. Johnson
Pétur Ólafsson, blaðamaður, er
látinn, eða Pétur í ísafold eins og
við blaðamenn á Morgunblaðinu
vomm vanir að kalla hann. Ég
kynntist Pétri fyrst árið 1947 þegar
ég var sendur inn að Rauðará til
þess að mynda forstjóra nýs fyrir-
tækis, en forstjórinn reyndist vera
Pétur. Ég þekkti þá lítið til Péturs
enda ættfræði ekki sterkasta hlið
21 árs unglings. Þessi ferð reyndist
þó ein sú ábatasamasta fyrir mig,
óhamaðan unglinginn í hinum
harða heimi blaðamannsins, því
kynni mín af Pétri hafa frá því
verið mér afar kær og lærdómsrík.
Pétur stundaði blaðamennsku á
Morgunblaðinu ásamt námi við
Háskólann og eftir að því lauk réðst
hann sem fastur starfsmaður við
Morgunblaðið árið 1935 og starfaði
þar til 1942. Pétur snéri aftur til
Morgunblaðsins 1953, enda hefur
það reynst mörgum erfítt að slíta
sig frá blaðamennskunni og því
ekki einsdæmi með Pétur. Hann
starfaði í þetta sinn í tvö ár á Morg-
unblaðinu. Það var þröngt um
blaðamenn Morgunblaðsins á þess-
um tíma, þar sem blaðið var til
húsa í gamla ísafoldarhúsinu við
Austurstræti (þótt hópurinn væri
ekki stór). Risið í ísafoldarhúsinu
var kallað Langaloft og þangað fór
Pétur með ritvél sína og notaði
gamla skrifborðið hans Jóns Kjart-
anssonar sem þar stóð. Þessi tvö
ár sem Pétur var á Morgunblaðinu
kynntist ég honum náið. Hann var
á besta aldri og fyrir ungan mann
sem var að heíja sinn starfsferil var
dýrmætt að kynnast fullþroska
manni sem var það gefið að kunna
að umgangast náungann án þess
að tala niður til hans, en það er
ekki öllum gefið, enda er það svo
að minningar mínar frá þessum
árum eru bundnar Langalofti, því
þegar færi gafst þá var skotist upp
í ris og aldrei fór það svo að maður
færi ekki fróðari af fundi Péturs.
Árið 1984 skrifað Pétur nokkrar
greinar í Lesbók Morgunblaðsins
sem hann kaliaði minningar frá
Morgunblaðsárum. Mér var falið
það ánægjulega starf að aðstoða
Pétur við leit að myndum í þennan
greinaflokk. Þekking Péturs á
stríðsárunum var að vonum mikil
enda kominn á stjá strax og bresku
herskipin komu fyrir Gróttu her-
námsdaginn aðfaranótt 10. maí
1940. Þessa sögulegu nótt var
Morgunblaðið í prentun, en prentun
var stöðvuð og aðalfrétt breytt og
tókst að koma nýjustu frétt um
hemámið í hluta af upplaginu. Pét-
ur bað um ljósrit af þessari sögu-
frægu síðu, þegar hann var að
skrifa endurminningar sínar, en
hún fannst ekki í innbundnu eintaki
Morgunblaðsins frá þessum tíma.
Þeir sem þóttust muna sögðu
hemámið hafa verið svo seint um
nóttina að ógemingur væri að það
hefðu birst fréttir af því í Morgun-
blaðinu. En Pétur þóttist vita betur
enda kom hann tveimur dögum
síðar með ljósrit af síðunni með
fréttinni eins og hann hafði gengið
frá henni þessa sögufrægu nótt.
Hann hafði fengið hana hjá vini
sínum sem átti hana í safni sínu.
Þessi greinaflokkur Péturs Ólafs-
sonar í Lesbók Morgunblaðsins var
merkt innlegg um þetta tímabil
íslenskrar sögu.
Pétur var formaður Blaðamanna-
félags íslands á árunum 1938 til
1942. Mikil gróska var í Blaða-
mannafélaginu þann tíma sem hann
var formaður, má þar nefna kvöld-
I ' itfi*'i**nTMfaihr'i~ ~i1 V *• itÍTi*ifc« ~ r'
»rl?
vökur á Hótel Borg, síðdegis-
skemmtanir í kvikmyndahúsum til
ágóða fyrir Vetrarhjálpina og efnt
var til víðfrægs pressuballs, sem
var óþekkt fyrirbæri hér á landi.
En eitt markverðasta átakið var
heimboð danskra blaðamanna árið
1939 sem átti að verða upphaf þess
að bjóða heim blaðamönnum annars
staðar að úr heiminum, en að sjálf-
sögðu sá stríðið fyrir því að svo gat
ekki orðið. Danir þáðu þetta boð
og létu sér ekki nægja að þiggja
það með virktum heldur sendu þeir
til íslands í ágúst 1939 aðalritstjóra
allra helstu dagblaðanna í Kaup-
mannahöfn og einnig stærstu
blaðanna úti á landsbyggðinni.
Þessir gestir ferðuðust vítt og
breytt um landið með heimamönn-
um, sátu veislur á Akureyri og
Siglufirði, fóru jafnvel á sfldarball
og dönsuðu polka við söltunarpíur,
lærðu af Guðbrandi forstjóra
ÁTVR, sem var fulltrúi Tímans, að
drekka Angelica-brennivín í mjólk
(afbragðs hugmynd var haft eftir
ritstjóra Kristilega dagblaðsms) og
lýstu því yfir í leiðarlok að Islend-
ingar hefðu fram til þessa átt einn
sendiherra í Kaupmannahöfn en
ættu upp frá þessu tíu. Pétur Ólafs-
son stóð þarna fyrir frábærri
landkynningu sem fékk heldur dap-
urlegan enda því þegar þessari ferð
ritstjóranna dönsku lauk var enginn
í vafa um að seinni heimsstyijöld
væri óumflýjanleg, þannig að lítið
var skrifað um þessa dýrðardaga
sem þeir dönsku áttu héma heima
á íslandi fyrir tilstilli Péturs Ólafs-
sonar.
Það er orðinn langur tími síðan
Pétur Ólafsson hætti blaða-
mennsku, en sambandið við hann
rofnaði aldrei. Hvort fundum okkur
bar saman í Austurstræti hann selj-
andi rauðu Lions-fjöðrina eða í
skyndiheimsókn á Morgunblaðið,
alltaf var hann jafn hress. Hann
skilur eftir sig góðar minningar.
Það var lærdómsríkt að vera sam-
ferðamaður Péturs og þar með
eignast hlutdeild í minningum um
löngu liðna tíð blaðamanns sem
starfaði á sínum manndómsárum
hér í borg á þeim árum sein reynd-
ust hin mestu umbrotaár í sögu
þjóðarinnar.
Þótt vinna blaðamanna virðist
vera fyrir daginn í dag, gleymist
og endi á blöðum gamals dagblaðs
er vinna hans saga þjóðar og þjóða
og mun geymast sem besta og oft
eina samtímaheimild sem völ er á.
Ég þakka samfylgdina og bið
Guðs blessunar góðum dreng.
Ól.K.M.
Dagurinn birtist okkur ekki í
heild sinni fyrr en hann er liðinn,
og dagamir taka við einn af öðrum
og ár okkar hverfa í haf tímans.
En það sem skiptir okkur mestu á
lífsleiðinni era samferðamennirnir
og hæfileiki okkar til að greina og
tileinka okkur það sem mestu máli
skiptir í fari þeirra.
Því lengur sem við lifum þeim
mun fleiri vinum og samferðamönn-
um verðum við að sjá á bak. En
minningar samverustunda liðinna
ára ylja okkur en blandast jafn-
framt trega vegna þess sem var en
kemur aldrei aftur.
Og nú hefur einn okkar beztu
félaga ýtt úr vör í hinzta sinn, Pét-
ur Olafsson, hagfræðingur, „Pétur
í ísafold", sem flestir Reykvíkingar
þekktu, að minnsta kosti áður fyrr
á áranum. Hann vakti athygli hvar
sem hann fór, fríðleikinn, reisnin,
höfðingsbragurinn og viðmótið allt
gerði það að verkum, að fólk sá
hann einan þótt í hóp væri.
Flesta morgna liðinna ára, eða
allt frá því hinar nýju Sundlaugar
Reykjavíkur vora opnaðar í fyrsta
sinn, hefur Pétur staðið þar við dyr
í bítið (ásamt okkur hinum) og beð-
ið þess að lokið yrði upp. Bros hans
og tilsvör léttu oft alvörasvipnum
af viðstöddum og voru þeim gott
upphaf þess dags sem í hönd fór.
Þegar inn var komið mátti heyra
hvellar raddir þeirra vinanna, Pét-
urs og Þorvaldar Guðmundssonar
forstjóra, er þeir kölluðust á, og
aðrir gestir litu upp og brostu í
Sjá bls. 46.
ínT'.ifT" l«raKlw rrfcV __v rr IfT i 'rt1 ‘~<"iÉliií'"ir i~ 'ú é'NÓtí'm'uÍifiwá'ítufíL.
Skiifstofu/Iðnadarhúsnædi
þ) :-r-
T J ’ }-! V 1 - - 1-1 L 1 : L : : ' : L:
D
un jn r
— i Mi
Til leigu 2. og 3. hæð í nýbyggðu húsi við Bíldshöfða. 2. hæðin
er 663 fm og sú þriðja 577 fm.
Leigist í einu lagi eða minni einingum.
Upplýsingar í sima 38840, á kvöldin í sima 74712.
skrUsloíupodi
Nú hefur aldeilis hlaupið á snœrið hjá skrifstofufólki.
Þreytan er horfin og bakverkurinn líka
- þökk sé nýja Dauphin skrifborðsstólnum.
Þeir sem setjast í stól frá Dauphin kynnast
ótrúlegri hönnun. Stólbakið heldur hryggsúiunni
í réttri stöðu líkaminn verður afslappaður og
vinnan verður auðveldari í stól frá Dauphin.
í Skrífbæ eru Dauphin skrífborðsstólarnirí fjöl-
breyttu úrvali, litafjöldinn er mikill og verðið er frá
kr. 7.570, - stgr.
Dauphin - stílhrelnir stólar, sannkölluð skritstofuprýði.
DaupHIN
SKRIFBÆR
HVERFISGOTU 103 SIMI 25999