Morgunblaðið - 24.02.1987, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 24.02.1987, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. FEBRUAR 1987 f ÚRVALS FILMUR Kvnninaarverd M Dreifing; TOLVUSPIL sími: 68-72-70 Nýtt stjórnmálafræðirit eftir dr. Hannes H. Gissurarson: „Reyni að sætta fijáls- lyndi og íhaldssemi“ KOMIN ER út í Bandaríkjunum bókin Hayek’s Conservative Lib- eralism eftir dr. Hannes Hólm- stein Gissurarson, lektor í Háskóla íslands og fram- kvæmdastjóra Stofnunar Jóns Þorlákssonar. Garland Publish- ing í New York, sem sérhæfir sig í útgáfu fræðirita fyrir há- skólabókasöfn, gefur bókina út. „í þessari bók reyni ég að sætta frjálslyndi og íhaldssemi, ef svo má að orði komast," sagði dr. Hann- es Hólmsteinn Gissurarson í samtali við Morgunblaðið. „Meginuppistað- an í henni er doktorsritgerð sú, sem ég varði í stjómmálafræði við Ox- ford-háskóla haustið 1985. Sú gáta, sem ég glími við í bókinni er hvern- ig maðurinn sjálfur geti hagnýtt sér þekkingu, sem hann hafi ekki sjálf- ur sem einstaklingur, heldur sé fólginn í menningu okkar og skipu- lagi. Ég leiði rök að því að nokkur SAITKJÖTOG BAIJNIR Fáðu þér góða baunasúpu á Sprengidaginn. Veldu þér gott hráefni. Whitworths baunir gefa rétta bragðið. Whitworths baunir, gular og fallegar, viðurkennd gæðavara. ES KRISTJAN O. SKAGFJÖRÐ HF. Hólmaslóð 4, sími 24120, Rvk. sannleikskjarni sé í þeirri virðingu, sem íhaldsmenn beri gjaman fyrir gömlum siðum og venjum, en gagn- rýni þá fyrir að vilja ekki breyta þeim, þegar breytinga er þörf. Þekkingaröflun og þekkingarmiðl- un verði við fijálsa þróun skipulags- ins, þrotlausa tilraunastarfsemi einstaklinganna." „Ég held því fram, að ýmsir kunnustu stjómmálahugsuðir Vest- urlanda hafi fylgt því, sem ég kalla fijálslynd íhaldsstefna, þar á meðal þeir Adam Smith, David Hume, Edmund Burke og Alexis de Tocqueville, en ég vel þó einkum kenningar Friedrichs von Hayeks til viðmiðunar. Hayek hefur að mínum dómi betmmbætt hina gömlu kenningu um sjálfsprottið skipulag og fært hana út á svið siðferðis og laga með athyglisverð- um hætti," sagði Hannes Hólm- steinn. „I fyrstu tveimur köflum bókar- innar lýsi ég þessari fijálslyndu íhaldsstefnu, en í tveimur síðari köflunum ræði ég um ýmsar rök- semdir, sem hugsa má sér gegn henni," sagði Hannes Hólmsteinn ennfremur. „Ihaldsmenn hafa til dæmis allt frá dögum Hegels gagn- rýnt fijálslynda menn fyrir að aðhyllast skipulag, sem sé hlutlaust í siðferðilegum efnum, en það bjóði heim hættunni á rótleysi fjöldans og siðferðilegri upplausn. Fijáls- lyndir menn, svo sem Robbins lávarður í Bretlandi, hafa hins veg- ar gjarnan gagnrýnt íhaldsmenn fyrir blinda fastheldni á foma siði, sem leitt geti okkur í öngstræti umhugsunarlauss vana. Ég reyni að sýna, að frjálslyndir íhaldsmenn geti svarað þessum röksemdum. I því sambandi ræði ég meðal annars um réttlætiskenningar markaðs- hyggjumanna, sem eru ólíkar kenningum Hayeks, og um sátt- málakenningu James M. Buchanan, sem fékk nóbelsverðlaunin í hag- fræði á síðasta ári, en hún er um margt athyglisverð." „Eg ætlaði ekki að gefa þessa bók út svo skömmu eftir doktors- prófið," sagði Hannes Hólmsteinn að lokum. „En fáeinum vikum eftir Hvar þarftu að dæla? Hverju þarftu að dæla? Fjölbreyttar, öflug- ar dælur til flestra verka. Réttu dælurnar frá = HÉÐINN = VÉLAVERSLUN, SÍMI 24260 SÉRFRÆÐIÞJÓNUSTA-LAGEP Dr. Hannes Hólmsteinn Gissurar- son með doktorsritgerð sína, sem nú er komin út hjá Garland Publ- ishing í New York. að ég lauk doktorsprófi skrifaði Garland Publishing mér og bauð mér að gefa út bók upp úr ritgerð minni, og mér fannst ég ekki geta neitað þessu góða boði. Hvaðan þeir höfðu vitneskju um hana veit ég hins vegar ekki. Ég býst við, án þess að ég sé viss um það, að þetta rit mitt sé fyrsta fræðilega ritið á sviði stjómmálafræði, sem kemur út eftir Islending á ensku, þótt nokkrir menn hafi birt styttri ritgerðir og bókarkafla." Þess má geta að bók Hannesar Hólmsteins er til sölu í Bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar í Austur- stræti og Bóksölu stúdenta við Hringbraut. Brids Arnór Ragnarsson Úrslit í forkeppni til landsliðsvals í yngri f lokki spilara Um síðustu helgi fór fram í Sig- túni á vegum Bridssambands íslands forkeppni til vals á iandsliði í flokki yngri spilara, f. ’62 og síðar. 18 pör mættu til leiks og var spiluð Butler-tvímenningskeppni, allir v/alla með 4 spilum milli para. Urslit urðu: Jakob Kristinsson — Garðar Bjömsson Akureyri/Rey kj avík 188-72 (plús 116) Hrannar Erlingsson — Ólafur Týr Guðjónsson Reykjavík 190—106 (plús 84) Ólafur Jónsson — Steinar Jónsson Siglufirði 179-110 (plús 69) Kjartan Ingvarsson — Siguijón H. Bjömsson Laugarvatni 155—97 (plús 58) Gylfí Gíslason — Hermann Erlingsson Reykjavík 157—122 (plús 35) Guðmundur Auðunsson — Eiríkur Hjaltason Reykj avík/Kópavogi 154-127 (plús 27) Baldvin Valdimarsson — Steingrímur Gautur Pétursson Reykjavík 133—108 (plús 25) Júlíus Siguijónsson — Matthías Þorvaldsson Reykjavík 139—117 (plús 22) Landsliðsnefnd mun á næstunni velja nokkur pör úr báðum aldurs- flokkum (’66 og síðar og ’82 og síðar) til æfínga fyrir Norðurlanda- mótið, sem haldið verður í Eyjafírði í júní. Nýtt símanúmer í Sigtúni Bridssamband íslands vekur at- hygli á nýju símanúmeri í Sigtúni 9. Tvö númer em í húsnæðinu, það eldra 91-689360 verður fyrir skrif- stofu BSÍ eingöngu, en hið nýja mun þjóna spilasal og annarri starf- semi. Númerið er: 91-689361 (einn hefur bæst við í lokin). Framvegis á spilakvöldum mun nýja númerið þjóna þörfum þeirra sem þurfa að ná sambandi við Sigtún 9.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.