Morgunblaðið - 24.02.1987, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. FEBRÚAR 1987
Útgerð og afíabrögð
Austfirðingar
landa á Siglufirði
Siglufirði.
Tveir austfjarðarbátar hafa
landað hér. Sunnutindur hefur
landað röskum 100 tonnum af
þorski og Stjörnutindur 90-95
tonnum af frosinni rækju.
Rækjan fer í rækju- og niður-
lagningaverksmiðjuna Sigló, en
Þormóður rammi tekur við þorskin-
um úr Sunnutindi.
Þessu fylgir aukin atvinna í bæn-
um og er það góðra gjalda vert.
- Matthías
Þorlákshöfn:
Höfrungur III
með mestan afla
Frá höfninni í Sandgerði.
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Þorlákshöfn.
HEILDARAFLI vikunnar var
1.268.790 kíló af 34 bátum sem
skiptist þannig: 28 netabátar
með 1.037.230 kíló í 142 róðr-
um, 2 dragnótabátar með
167.840 kíló i 5 róðrum, 1 línu-
bátur með 360 kíló í 1 róðri og
3 trollbátar með 63.360 kiló í 3
róðrum.
Mestan afla í vikunni höfðu
Höfrungur IIIÁR 250 með 91.710
kíló, Þorleifur Guðjónsson ÁR 350
með 73.420 kfló og Jóhann Gísla-
son ÁR 42 með 69.150 kíló. Þessir
bátar eru jafnframt aflahæstu
bátamir frá áramótum þ.e. Höfr-
ungur með 313.720 kíló, Þorleifur
með 273.040 kíló og Jóhann með
261.450 kíló.
Togarinn Þorlákur ÁR 5 land-
aði í vikunni 98.387 kíló, mest
karfa. Landað hefur verið til
loðnufrystingar 2.744.810 kílóum.
í síðustu frétt héðan féll niður
afli Guðfinnu Steinsdóttur sem er
á trolli og setur aflann í gáma og
selur erlendis. Guðfinna Steins-
dóttir hefur landað tvisvar frá
áramótum, 62 tonnum, sem
3.940.000 krónur hafa fengist
fyrir. Einnig hefur Guðfinna land-
að 11 tonnum af ufsa hér heima,
auk 7 tonna af lifur og gotu.
- JHS
Ágætur afli hjá
Sandgerðisbátum
Sandgerði.
SANDGERÐISBÁTAR fiskuðu Stöðug loðnulöndun hefur ver- 7.390 kíló. Tveir eru á bátnum.
721 tonn af bolfiski í síðustu
viku og var það nokkrum tonn-
um meira en vikuna þar á
undan. Stóru netabátarnir voru
með mesta aflann og einn línu-
bátur náði líka ágætis árangri.
ið seinni part vikunnar og
lönduðu 3 bátar rúmlega 3 þús-
und tonnum af loðnu og fór hún
öll til frystingar. Handfærabát-
ar fiskuðu ágætlega í vikunni
og var vikuaflinn hjá Birgi RE
Handfærabátar frá Kefla-
vík hittu í fisk í vikunni
Keflavík.
BÁTAAFLINN í síðustu viku var
heldur minni en vikuna þar á
undan og munar þar mestu að
heldur hefur dregið úr afla neta-
bátanna. Heildarbolfiskaflinn
var 354 tonn á móti 374 tonnum
vikuna á undan. Afli línubátanna
hefur hinsvegar verið svipaður
og tveir handfærabátar með ein-
um manni á, gerðu góða túra
síðast í vikunni og voru að fá um
1.500 kíló.
Tveir netabátanna, Búrfell KE
og Happasæll KE, skáru sig nokkuð
úr. Búrfell var með rúm 50 tonn
eftir vikuna og munaði þar mestu
um 21,8 tonna róður sem var að
mestu ufsi. Happasæll var með
41,6 tonn og var afli hans langjafn-
astur eða rétt tæp 7 tonn í 6
sjóferðum. Þriðji aflahæsti netabát-
urinn var Gunnar Hámundarson
GK með 17,7 tonn.
Boði KE var aflahæsti línubátur-
inn með 40,9 tonn og hann var líka
með mest í einni sjóferð, 17,7 tonn.
Albert Ólafsson var með 39 tonn.
Þessir tveir róa með tvöfalda setn-
ingu. Binni í Gröf, sem rær með
einfalda setningu, kom svo með
25,5 tonn, en vikuna áður var hann
með 17,5 tonn.
Loðnubáturinn Harpa RE landaði
tvívegis í vikunni um 660 tonnum
í vinnslu. Togarinn Ólafur Jónsson
kom með um 120 tonn og var hluta
af aflanum landað í gáma til sölu
á erlendum markaði. Gunnjón GK
hefur verið í útilegu með línu og
er hann með beitingarvél um borð.
Mönnum hefur gengið misvel að fá
vélamar til að vinna rétt og sumir
hent þeim í land að loknum fyrsta
túr. Vel gengur hinsvegar hjá þeim
á Gunnjóni og landaði hann um 40
tonnum af slægðum fiski eftir tæp-
lega viku útivist. Þá var Jökulfellið
hér á sunnudaginn og lestaði fros-
inn fisk á Bandaríkjamarkað.
- BB
Netabáturinn Amey var afla-
hæsti báturinn eftir vikuna með
54,6 tonn, síðan kom Barðinn með
52, Sæborg með 50, Þuríður
Halldórsdóttir með 47 tonn og
Bergþór var með 31 tonn.
Sigurður Bjamason var hæstur
af línubátunum með 52,7 tonn.
Aflann fékk hann vestur á Fláka.
Víðir II var með 35,8 tonn,
Mummi 33 og Jón Gunnlaugs var
með 24.6 tonn.
Loðnubátamir vom Dagfari
ÞH, sem landaði 1.600 tonnum
úr þremur róðram, Öm KE var
með 1.050 tonn einnig í þrem ferð-
um og Pétur Jónsson RE sem var
með 480 tonn í tveim ferðum. Von
var á Pétri Jónssyni með slatta.
Að sögn kunnugra nýtist um 30%
af loðnunni í vinnslu.
- BB
HRtNGDU
gmrímz-nTnt-nnmBai
■nimnn rnffiiuTTn.raii.Mflh
SIMINN ER
1 140
1 141
V estmannaeyjar:
Lífleg vertíðarstemmning
og unnið myrkranna á milli
Vestmannaeyjum.
LÍFLEGT hefur verið á hafnarsvæðinu síðustu dagana
og þar ríkjandi mikil athafnasemi. Sannkölluð töm ver-
ið við loðnufrystingu og bátar og togarar fært að landi
góðan afla. Svo vel hefur aflast að ekki hefur hafst
undan að vinna hann allan. Þrátt fyrir að vertíðarfólki
fjölgi daglega vantar enn fólk til starfa og hefur orðið
að grípa til þess ráðs að senda tvo togara í söluferðir
til Englands.
Það er loðnan sem allt snýst
um þessa dagana. Gífurleg vinna
hefur verið við frystingu hennar
og fyrir helgina var búið að
frysta tæplega 1300 tonn, meira
en á allri síðustu vertíð. Nú í
þessari viku verður loðnan svo
trúlega orðin hrognatæk og þá
tekur við önnur töm og ekki
síður átakamikil. Mikil verð-
mætasköpun á sér stað á tiltölu-
lega stuttum tíma.
Afli netabáta var frekar
misjafn í síðustu viku, allt frá
tregfískiríi upp í mokveiði. Bát-
amir sem hafa sótt langt austur
í bugtir og dregið netin tvisvar
í túmum hafa mokveitt. Þórann
Sveinsdóttir landaði 33 tonnum
á mánudag og síðan 74 tonnum
á miðvikudag. Katrín var í landi
á föstudaginn með 40 tonn og
dró þó aðeins einu sinni. Þeir sem
era heima við vora með misjafn-
an afla, en þeir landa daglega.
Menn era þó bjartsýnir á að
þorskurinn komi með loðnunni.
Suðurey komst hæst í 20 tonn
en fór niður í 7 tonn. Gamla
góða Gullborgin, nú komin með
nýja brú, var með 12 tonn úr
fyrsta róðrinum á vertíðinni. Sig-
urbára landaði tvo daga í röð
14 tonnum, sem er gott á ekki
stærri bát.
Vikan var góð hjá trollbátun-
um. Smáey landaði 30 tonnum
og setti auk þess talsvertj gáma.
Alsey, Stefnir og Bjamarey vora
með rúm 40 tonn hver. Þennan
afla fengu bátamir í „Slátur-
húsinu" svokallaða eftir nærri
viku túr.
Ekki má gleyma smábátunum.
Góðviðrið upp á síðkastið hefur
leikið við þá en aflinn verið
misjafn. Þó komu þeir á Áma
Páls tvo daga í röð með 1800
kíló sem þykir ljómandi gott. Og
svo era það stórskipin, togaram-
ir. Klakkur landaði 140 tonnum
á föstudaginn og fyrr í vikunni
landaði Vestmannaey 120 tonn-
um. Halkion og Gideon vora
sendir í siglingu, Halkion með
100 tonn og Gideon 95 tonn,
mest þorskur af Austfjarðamið-
um.
Mikil örtröð hefur verið í höfn-
inni og skipakomur tíðar. Tvö til
þrjú flutningaskip lesta á hveij-
um degi. Skip frá Eimskip lestaði
23 gáma á fimmtudaginn og
annað gámaskip kom á föstudag.
Já, það hefur svo sannarlega
verið líflegt við höfnina. Verð-
mætin streymt á land og þau
aukist og margfaldast eftir að
hafa farið um hendumar á starf-
sömu verkafólki í landi sem hefur
unnið myrkranna á milli. Og það
er haft fyrir satt að bæði banka-
stjórinn og sparisjóðsstjórinn séu
venju fremur heldur hýrri á brá
þessa dagana.
- hkj.