Morgunblaðið - 24.02.1987, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 24.02.1987, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. FEBRÚAR 1987 35 Gunnar Jósavinsson Sverrir Leósson Halldór Blöndal Birna Sigurbjörnsdóttir Hjálmar Júlíusson Gunnlaugur Fr. Jónasson greiðslukerfíð kemst á. „Á að innheimta þetta í einn allsheijar sjóð og skila sveitarfélögunum sínum hlut eða halda hreppamir áfram að innheimta sinn hlut sjálf- ir?“ spurði hann. Hann sagðist einnig vera undrandi á því hve skattleysismörk yrðu há skv. nýja kerfínu. Hann sagðist undrandi hve margir slyppu alveg. Þorsteinn sagði að undanfarin ár hefðu deilur farmanna verið leystar með lögum og við þær að- stæður hlæðist upp spenna og menn ættu erfíðara með að eigast við. „Okkar gmndvallarsjónarmið er að slíkar deilur leysist í samningum. Menn geta ekki hent vandamálum sínum hvað eftir annað í löggjafar- valdið. Það þurfti að knýja á um að þetta leystist og það tókst. Það skiptir öllu.“ Um innheimtu skatt- anna sagði Þorsteinn að eftir breytingamar myndu íslendingar búa við eitt einfaldasta kerfí í Vest- ur-Evrópu. Skatturinn yrði lagður á í fyrirtækjunum — upphæðimar reiknaðar út og launagreiðandinn sæi um að leggja inn hluti ríkisins og sveitarfélagsins. Hann sagði einnig að ríkið myndi eins og áður standa undir útsvarsgreiðslum þeirra sem em undir skattleysis- mörkum. Um það hvort skattleysis- mörkin væm of há sagði Þorsteinn að þetta væri í 3. skipti á 2 vikum sem hann væri spurður um þetta og það sannfærði sig enn betur en annað um að þetta væri rétt leið. Sverrir Leósson, ræddi um bankamál. Hann sagði stjómmála- menn hafa talað um að fækka þyrfti bönkum og spurði ráðherra hvers vegna, þegar tækifæri gafst til, Útvegsbankinn hefði ekki verið lagður niður og þannig fækkað um einn banka í landinu. Þorsteinn svaraði því til að ekki hefði verið rétt að leggja Útvegs- bankann niður. Ekki hefði verið hægt að henda öllum viðskipta- mönnum hans á kaldan klaka. Sjálfstæðismenn hefðu reyndar vilj- að fara aðrar leiðir en eins og málum var komið hefði þetta verið skásta leiðin. Það væri ekki heil- brigt að búa við pólitískt bankakerfí að 3/4 hlutum og nú væri tækifæri til að byggja upp sterkan hlutafé- lagsbanka. „Ég vona að menn í atvinnulífinu skynji að það er at- vinnulífínu fyrir bestu að það eigi peningastofnanir, geti stjómað pen- ingamálunum," sagði Þorsteinm. Halldór Blöndal, alþingismaður, sagði Þorstein Pálsson hafí náð miklum árangri í starfí á stuttum tíma. Hann sagði að á árinu 1985 hefði verið „uggur í mönnum, að sú mikla fóm sem menn höfðu fært mundi renna út í sandinn og ekki næðist að ná þeim tökum á efnahagsmálum okkar þjóðar að við gætum nýtt okkur þann mikla ár- angur sem þá hafði náðst. „Þá tók Þorsteinn Pálsson þá djörfu ákvörð- un að setjast í sæti fjármálaráð- herra, fyrsti formaður í íslenskum stjómmálaflokki, á vægast sagt mjög erfiðum tímum, og endur- skipulagði ríkisstjómina." Hann sagði aðila vinnumarkaðaríns hafa litið ríkisstjómina öðrum augum eftir að Þorsteinn kom inn í hana — „eftir að Sjálfstæðisflokkurinn kom með fullum þunga inn í hana“. Halldór sagði samningana fyrir einu ári tímamótasamninga. „Það er auðvitað merkilegt að það skuli takast á einu ári að ná um það al- gjöra samkomulagi að menn reyndu að skorða launahækkamir svo að þær yrðu innan þess ramma sem sú gengisstefna, sem menn vora sammála um að halda uppi, lejnfði og það er líka merkilegt að verka- lýðshreyfíngin skyldi nú, áður en kjarasamningamir rannu út, koma sér saman um það að ná nýjum samningum til að halda áfram þess- ari stefnu sem þá hafði verið mörkuð. Þetta er einsdæmi hér á landi á síðustu áram og það ber þvi vitni að rétt var að staðið að okkur hefur nú tekist að ná fjórða árinu í röð sem hagvöxtur hefur verið veralegur, 4%, að það skuli hafa tekist að bæta lífskjörin svo að kaupmáttur heimilanna hefur kannski ef til vill aldrei verið meiri — og þegar við tölum um það skul- um við rifja það upp, að það var efsti maður á lista Alþýðuflokksins í Reykjavík, Jón Sigurðsson, sem fyrstur setti þessi orð á pappír, þegar hann var forstöðumaður Þjóðhagsstofnunar, sem auðvitað sýnir okkur að við eram ekki að fara með neitt fleipur þegar við vitnum til hans.“ Halldór ræddi talsvert um byggðamál. Hann sagði unga Sjálf- stæðismenn hafa sagt fyrir tveimur áratugum að eina heilbrigða stefna Halldór Blöndal: Árni Gunnarsson vildi gefa sameiginlega yf irlýs- ingu um samstarfsvilja HALLDÓR Blöndal, alþingis- maður, sagði á fundinum í Lóni, að Árni Gunnarsson, efsti mað- ur á lista Alþýðuflokksins i Norðurlandskjördæmi eystra, hefði þrívegis ymprað á því við sig að þeir gæfu út sameigin- lega yfirlýsingu þess efnis að þeir vildu starfa saman eftir kosningar. Halldór sagðist hafa hafnað þessari málaleitan Áma því Al- þýðuflokksmenn hefðu oft áðpr rætt um slíkt fyrir kosningar. „Ég trúi þér ekki,“ sagðist Halldór hafa sagt, þvf þegar upp væri staðið hefði það sýnt sig að kratar vildu „brosa til vinstri" þrátt fyrir yfírlýsingar um annað fyrir kosn- ingar. Hugmynd á Akureyrarfundinum: Akureyringar fái Laxárvirkjun aftur Halldór Blöndal: tilbúinn að berjast fyrir því BÁRÐUR Halldórsson, fundar- stjóri, lýsti því yfir á Lóns- fundinum, að hann hefði aldrei skilið það hvers vegna Akur- eyringar gáfu sína „bestu mjólkurkú“ og átti þar við er Laxárvirkjun var sameinuð Landsvirkjun „fyrir 5% eignar- hlut og sljórnarstól fyrir Val Amþórsson," eins og hann orð- aði það. Bárður hélt áfram: „Ég hef sagt í tvö ár að við eigum að reyna að fá Laxárvirkjun til baka. Því spýr ég Þorstein Pálsson og þing- mennina; hver yrði ykkar afstaða ef bæjarstjóm Akureyrar færi fram á að fá hlut sinn aftur í Landsvirkjun? Halldór Blöndal sagði sér mjög kært að svara Bárði. Hann sagð- ist tilbúinn að beijast fyrir því að Norðlendingar eignuðust Laxár- virkjun á ný. „Eg myndi ekki spara kraftana ef ég heldi að það bæri árangur og við næðum Lax- árvirkjun til baka,“ sagði þing- maðurinn. Ráðherra sagðist ekki hafa skoðað málið jafnvel og Bárður og Halldór og gæti því ekki lýst ákveðinni skoðun sinni nú. íslendinga í byggðamálum væri sú að efla byggðakjamann við Eyja- fjörð svo að hann gæti boðið Reykjavíkurvaldinu byrginn á sem flestum sviðum. Hann sagði að nú væri þetta markmið að nást með ýmsum hætti; nefndi hann í því sambandi háskóla á Akureyri, sem hann sagði mikinn þátt í byggða- baráttu Sjálfstæðismanna. Einnig nefndi hann vöxt í sjávarútvegi og fleira. Halldór sagði greinilegt að fólk úti á landi væri bjartsýnna nú en áður og skýringin væri vafalaust sú að meiri stöðugleiki í efnahags- málum væri til hagsbóta fyrir landsbyggðina. Til að mynda hefði hann ferðast undanfarið um lqör- dæmið og greinilegt væri að andrúmsloftið væri allt annað en það hefði verið áður. Framleiðsluat- vinnuvegimir, sjávarútvegur og landbúnaður, gengju að öllu jöfnu betur þegar stöðugleiki væri í efna- hagsmálum og því væri það mikið byggðamál — kannski eitthvert byggðamálið — að það tækist að halda þessari stefnu áfram. Tómas Ingi Olrich kom aftur í ræðustól og ræddi á ný um hita- veitumálið. Hann sagði Akur- eyringa vilja láta ríkissjóð leysa málið alfarið, kannski væri hægt að fínna tvo, einn alþýðuflokks- mann og einn alþýðubandalags- mann og þeir væra báðir í ríkis- stjóm. „En allir telja réttlætismál að ríkið taki þátt í því að leysa vandann." Tómas sagði að nú væri hægt að bera lof á Sjálfstæðisflokkinn og sérstaklega fjármálaráðherra. Menn fyndu ætíð fyrir því þegar efnahagsmál væra í ólagi, en þegar þau væra 5 góðu lagi héldu margir að þau gengju af sjálfu sér. Það væri misskilningur og því þyrfti að halda því á lofti þegar vel gengi. Ekki skyldi lofa tillögur heldur ár- angur — nú hefði náðst árangur og því væri hægt að lofa ráðherra. Tómas sagði að í fyrsta sinn í sögu íslands væri að komast klofn- ingur í þjóðina. „Ég hef sagt að hér séu tvær þjóðir í einu landi og það hefur farið illa í marga. Höfuð- viðfangsefni okkar næstu ár ætti að vera að halda þjóðinni saman.“ Hann sagði að þróun byggðamála yrði að athuga vel og þau yrði að taka til gagngerrar athugunar á landsfundi í mars. Þar yrði að taka á málinu og komast niður á raun- hæfar aðgerðir. Birna Sigurbjömsdóttir sagði lqarasamninga nú lausa og ósamið væri við flesta ríkisstarfsmenn. Hún spurði ráðherra hvort þeirri stefnu yrði haldið að semja ætti innan sama ramma og I fyrra þó góðæri væri og hagvöxtur betri. Svar ráðherra var á þá lund að eðlilega yrði ríkisvaldið að fylgjá línum sem lagðar væra á almennum vinnumarkaði. Ríkið væri aðili að samningi milli ASÍ og VSÍ og sömu meginsjónarmið yrðu því í samning- um við starfsmenn ríkisins. Hjálmar Júlíusson sagði mjög ánægjulegt að fá háskóla á Akur- eyri en þá mætti ekki vera starfandi í landinu menntamálaráðherra sem ræki rektorinn ef hann ynni vel. í framhaldi af því spurði hann for- mann Sjálfstæðisflokksins hvort hann legði blessun sína á gerðir menntamálaráðherra í Sturlu-mál- inu. Þorsteinn sagði að auðvitað mætti um það deila hvemig að brottvikningu Sturlu hefði verið staðið. „En þetta er orðinn hlutur — honum hefur verið mætt með ákveðnum hætti; með tillögum á alþingi og kæra í dómskerfinu. Nið- urstöður verða því að fást þannig." Gunnlaugur Fr. Jónasson sagði Sjálfstæðisflokkinn hafa ætlað að endurskoða tollalög. Hann nefndi ýmis dæmi úr „tollalaga-framskóg- inum“ eins og hann kallaði lögin og spurði hvort breytingar á þeim væru enn á stefnuskrá flokksins. í svari Þorsteins kom fram að um alllangt skeið hefur verið unnið að því að setja upp nýja samræmda tollskrá. „Hún er tilbúin en því er ekki að leyna að það mun kosta mikið að lögfesta hana og af fjár- hagsástæðum verður það ekki gert á þessu þingi," sagði Þorsteinn Pálsson. Eyj afj ar ðar braut vestari: Lægsta tilboð- ' ið 66% af kostn- aðaráætlun EITT tilboð var langlægst í lagn- ingu Eyjafjarðarbrautar vestari, frá Brunná að Hrafnagili, en til- boð í verkið voru nýlega opnuð. Rúdolf Ágúst Jónsson á Akureyri gerði þetta tilboð, 17.606.468 krónur, sem er 66,1% af kostnað- aráætlun Vegagerðarinnar. Vegarkaflinn á Eyjafjarðarbraut er 8,3 km að lengd og á verkinu að ljúka 1. ágúst í sumar. Kostnað- aráætlun Vegagerðarinnar var 26,6 milljónir kr. Tólf tilboð bárast í verkið og voru átta undir áætlun. Næst lægsta tilboðið var frá Foss- verki sf á Selfossi, rúmlega 21 milljón kr. iJ I

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.