Morgunblaðið - 24.02.1987, Page 40

Morgunblaðið - 24.02.1987, Page 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. FEBRÚAR 1987 Greinargerð frá stjórn og hagfræðingi BHMR um skattkerfisbreytingu: Staðgreiðslukerfi nú en aðrar breytíngar bíði þar til heildarendurskoðun liggur fyrir Morgimblaðinu hefur borizt samþykkt stjórnar BHMR um frumvörp um skattkerfisbreyting- ar ásamt greinargerð hagfræðings samtakanna. Samþykktin og greinargerðin fara hér á eftir i heild: Stjóm BHMR er hlynnt stað- greiðslukerfi skatta en telur að þær viðamiklu breytingar sem jafnframt eru boðaðar með fyrirliggjandi frum- vörpum þurfí meiri undirbúning, rannsóknir og kynningu en gert er ráð fyrir. Stjóm BHMR varar við of mikilli fljótfæmi við kerfisbreytingar og minnir á vandkvæði nýja hús- næðislánakerfísins í því sambandi. Stjóm BHMR óskaði í janúar 1985 eftir upplýsingum um tekjuskatts- greiðslu háskólamenntaðra ríkis- starfsmanna og hlutdeild þeirra í heildartekjusköttum. Þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir hafa engin svör bonst. Áður en samþykktar eru breyting- ar á tekjuskattskerfi einstaklinga, ^þurfa jöfnunaráhrif þess með tilliti til tekna, ijölskyldustærðar, aldr.rs og starfs skattgreiðanda að liggja fyrir. Engin ástæða er til að breyta tekjuskatti launamanna meðan ekki liggja fyrir tillögur um breytingar á skattlagningu fyrirtækja, ijármagns- tekna og eigna. Stjóm BHMR telur að eðli málsins samkvæmt sé heppilegast að koma á staðgreiðslukerfí skatta nú, en bíða með aðrar breytingar á skattakerfinu þar til heildarendurskoðun liggur fyr- . ir, með nauðsynlegum upplýsingum um núverandi fyrirkomulag og áhrif fyrirhugaðra breytinga. Stjóm BHMR leggur áherslu á eftirfarandi stefnumið í skattamálum: 1. BHMR leggur áherslu á að allt skattakerfið verði endurskoðað með það að markmiði að draga úr skattsvikum og auka jöfnuð með hliðsjón af tekjum, eignum og þörfum Qölskyldunnar. 2. BHMR mótmælir þungum tekju- skatti á launatekjur meðan flármagns- og eignaskattar eru mjög litlir. BHMR telur að afnema beri sérsköttun á launafólki. 3. BHMR telur að ríkisstarfsmenn beri í dag verulegan hluta tekju- skatta launamanna, einkum háskólamenntaðir ríkisstarfs- menn. Ástæður þess eru m.a.: ríkið er bæði launagreiðandi og skattheimtuaðili, aðrir launagreiðendur gefa ekki upp fullar tekjur og/eða veita starfsmönnum önnur ígildi launa sem ekki koma til skattlagningar, margir geta skammtað sér tekjur eftir hagkvæmustu leiðum miðað við skattareglur hveiju sinni. Greinargerð hagfræðings BHMR til stjómar BHMR vegna frum- varpa um breytingar á skatta- lögum. Meginatriði í nýjum skatta- framvörpum: 1. Tekjuskattur launamanna fest- ur í sessi í stað afnáms hans. Það hefur verið yfirlýst stefna fjármálaráðherra sjálfstæðis- manna að afnema beri tekjuskatt af launatekjum. Yfirlýsingar hafa komið um að afnema þennan sér- skatt á launamenn í áföngum. Með þessu frumvarpi er gengið í allt aðra átt: verið er að festa tekjuskatt af launatekjum í sessi í stað þess að minnka hann eða fella niður. Það veldur félagsmönnum BHMR vonbrigðum. 2. Skattakerfisbreytingar í skjóli staðgreiðslukerfisbreytingar. í kynningum á frumvörpum vegna skattalagabreytinga er lögð áhersla á að megintilgangurinn sé að koma á staðgreiðslu skatta og vitnað til þess að þetta sé í samræmi við kröfur launafólks í landinu. Með fyrirliggjandi frumvörpum er ekki aðeins komið á staðgreiðslu- kerfi tekjuskatts launamanna heldur gerbreytt öllu skattkerfi vegna tekna launamanna með ófyrirséðum afleiðingum á skipt- ingu skattbyrðar og velferðar í þessu landi. Sýnist sem verið sé að gerbreyta skattkerfinu — svo lítið beri á — í skjóli þess að verið sé að koma á eftirsóttu stað- greiðslukerfí. Það er verið að koma í gegn meiri- háttar skattkerfísbreytingum og vitnað til breiðrar samstöðu launa- manna í landinu enda þótt sú samstaða sé um allt annað mál, þ.e. staðgreiðslu. Sú skoðun að skattkerfisbreyting sé forsenda staðgreiðslukerfísins er röng. Nú- verandi skattkerfí er að mestu framkvæmanlegt þrátt fyrir setn- ingu laga um staðgreiðslu enda mun í báðum tilvikum þörf á eft- irá leiðréttingum. 3. Heildarendurskoðun á skatt- kerfi snúið í endurskoðun á skattkerfi launamanna án þess að létta skattbyrðar þeirra. Fjármálaráðherra skipaði í nóv- ember sl. nefnd til að endurskoða skattkerfið m.t.t. (1) einföldunar skattkerfis, (2) skattlagningar á eignatekjur og samhengi þess og eigna- skatts, (3) skattlagningar fyrirtækja, og (4) staðgreiðslu skatta. Nefndin hefur aðeins skilað af sér hugmyndum um staðgreiðslu tekjuskatta launamanna eftir ger- breyttum forsendum en alls ekki gert neinar tillögur um breytingar á sköttun eigna, eignatekna eða fyrirtækja. Það var skilningur BHMR að nefndin hafi átt að skoða heildar- skattkerfið með það í huga að tekjuskattur á launamenn félli nið- ur í áföngum og flyttist á aðra skattstofna, einkum telqur fyrir- tækja og íjármagnseigenda. Niðurstaða nefndarinnar er allt önnur og veldur félagsmönnum BHMR vonbrigðum. Þessi endurskoðun á skattkerfí launamanna varðar einkum stofn skattskyldra tekna launamanna, frádráttarliði, skattstigann, breytta sköttun sjómanna og lang- skólagenginna, og breytta sköttun húsnæðiskaupenda og breytt við- horf til fjölskyldusköttunar. Sem sagt skattkerfisbreytingarnar taka til flestra grundvallaratriða í tekjuskattskerfínu auk þess sem form skattlagningar breytist þannig að tekjuskattur, útsvar og önnur gjöld sem áður höfðu mis- munandi stofna og prósentu eru nú tekin af sama stofni með einni prósentu. 4. 1. Um breyttan skattstofn: Kostnaður talinn til launa. Samkvæmt 5. gr. staðgreiðslu- lagafrumvarpsins telst til launa hvers konar endurgjald fyrir vinnu og má segja að í viðbót við eldri útsvarsstofn sé nú bætt nokkrum kostnaðartengdum liðum eins og: ökutækjastyrkjum, dagpeningum, o.fl. Um leið eru felldir niður allir frádráttarliðir. Þannig er lagt að jöfnu laun eða hvers kyns ígildi launa og svo endurgreiddur kostn- aður sem launamenn hafa lagt út fyrir fyrirtæki sem þeir starfa fyrir. Ef dagpeningar eða ökutækja- styrkir hafa þjónað starfsmönnum einkafyrirtækja sem launaupp- bætur þá má ljóst vera að fyrir- tækjum er í lófa lagið að koma slíkum greiðslum með öðrum hætti til starfsmanna sinna. Hvað varðar starísmenn ríkisins þá er ljóst að kostnaður ríkisins af ferðalögum starfsmanna verður miklu meiri ef fjármagna á hann með innkaupum á ríkisbifreiðum vegna uppsagna á aksturssamn- ingum starfsmanna, :neð reikn- ingsgreiðslum fyrir ferðalög starfsmanna og allt það batterí sem þarf til að yfirfara og greiða slíka reikninga. Þetta vita starfs- menn íjármálaráðherra sem þekkja eldra fyrirkomulag þessara mála. Með þessu hefur skattstofninn verið einfaldaður en jafnframt gerður miklu ósanngjamari ef skattborgurum er ætlað að greiða skatt af útlögðum kostnaði fyrir fyrirtæki. 4. 2. Um breyttan skattstofn: Nið- urfelling frádráttarliða. Helstu frádráttarliðir gildandi skattalaga eru húsnæðiskaupa- frádráttarliðir vegna vaxta- og verðbótakostnaðar, sjómannafrá- dráttur (10%), námsfrádráttur, giftingarfrádráttur og persónufrá- dráttur auk annarra smærri liða. Engir frádráttarliðir eru í nýja kerfínu. Hins vegar eiga sérstakar bótagreiðslur að koma til fyrir þá sem kaupa í fyrsta sinn = hús- næðisafsláttur, sérstakur sjó- mannaafsláttur = 150 á úthaldsdag, og afsláttur einstakl- ings = 11.500 á mánuði. Auk þessa bótakerfis eru einnig bama- bætur með óbreyttu sniði. Þetta hljómar e.t.v. einfalt að setja upp bótakerfí af þessu tagi í stað SAMBAND íslenskra sveitarfélaga hélt sinn 41. fulltrúaráðsfund í hótelinu í Borgarnesi um helgina. Alexander Stefánsson félagsmála- ráðherra og Birgir Isleifur Gunnarsson alþingismaður ávörp- uðu þingið. Helsta mál þingsins var staðgreiðslukerfi skatta og skatta- lagabreytingar. Björn Friðfinnsson, formaður sambandsins, setti þingið og sagði hann í setningarræðunni að þingið hefði verið boðað nokkru fyrr en áætlað var vegna nýframkomins frumvarps til Iaga um staðgreiðslu skatta og fylgifrumvarpa þess. Hefði tilkoma þessa staðgreiðslu- máls borið brátt að í þetta skiptið, oft hefði verið um það fjallað og tvívegis áður hefðu verið flutt frumvörp um staðgreiðslu opin- berra gjalda. Síðan sagði Bjöm: „Það stað- greiðslukerfi, sem nú er gerð tillaga um er í verulegum atriðum frábrugð- ið fyrri tillögum og tengist það meiri einföldun á skattalögum, en áður hafa verið uppi hugmyndir um. Lagt er til að einföldunin verði m.a. keypt því verði, að tekjuskattþrep verði aðeins eitt og innheimtuprósenta út- svars sé hvarvetna hin sama. Síðar- talda atriðið þurfa sveitarstjómar- menn að athuga vandlega, en það felur óneitanlega í sér þá hættu, að sjálfstæði sveitarfélaganna hvað varðar tekjuöflun sé skert. Kemur það m.a. fram í þeim tölum, sem talsmenn ríkisins hafa látið frá sér fara, þar sem þeir eru famir að til- kynna hver muni verða innheimtupró- senta útsvars á næsta ári. Þá virðast nú gleymdar í bili þær tillögur, sem fram komu í áliti nefnd- ar, er fjallaði um breytingar á lögum um tekjustofna sveitarfélaga, en til- lögur þessar sendi félagsmálaráð- herra til umsagnar sveitarstjóma. á sl. sumri. Þar var m.a. gert ráð fyrir að álagningarprósenta útsvars verði þeirra frádráttarliða sem áður vom, ef markmiðið er aðeins að einfalda kerfíð. En þessar breyt- ingar fela í sér verulegan tilflutn- ing á skattbyrðinni. 4.3. Með niðurfellingu vaxtafrá- dráttar vegna húsnæðisöflunar er vikið frá þeirri grundvallarreglu fyrri laga að taka tillit til fyöl- skyldustærðar við jöfnun hús- næðiskostnaðar. Það hefur jafnan verið meginmarkmið skattkerfís- ins með ívilnunum vegna hús- næðiskostnaðar að auka möguleika bamaflölskyldna til að geta búið í húsnæði sem hæfir fjölskyldustærðinni. Hið nýja fyr- irkomulag með húsnæðisbótum í stað vaxtafrádráttar tekur ekki mið af þörfum ijolskyldunnar í húsnæðismálum. Þannig fá minni fjölskyldur hlutfallslega meiri að- stoð í gegnum skattakerfið. Hér er enn einu sinni verið að vega að bamafjölskyldunni en í hinu nýja húsnæðislánakerfi sem tók gildi hinn 1. september sl. var hætt að miða lánsfjárhæð við fjöl- skyldustærð. Húsnæðisbætur eingöngu til þeirra sem em að eignast sína fyrstu íbúð er einnig á skjön við hið dæmigerða ferli fjölskyldunnar á húsnæðismarkaðnum. Skortur á alfarið ákvörðuð af sveitarstjómum á sama hátt og er á öðmm Norður- löndum. Ákvæði fmmvarpsins um innheimtu og skil gjalda virðast þarfnast úrbóta við og fráleitt er það ákvæði að leggja til sérstaka skatt- heimtu ríkisins á sveitarsjóði í því skyni að standa undir kostnaði þess af framkvæmd staðgreiðslulaganna." Þá ræddi Bjöm um þau nýmæli sem fmmvarp um framhaldsskóla fæli í sér fyrir sveitarfélögin, en það fmmvarp hefur verið lagt fram á Alþingi til kynningar. Síðan gat Bjöm um stofnun héraðsnefnda sem eiga að taka við verkefnum sýslunefnda innan skamms. Sagði Bjöm að nauð- synlegt væri að samræma ákvæði um stofnun héraðsnefndanna, því sveit- arstjómarmenn myndu á næstunni fá að glíma við það verkefni að koma þeim á fót. Að lokum sagði Bjöm: „Á þessum vetri hefur sambandið deilt við ríkis- valdið um skerðingu á framlögum til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga en niður- staðan varð enn stórkostlegri skerð- ing á Jöfnunarsjóði en áður. Er því ekki að neita, að þetta mál hefur mjög spillt fyrir samskiptum ríkis og sveitarfélaga og m.a. vakið upp tor- tryggni, sem kann að endurspegla afstöðu sveitarstjóma til þeirra skattalagabreytinga, sem nú eru áformaðar." I ávarpi Alexanders Stefánssonar félagsmálaráðherra kom m.a. fram að verulegur skriður væri kominn á sameiningu sveitarfélaga og unnið væri skipulega að því að sameina þau sveitarfélög sem hefðu færri íbúa en 50 og gerði hann sér vonir um að því yrði lokið að mestu á þessu ári. Sagði ráðherra að á nokkmm stöðum færi nú fram athugun á að sameina mörg sveitarfélög á samliggjandi svæðum. Lengst væm þau mál kom- in í Austur- Barðastrandarsýslu og yrði atkvæðagreiðsla þar um samein- inguna um miðjan mars. lánsfjármagni hefur leitt til að fólk almennt hefur þurft að fikra sig áfram í áföngum í hæfilegt húsnæði. Ungt fólk sem hefur byijað smátt á síðastliðnum ámm og á enn eftir að fíkra sig áfram í stærra húsnæði vegna fjölskyldu- stærðar er með nýja fyrirkomulag- inu útilokað frá þeirri aðstoð sem foreldrar þeirra (verðbólgukyn- slóðin) nutu svo ríkulega. 55.000 króna húsnæðisbætur samsvara hugsanlega um 200.000 króna vaxtafrádrætti fyrir húsnæðis- kaupanda með tekjur á bilinu 700—900.000 krónur. Sá sem fær fullt lán húsnæðisstofnunar fær 2,3 miljónir á 3,5% vöxtum og vaxtakostnaður hans er rúm 80 þúsund á ári sem vex með verð- bólgu. En sá sem hefur tekið yfír 1 milljón á kjömm húsnæðisstofn- unar og skuldar 1,5 milljónir á 6,5% vöxtum er kominn í 132 þúsund króna vaxtakostnað. Langstærsti hluti frádráttar hús- næðiskaupenda eftir 1982/83 hefur þó verið vegna skammtíma- skulda og verðbótaþáttar sem hér er undanskilinn, enda örðugt að spá fyrir um hann. Af þessu má vera ljóst að nýja kerfíð flytur húsnæðisniðurgreiðslu frá þeim sem fjármagna húsnæði eftir fyrstu húsnæðisölu til þeirra sem em að kaupa fyrsta húsnæði sitt. Þetta bitnar illa á bamaflölskyld- um sem hafa farið út í að stækka við sig með vaxandi fjölda og aldri bama. 4.4. Sjómannafrádrátturinn er felld- ur niður sem 10% frdráttur, þ.e. tekjubundinn frádráttur og breytt í frádrátt sem miðar við sóknar- daga, þ.e. fjölda lögskráningar- daga. Þetta gæti falið í sér vemlega breytingu á skattbyrði sjómanna sem flytti skattbyrði frá tiltölulega telq'ulitlum sjómönnum Þá ræddi ráðherra um breytta verkaskiptingu milli ríkis og sveitar- félaga og sagði tillagna að vænta um næstu mánaðamót frá nefndum sem fjölluðu um þau mál. Kvaðst ráðherra ekki vilja upplýsa mikið um störf þessara nefnda en hann gæti þó sagt að tillögumar fælu í sér mikinn flutn- ing verkefna frá ríki til sveitarfélaga og breytinga á fjárhagslegum sam- skiptum í samræmi við þann verk- efnaflutning. Að lokinni ítarlegri kynningu ráð- herrans og Indriða H. Þorlákssonar, skrifstofustjóra í fjármálaráðuneyt- inu, á fmmvarpinu um staðgreiðslu- kerfi skatta og skattalagabreytingar urðu miklar umræður og ijölda fyrir- spuma var beint til Indriða. Óttuðust margir fundarmanna m.a. að þessar breytingar kæmu illa niður á smærri sveitarfélögum þar sem flestir íbú- anna hefðu undir skattleysismörkum í laun. Kom fram í slíkum tilvikum myndi ríkið greiða útsvör til sveitarfé- laganna fyrir þá aðila sem væm innan skattleysismarka. í skýrslu Loga Kristjánssonar, for- stöðumanns Tölvuþjónustu sveitarfé- laga, kom fram að 1980 nýttu 20 sveitarfélög sér' Tölvuþjónustuna en í dag væri 71 sveitarfélag sem nýtti sér eitt eða fleiri þeirra sjö tölvukerfa sem að Tölvuþjónustan ætti eða hefði sölurétt á. Einnig kom fram að öll sveitarfélög sem væm með yfir 1.000 íbúa væm komin með eigið tölvu- kerfí. Þetta hefði í för með sér að breyta þyrfti hugbúnaðinum fyrir fleiri gerðir tölva, samhliða því sem ný kerfi væm smíðuð. Þá sagði Logi að í dag væm aðeins 7% sveitarfélaga ekki með tölvuunnið bókhald. í lok fundarins skiluðu nefndir áliti. í áliti héraðsnefndar segir: „Fundurinn beinir því til viðkomandi sveitarstjóma samanber ákvæði sveitarstjómarlaga að helj'a nú þegar undirbúning að störfum héraðs- nefnda sé umfjöllun ekki hafin um Skattalagabreytingar ræddar á fundi fulltrúa- ráðs Sambands íslenskra sveitarfélaga: ------------------.... ____o Hætta á að breyting- arnar komi illa niður á smærri s veitarfélögum Bonramesi. ^ *

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.