Morgunblaðið - 24.02.1987, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. FEBRUAR 1987
45
Arnþór Jakobs-
son - Afmæliskveðja
Það er næsta kynlegt, hve manni
getur brugðið við hugsun sem
þessa. Er hann Arnþór ekki alveg
að verða 95 ára. — í fljótu bragði
finnst manni þetta helber fjar-
stæða. — En bíðum nú við, segir
maður við sjálfan sig, ertu ekki
sjálfur vel hálfnaður með áttunda
tug ævi þinnar? Varst þú ekki sjálf-
ur fulltíða maður, þegar þú kynntist
honum fyrir meira en hálfri öld?
Tíminn — sá leikur stundum á
mann!
En staðreyndin er og stendur —
Amþór er orðinn þetta lítilræði aldr-
aður — ég nota af ásettu ráði orðið
aldraður en ekki gamall sem hefur
hjámeininguna hmmur, farlama.
Það á hvomgt við um Amþór, en
það dylst engum heilvita manni, að
hann á langan feril að baki.
Ég er viss um, að engum, sem
sér hann, dylst að þar fer marg-
reyndur maður.
Þó ég hafi á áðumefndu tímabili
átt við hann mörg og margvísleg
samtöl, þá verð ég núna, allt í einu,
þess var hve lítið ég kann frá ævi-
ferli hans að segja. Það er ekki
vegna þess, að ég hafi ekki stundum
brotið uppá umræðum í þá átt, en
ávallt verið hindraður af áhuga
hans um mína hagi. — Hvemig líður
þér? spyr hann strax. Get ég
kannski eitthvað gert fyrir þig. Þú
þyrftir að athuga hvort þetta eða
hitt og hitt gæti ekki lagast. Þú
veist, að ef ég get þá hjálpa ég þér
eftir megni. — Og þetta hafa ekki
verið orðin tóm. — Hve hræðilega
væri ég skuldum vafinn við hann
ef allt, sem hann hefur gert fyrir
mig, hefði verið annars staðar fært
til reiknings en hjá Guði.
Ekki verður annað sagt en að
Amþór er ekki bara sérstakur mað-
ur, heldur er hann og sérkennilegur
maður. Margreyndur er hann af
blíðu og stríðu langrar ævi. Og oft
hef ég undrast að sumar þær raun-
ir, sem mig granar að hann hafi
glímt við, skuli ekki hafa leikið
hann verr og jafnvel bugað.
Þar finn ég enga skýringu mála,
aðra en sívakandi vitund hans um
eigin þörf fyrir handleiðslu Guðs
og gleði hans í viðleitninni til að
gera Guðs vilja. Og vel er mér kunn-
ugt um, að eitt eigum við sameigin-
legt: hvoragur okkar hefur náð
þráðum árangri í þeim efnum.
Ég fæ varla rúm fyrir meira að
sinni í blaðinu og læt hér staðar
numið með hjartanlegum heillaósk-
um og þökk fyrir hálfrar aldar
vináttu.
Jón Kristófer
Páll Guðmundsson formaður SPOEX-samtakanna flytur ávarp.
Morgunblaðið/Kr.Ben.
Grindavík:
„Byrjunin á stærra máli“
Hjónin Sigurgeir Sigurgeirsson og Kristín Gunnþórsdóttir, rekstra-.
raðilar baðhússins, ásamt Ingólfi Aðalsteinssyni, forstjóra hitaveitu
Suðumesja.
Baðhúsið við Bláa
lónið opnað
Grindavík.
NÝJA baðhúsið við Bláa lónið í
Svartsengi var formlega tekið í
notkun föstudaginn 20. febrúar
sl. að viðstöddum fjölda gesta.
Hitaveita Suðumesja stóð fyrir
byggingu hússins, en byijað var á
framkvæmdum í nóvember síðast-
liðnum. Við opnunina rakti Finn-
bogi Björnsson, stjómarformaður
Hitaveitu Suðumesja, forsöguna að
smíði hússins, svo og framkvæmd-
um. Arkitektinn Ormar Þór lýsti
síðan forsendunum sem lágu fyrir
um hönnun hússins. Páll Guð-
mundsson, formaður SPOEX-sam-
takanna á íslandi, flutti stjórn HS
þakkir samtakanna fyrir þá hjálp-
semi sem Phsoriasis-sjúklingar
hefðu fengið til böðunar í Bláa lón-
inu og taldi hann lækningamátt
þess ótvíræðan. „Þetta hús er byij-
unin á miklu stærra máli. Það er
mín tilfinning eftir að hafa fylgst
með þróun þessara mála,“ sagði
Páll.
Rekstraraðilar hússins verða
hjónin Sigurgeir Sigurgeirsson og
Kristín Gunnþórsdóttir frá
Grindavík. Sigurgeir kvaðst mjög
ánægður með húsið og vinnuna á
því, en kvað það mega vera stærra.
Kostnaður við húsið og frágang
utan húss, þar með talin girðingin
kringum lónið, er um 12 milljónir
króna. Ásverk í Sandgerði var verk-
taki, hönnun annaðist Arkitekta-
stofan hf., en eftirlit með verkinu
var í höndum Verkfræðistofu Suð-
umesja.
Kr.Ben.
V ■ - I ,
i V 1 1 'rí PTU EINN NÚNA!
ÞÚ FÆRÐ FULLBÚINN VOLVO Á GRUNNVERÐI
INNIFALIÐ í GRUNNVERÐI ER MA:
1. Ryðvörn
[fyrstir með 8 ára ryðvarnarábyrgð].
2. Fimm öryggisbelti.
3. Upphitað bílstjórasœti.
4. Upphitað farþegasœti.
5. Þurrkur og sprautur á framljósum.
6. Halogen aðalijós.
7. Klukka.
8. Vindskeið að framan. [Spoiler.j
9. Pokuljós að aftan.
10. Aðvörunarljós vegna bilaðs bremsukerfis.
11. Hnakkapúðar á framstólum.
12. Tauáklœði.
13. Tveir útispeglar.
14. Öryggisgrind um farpegarými.
15. Tvöfalt bremsukerfi.
16. Sfyrktarbitar í framhurðum.
HAFIÐ SAMBAND VIÐ SÖLUMENNINA OG LEITIÐ NÁNARI UPPLÝSINGA
Opið I Volvosal, Skeifunni 15, alla virka daga frá 9-18 og á laugardögum frá 10-16.
V
VOLVO 340 DL
Verð frá:
477.000
Við lánum allt að 50%.
y?Z32l5II>
SKEIFUNNI 15, SIMI: 91-35200