Morgunblaðið - 24.02.1987, Qupperneq 47

Morgunblaðið - 24.02.1987, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. FEBRUAR 1987 47 Elín H. Sveinbjörns- dóttir—Minning Fædd 17. febrúar 1907 Dáin 13. febrúar 1987 I dag verður amma mín, Elín Helga Sveinbjömsdóttir, jarðsungin frá Fríkirkjunni í Reykjavík. Mig langar að skrifa nokkrar línur í minningu hennar um leið og ég þakka henni allar þær stundir sem við áttum saman og fyrir allt það sem hún kenndi mér. Amma var heilsteyptur persónu- leiki sem kom til dyranna eins og hún var klædd. Atorkusemin var henni í blóð borin og bar heimili hennar þess jafnan merki. Eg minnist þess er ég kom eitt sinn að henni þar sem hún stóð uppi í stiga við að mála húsið að utan. Þá var hún hátt á sjötugs aldri en lét það ekki aftra sér. Amma var mikill náttúruunnandi og garðrækt var eitt af hennar helstu áhugamál- um enda hafði hún erindi sem erfiði í þeim efnum. Heimili ömmu og afa, Einars Hjörleifssonar, var lengst af á Hringbraut 24 í Reykjavík. Þar ólu þau upp bömin sín þrjú: Guðrúnu Valgerði, Hjörleifu og Sveinbjörn. Fjögur elstu barnabömin nutu svo þeirra forréttinda að búa á Hring- brautinni í sama húsi og afi og amma fyrstu ár ævinnar og má nærri geta að samgangur var mik- ill því alltaf vomm við velkomnar uppi hjá þeim. Eftir að Guðrún og Hjörleif flutt- ust, ásamt fjölskyldum sínum, út á Seltjarnarnes fluttu amma og afí líka út á Nes, á Melabraut 40. Það var ómetanlegt að vera áfram í nábýli við þau. Alltaf var jafnnota- legt að koma við hjá ömmu á leiðinni heim úr skólanum og fá eitthvað í svanginn og alltaf var hún tilbúin að ræða þau mál sem voru efst í huga manns hveiju sinni. Hún átti mjög auðvelt með að skilja okkur stelpurnar og setja sig í spor okkar og því var gjaman leitað til hennar. Þegar íbúðir aldraðra voru reist- ar á Seltjamamesi festu amma og afi kaup á einni slíkri og hlakkaði amma mikið til að njóta þess sem þar er boðið upp á. En þessi draum- ur hennar rættist ekki eins og hún hafði vonað því sumarið 1982 missti hún heilsuna mjög skyndilega. Upp frá því dvaldi hún á Reykjalundi. Þó þessi ár hafi verið henni erfíð átti hún sínar gleðistundir. Það sem veitti henni mesta gleði var að geta verið heima hjá afa, sem lét ekki sitt eftir liggja, því um hveija helgi sótti hann hana og hugsaði um hana þrátt fyrir eigin heilsubrest. Samrýndari gömul hjón er vart hægt að hugsa sér og mætti margt læra af þeim hvað varðar mannleg samskipti. Að lokum vil ég votta afa mínum innilegustu samúð og bið góðan Guð að veita honum styrk. Helga Kristín Helga lést að kvöldi föstudagsins 13. febrúar sl. á hjúkrunarheimili Reykjalundar í Mosfellssveit eftir langa veru. Hún verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Reykjavík í dag, þriðjudag, kl. 13.30 s.d. Hún fæddist austur í Fljótshlíð, á Teigi, 17. febrúar 1907 og hefði því náð 80. aldursári í þessum mánuði. Foreldrar Helgu, sem voru sveitabændur mann fram af manni, voru sæmdarhjónin Valgerður Guð- mundsdóttir og Sveinbjörn Svein- björnsson. Helga átti sín barnæsku- og unglingsár á Teigi í Fljótshlíð þar til að hún flutti með ijölskyldu sinni til Reykjavíkur um fermingaraldur. Að föður sínum látnum flutti hún með móður sinni og bróður, sem bæði eru látin fyrir nokkrum árum, að Kalmanstjörn á Reykjanesi, en þar hafði Guðmundur bróðir hennar keypt jörð og stofnað til búskapar. Við margt var að sýsla þessi ár og voru störfín mörg eins og tíðkast hjá almúgafólki, starf saumakon- unnar við fatasaum, enda handlagin vel, og síldarárin á Siglufirði voru oft dregin hin síðari ár fram úr geymslu minninganna sem góður og farsæll tími. Árið 1933 festi Helga ráð sitt með heiðursmanninum Einari Hjör- leifssyni sem ættaður er úr Keflavík og starfaði um áratugaskeið hjá afgreiðslu smjörlíkisgerðanna í Reykjavík við góðan og farsælan orðstír. Heimili þeirra hjóna var lengstan hluta búskaparáranna á Hringbraut 24 í Reykjavík, enda þótt hin seinni ár hafi þau búið á Seltjarnarnesi, fyrst á Melabraut 40 og hin síðustu árin í íbúðum aldraðra á Melabraut 5. Þau eignuðust þrjú böm sem öll eru uppkomin, Guðrúnu Valgerði, fædd 1934, og tvíburana Hjörleif og Sveinbjöm, fæddir 1941. Barna- börnin eru orðin sjö. Helgu minnist ég sem mikillar atorku- og dugnaðarkonu, sem aldrei féll verk úr hendi og lagði mikla alúð við að fegra umhverfi sitt, bæði utan dyra sem innan. Eitt skemmtilegasta dæmi þess var garðurinn og húsið á Melabraut 40 sem enn bera þeim hjónum fagur- lega merki. Helga unni íslenskum vísnakveðskap og kunni þarafleið- andi ógrynni þeirra bókmennta og var gaman að heyra hana draga fram kviðlinga á góðri stund. Alla tíð var mjög kært með okk- ur Helgu. og er mér sérstaklega minnisstætt hversu vel mér var tek- ið þegar ég tengdist skyldleika- böndum ijölskyldunni á Hringbraut 24 og mun ég varðveita þá hlýju í safni góðra minninga. Bamabörnin hennar eiga góðar minningar um góða konu sem stóð alltaf föstum fótum í tilverunni og var góð heim að sækja hvort sem var á hátíðis- eða tyllidögum eða þá bara á venjulegum hversdags- degi á leið í skólann eða úr. Margt klappið á kinn og góðan molann má muna, og marga nóttina var gist hjá afa og ömmu, enda alltaf til sérherbergi til þeirra þarfa. Helga vistaðist á Reykjalundi í Mosfellssveit fyrir tæpum fímm árum er hún varð fyrir því áfalli sem aldrei greri um heilt eftir og vil ég hér þakka með fátæklegum orðum alla þá umhyggju sem henni hlotnaðist á þeim stað, umhyggju bæði lækna og hjúkrunarfólks, sem er þeim verustað til mikils sóma. Og ég veit að ég tala fyrir munn tengdamóður minnar þegar ég leyfí mér að þakka eiginmanni hennar, Einari, natnina og umhyggjuna á erfiðleikatímum. Þar reis viljinn hærra en getan á stundum. Hafi hann kæra þökk fyrir. Með þessum fáu og fátæklegu línum vil ég þakka tengdamóður minni, ömmu dætra minna, sam- fylgdina og bið henni blessunar Guðs og forsjár á leiðum hennar. Og það er við hæfi að lokaorðin hafí eitt uppáhaldsskálda Helgu, Kristján Jónsson ijallaskáld, í ljóði skólapiltsins, Tárinu. Þú sæla heimsins svalalind, ó, silfurskæra tár, er allri svalar ýta-kind og ótal læknar sár. Æ, hverf þú ei af augum mér, þú ástarblíða tár, er sorgir heims í burtu ber, þótt blæði hjartans sár. Mér himneskt ljóð í hjarta skín í hvert sinn er ég græt, en drottinn telur tárin mín - ég trúi og huggast læt. (KJ) Þorsteinn Sigurður Þorsteinsson Kvöldvaka Ferða- félags Islands FERÐAFÉLAG íslands efnir til kvöldvöku miðvikudaginn 25. febrúar í Risinu, Hverfisgötu 105. Ferðafélag Fljótsdalshéraðs sér um efni þessarar kvöldvöku. Páll Pálsson frá Aðalbóli mun sýna myndir og segja frá eyði- byggðinni á Jökuldalsheiði. Um miðja 19. öld fór fólk að setjast að á Jökuldalsheiði, en árið 1946 fór síðasta heiðabýlið í eyði. Margir trúa því að þama sé að fínna slóðir Bjarts í Sumarhúsum, en um það eru að sjálfsögðu skiptar skoð- anir. Það sem gerði líf fólksins á heiðinni frábrugðið lífí Bjarts var, að bændur þama lifðu á hlunnind- um s.s silungsveiði, hreindýra- og fuglaveiði. Fólkið á Jökuldalsheiði var flest bjargálna og sumir urðu stórbændur síðar, í öðrum hémðum. Allt þetta og fleira varðandi þessa horfnu byggð ætlar Páll Páls- son að fræða fólk um á kvöldvöku FÍ miðvikudaginn 25. febrúar. (Fréttatilkynning) Þú svalar lestrarþörf dagsins ' síóum Moggans! Ás-tengi Allar gerðir Tengið aldrei stál-í-stál StoffitsMgMr dJSxrssæŒxra ® (S VESTURGOTU 16 SIMAR 14680 PI480 Toyota Landcruiser diesel G. árg. 1985, brúnsanseraður. Ekinn 38 þús. km. Nýinnfluttur frá Þýskalandi. Aðalumboðið hf. Steinleir, jarðleir, gífs, föndurleír og leír fyrir blómaskreYtingar. MIKIÐ ÚRVAL sendum upplÝsingalista. Póstkröfuþjónusta. JU Höfðabakka 9 Sími 685411 Blaóburöarfólk óskast! AUSTURBÆR KOPAVOGUR Þingholtsstræti o.fl. Laufbrekka o.fl. Sóleyjargata Meðalholt Stórholt Lindargata frá 39-63 o.fl.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.