Morgunblaðið - 24.02.1987, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 24.02.1987, Qupperneq 48
48 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. FEBRUAR 1987 t Ástkær sonur okkar, stjúpsónur, bróðir, mágur og frændi, SIGURGEIR ÞÓRÐARSON, Brautarási 10, Reykjavfk, lést að heimili sínu aðfaranótt 16. febrúar sl. Jarðarförin hefur fariö fram í kyrrþey að ósk hins látna. Þórður Kristjánsson, Aðalsteinn Sigurgeirsson, Sigríður Sigurgeirsdóttir, Hansfna Sigurgeirsdóttir, Þorkatla Sigurgeirsdóttir, Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir, Ingibjörg Guðmundsdóttir, og systkinabörn. Sigmar Hróbjartsson, Lea H. Björnsdóttir, Ragnar Jónasson, Sveinbjörn Herbertsson, Ragnar T ryggvason, Sigursteinn Gunnarsson t Eiginmaður minn, BIRGIR GUÐJÓNSSON verslunarmaður, Lindarbraut 4, Seltjarnarnesi, lést að morgni 19. febrúar á Landakotsspítala. Gréta Jóhannsdóttir, börn og barnabörn. t Móðursystir mín, GUNNFRÍÐUR RÖGNVALDSDÓTTIR frá Uppsölum, lést á Hrafnistu í Reykjavík aðfaranótt laugardagsins 21. febrúar. Fyrir hönd ættingja og vandamanna, Hrefna SamúelsdóttirTynes. t Móðir mín, JÓNÍNA MAGNÚSDÓTTIR, Hátúni 10A andaöist í Landspítalnum aðfaranótt 22. febrúar. Viggó Pálsson. t Móðir okkar SNJÓLAUG SIGURÐARDÓTTIR lést á Borgarspítalanum laugardaginn 21. febrúar. Snjólaug Bruun, Knútur Bruun. t Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÞURÍÐUR HELGADÓTTIR, Melabraut 3, Seltjarnarnesi, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík miðvikudaginn 25. febrúar kl. 13.30. Þeir sem vilja minnast hennar er bent á kirkjubyggingar Kvenfé- lagsins Seltjarnar. Minningarkortin fást á skrifstofu Seltjarnarnes- bæjar, Mýrarhúsaskóla eldri. Margrét Sigurðardóttir, Ágúst Jónsson, Svala Sigurðardóttir, Þorbjörn Karlsson, Dóra Sigurðardóttir, Guðmundur Einarsson, Guðbjörg Hannesdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Þökkum hjartanlega sýnda samúð og vinarhug vegna andláts GUÐNA STURLAUGSSONAR, Hoftúni, Stokkseyri, sem lést 6. febrúar sl. Aðalheiður Eyjólfsdóttir, Jakob Guðnason, Oddný Ríkhardsdóttir, Vigdís Heiða Guðnadóttir, Baldur Sigurðsson, Gfsli Guðnason, Jóna Guölaugsdóttir, Sturlaugur V. Guðnason, Sesselja Ó. Gfsladóttir, barnabörn og barnabarnabarn. Legsteinar ýmsar gerðir Marmorex Steinefnaverksmiðjan Helluhrauni 14, sími 54034, 222 Hafnarfjörður Jón Ág. Ketils- son - Minning Fæddur 8. ágúst 1908 Dáinn 16. febrúar 1987 „Tilvera okkar er undarlegt ferðalag. Við erum gestir og hótel okkar er jörðin." (Tómas Guðmundsson) Frændi og vinur ýtti úr vör, af stað yfir móðuna miklu, hljóðlega, rétt fyrir miðnætti þann 16. þ.m. Dvalartíminn á Hótel Jörð liðinn og þráin djúpa eftir hvíldinni var uppfyllt. Jón Ágúst Ketilsson var fæddur Einholti í Biskupstungum 8. ágúst 1908, yngstur 5 bama hjónanna Stefaníu Stefánsdóttur og Ketils Jónssonar, bónda, er bjuggu lengst af á Minni-Ólafsvöllum, Skeiðum. Nú eru þau öll látin. Er Jón fæddist höfðu foreldrar hans orðið að bregða búi og koma hinum börnunum í fóstur um nokk- urra ára skeið, vegna alvarlegra veikinda Ketils, en eftir að hann fékk bata hófu þau búskap á ný í Auðsholti í Biskupstungum og þar sameinaðist fjölskyldan aftur. Þeg- ar Jón var 12 ára flutti Ketill með heimilið að Minni-Ólafsvöllum og bjó þar, uns hann hætti vegna ald- urs, og flutti ásamt Stefaníu til Reykjavíkur. Hugur Jóns stefndi ekki til bú- skapar í sveit, en snemma kom í ljós, að hann var fæddur trésmiður. „Biddu hann Jón að laga þetta, hann getur allt,“ sögðu nágrann- amir í Ólafsvallahverfinu, þegar einhver áhöld, sem þá voru flest úr tré, biluðu og ekki stóð á hjálp- fýsi Jóns. Blömastofa Friöfmns Suöurlandsbraut 10 108 Reykjavík. Sími 31099 Opið öll kvöld tll kl. 22,- éínnig um helgar. Skreytingar við öll tilefni. Gjafavörur. er hægt að breyta innheimtu- aðferðinni. Eftir það verða inTH.TmwrrnrviTiPíFn.ra viftkomandi greiðslukorta Árið 1935 flutti Jón til Reykjavíkur og stundaði ýmsa vinnu í landi eða á togumm, eftir því, sem hún fékkst á þeim atvinnu- leysisámm. Honum var mikið í mun að sjá fyrir sér og sínum. Með hemáminu 1940 hefst nýr og betri þáttur í lífi Jóns. Þá tekur hann til við húsasmíðar og þar með er ævistarfíð, sem hugur hans stóð til, hafíð að fullu. Hann var traust- ur smiður, smekkvís, ósérhlífinn og duglegur, tryggur starfsmaður hveijum húsbónda. Honum nægði þó ekki til lengdar að stunda smíðamar einar, hann vildi og skyldi afla sér fullra iðnréttinda og bætti því við sig námi í Iðnskólanum á kvöldin. Hann lauk því með mjög góðum árangri á aðeins 2 ámm og svo skemmtilega atvikaðist það, að sveinsbréf sitt í húsasmíði fékk hann þann dag, sem hann varð 40 ára. Það lýsir enn betur dugnaði og áræði Jóns, að á sama tíma og hann var í náminu hóf hann að byggja reisulegt, rúmgott og vand- að hús sitt í Sörlaskjóli 7 og vann við það öllum stundum, sem gáfust frá námi og brauðstriti. Þá vom það oft lúnar hendur og fætur, sem lögðust seint til hvíldar, til að geta risið til brauðstritsins næsta morg- un. Jón kvæntist æskuvinkonu sinni, Unu Ingimarsdóttur, frá Andrés- fjósum, Skeiðum, og lifir hún mann sinn. Ekki varð þeim hjónum bama auðið saman, en Una átti fyrir son, Guðmund Má Brynjólfsson, og gekk Jón honum í föðurstað og ætt- leiddi. Jón var mikill bamavinur og bamagæla. Atvikin höguðu því svo, að þau Una tóku í fóstur nokkurra mánaða telpu er þau ættleiddu síðar. Telpan var skírð Sesselja. Þetta reyndist þeim öllum hið mesta gæfuspor. Sesselja varð strax auga- steinn og yndi Jóns og svo samrýnd urðu þau feðgin, að af bar. Ský dró fyrir sólu. Á miðjum vinnudegi 9. apríl 1975 hnígur Jón niður, meðvitundarlaus. Blóðtappi. Hann missir máttinn hægra megin og mál og minni um skeið. Fyrst á eftir virðist ætla að rætast úr, en síðan koma ný áföll, ýmissa teg- unda. Þannig hófst og gekk tæp- lega 12 ára tímabil þjáninga, vona og vonbrigða, baráttu og ósigra, sem lauk við kallið eina, sem ekk- ert okkar kemst hjá að hlýða. Á Námsmannahreyfingarnar Iðnnemasamband Islands, Stúd- entaráð Háskóla íslands, Banda- lag íslenskra sérskólanema og Samband íslenskra námsmanna erlendis verða með fund um lána- málin í Háskólabíói miðvikudag- inn 25. febrúar og hefst hann kl. 14.00. Til fundarins eru boðaðir forystu- menn þeirra stjómmálaflokka sem eiga fulltrúa á Alþingi. Með þessum fundi vilja náms- menn krefja forystumenn stjóm- málaflokkanna svara um hver þessu langa, langa tímabili fékk Jón að njóta ríkulega endurgjalds í kærleika og umhyggju konu og bama sinna er gáfu honum ómæld- an styrk og bám byrðamar með honum til hins ítrasta. Við sjáum oft skammt fram á veginn. Góður drengur og ástvinur er syrgður, en um leið má samfagna honum, að þrautunum skuli vera lokið. „því það er svo misjafnt, sem mennimir leita að, og misjafnt tilgangurinn, sem fyrir þeim vakir.“ (Tómas Guðmundsson) í góðri bók er okkur kennt, að veröldin sé ekki nema brú; við eig- um að fara um brúna, en ekki reisa bústaði okkar á henni. Ekkert í lífinu er tilviljun. Allt hefur sinn tilgang. Við sjáum þenn- an tilgang oft ekki, á stundum kemur hann í ljós löngu síðar og þá skýrist, að eitt og annað, sem okkur reynist erfitt að mæta og umbera, felur í sér jákvæðan til- gang. Lífið er skóli, það eru ekki allir í sama bekk, en allir eru að læra og þroskast. Glíman við erfíð- leikana kennir okkur meira en velgengnin, hvort sem okkur tekst að sjá það nú eða síðar. Erfiðleik- amir sjálfír skipta ekki höfuðmáli þegar upp er staðið, heldur hvernig okkur tekst að mæta og vinna úr þeim. Ýmsir fá úthlutað stærri skammti, sem ekki sér fyrir endann á, en æðruleysi, átök og sáttfýsi við örlögin vinna kraftaverk. Kvaddur er góður og hjálpfús vinur, með þökk fyrir samfylgdina. Minningarnar geymast, margar og góðar. Fullvissa um, að við tekur ódáinsakur, að loknu úthlutuðu dagsverki hér á jörð. Sigurður Gunnarsson stefna flokkanna sé í málefnum Lánasjóðs íslenskra námsmanna. Fulltrúar flokkanna verða: Friðrik Sophusson Sjálfstæðisflokki, Sva- var Gestsson Alþýðubandalagi, Jón Sigurðsson Alþýðuflokki, Finnur Ingólfsson Framsóknarflokki og Kristín Halldórsdóttir Kvennalista. Form fundarins verður með þeim hætti að fulltrúar flokkanna og einn fulltrúi námsmanna flytja stuttar ræður. Þar á eftir verða pallborðs- umræður þar sem stjómmálamenn- irnir verða krafðir svara. (Fréttatilkynning) Fundur í Háskólabíói um lánamál námsmanna ■EMMMirnMI E SÍMINN ER Fimmtu Háskólatón- leikarnir á önninni 691140 691141 FIMMTU Háskólatónleikarnir á önninni verða miðvikudaginn 25. febrúar nk. Tónleikarnir verða í Norræna húsinu kl. 12.30 og standa í u.þ.b. hálftíma. Bemharður Wilkinson, Guðrún Sigríður Birgisdóttir, Kolbeinn Bjamason og Martial Nardeau leika á fjórar flautur verk eftir Karl Ditters von Dittersdorf, Er- nesto Köhler og Rimsky-Kor- sakov.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.