Morgunblaðið - 24.02.1987, Side 56

Morgunblaðið - 24.02.1987, Side 56
56 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. FEBRÚAR 1987 Glímt við árbakka. mjög vel. Að vísu hefði vegurinn í Þjórsárdal verið eitt forað, enda mikil rigning og síðan slydda. Síðustu 20 kílómetramir upp í Nýja dal hefðu verið famir utan vegar, þar sem hefði verið ekið í samfelldum snjóskafl. „Þeir sem voru á kraftmestu bílunum voru í sífelldum kappakstri og þeytingi út um allt og það var auðséð að þeir höfðu óskaplega gaman af þessu," sögðu þeir. Það tók um átta klukkustundir að komast þessa 20 kílómetra fyrir allan flot- ann, enda snjórinn mjög blautur og þungur og um 10 leytið um kvöldið voru flestir komnir heim í skálann, utan tveir bílar sem skilja varð eftir. Eyjólfur og Óskar sögðu að það hefði verið ansi þröngt í skálanum um nóttina, þó sumir hefðu tekið þann kost að sofa í bílunum. Veislumatur hefði verið boðstóln- um, lamb grillað ofan í mannskap- Ferð bílaklúbbsins 4x4 yfir Sprengisand: ofanhríð og tekin ákvörðun um að snúa við, þar sem ljóst þótti að ófært væri norður yfir. Ekki voru allir sáttir við þessa ákvörðun og nokkrir bílar reyndu að komast áfram. Þeir gáfust hins vegar fljótlega upp og slógust í för með þeim, sem voru á suðurleið. Þeir Óskar og Eyjófur sögðu að það hefði ef til vill verið möguleiki fyrir öflugustu bílana og reynd- ustu bílstjórana að komast norður um, en þó engan vegin víst að þeir hefðu komist alla leið. Óskar og Eyjólfur sögðu að það hefðu einkum verið dísilbflarnir, sem áttu í erfíðleikum eftir að frostið herti, þar sem margir hefðu brennt sig á að taka ekki næga steinolíu með í ferðina. Þá hefði það tafíð fyrir þegar bílar villtust af leið og þurfti að bíða eftir þeim, þar sem engan mátti skilja eftir. Þó að snjórinn hefði verið meiri í bakaleiðinni, þá hefði færðin verið léttari vegna _þess að snjórinn var ekki blautur. Arbakk- amir hefðu verið erfiðir og ekki hefði mátt stöðva nema stutta stund til þess að allt frysi fast. „Helgina áður hefði nánast ver- ið hægt að fara þessa leið á fólksbfl, því þá var harðfennið svo mikið. Það sýndi sig að það var vélaraflið og alvöru dekk, sem dugðu í þessari ferð, þó það væri ekki undatekningarlaust, því þyngri bílamir áttu einnig í erfíð- leikum," sögðu þeir. „Maður fékk þó alla vega vetur út úr ferðinni, maður fær hann ekki hér fyrir sunnan og verður því að fara á inn, og menn haft það náðugt, annars vegna þrengsla. fjöll eftir honum,“ sögðu þeir að þó minna hefði orðið um svefn en Á laugardagsmorgninum var lokum. Tugir milljóna spar- ast í snjómokstrinum YFIRVERKFRÆÐINGUR Vegagerðarinnar telur að einhverjir tugir milljóna kr. af snjómoksturspeningum Vegagerðarinnar, sparist í vet- ur. Nokkrum hluta peninganna er þó ráðstafað fyrirfram, og eyðast þó lítið snjói, eins og í vetur til dæmis. Jón Birgir Jónsson yfirverk- fræðingur sagði að á haustin væru gerðir samningar við vörubílstjóra um að útbúa sig til snjómokurs og vera ávallt tilbúnir til moksturs þegar á þyrfti að halda. Fyrir þetta þyrfti að borga. Hann sagði einnig að starfsmenn Vegagerðarinnar þyrftu einnig að vera viðbúnir snjómokstri. Þá nefridi hann að iðulega væri skafrenningur á heiðum þó þess yrði ekki vart á láglendi og væri því meira mokað en fólki virtist úr fjarlægð. Jón Birg- ir sagði að í snjóléttum vetrum þyrfti að moka ýmsa fjallvegi, sem ekki væri átt við að jafnaði. Nefndi hann sem dæmi að vegimir norður í Ámes á Ströndum og um Möðrudalsöræfi hefðu verið mokaðir í farmannaverk- fallinu, en það þýddi ekki að reyna við venjulegar aðstæður. Þrátt fyrir þetta sagði Jón Birgir að búast mætti við að einhveijir tug- ir milljóna spömðust af þeim 200 milljónum kr. sem ætlað hefði verið til snjómoksturs í vetur. En hann varaði jafnframt við að veturinn væri ekki búinn og óvarlegt að fara að hugsa um ráðstöfun peninganna í annað fyrr en komið væri fram í maí. Tók sólarhríng að koinast ,úr Nýja dal og til byggða Atta bílar urðu eftir á hálendinu HÚN gekk ekki þrautalaust fyrir sig heimferð félaga I bílaklúbbnum 4x4 um helgina, því það tók þá, sem lengst voru að, rúman sólarhring að komast frá Nýja dal og til Reykjavíkur. Á leiðinni til baka var ofanhríð til að byija með, norðanátt og skafrenn- - jngur og allt upp í 20 stiga frost og neyddust átta bif- reiðaeigendur til þess að skilja bifreiðar sínar eftir upp á hálendinu vegna bilana. Eins og kunnugt er af fréttum lögðu rúmlega 80 jeppaeig- endur upp í ferð til Ákureyrar yfir hálendið á föstudags- morguninn. Þeir dvöldust aðfararnótt laugardagsins í Nýja dal, og daginn eftir átti að halda áfram til Akureyrar. Veður og færð leyfði það hins vegar ekki og þvi var sú ákvörðun tekin á laugardags- _^morguninn að halda til baka. „Það var dálítð fyndið að hvort heldur á upp eftir leiðinni eða leið- inni til baka, fannst okkur við sífellt vera að keyra upp brekkur, svo að maður vissi ekki alveg hvar þetta endaði,“ sögðu þeir Óskar Þórisson og Eyjólfur Jóns- son, sem tóku þátt í ferð klúbbs- ins. Þeir sögðust aldrei myndu leggja upp í slíka ferð aftur með svo mörgum þáttakendum, þar sem það hefði sýnt sig að það gengi ekki að svo margir bílar færu saman í slíka ferð. Það hefði verið nær einróma álit manna. Bflamir hefðu verið mismunandi búnir og aðstoð við bilaða bíla og þá sem villtust hefði tafíð fyrir. Eyjólfur og Óskar sögðu að ferðin upp í Nýja dal hefði gengið

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.