Morgunblaðið - 04.03.1987, Síða 20

Morgunblaðið - 04.03.1987, Síða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. MARZ 1987 Sjálfstæðisflokkur- inn í anda ungs fólks Leið skynsemi en ekki skollaleiks * eftír Arna Johnsen Það þarf þrek til þess að leysa erfið og flókin verkefni og til allrar Guðs lukku hefur fólkið í landinu og Sjálfstæðisflokkurinn haft þrek til þess að halda út í baráttunni við að kveða verðbólguna niður. Þessi barátta hefur tekið á og oft verið sár undir forystu sjálfstæðismanna, en þegar upp er staðið kann fóik að meta árangurinn af erfíðinu, meta þrautseigju þeirra stjóm- málamanna sem hugsuðu lengra en til stundarvinsælda. Ekki má gleyma garminum honum Katli, Framsóknarflokknum, en hann rekst frekar illa þegar sótt er fram á við. í dag er íslenska þjóðin á réttri leið í efnahagsmálum og á þeim grunni er hægt að takast á við frekari uppbyggingu efna- hagslífs og menningar. Óllu skiptir að víkja ekki af leið skynseminnar. Sjálfstæðismenn leggja kapp á að einstaklingum og heimilum sé treyst til hins ýtrasta. Það traust hefur verið sýnt í verki, til dæmis með því að leyfa notkun greiðslu- korta heima og erlendis, afnema allt að því tolla af bílum, leyfa val- frelsi um rekstur útvarps og sjón- varps, draga úr skattheimtu ríkisins og berjast fyrir staðgreiðslukerfi skatta frá næstu áramótum og skattleysi á yfirstandandi ári, sem þýðir það að fólki er treyst fyrir nýtingu allra sinna tekna á yfir- standandi ári. Allir aðrir stjóm- málaflokkar en Sjálfstæðisflokkur- inn hafa viljað setja skorður í þessum efnum, en við sjálfstæðis- menn munum berjast til þrautar í þessu sem öðru er lýtur að hags- munum fólks. Á þessu ári eru 2.900 millj. kr. minni skattar heimtir af lands- mönnum áriega en í upphafi kjör- tímabilsins og þar af er 1.100 millj. kr. minni tekjuskattur. Í fyrsta skipti í 15 ár er stjóm af efnabagsmálum, jákvæð staða í viðskiptum við útlönd og með sömu þróun á næstu árum mun hlutfall erlendra skulda miðað við fram- leiðsluverðmæti lækka úr 60% við valdatöku núverandi ríkisstjómar í 10-20% og um leið styrkir það stór- kostlega stöðu þjóðarbúsins bæði inn á við og út á við. Um leið og sá árangur sem nú hefur náðst, vegna þess að skyn- semisleiðin var valin, skapar grundvöll fyrir einstaklinga, heimili og fyrirtæki til þess að gera raun- hæfar áætlanir, þá er ljóst að eitt stærsta verkefni stjómmálamanna á náinni framtíð verður að koma í innra jafnvægi og eðlilegu aðhaldi í opinberum rekstri. Morgunblaðið/Þorkell Greiðslukortin hafa valdið þáttaskilum í möguleikum fólks bæði heima og heiman og sérstaklega hefur frelsið sem fólk fær í með- ferð gjaldeyris erlendis aukist svo um munar. Hver vildi nú vera án þessara möguleika? Morgunblaðið/Ami Sæberg Afnám einkaleyfis fyrir rekstur útvarps- og sjónvarps á íslandi er mál unga fólksins í landinu sem Sjálfstæðisflokkurinn náði fram. Myndin er tekin í talstofu Bylgjunnar af Hermanni Gunnarssyni á vaktinni. Morgunblaðið/Þorkell Unga fólkið í landinu á samleið með Sjálfstæðisflokknum, þeim flokki sem þorir að takast á við vandamálin og breyta til betri fram- tiðar. Sjálfstæðismenn tóku mikla pólitíska áhættu með því að taka að sér 1983 fað moka flór vinstri óráðsíunnar því margt af því sem gera þurfti hlaut að kalla á óvin- sældir, en þjóðarskútunni hefur verið siglt heilli í höfn og nú er að búa hana undir næsta róður, næsta „Ferskt ágætis salat“ komið á markaðinn ÁGÆTI, dreifingarmiðstöð mat- jurta, hefur sett á markaðinn niðurskorið grænmeti, „Ferskt ágætis salat“. Grænmetið er sérvalið eftir árstíðum, skorið hæfilega gróft, þvegið og pakkað í loftþéttar umbúðir án auka- efna. í fréttatilkynningu frá Ágæti kemur fram að samhliða dreif- ingu á íslensku grænmeti og innfluttu hefur fyrirtækið próf- að sig áfram með frekari vinnslu á fersku grænmeti. Markmiðið er að auka neyslu almennings á fersku grænmeti, með því að vinna það þannig að nýting hrá- efnisins verði sem mest og varan sé svo til tilbúin ádisk neytenda. Framleiðsla á „Fersku ágætis salati" er liður í þessu. Neytend- ur geta notað salatið beint úr pokanum eða blandað með þeirri salatsósu og öðru sem þeim hent- kjörtímabil, með þá von í stafni að árangurinn fari ekki úr böndunum. Það er jafnljóst að það er hægt að treysta Sjálfstæðisflokknum um- fram aðra flokka til þess að gæta hagsmuna þjóðarinnar allrar og finna þann farveg að eðlileg gróska geti átt sér stað um leið og tryggð- ur er réttur og þjónusta við þá sem minna mega sín. Með því móti verð- ur samfélag okkar spennandi og skemmtilegt, jákvætt og þroskandi því það hvetur til metnaðar fyrir betra lífi. Ungt fólk vill leið skynseminnar, það vill hafa aga á hlutunum, röð og reglu, um leið og það vill hafa eðlilegt svigrúm og frelsi til athafna og leiks. Sjálfstæðisflokkurinn hef- ur ávallt borið gæfu til þess að geta horfst í augu við unga fólkið enda verið dyggasti talsmaður þess. Ungt fólk vill nefnilega fá stað- reyndirnar á borðið, meta stöðu og stefnu og sýna sanngimi og tillits- semi. Sjálfstæðisflokkurinn hefur lagt kapp á að styrkja stöðu þjóð- félagsins með því að treysta þann grunn sem ungt fólk getur fótað sig á. Húsnæðismál, námslán, heil- brigðisþjónusta, verkmenntun, kjaramál, viðskiptafrelsi, sjálfstæði heimila og einstaklinga, allt eru þetta höfuðkappsmál sjálfstæðis- manna og það er styrkur Sjálfstæð- isflokksins að þora að taka á, gagnrýna, breyta og bæta. Auðvit- að hriktir í þegar fjallað er um svo stóra málaflokka, eins og til dæmis Lánasjóð námsmanna, en öll mál í rekstri samfélagsins verður að hugsa til enda, hugsa til árangurs. Og svo dæmi sé tekið um Lánasjóð námsmanna er það kröfuatriði að sá sjóður sé öflugur bakhjarl ungs fólks, sem vill auka fjárfestingu þjóðarinnar í menntun sinni, en það er jafnljóst að jafnvægis verður að gæta og jafnréttis gagnvart öðmm þegnum þjóðfélagsins. Hinn gullni meðalvegur er vandfarinn en það kostar tök að taka af skarið og ef það er ekki gert safnast vandamál- in upp. Það er ódýr aðferð að leika skollaleik, játa öllu, þykjast ætla að leysa allt fyrir alla á sama tíma eins og Alþýðuflokkurinn hefur nú gert um hríð og Alþýðubandalagið með hliðarjullunni í formi Kvenna- listans, en það borgar sig ekki að vantreysta fólki. Fólk sér í gegnum skollaleikinn og þegar kemur að því að meta árangurinn vegur skyn- semin þyngst á vogarskálunum. Árni Johnsen „Það er ódýr aðferð að leika skollaleik, játa öllu, þykjast ætla að leysa allt fyrir alla á sama tíma eins og Al- þýðuflokkurinn hefur nú gert um hríð og Al- þýðubandalagið með hliðarjullunni í formi Kvennalistans, en það borgar sig ekki að van- treysta fólki. Fólk sér í gegnum skollaleikinn og þegar kemur að því að meta árangurinn vegur skynsemin þyngst á vogarskálun- um.“ Þess vegna er Sjálfstæðisflokkurinn nú á uppleið í skoðanakönnunum. Það þarf snerpu til þess að stjóma, hvort sem það er í einum skólabekk eða í einu þjóðfélagi, og það þarf festu til þess að taka af skarið þegar hlutir fara úr böndum. Það var sérstætt þegar Þorsteinn Pálsson sendi Alþingi heim á dögun- um vegna þess að það var kallað saman á röngum forsendum, en hitt er ljóst að það er aðeins einn stjómmálamaður sem getur leyft sér slíkt, formaður Sjálfstæðis- flokksins, vegna þess að hann hefur forustu fyrir svo breiðri fylkingu landsmanna að enginn annar kemst í hálfkvisti við hana, enda hefur Sjálfstæðisflokkurinn sýnt og sann- að gegnum tíðina að honum er best íslenskra stjórnmálaflokka treyst- andi fyrir heill heildarinnar. Höfundur er einn afþingmönnum Sjálfstæðisflokks fyrir Suður- iandskjördæmi. ar. Til að byrja með verður Ágæti með eina grænmetisblöndu á boðstólum, en stefnt er að því að fleiri tegundir komi á markað- inn innan tiðar. í frétt Ágætis segir að þetta sé nýjung á markaðnum, því til þessa hafi neytendur orðið að kaupa hverja grænmetistegund sér og skera sjálft niður, eða kaupa hrásalat sem þegar hefur verið blandað sósu. Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Þorbjörg Þorkelsdóttir sjúkraliði, Hafsteinn Þorvaldsson for- stöðumaður sjúkrahússins og Erla Bára Andrésdóttir sjúkraliði. Sjúkraliðafélag íslands: Sjúkrahúsinu afhent fram- lag til styrktar öldruðum Selfossi. SJÚKRALIÐAR við Sjúkrahús Suðurlands afhentu þriðjudaginn 24. febrúar 100 þúsund króna framlag úr styrktarsjóði Sjúkraliðafé- lags íslands. Fénu skal varið í þágu aldraðra á sjúkrahúsinu. Sjúkraliðafélag íslands stofnaði styrktarsjóð aldraðra á 10 ára af- mæli sínu 21. nóvember 1976. Stofnféð var 200 þúsund krónur og var það ágóði af sölu afmælisplatta félagsins. Tilgangur sjóðsins er að styrkja aldraða og einstaklinga, félög og stofnanir sem vinna að bættum aðbúnaði eldra fólks. Framlög úr sjóðnum eru veitt fímmta hvert ár. Til úthlutunar voru að þessu sinni 400 þúsund krónur og fóru 100 þúsund í hvem landsfjórðung. Sig.Jóns.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.