Morgunblaðið - 04.03.1987, Síða 63

Morgunblaðið - 04.03.1987, Síða 63
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. MARZ 1987 63 Bikarkeppni KKÍ: Njarðvíkingar með annan fótinn ÆTLA má að Njarðvíkingar séu þegar komnir langleiðina i úrslit bikarkeppni Körfuknattleikssam- bandsins, að minnsta kosti með annan fótinn, eftir sigur á Þór á Akureyri í fyrri leik liðanna í gær- kvöldi, 120:94. í leikhléi var staðan 65:50 fyrir UMFN. Það voru Þórsarar sem byrjuðu betur - þeir höfðu forystu framan af og það var ekki fyrr en á 12. minútu er íslandsmeistararnir náðu að jafna og sigu þá fram úr. Þór hafði mest átta stig yfir um miðjan hálfleikinn. En eftir að meistararnir höfðu náð forystunni var aldrei spurning um hvort liðið færi með sigur af hólmi. Njarðvíkingar voru betri á allan hátt að þessu sinni, þeir eru mun sneggri, leika betur saman og hittni þeirra var mun betri en Akureyringanna. Lið Njarðvíkinga er mjög jafnt, liðsheildin er sterk en í jöfnu liði voru Valur Ingimund- arson og ísak Tómasson bestir. Valur var með nær 100% skotanýt- ingu - lék frábærlega vel. Hann Knattspyrna: Sigur gegn Kuwait ÍSLENSKA landsliðið í knatt- spyrnu vann Kuwait 1:0 í seinni landsleik þjóðanna, sem fram fór um helgina. Loftur Ólafsson skor- aði markið um miðjan fyrri hálf- leik eftir hornspyrnu. í úrslit hefur lítið fyrir hlutunum; það bar oft ekki mikiö á honum á vellinum en samt sem áður skoraði hann margar glæsikörfur. Hjá Þór var ívar Webster sterk- astur en Eiríkur Sigurðsson og Ólafur Adolfsson sýndu góða bar- áttu sem ekki er hægt að segja um alla leikmenn liðsins. Það mun- ar um minna þegar Konráð Óskarsson skorar aðeins fimm stig - en hann hefur verið besti maður liðsins í vetur ásamt ívari. Þórsarar eru ekki eins líkamlega sterkir og Njarðvíkingar - þeir voru lakara liðið, og er það auðvitað ekki skrýtið gegn þessum and- stæðingum. Það var þó gott hjá Þórsurum að skora 94 stig gegn UMFN og þeir sýndu svo ekki verð- ur um villst að þeir gætu spjarað sig í úrvalsdeildinni. Dómarar voru Sigurður Valur Halldórsson og Rafn Benediktsson og dæmdu þokkalega. A.S. Leikurinn í tölum íþróttahöllin Akureyri, 3. mars 1987. Undanúrslit í bikar- keppni KKÍ, fyrri leikur. ÞÓR-UMFN 94:120 (50:65). 2:0, 6:2, 13:6, 17:11, 19:16, 29:21, 31:31, 35:38, 39:46, 43:57, 50:65, 54:79, 64:83, 74:102, 92:106, 94:120. STIG ÞÓRS: ívar Webster 32, Eiríkur Sigurösson 15, Ólafur Adolfsson 12, Guömundur Björnsson 10, Björn Sveinsson 10, Hólmar Ástvaldsson 8, Konráö Óskarsson 5 og Jóhann Sigurösson 2. STIG UMFN: Valur Ingimundarson 42, isak Tómasson 21, Jóhannes Kristbjörnsson 17, Kristinn Einarsson 14, Helgi Rafnsson 9, Árni Lárusson 8, Hreiðar Hreiöarsson 4, Hafsteinn Hilmarsson 3 og Einar Valgeirsson 2. Simamynd/Skapti Hallgrímsson • Þegar upp var staðið hrósuðu Njarðvíkingar sigri á Akureyri í gærkvöldi, en hér er það ívar Webster, sem hefur betur — hefur „blokkerað11 skot Jóhannesar Kristbjörnsonar, sem er næstur honum. Til hægri er Hreiðar Hreiðarsson. Sigur gegn Skotum ÍSLENSKA piltalandsliðið f körfu- knattleik vann Skota 113:94 í fyrrakvöld og var það sætur sigur eftir naumt tap í fyrri leiknum. Skotar byrjuðu vel í leiknum og voru með örugga forystu þar til um miðjan fyrri hálfleik að leikurinn jafnaðist. Þá skipti íslenska liöið yfir í 1-3-1 pressuvörn, sem skoraði 25 stig í leiknum, Bárður Eyþórsson 18, Ragnar Jónsson 16, Júlíus Friðriksson 13, Friðrik Rún- arsson 12, en aðrir færri. Auk fyrrnefndra voru Rúnar Árnason og Skarphéðinn Eiríksson góðir, en lentu í villuvandræöum ásamt Júlíusi. Stúlknalandsliðið lék einnig gegn Skotum og stóð sig betur en í fyrri leiknum, en tapaði 83:54 eftir að staðan hafði verið 50:20 í hálfleik. Stigahæstar voru Anna Sveinsdóttir, sem skoraði 22 stig, og Björg Hafsteinsdóttir, en hún skoraði 16 stig. getrSuna- VINNINGAR! 28. leikvika - 28. febrúar • Frá stofnfundi hagsmunasamtaka fólaganna f 1. deild. Stofnuð samtök 1. deildarfélaga heppnaðist mjög vel, og voru strákarnir með 21 stig yfir í hálf- leik, 59:38. íslenska liðið lék vel í seinni hálfleik, hélt fengnum hlut og sigr- aði örugglega. Eyjólfur Sverrisson í kvöld BREIÐABLIK og Fram leika f 1. deild karla í Digranesi f kvöld ki. 20. Á sama tíma leika Valur og Haukar f úrvalsdeild- inni f körfuknattleik í Selja- skóla.. ÍR og ÍS leika í 1. deild kvenna í körfuknattleik á sama stað kl. 21.30. Einn leikur veröu í 1. deild kvenna í handknattleik í Laugardalshöll i kvöld. Valur og Víkingur mætast þar kl. 20. Einn leikur verður í 1. deild karla í blaki. ÍS og Þróttur leika kl. 18.30. Síðan verða tveir leik- ir í 1. deild kvenna. Þróttur og ÍS leika kl. 19.45 og Víkingur og Breiðablik kl. 21. Allir leikirn- ir fara fram í Hagaskóla. Á laugardaginn var haldinn stofn- fundur samtaka 1. deildarliðanna í knattspyrnu, þar sem lögð voru fram lög fyrir samtökin og þau samþykkt. Samtökin munu láta til sín taka sameiginleg hagsmunamál félag- anna. Þau helstu eru verð á aðgöngumiðum, hvernig auka má aðsókn að leikjum, niðurröðun leikja, aðstaða áhorfenda, sam- starf við fjölmiðla, útvarps- og sjónvarpsmál, áhugamannaregiur KSÍ, reglur um félagaskipti leik- manna og sameiginlegur undir- búningur mála fyrir ársþing. Stjórn samtakanna skipa Halld- ór B. Jónsson Fram, Stefán Gunnlaugsson KA og Einvarður Albertsson Víði. 1987 Vinningsröð: 1 1X-X21-21 1-21 1 1. vinningur: 12 róttir, kr. 138.795,- 50257(4(11) 62485(4(11) 639531 57171(4/11) 130260(6/11) 2. vinníngur: 11 róttlr, kr. 3.304,- 8105 53810 97145 130543+ 219608+ 221222 Úr 27. viku: 15608 56800 99037 188527 220107* 565849 41674 18145 56928 101702 200843 220822+ 565885* 42018 40380 57206 102196 208217 220834 588194 48852 42964 62484 102436 213408+ 220953 588446 48888 43034 95844 126991 214279* 221206 588470 52000 44978* 95895 127849 216818+ 221207 588471 97506 46312* 96236 128136 217267* 221209 590118 50079 96257 128573 217866 221140 653384 53747 96267 129880 219133 221162 660182 + = 2/11 Kærufrestur er til mánudagsins 23. mars 1987 kl. 12.00 á hádegi. Kærur skulu vera skrítlegar. Kærueyóubtðð fást hjá umboðsmðnnum og á skrifstofunni I Reykjavlk. Vlnningsupphæðlr geta lækkað, ef kærur verða teknar til greina. Handhafar nafnlausra seðla (+) veröa að framvísa stofni eða senda stofninn og fullar upplýsingar um nafn og heimilisfang til fslenskra Getrauna fyrír lok kærufrests. íslenskar Getraunir, (þróttamiðstöðinni v/Sigtún, Reykjavík

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.