Morgunblaðið - 12.03.1987, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. MARZ 1987
25
Um fhitning íslenskr-
ar tónlistar í RÚY
eftir Áskel Másson
Á undanfömum árum hefur átt
sér stað mikil umræða og umtals-
verðar breytingar á fjölmiðlum hér
á landi. Á þetta ekki síst við á sviði
hljóðvarpsmála. Þessar breytingar
hafa helst beinst að því, samkvæmt
yfirlýsingum forráðamanna um
hljóðvarpsrekstur, að hafa fjöl-
breyttara efni á bóðstólum og aukið
val milli ólíkra dagskrárliða á sama
útsendingartíma. Útkoman hefur
hins vegar orðið sú gagnstæða;
miðað við stóraukinn útsending-
artíma hljóðvarps hefur menningar-
og fræðsluefni hvers konar farið
mjög halloka gagnvart alskyns
skemmtiþáttum og öðru léttmeti.
Eðlilegt er að ætla það eina af
frumskyldum RÚV, að í dagskrár-
gerð sé leitast við að gefa sem besta
mynd af því sem er að gerast í tón-
listar- og menningarmálum þjóðar-
innar, svo og að RÚV stuðli að
útbreiðslu og fræðslu um það sem
hæst rís í þeim efnum (hér er ein-
ungis átt við fagurtónlist, en ekki
'dægur- eða dansmúsík), t.d. með
samstarf við systurstöðvar erlendis.
Á Islandi eru nú u.þ.b. 35 starf-
andi tónskáld, og hefur þeim íjjölgað
mjög á síðustu árum, en fyrir ára-
tug voru þau varla fleiri en um 20
talsins. Á þessum tíma hafa komið
út a.m.k. 15—20 hljómplötur hér-
lendis sem á eru tónverk íslenskra
höfunda, auk nokkurra hjá erlend-
um útgáfufyrirtækjum. Stöðugt
fjölgar (þótt hægt sé) þeim upptök-
um sem RÚV stendur fyrir á ísl.
verkum.
Þrátt fyrir þetta er það stað-
reynd, að útsendingartími þessarar
tónlistar í dagskrá RÚV hefur ýmist
Áskell Másson
„Þrátt fyrir þetta er
það staðreynd, að út-
sendingartími þessarar
tónlistar í dagskrá RÚV
hefur ýmist staðið í stað
eða minnkað, nú í mörg
ár, og stórminnkað
hlutfallslega, þ.e.a.s.
miðað við heildarút-
sendingartíma. “
staðið í stað eða minnkað, nú í
mörg ár, og stórminnkað hlutfalls-
lega, þ.e.a.s. miðað við heildarút-
sendingartíma.
Undirritaður starfaði í fimm ár
á tónlistardeild RÚV, og getur upp-
lýst, að dæmi eru mörg um ný ísl.
tónverk sem hafa verið hljóðrituð á
vegum RÚV, og þau síðan ekki flutt
í útvarpi fyrr en að tveim, jafnvel
þrem árum liðnum. Svipað á við
um tónleika sem teknir hafa verið
upp á hinum ýmsu stöðum í borg-
inni, sem og utan borgarmarkanna.
Mér er sem ég sæi bókaútgefendur
taka upp þá stefnu að prenta nýjar
ísl. skáldsögur og liggja síðan í
nokkur ár með þær óútgefnar! RÚV
á í fórum sínum hundruð verka
eftir íslensk tónskáld í upptökum.
Einungis örlítill hluti þessara upp-
taka er leikinn á ári hveiju.
Dagskrárgerð RÚV um íslenska
samtímatónlist hefur einkennst af
hugmyndaleysi og fordómum. Enda
þótt ástæða sé til að fagna þætti
Leifs Þórarinssonar, „Tónskálda-
tíma“, svo dæmi sé tekið, er ljóst,
að ef færa á þessi mál til betri veg-
ar þarf að auka flutning íslenskrar
tónlistar verulega,. bæði með sér-
stökum þáttum (s.s. þætti Leifs
Þórarinssonar), kynntum sem
ókynntum, svo og auka hlut hennar
í allri almennri dagskrárgerð.
Nú er það svo að aðsókn á tón-
leika, þar sem ísl. tónlist er flutt,
hefur margsannað að hér skortir
ekki áhugasama áheyrendur. Skoð-
anakannanir RÚV sýna ennfremur,
svo ekki verður um villst, að áhugi
hlustenda er ekki minni fyrir ísl.
tónlist en flestu öðru menningar-
efni, t.d. ljóða- og sögulestri, svo
dæmi sé tekið.
Mikil gróska hefur verið í íslensk-
um tónskáldskap á undanförnum
árum. Ljóst er að sú gróska hefur
á engan hátt speglast í dagskrá
RÚV. Við gætum reynt að ímynda
okkur hvernig ástatt væri í mynd-
listarmálum hér, ef forráðamenn
sýningarsala tækju upp þá stefnu
að sýna ísl. myndverk aðeins endr-
um og eins, — eða í leiklistarmálum
ef stjómendur leikhúsa tækju upp
sömu stefnu.
Höfundur er tónskáld.
Guðmundur Óli Scheving
algjöran óleysanlegan hnút að til-
stuðlan framsóknarmanna. Land-
búnaðarstefna, búmarkskerfi
Framsóknarflokksins, er á góðri
leið með að leggja þessa starfsgrein
niður. Sjávarútvegur á vonar völ
þó svo að eitt mesta góðæri hafí
gengið yfir þjóðina, stefnir sýnist
mér í það að Sambandið taki yfir
rekstur í sjávarútvegi í framtíðinni,
slík eru umsvif þess orðin í dag.
Það er óheilbrigt í lýðræðisríki að
einokunarhringir hasli sér slíkan
völl í íslensku þjóðlífi. Dómsmál í
slíkri sjálfheldu að ætla má að ekk-
ert dómskerfi sé í landinu, slík er
málefnastaða dómsmála, seina-
gangur á málum í dómskerfinu og
mál föst í kerfinu og þæfð þar.
Alþýðubandalag er
verðbólgrihvetjandi
flokkur
Það er átakanlegt að flokkur sem
kennir sig við lýðræði og málsvara
launþega, skuli verða málefnalega
uppiskropa, þegar annar fyrrver-
andi fjórflokkur og höfuðandstæð-
ingur Alþýðubandalagsins,
Sjálfstæðisflokkur, verður pólitískt
gjaldþrota. Það er augljóslega
leyndur þráður milli þessara tveggja
höfuðandstæðinga í stjómmálum.
Kosningamál Alþýðubandalagsins
j .............—...
eru boðun á einum félagsmálapakk-
anum enn, og við vitum öll hvað
það þýðir komist Alþýðubandalag í
ríkistjóm, þeir em nefnilega frægir
fyrir þessa félagsmálapakka og ráð:
herrastóladýrkun, menn skulu ekki
gleyma að Alþýðubandalagið í
síðustu ríkisstjóm lækkaði laun
launþega aðeins 14 sinnum, og með
félagsmálapökkum er það bara
kmkk í flestar vísitölur, sem viðmið-
un í þjóðfélaginu er bundin við. Hjá
Alþýðubandalaginu em horfið slag-
orðin „Herinn burt“ en komið í
staðinn „Vamarliðið kjurrt“, enda
em hörðustu Alþýðubandalags-
mennimir að kljúfa sig útúr, með
boðun sérframboðs, Alþýðubanda-
lagsmenn ganga því ekki sameinað-
ir til kosninga nú frekar en aðrir
flokkar í dag.
Alþýðuflokkur í
niðursveiflu
Kokhraustir Alþýðuflokksmenn
og flóttamenn jafnaðarstefnunnar
em á leið í skipbrot Alþýðuflokks-
skútunnar.
Öllum fyrrverandi þingmönnum
BJ er hafnað af Alþýðuflokksfólki,
sættir þessara þriggja þingmanna
við Alþýðuflokkinn vom tóm blekk-
ing, innkoma þessara manna í
Alþýðuflokkinn hefur ekkert gert
annað en að auka sundmnguna sem
fyrir var. Jafnaðarstefna Alþýðu-
flokksins er ekki lengur hin raun-
vemlega stefna jafnaðarmanna,
stefna flokksins einkennist af því
að geta samræmt sig að valdahlut-
föllum hinna fimmflokkanna.
Málefnaleg tilþrif flokksvélarinnar
em dauð og ómerk því Alþýðuflokk-
urinn mun ekki fylgja stefnu sinni
eftir eftir kosningar, ég tala nú
ekki um ef svo ólíklega vildi til að
Alþýðuflokkurinn ætti möguleika á
að komast í ríkisstjóm.
Bandalag jaf naðar-
manna gegn vald-
níðslu fimmflokkanna
BJ var stofnað 15. janúar 1983
til höfuðs fjórflokkunum, en í dag
hefur enn einn flokkur bæst í hóp-
inn stóra.
í dag er sama staða og áður í
valdníðslu embættismanna, spill-
ingu, ábyrgðarleysi, samtryggingu
og mafíumyndun.
BJ ætlar að skera upp herör gegn
embættismannakerfinu og stofnun-
um þess. BJ vill kalla Alþingismenn
og embættismenn til ábyrgðar á
þeim málefnum sem heyra undir þá.
Jafnaðarstefnan er og verður
hornsteinn BJ.
BJ hefur á sínum stutta tíma
orðið fyrir miklum áföllum, en rödd
BJ hefur aldrei þagnað og hennar
verður minnst í íslenskri stjóm-
málasögu komandi ára.
BJ stefnir á að bjóða fram um
allt land, en hvort það tekst veit
ég ekki á þessari stundu, en þó
held ég það.
Árið 1983 kusu 9.489 kjósendur
eftir sinni sannfæringu C-listann,
lista BJ, og komu fjórum mönnum
á þing. BJ ætlar að endurheimta
rétt þessa fólks en hann var tekinn
af því af þeim Alþingismönnum er
nú sitja á Alþingi á haustmánuðum
1986, þegar þingflokkur BJ var
þurrkaður út, og varaþingmönnum
BJ neitað að taka sæti C-listans á
Alþingi, þá kom bersýnilega í ljós
hverskonar „mafía“ það er í raun-
inni sem situr á Alþingi íslendinga.
BJ er samnefnari gegn fimm-
flokkunum, gegn embættismanna-
kerfínu, gegn valdníðslu.
BJ vill valddreifingu, jafnan at-
kvæðisrétt, jafnrétti milli lands-
hluta, þetta eru nokkur dæmi tekin
upp úr stefnuskrá BJ 1983 og eru
þau í fullu gildi enn í dag. BJ-
stefnan er heilbrigð hugsjón, því
það er hægt að lifa góðu lífi á Is-
landi, fyrir alla.
Sameinumst um BJ, tryggjum
BJ þingsætin aftur og gott betur.
Sameinumst um listabókstafinn C
í næstu kosningum.
Höfundur er vélstjóri ogskipar
3. sæti á lista BJ í Reykja vik.
íslenskar Brrruður!
- því það er stutt
úr bökunarofnunum okkar
á borðíð tíl þín.