Morgunblaðið - 21.03.1987, Page 23

Morgunblaðið - 21.03.1987, Page 23
 ' MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. MARZ 1987 23 þess að menn hafi varið sig sjálfir fyrir réttinum, en þau eru mörg einsog þér munuð vita gjör en ég. Því vænti ég þess að rétturinn leið- rétti þetta sem fyrst. Til öryggis orða ég þá beiðni mína í fylsta sam- ræmi við bókstaf laganna og nánar svo: Ég fer nú þess á leit við dóm- ara Hæstaréttar að þeir hlutist til um það að forseti Hæstaréttar skipi mig — Þorgeir Þorgeirsson, Bók- hlöðustíg 6 B í Reykjavík; nnr. 9563—3005 — veijanda sjálfs mín í hæstaréttarmáli 272/1986, ákæruvaldið gegn Þorgeiri Þor- geirssyni, því ég lít svo til að enginn starfandi hæstaréttarlögmaður geti með viðunandi hætti komið sjónar- miðum mínum á framfæri við réttinn. Skipun annars verjanda í trássi við óskir mínar væri skýlaus hefting á tjáningarfrelsi mínu og færi því í bága við mikilsvert ákvæði stjórnarskrár vorrar sem þér, dóm- arar hins æðsta réttar, hafið raunar meiri skyldur við en aðrir dauðlegir menn. Ég vænti að sjálfsögðu skjótrar afgreiðslu á þessu erindi mínu og kveð yður með lotningu, Þorgeir Þorgeirsson Að endingu læt ég hér fylgja texta 49. greinar laga um Hæsta- rétt íslands frá 21. júní 1973, nr. 73/1973. „49. gr. Málsmeðferð hefur á því, að stefna er lesin upp. Síðan heldur áfrýjandi eða umboðs- maður hans frumræðu sína og les upp úr ágripi það sem máli skiptir. Því næst talar stefndi, eða gagnáfrýjandi, eða um- boðsmenn þeirra, og lesa á sama hátt úr ágripi. Eigi skal aðili oftar tala en tvisvar. Er aðili flytur eigi mál sjálfur, er Hæstarétti rétt að leyfa honum að koma fram stuttum athuga- semdum, eftir að umboðsmaður hans hefur lokið málflutningi.“ Minn alþýðlegi lestrarmáti segir að þessi lagagrein taki af öll tvímæli um stöðu málsaðila fyrir Hæsta- rétti. Ljóst er að málsaðili getur flutt mál sitt sjálfur, en umboðs- maður má tala ef málsaðili felur honum umboð sitt. Nú er það svo, eðli málsins samkvæmt, að umboðs- manni verður trauðla þrengt uppá nokkum mann, nema undirskrift umboðsins fáist þá með pyndingum eða annarskonar nauðung. Vonandi kemur ekki til þvílíkra aðgerða af hálfu réttarins, enda virðist forseti hans treysta því að hér nægi prinsíp hins konungborna ólæsis og trompi út bæði stjórnarskrá og lögin um starfsreglu hans sjálfs. Félagsvísindalega séð og í sam- hengi við tesuna um lestrarlag hinna skriftlærðu er hér mjög fróð- leg niðurstaða á ferð. Hvert fagnaðarefni þau vísindi geta orðið hinum almenna þegni landsins vildi ég mega láta þeim sama þegni eftir að dæma. Og því eru þessi fróðlegu plögg hér birt. Með skyldugu þakklæti fyrir birt- inguna. Þorgeir Þorgeirsson er alþýðleg- ur lögfræðigrúskari og rithöfund- ur í Reykjavík. lt tréverk í húsið... ...ogmeiratil ELDHÚSINNRÉTTINGAR — BAÐINNRÉTTINGAR — FATASKÁPAR — ÚTIHURÐIR — BÍLSKÚRSHURÐIR — SVALAHURÐIR — INNIHURÐIR - ARNAR - LOFTAKLÆÐNINGAR OG MARGT FLEIRA. SÝNUM AEG HEIMILISTÆKI. BÚÐIN ÁRMÚLA 17 BYGGINGAWÓNUSTA SÍMI84585 TymMí TÓÚíj T' ^ _£npm í oag mii i SPENNANDl FERÐAMANNASTAÐIR, SEM BJÓÐA UPPÁ ÓTÆMANDI MÖGULEIKA TIL SKEMMTUNAR OG ÞÆGINDA ( FRAMANDI UMHVERFI. (SLENSKIR FARARSTJÓRAR VERÐ FRÁ KR. 41.800 TIL TYRKLANDS í 3 VIKUR VERÐ FRÁ KR. 33.700 TIL TÚINIIS í 2 VIKUR FERÐASKRIFSTOFAN TJARNARGÖTU 10 SÍMI 28633 ÖRKIN/SÍA

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.