Morgunblaðið - 07.04.1987, Side 18

Morgunblaðið - 07.04.1987, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. APRIL 1987 HÁÞRÝSTI- VÖKVAKERFI SérhæfÓ þjónusta. Aóstoóum vió val og uppsetningu hvers konar háþrýstibúnaóar. REGGIANA RIDU7TORI I Drifbúnaður fyrirspil o.fl = HÉÐINN = VÉLAVERZLUN-SIMI: 24260 LAGER-SÉRPANTANIR-ÞJÓNUSTA Af sjónarhóli landsbyggðarmanns eftirÞráin Bjarnason Miklar sviptingar hafa nú verið síðustu daga á hinum pólitíska vett- vangi. Ber þar hæst átökin í sambandi við brottför Alberts Guð- mundssonar úr ráðherrastöðu. Þarf engan að undra að slíkir atburðir veki athygli og að mismunandi sjón- armið komi fram um svo afdrifaríka ákvörðun. Svo vill oft fara, að í augnablikinu ráði meira um afstöðu manna tilfinningaleg og persónuleg sjónarmið en raunsæ og skynsam- leg ákvörðun byggð á aðalatriðum mála hveiju sinni. I umræðu manna um pólitíska ábyrgð og siðgæði stjórnmála- manna hefir það almennt verið talinn áberandi ljóður á ráði þeirra hér á landi, gagnstætt því sem ger- ist með öðrum þjóðum, að meint misferli þeirra leiði seint til þeirrar eðlilegu niðurstöðu, að þeir leggi niður störf meðan rannsókn málsat- riða fer fram. Nú vil ég ekki á nokkum hátt gerast dómari um það hve alvarleg mistök Alberts hafa verið meðan hann gegndi ráðherrastöðu. Hitt liggur þó alveg ljóst fyrir, enda við- urkennt af honum sjálfum, að mistök urðu. Það hefði því verið eðlilegast að hann hefði á þeim tíma sagt af sér ráðherradómi. Það gerð- ist því miður ekki. Afleiðing þess blasir nú við. Sjálfstæðisfólk hefír lengi orðið að hlusta á þann ósanna áróður andstæðinganna, að forysta flokks- „Ég- þekki ekki byggða- stefnu Borgaraflokks- ins, en ef hún er fólgin í því að snapa atkvæði úti á landi til þess að tryggja frambjóðend- um flokksins á Reykja- víkursvæðinu þingsæti er hún gróf móðgun við fólkið á landsbyggð- inni.“ ins haldi hlífískildi yfir skattsvikum, og hvers konar annað misferli þró- aðist í skjóli flokksins. Það er sannarlega kominn tími til að hrekja þessar röngu aðdróttanir og sýna fram á það í eitt skipti fyrir öll að slíkt meint misferli er ekki í anda sjálfstæðisstefnunnar. I þessu sambandi minnist ég þess atviks á fyrstu árum Bjarna heitins Benediktssonar í formannsstöðu í Sjálfstæðisflokknum, að á lands- fundi fór í ræðustól fjáraflamaður, sem gerði harða hríð að forystu flokksins fyrir það, að hún stæði ekki nógu vel á verði í vöm fyrir þá stétt manna. Bjarna ofbauð þessi málflutningur og svaraði fullum hálsi og með þungum áherslum eitt- hvað á þá leið, að menn skyldu átta sig á því, að Sjálfstæðisflokk- urinn væri ekki skálkaskjól brask- ara og skattsvikara. Þessa hreinskilnu og ákveðnu fullyrðingu hins merka stjórnmálaskörungs þarf sannarlega að árétta. Það er eindregið álit mitt að for- maður Sjálfstæðisflokksins, Þor- steinn Pálsson, hafi gert rétt í ákvörðun sinni til þessa erfiða máls Alberts Guðmundssonar. Ég er sannfærður um að því fer fjarri að gerðir hans hafi mótast af óvild til Alberts. Þar mun einungis hafa ráðið vel hugsuð og ábyrg afstaða. Einnig er það sannfæring min, að Albert Guðmundsson hafi í raun ekki ætlað að fara í sérframboð heldur hafí þar um ráðið þrýstingur og ofstopi stuðningsmanna hans, þannig að hann sjálfur hafí þar litlu um ráðið. Við verðum að vona að þegar mesta moldviðri þessa máls linnir átti menn sig á því að óvægileg barátta milli fyrrum samheija leiði ekki til góðs og er síst til þess fall- in að veita brautargengi þeim góðu málefnum, sem við höfum verið sammála um að beijast fyrir. Ég vil nú með nokkrum orðum víkja að væntanlegum kosningum hér í Vesturlandskjördæmi. I kosningunum 1983 skorti lítið á að við sjálfstæðismenn fengjum þriðja mann okkar á listann inn á þing sem uppbótarþingmann. Að óbreyttum kosningalögum hefði nú blasað við að þetta takmark næðist. Með þeirri breytingu sem nú hefir verið gerð á lögunum hefir þessi möguleiki fjarlægst. Það verðum við að gera okkur ljóst. Annað kem- ur einnig til. Nú er það augljóst, að möguleiki á tveimur þingsætum fellur aðeins í hlut þess flokks sem flest atkvæði fær í kjördæmum. Það veltur því á miklu að við höldum þeirri forystu sem náðist í síðustu kosningum. Við sjálfstæðismenn höfum nú sem fyrr úrvalsfólk á framboðslista okkar, sem hefir sýnt það í störfum sínum, að því er fullkommlega treystandi til að vinna að fram- faramálum fólksins í Vesturlands- kjördæmi. Framboðslisti Borgaraflokksins á Vesturlandi hefir nú verið birtur. Um það fólk hefi ég lítið að segja. Ég þekki það ekki, enda hefir þess ekki verið getið áður í sambandi við velferðarmál fólksins á Vestur- landi. Hitt er öllum ljóst, er til þekkja, að frambjóðendur þessa nýja flokks eru enginn valkostur fyrir okkur Vestlendinga, því eng- um getur dottið í hug að þeir hafi hinn minnsta möguleika á því að fá kjörinn mann á þing. Ég þekki ekki byggðastefnu Borgaraflokksins, en ef hún er fólg- in í því að snapa atkvæði úti á landi til þess að tryggja frambjóðendum flokksins á Reykjavíkursvæðinu þingsæti er hún gróf móðgun við fólkið á landsbyggðinni. Höfundur er bóndi í Hlíðarholti á Snæfellsnesi. FALLEGIR SJAKXAR VERÐI DÖMUR 0G HERRA Verð kr. 16.900,- y SNORRABRAUT 56 SÍMI 1 35 05 Listvinafélag Hallgrímskirkju: Dagskrá í tónum og tali Listvinafélag Hallgrímskirkju gengst nk. miðvikudagskvöld fyrir dagskrá í Hallgrímskirkju í tónum og tali, sem nefnist „Sjá, vér förum upp til Jerúsalem" og tengist tímanum frá boðunardegi Maríu til páska. Margrét Bóasdóttir sópransöng- kona syngur aríur og ljóð eftir Bach, Fux, Haydn, Wolf, svo og Magnific- at eftir Jónas Tómasson. Með henni koma fram hljóðfæraleikaramir Bemhard Wilkinson flautuleikari, Inga Rós Ingólfsdóttir sellóleikari og Hörður Askelsson orgelleikari. Sr. Kristján Valur Ingólfsson hefur valið ritningartexta, sem mynda umgjörð tónlistarinnar. Meðal verka, sem flutt verða, er arían „Ich folge dir gleichfalls" úr Jó- hannesarpassíunni eftir J.S. Bach. Aðgangur á þessa dagskrá er ókeypis og hefst hún kl. 20.30.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.