Morgunblaðið - 07.04.1987, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 07.04.1987, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. APRIL 1987 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. APRIL 1987 ' 37 36 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoðarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingasijóri Árvakur, Reykjavík Haraldur Sveinsson. Mattnías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskriftargjald 550 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 50 kr. eintakið. Blikur á lofti í varnarmálum Friðrik Sophusson, vara- formaður Sjálfstæðis- flokksins, benti réttilega á það í viðtali við Morgunblaðið á laugardaginn, að allur ávinningur þess kjörtímabils Alþingis, sem nú er að ljúka, gæti glatast, ef við kysum yfir okkur sundrungu. Ef styrkur Borgaraflokks Al- berts Guðmundssonar verður áþekkur eða hinn sami í kosn- ingunum 25. apríl og í skoðanakönnunum að undan- förnu, og Sjálfstæðisflokkur- inn tapar á sama hátt fylgi, er ljóst, að hér á landi geta skapast mjög alvarlegar að- stæður í stjórnmálum. Við blasir, að þá tekur við tíma- bil stjórnarkreppu eða fjöl- flokkastjórna með alkunnum afleiðingum fyrir efnahags- og atvinnulíf í landinu. En það er ekki aðeins á sviði efnahags- og atvinnu- mála sem festa undanfarinna íjögurra ára er í hættu. I ör- yggis- og varnarmálum eru einnig blikur á lofti, sem rík ástæða er til að gefa gaum. í stefnuskrá hins nýja Borg- araflokks er hvorki lýst yfir stuðningi við aðild íslands að Atlantshafsbandalaginu né dvöl varnarliðsins í Keflavík, en hvort tveggja hafa verið höfuðþættir í utanríkisstefnu íslands síðustu áratugina. Um hið fyrrnefnda segir ein- göngu í stefnuskránni: „ís- land er aðili að varnarbanda- lagi vestrænna þjóða (NATO).“ Hvað merkir þetta? Hvaða erindi á staðreynd af þessu tagi inn í stefnuskrá? Getur verið, að með þessum hætti sé verið að breiða yfir ágreining innan Borgara- flokksins^ um aðildina að NATO? í því sambandi ber að minna á, að alkunnur and- stæðingur varnarliðsins og NATO er í þriðja sæti á fram- boðslista Borgaraflokksins í Reykjavík. Um varnarsamstarfið við Bandaríkjamenn er þetta eitt að finna í stefnuskrá Borg- araflokksins: „Eðlilegt er, að vamarsamningurinn við Bandaríkin verði endurskoð- aður reglulega." Hér er tekið undir stefnu, sem Ólafur Ragnar Grímsson er höfundur að, og Alþýðubandalagið hef- ur gert að sinni. I þessu felst, að skapað er stöðugt óvissu- ástand um öryggis-_ og varnarmál íslendinga. A það er að minna, að í varnarsamn- ingnum em og hafa alltaf verið skýr ákvæði um endur- skoðun hans og uppsögn. Ný ákvæði um „reglulega endur- skoðun“ eru því eingöngu til þess fallin, að veikja varnar- samstarfið og þar með þá festu, sem nauðsýnleg er í vörnum íslands og Vestur- landa í heild. Tillaga Ólafs Ragnars Grímssonar og Borgaraflokks Alberts Guð- mundssonar felur líka í sér þá hættu, að reynt verði að hafa bandaríska varnarliðið að féþúfu. Dæmi erlendis frá, þar sem „regluleg endurskoð- un“ varnarsamstarfs við Bandaríkin hefur verið tekin upp, sýna, að slík er reyndin. Þar verður samstarfið að söluvöru eða skiptimynt. í kosningabaráttunni að undanförnu hefur naumast verið minnst á öryggis- og varnarmál. Alþýðubandalags- menn hafa um nokkurt skeið talið sér henta, að þegja að mestu um andstöðu sína við aðildina að NATO og dvöl varnarliðsins. Þeir vita, að sú stefna,- sem fylgt hefur verið, nýtur meirihlutafylgis með þjóðinni. Þessa stöðu er fyrst og fremst að þakka ákveðinni og afdráttarlausri stefnu Sjálfstæðisflokksins. En menn skyldu minnast þess, að í þingkosningum 1971 bar öryggis- og vamarmál tæpast á góma. Samt gerðist það eftir kosningarnar, að hér var mynduð ríkisstjórn, sem hafði á stefnuskrá sinni að vamar- liðið hyrfi úr landi á kjörtíma- bilinu. Áform í þá vem vom komin langt á leið, þegar al- menningur í landinu reis upp og stöðvaði þau með undir- skriftum sínum undir ávarp Varíns lands. Það er því fleira en sá ávinningur, sem náðst hefur í efnahagsmálum, sem í húfi er í þingkosningunum síðar í þessum mánuði. Hér hefur ríkt friður um öryggismál frá því 1974. Það væri illa farið, ef sá friður yrði rofinn. Sjálfstæðisflokkur inn og málefni fatlaðra eftirFriðrik Sophusson Málefni fatlaðra hafa verið talsvert til umræðu að undanförnu. Kosningavaka Þroskahjálpar og Oryrkjabandalagsins, sem haldin var fyrir skömmu tókst vel og var aðstandendum til sóma. Sjálfstæðisflokkurinn hefur um árabil látið sig varða málefni fatlaðra. Af mörgu er að taka. Sumt er enn í fersku minni, en full ástæða er til að rifja upp annað, sem eldra er: 1. Grundvöllurinn að uppbyggingu stofn- ana í þágu öryrkja var lagður með lögum um erfiðafjársjóð nr. 25 16. apríl 1953. Aðalhvatamaður þessarar löggjafar var einn af þingmönnum Sjálfstæðisflokksins Gísli Jónsson. 2. Arið 1959 var samþykkt þingsálykt- unartillaga um skipun nefndar til að rannsaka og gera heildartillögur um lausn á atvinnumálum og félagslegum vandamálum öryrkja í landinu. Fyrsti flutningsmaður þessarar tillögu var Gunnar Thoroddsen, alþingismaður Sjálfstæðisflokksins. Nefndin sem starfaði undir forystu Odds Ólafssonar læknis, fyrrverandi alþingismanns, skilaði ítarlegum til- lögum um málefni öryrkja, og þar með einhvetjum mestu umbótum í félags- legri aðstöðu öryrkja sem hér hafa orðið, auk þess sem tillögurnar mörk- uðu upphaf læknisfræðilegrar endur- hæfingarstarfsemi hér á landi. Nefndin gerði tillögur um sérstaka löggjöf um aðstoð við fatlaðra sbr. lög nr. 25 16. april 1962, þar sem Styrkt- arfélagi fatlaða er tryggður tekjustofn til starfsemi sinnar. 3. Árið 1967 fluttu tveir þingmenn Sjáif- stæðisflokksins, Oddur Andrésson og Gunnar Gíslason, þingsályktunartil- lögu um að ríkisstjórnin undirbyggi og legði fyrir Alþingi frumvarp til laga um öryrkjaheimili og endurhæfingar- stöðvar. I kjölfar þess var Öryrkja- bandalagi Islands falið að semja frumvarp til laga um öryrkjaheimili og endurhæfingarstöðvar. Árangurinn varð lög um endurhæfingu með stofn- setningu endurhæfingarráðs, er hafði víðtækar skyldur til að koma málefn- um fatlaðra í betra horf og hefur starfsemi endurhæfingarráðs verið afl- vaki margháttaðra aðgerða í þessu skyni. 4. Árið 1972 var samþykkt tillaga til þingsályktunar frá Óddi Ólafssyni, þingmanni Sjálfstæðisflokksins, um aðgerðir til að auðvelda umferð fatl- aðra. Skipuð var nefnd sem vann að at- hugun á umbótum á þessu sviði og árangurinn varð, að sett voru bygging- arlög árið 1978 þar sem sérstaklega var fyrir mælt um, að í byggingar- reglugerð skyldi setja ákvæði varðandi umbúnað bygginga til þess að auð- velda ellihrumu og fötluðu fólki að komast leiðar sinnar. Frumkvæði að þessari löggjöf hafði Gunnar Thorodd- sen félagsmálaráðherra.- 5. Árið 1973 flutti Oddur Ólafsson, þingmaður flokksins, tillögu um breyt- ingu á lögum um Húsnæðismálastofn- un um að heimila lán til öryrkja til endurbóta eigin húsnæðis. Ákvæði þess efnis komust þar með í lög Hús- næðismálastofnunar ríkisins. 6. Þegar Iög um heilbrigðisþjónustu voru endurskoðuð 1978 er ráðherra Sjálf- stæðisflokksins, Matthías Bjarnason, fór með heilbrigðismál var lögtekið að starfssvið heilsugæslustöðva tækju til sjúkraþjálfunar og endurhæfingar- starfsemi og þar með rennt stoðum undir að fatlaðir fái aðstöðu til fullko- minnar endurhæfingar hvarvetna á landinu. Hér hefur verið stiklað á nokkrum þáttum málsins. Margt fleira má rekja og er þá hlutur Reykjavíkurborgar ekki sístur. Ályktun landsfundar Á landsfundi Sjálfstæðisflokksins, sem haldinn var í mars sl., var ályktað um margvísleg mál. Á nokkrum stöðum er vikið að málefnum fatlaðra og öryrkja: 1. í almennri stjórnmálaályktun segir svo: „Uppbyggingarstarfi verði haldið áfram svo og umbótum í trygginga- málum og málefnum fatlaðra og aldraðra. 2. í sérstakri ályktun um heilbrigðis- og tryggingamál er sagt orðrétt: „Hvatt er til aukinna aðgerða í þágu fatlaðra, m.a. með auknum upplýs- ingum um réttindi þeirra, uppbygg- ingu framkvæmdasjóðs, stofnun sambýla, ráðstöfunum til endurhæf- ingar og atvinnuþátttöku án þess að réttindi glatist meðan á aðlögun- artíma stendur. Hugað verði sérstak- lega að lífeyrisréttindum öryrkja. Fagnað er umbótum í tryggingakerf- inu, svo sem lengingu mæðralauna vegna barna í langtímavistun. Nauð- synlegt er . að endurskoða jafnan upphæðir tryggingabóta, þannig að t.d. örorkulífeyrir dugi til framfærslu bótaþega. Bótakerfi vegna slysa- trygginga verði endurskoðað þannig að rauntjón hinna slösuðu verði bætt. Heimavinnandi fólk njóti bóta frá Tryggingastofnun ríkisins til jafns við Friðrik Sophusson „Ef við ætlum að stórauka fjárframlög til fatlaðra á næstu árum verður það varla gert nema með því að draga saman seglin á öðrum sviðum eða — sem kemur vel til greina — að láta þá, sem bezt eru settir í þjóðfélaginu greiða að einhverju leyti fyrir þá þjónustu sem samfélagið lætur okkur nú í té án end- urgjalds.“ aðra þjóðfélagsþegna. Fyrningar- frestur vegna umsókna um sjúkra- dagpeninga verði lengdur." 3. I ályktun fímdarins um skóla- og fræðslumál segir m.a.: „Jafnrétti til náms er grundvallar- stefna Sjálfstæðisflokksins. Taka þarf til gagngerðrar endurskoðunar kennslumál fatlaðra þannig að þeim nýtist betur hið almenna skólakerfi. Kennslumál fatlaðra heyri undir menntamálaráðuneytið. “ 4. I ályktun um vinnumarkaðsmál seg- ir: „Landsfundur Sjálfstæðisflokksins hvetur til að aðstaða fatlaðra til þátt- töku í atvinnulífinu veðri stórlega bætt og þeim á þann hátt gert fært að sjá sér farborða. Þá verður að efla samvinnu í fyrirtækjum og stétt- arfélögum til að auðvelda fötluðum aðgang.“ Framkvæmdasjóður fatl- aðra Mikið hefur verið rætt um Fram- kvæmdasjóð fatlaðra. Því miður hefur ekki verið staðið við lögin um sjóðinn frá því að þau voru sett. Sömu sögu er reyndar einnig að segja um ijölmörg önnur lögbundin verkefni. Þessi skerðing er ekki á ábyrgð neins eins stjómmála- flokks. Bæði núverandi og síðasta ríkis- stjórn skertu fjármagn til sjóðsins. Sérkennsluhúsnæðið hefur haft vissan forgang um fé úr sjóðnum, en vonandi verður hægt að láta stærri hluta ganga til heimila — einkum sambýla — á næst- unni. Meginstefnan er að almenna skólakerfið taki við sem allra flestum, en sérskólarnir eru að sjálfsögðu mikil- vægir og em nauðsynlegar miðstöðvar fyrir það sérmenntaða fagfólk, sem starfa á víðs vegar um landið. Með lögunum um lottó var ákveðnum aðilum fenginn lögverndaður tekjustofn, Öryrkjabandalagið fær 40% af nettóá- góða. Byrjunin lofar góðu. Bandalagið hefur þegar fengið tæpar 20 milljónir til sinna þarfa og verulegur hluti af því mun fara til íbúðakaupa. Mér skilst að Hússjóður Öryrkjabandalagsins ráðgeri að festa kaup á 40 íbúðum á þessu ári, en Hússjóðurinn á 250 leiguíbúðir fyrir. Rétt er að vekja athygli á þessu vegna þess, að lottóið hlýtur að færa til áherzl- ur og tryggja þroskaheftum frekari rétt til fjármuna úr Framkvæmdasjóði fatl- aðra á næstunni. Fyrir nokkrum árum varð sú mikil- væga stefnubreyting í málefnum fatl- aðra, að ákveðið var, að tryggja þeim réttindi með sams konar úrræðum og notuð eru fyrir aðra í stað þess að nota sértækar lausnir. Eg tel, að talsvert hafi áunnist, einkum í skólakerfinu, þeg- ar við berum okkur saman við aðrar þjóðir. Tiltölulega fleiri fötluð börn stunda nú nám við almenna skóla en áður, þótt auðvitað vanti talsvert á í þeim efnum. Þrjú forgangsverkefni Þessi breytta stefna hefur þýtt, að ný kynslóð fatlaðra getur fremur en sú eldri búið við svipuð skilyrði og aðrir. Ég vil benda á þrjú forgangsverkefni: 1. Sambýlin hafa gefist vel og verður að leggja áherslu á að fjölga þeim, enda þörfin mikil (160 eru á biðlista). 2. Sveitarfélögin komi meira inn í mynd- ina varðandi verndaða vinnustaði, enda eru heimamenn færari til þess en fulltrúar ríkisvaldsins. 3. Skilið verði eins og kostur er á milli heimila (þar á meðal sambýla) og staða þar sem dagleg störf fara fram. Þess vegna þarf að auka dagvistar- möguleikana, t.d. þjátfunarmið- stöðvar fyrir þá verst settu, þannig að þeir fari til og frá heimili sínu eins og annað fólk. Á undanförnum árum hefur húsnæðis- löggjöfin verið lagfærð til að koma til móts við fatlaða og öryrkja. Nú síðast gerðist það rétt fyrir þinglok. Þá hefur Ragnhildur Helgadóttir, heil- brigðisráðherra, beitt sér fyrir ýmsum lagfæringum fyrir fatlaða. I því sam- bandi má nefna, að verið er að setja reglur, sem auðvelda fötluðum að kom- ast út á vinnumarkaðinn án þess að tefla efnahagslegri afkomu þeirra í tvísýnu. Með þeim eru öryrkjum tryggðar bætur í þijá mánuði eftir að þeir hefja störf og þeir halda fullum réttindum, þurfi þeir að hverfa úr vinnu áður en ár er liðið. Jafnframt hefur Þorsteinn Pálsson, fjármálaráðherra, staðið fyrir breyting- um á tryggingalöggjöfinni til að hægt sé að veita öryrkjum styrki til bílakaupa. Þessi atriði eru öll fallin til að tryggja raunverulegan rétt fatlaðra og áfram þarf að halda á þessari braut. Kaupmáttur lífeyris Á síðustu árum hefur þess verið gætt að kaupmáttur lífeyris skerðist ekki og tekið hefur verið tillit til launaskriðs. Þess vegna hefur kaupmáttur lífeyris- þega með fulla tekjutryggingu og heimilisuppbót aldrei verið meiri. Það er hins vegar rétt, að síðasta hækkun svar- aði ekki til hækkunar lægstu launa í desembersamningunum. Það hlýtur að verða viðfangsefni stjórnmálamanna á næstunni að hækka lífeyrinn, þannig að hann verði samsvarandi lágmarkslaun- um, sem eru nú u.þ.b. kr. 27.000 (þ.e. fullur lífeyrir ásamt tekjutryggingu og heimilisuppbót, sem er nú kr. 22.500). Ég hef í þessari grein reynt að gefa nokkra hugmynd um afstöðu okkar sjálf- stæðismanna til málefna fatlaðra. Sjálf- sagt finnst flestum, að hægt gangi. En við skulum samt meta það, sem vel hef- ur verið gert. Framkvæmdir og rekstur kosta fjármagn. Hvar getum við aflað íjár? Eru til nýjar leiðir? Ef við ætlum að stórauka fjárframlög til fatlaðra á næstu árum verður það varla gert nema með því að draga saman seglin á öðrum sviðum eða — sem kemur vel til greina — að láta þá, sem bezt eru settir í þjóð- félaginu greiða að einhveiju leyti fyrir þá þjónustu sem samfélagið lætur okkur nú í té án endurgjalds. Menn verða að hafa kjark til að koma til móts við ný viðhorf með ábendingum um leiðir og áhitnum spurningum, sem krefjast svara. En forsenda þess, að árangur náist, er, að áfram ríki festa og stöðug- leiki í efnahagsmálum. Höfundur er varaformaður Sjálfstæðis- flokks ogskipar 1. sæti D-listans í Reykjavík. Getum enn haft úrslitaáhrif á þróun hafréttarmála eftir Eyjólf Konráð Jónsson Á vinnustaðafundum að undanfömu hef ég stundum verið spurður eftir hveiju væri að slægjast á Hatton-Rockall svæðinu. Spurn- ingunni hef ég svarað eitthvað á þessa leið: Við vitum ekki með vissu hvað jarðlögin á svæðinu hafa að geyma enda er þetta sokkna land lítið rannsakað. Einmitt þess vegna er rannsóknarleiðangur sá sem farinn verður í sumar nauðsynlegur þótt erfitt sé að spá nokkru um það hvort vísbending fáist um verðmæt jarðefni, gas eða olíu og er þess þá að gæta að ekki er langt síðan mönnum hug- kvæmdist að leita slíkra auðlegða í Norðursjó eða við Noregsstrendur. Því er svo við að bæta að nú þegar tilheyra hafsbotninum að alþjóðalögum þær lífverur sem botnlægar eru, svo sem skel- og krabbadýr. Og lítill efi er á því að hafið mun er tímar líða talið eign þess ríkis eða ríkja sem eiga botninn, rétt eins og upphaf 200 mílnanna var það að Bandaríkjamenn helguðu sér 200 mílna hafs- botnsréttindi árið 1945 með einhliða yfirlýs- ingu Trumans forseta. Á sama hátt eru strandríkin nú sem óðast að helga sér land- grunn utan 200 mílna efnahagslögsögu en þau mynda nú sem fyrr hafrétt í raun — de facto — enda meirihluti þjóða heims strand- þjóðir. Þetta ætti auðvitað að vera nægilega ríkir hagsmunir til þess að við gættum þeirra. En pólitískir hagsmunir eru einnig mikilvægir og jafnvel líka hernaðarlegir því að vina- og bandalagsþjóðir geta helgað sér svæðið sam- eiginlega um alla framtíð. Við Islendingar höfum áður haft úrslita- áhrif á þróun hafréttar. Á það jafnt við um 200 mílurnar og samkomulagið um Jan May- en-svæðið sem var fyrsta samningsgerðin á grundvelli Hafréttarsamningsins um samnýt- ingu og sameign auðlinda hafsins og hafs- botnsins. Ef menn líta á kort af norðurhöfum sjá þeir hve skammt er orðið til þess tíma að þjóð- irnar frá Noregs- og Skotlands- ströndum og allt vestur til Kanada helgi sér höfin öll, gæti þeirra, rækti og nýti. Ljóst er því að við íslend- ingar bæði getum enn og eigum að hafa úrslitaáhrif á þróun hafréttarmálanna og halda af framsýni og hyggindum á þessum mikilvægustu réttindum. Rétt er hér og nú að minna á það að sjálf- stæðismenn hafa allt frá því að lokasókn hófst á hafréttarmálum með baráttunni fyrir 200 mílum og réttindum á Jan Mayen-svæð- inu, Reykjaneshrygg og Rockall-hásléttu haft alla forystu í þessum mikilvægu málum og það jafnt hvort sem þeir hafa verið í ríkis- stjóm eða stjómarandstöðu. Sjálfstæðisflokknum hlýtur því að vera best treystandi til þess að leiða mál þessi til farsælla lykta. Höfundur skipar 4. sæti lista Sjálfstæðis- flokksins í Reykjavík. Starfsævi og starfshæfni ríkisstjóma Lengsta starfsævi íslenzkrar ríkis- stjórnar frá stofnun lýðveldisins (1944) er ellefu ár. Sú ríkisstjóm, sem hér um ræðir, var samstjórn Sjálfstæðis- flokks og Alþýðuflokks, viðreisnarstjórnin, sem mynduð var 1959 og sat samfleytt til ársins 1971, fyrst undir forsæti Ólafs Thors, síðan Bjarna Benediktssonar (lengst af) og loks Jóhanris Hafstein. Á lýðveldistímanum 1944-1987, 43 árum, hafa setið þrettán ríkisstjórnir: fimm tveggja flokka stjómir, sex fjöl- flokkastjórnir (fleiri en tveir flokkar eða flokksbrot) og tvær minnihlutastjórnir. Tveggja flokka stjórnir hafa yfirleitt setið út heilt kjörtímabil og viðreisnar- stjórnin gott betur, sem fyrr segir. Engin ríkisstjórn, sem fleiri en tveir framboðs- flokkar hafa staðið að, hefur lifað heilt kjörtímabil. Meðalaldur fjölflokkastjórna hér á landi er u.þ.b. tvö ár. Minnihluta- stjómir sátu aðeins um stundarsakir. ☆ MEÐALALDUR ríkisstjórna, sem fleiri en tveir framboðsflokkar stóðu að, er nálægt hálft kjörtímabil. Engin slík ríkisstjórn hefur lifað af heilt kjörtímabil. Ríkisstjórnir þær, sem hér um ræðir, eru: Nýsköpunarstjórn 1944-46 (Sjálf- stæðisflokkur, Alþýðuflokkur, Sósíal- istaflokkur), Stefanía 1947-49 (Alþýðuflokkur, Framsóknarflokkur, Sjálfstæðisflokkur), vinstri stjóm 1956-58 (FramsóknarflokkUr, Alþýðu- flokkur, Alþýðubandalag), vinstri stjóm 1971-1974 (Framsóknarflokkur, Al- þýðubandalag, Samtök fijálslyndra og vinstri manna), vinstri stjóm 1978-1979 (Framsóknarflokkur, Alþýðuflokkur, Al- þýðubandalag), ríkisstjórn Gunnars Thoroddsen 1979-83 (samstjórn örfárra þingmanna úr Sjálfstæðisflokki með Al- þýðubandalagi og Framsóknarflokki). Engin þessara ríkisstjórna starfaði í heilt kjörtímabil. Helmingur þeirra starf- aði um hálft kjörtímabil, ein skemur, tvær litlu lengur. ☆ FIMM tveggja flokka ríkisstjómir hafa starfað á lýðveldistímanum: • 1) Ríkisstjóm Steingríms Steinþórs- sonar 1950-53 (Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur). • 2) Ríkisstjóm Ólafs Thors 1953-1956 (Sjálfstæðisflokkur og Fram- sóknarflokkur). Hér var í raun um framlengt stjómarsamstarf Sjálfstæðis- flokks og Framsóknarflokks að ræða, sem stóð samfleytt í sex ár, þó flokkarn- ir skiptust á að leiða ríkisstjórnina. # 3) Viðreisn 1959-1971 (Sjálfstæðis- flokkur og Alþýðuflokkur). • 4) Ríkisstjórn Geirs Hallgrímssonar 1974-1978 (Sjálfstæðisflokkur og Fram- sóknarflokkur). 9 5) Ríkisstjórn Steingríms Hermanns- sonar (1983-1987). Eins og af framansögðu sést fylgir stjómarsamstarfi tveggja flokka yfir- höfuð festa, sem endist út kjörtímabil, jafnvel lengur, öfugt við ríkisstjómir fleiri aðila, sem hafa minna úthald og starfsþrek. ☆ MJÖG mikilvægt er að sá árangur, sem náðst hefur í hjöðnun verðbólgu, jafnvægi og stöðugleika í efnahagslífi okkar, verði treystur í sessi til frambúð- ar. Sú framvinda, sem orðið hefur í fram- boðsmálum (8 til 9 framboð í einstökum kjördæmum), horfir hinsvegar ekki til stefnufestu eða stöðugleika í íslenzkum stjórnmálum. Líkur, dregnar af skoðanakönnunum, standa til þess, að engir tveir framboðs- aðilar fái nægan þingstyrk til að standa að tveggja flokka meirihlutastjórn. Það er mjög miður, ef rétt reynist, í ljósi reynslunnar á lýðveldistímanum, sem hér að framan er rakin. Þegar farið er ofan í saumana á fram- vindu íslenzkra stjórnmála þetta tímabil er eirisýnt, að Sjálfstæðisflokkurinn hef- ur verið kjölfestan í íslenzkum þjóðmál- um. Sú aðför, sem nú er að flokknum gerð, er því um leið aðför að stefnufestu og stöðugleika í þjóðlífinu og þeim árangri í efnahagsmálum, sem náðst hefur. Mýgrútur framboða, eins og nú blasir við, styrkir hvorki lýðræðið né þingræð- ið, heldur eykur á glundroða, á líkurnar á einhverskonar fjölflokka- eða vinstri ríkisstjórn eftir kosningar. Kreppa verðbólguáranna, sem skammt er að baki, getur beinlínis vakn- að til nýs lífs úr slíkum glundroða. Spurning er hvort hinn þögli meiri- hluti þekkir sinn vitjunartíma og snýr málum til betri vegar, áður en það er orðið of seint. Og það er vissulega of seint að iðrast eftir kosningar, ef sagan frá 1978 endur- tekur sig með einum eða öðrum hætti. Stefán Friðbjarnarson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.