Alþýðublaðið - 15.04.1932, Blaðsíða 2
t
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
KlSardasœrinn.
1 umræ'ðum um stjórnarskrár-
málið á alþingi lét Jón í Stóra-
dal svo uni mælt, að h.onum
þætti það sótt með of miklu
kappi. Jón Baldvinsson benti hon-
um þá á, a'ð eðlilegt er, a'ö því
sé. fast fyigt fram, a'ð þeir, sem
stjórnarfarslegu jafnrétti er hald-
ið fyrir, nái rétti sínum. Hins
vegar hafi Jón í Stóradal áöur
sýnt þa'ð ofurkapp í kjördags-
íærstumálinu, að hann þurfi ekki
að imdra, þótt nokkurt kapp sé
sýnt í stjórnarskrármálinu. Verka-
týðurinn er mjög afskiftur um á-
hrif á skipun alþingiis, jafnframt
því, sem hann ber þyngri skatta-
byrði en nokkur önnur stétt. Svo
var því fyriir nokkrum árum bætt
ofan á hina ranglátu kjördæma-
»KÍpun, að kjördagurinn var færo-
ur frá hausti til vors, -og þar með
er mikill fjöldi sjómanna og
verkamanna raunverulega sviftur
kosningaréttinum. „Framsókn“ og
íhald knú'ðu kjörd agsfærsluna
frarn með s.vo miklu kappi, að
engu samkomulagi var'ð ná'ó.
Þött bo'ðið væri, að bæ.ndur
fengju þann kjördag, sem for-
mælendur kjördagsfærslunoar
\áldu, ef kaupsta’ðabúar fengju'
jafnframt a'ð halda þeim kjördegi,
sem þeir ósku’ðu, þá var ekki
nærri því komandi Þegar nú slikt
rangilætismál gegn verkalýðnum
var sótt me'ð þvílíku kappi, þá
þurfi Jón í Stóradal ekki a'ð
undra, þótt nokkurt kapp sé í
baráttunni fyrir kosningajafmrétti
verkafólksins.
Jón í Stóradal lét þá svo, siem
ekki væri loku fyrir það skotiö,
að samkomutag gæti náð-st um
kjördagsmálið. Jón Baldvinsson
sagði þá, a'ð veri'ð gæti að það
ver'ði prófað sí'ðar, hverjar ver'ði
undirtektir hans og annara
,,Fra.msóknar“manna um þa'ð mál.
Stlóroarsiíráiii.
1 byrjun alþingisfunda í gær
féll þa'ð enn í hlut forsetanna að
íilkynna, að komnar væru áskor-
anir til alþingis um réttláta kjör-
dæmaskipun frá 245 kjósendum
á ísafir'ðá, í viðbót við þá, sem
áður höfðu sent slíka áskorun,
frá 151 kjósenda í Bolungavík,
frá 68 kjósendum í Ögurhreppi
og 49 kjósendum í Snæfjalla-
Iweppi, i Norður-ísafjarðiarsýslu,
— að þingið geri þær
kosningalögum landsins, að hver
þingflokkur fái þingsæti í sam-
ræmi við atkvæðatölu flokkanna
samtals við almennar kosningar,
og sömulei’ðis frá 78 kjósendum
á Akranesi, að þingið geri þær
breytingar á kjördæmaskipun
landsinsi, a'ð allir kjósendur á
íandinu hafi jafnan íhlutunarrétt
sm skipun alþingis. —
Magnús Torfason Inafði nú
gengið x sig um breytingartilIögTx
sína vi'ð stjórnarskrána, sem
birt var hér i blaðinu á miðviku-
daginn, á þann hátt, a’ð hann
flutti við hana vi'ðukatiflögu, fsétn
gerði út af við fyrri hlutann.
Tillagan er þannig í heild: „Á al-
þingi eiga sæti 45 fulltrúar. Al-
þingi skal svo skipa'ð, að utan
Reykjavíkur hafi hver þingflokkur
þingsæti í Bamræmi við atkvæða-
tölu þá, sem greidd er fram-
bjóðendum flokksins samtals við
almennar kos:ning,ar,“ [Vi'ðbótin:]
„eftir því, sem uppbótarsæti vinn-
ast til. Kjördæmi skulu aldrei
færri vera en 25. Fjölga má þeim
.me'ð lögum.“ Nú eru þau 27. —
Eftir því, sem föstu þingsætin
yrðu fleiri, þeirn mun færri yrðu
uppbótarþingsætin, og væri jáfn-
vel hægt samkvaont slíku stjórn-
arskrárákvæði að þurka þau
næstum alveg út með fjölgun
fastra þingsæta.
Umræður um stjórnarskrármál-
i'ð héldu áframi í gær- í efri deild,
en atkvæðagreiðslu var frestað
þangað til í dag. Síðastur talaði
Eira" Árnason á Eyrarlandi. tag’ði
hann, að þeir „Framsóknar“-
flokksmenn myndu lofa frum-
varpinu að fara til neðri deiildar,
af því að þeir visisu, ao par ijrM
pví breijtt í pad horf, sem peir
mimi geta sœtt sig við.
AlMðofiokksmál
á alplnpi.
í gær var frumvarp Alþýðu-
flokksins um alpýðiitrgggingar,
sem Haraldur Guðmundsson,
Fléðinn Valdimarsson og Vil-
mundur Jónsson flytja á alþingi,
afgreitt til 2. umræðu í neðri
deild og vísa'ð til allsherjar-
nefndar. Verður fastlega að vænta
þess, að nefndin greiði svo fyrir
nfgreiðslu þessa mikla hagsbóta-
máls alþýðunnar, að ekki líði á
löngu þargað til það kemur til
næstu umræðu.
Forkaupsréttarfrmn oarpio var
samþykt við 2. umræðu í neðri
deild með 13 atkvæðum gegn 10.
Með því greiddu atkvæði Alþýðu-
flokksfulltrúarnir 3 og 10 Fram-
sóknarflokksmenn, en allir við-
staddir íhaldsflokksmenn á móti
og ásamt þeim Jörundur og
Sveinn í Fir'ði. 5 deilldarmenn
voru fjarstaddir. — Er þá eftir
ein urnræða til þess að frum-
varpið. geti orðið að lögum.
Fruimvarp Vilntundar Jónssonar
um lœkningaleyfi og réttihdi og
skyldur lækna var einnig af-
greitt til 3. umræðú í neðri deiild.
Ólafur Thors bo'ðaði, að hann
myndi flytja dagskrártillögu við
3. umræðu, og ætlar hann þar
með aö gera sitt til að reyna að
fá afgreiðslu þessa rnerka máls
skotið á frest til næsta þings.
Alplngi.
1 gær afgreiddi alþingi lög um
rílcisskattanefnd. (Afgr. í e. d.)
Ver'ður þeirra nánar getið bráð-
lega.
Meðal þeirra mála, sem af-
greiðslu fengu í gær í neðiri
deild, voru þessi: Frumvarpinu
um að létta berklavarnaskattin-
um af sjúkrammlögum var vísað
til 2. umiræðu. Heimild fyrix ríkis-
stjórnina tii að ábyrgjast lán til
að korna upp frystihúsum á kjöt-
útflutningshöfnum var afgreidd
til 3. umræ'ðu. Staðfesting samn-
ingsins við önnur Norðurlanda-
ríki um gagnkvæma viðurkenn-
ingu aðfararhæfra dóma var af-
greidd til efri deáldar.
Berlín, 14. apríl. U. P. FB. Hit-
ler hefir enga tilraun til mót-
spyrnu gert gegn ákvörðúnum um
að leysa upp brúnu liðssveitirnar.
Hefir hann gefi'ð út ávarp til
manna sinna og segir m. a. í þvi:
„ÞiÖ eruð héðan í frá að eins
flokksfélagor.“
Hátíðahöldin á Spáni.
Madrid, 14. apríl. U. P. FB. A
Catellanastræti, þar sem Alfons
fyrverandi konungur tók þátt í
hátíðahöldum á ári hverju, er her-
inn hylti hið rauða og gula flagg
konungsríkisins, söfnuðust í dag
saman níu þúsund hennenn úr
hinum endurskipulagða, nýja lýð-
veldisher. Gengu þeir í fylkingum
eftir götunni fram hjá tómum
höllum höfðingja þeirra, sem fóru
í útlegð með Alfons, en feikna
mikill mannfjöldi hyiti lýðveldis-
fánana rauðu, gulu og purpura-
bláu, sem hermennirmr báru.
Lanii embættismanna lækka
í Bandarfkinnnm.'
Washington, 16. apríl. U. P. FÍ3.
I ráð'i er að í næstu viku verði
lagt fyrir þjóðþingið sparnaðar-
frumvarp, til þess að draga úr
ríkisútgjöldum og jafna þannig
200 dollaramilljóna tekjuhalla á
fjárlögumi. M. a. verður lagt til,
að laun embættismanna lækki að
m:un.
Danlp aoolísa fyrlr íslend-
inp,
í litlum bæklingi, sem „Hiö
sameinaða gufuskipafélaig" í D(an-
mörku hefir gef-ið út, er þess
an. a. getið, að í Reykjavík séu
tvö „fjölslqjldugistihús“, þar sem
ferðamenn geti fengið að gista,
ef þeir vilji, en þess er líka getið,
að ferðamienn, sem ferðist með
skipum „Sameinaða“, t. d. „Botn-
íu“ og „Alexandrínu d rottningu“,,
geti „búið um borð“, sofið þar og
matast, án þeiss að sérstakur gisti-
kostnaður sé reiknaður.
Auðvitað er þetta algerlega „ó-
vinveitt samkeppni" í garð okkar
Isliendinga, og ættum við að launa
það að maklegleikum og á réttan
hátt. Það er auðvitað alrangt að
gistihús þau, sem hér eru, séu
„fjölskyldugistihús“; þau ei'u rek-
in, eins og öll önnur feröamanna-
gistihús erlendis og standa hin-<
um beztu þeirra alls ekki að baki
Sailor..
Á afmæli pingrofsiiis,
1 ræðu um stjórnarskrármálið
á alþingi í gær vék Jón Bald-
vinsson að gerræðinu mikla, sem
stjórnin framdi þá fyrir réttu ári:
þegar hún rauf þingið og rak.
þingmenn heim frá mörgum sitór-
merkum málúm óafgreiddum. Þar
á meðal var, auk stjórnarskrár-
málsins, virkjun Sogsins, en virkj-
un þess hefði í senn bætt mjög
úr atvinnuvandræðum verkalýðs-
ins og um leið hefði verið stigið
stórt framfaraspor, sem mikil
ríauðsyn er á að v-erði gert hið
allra bráðasta. Og tilefnið til
þessa gerræðis vaT að eins þa-ð
tvent, að fram var komin til-
laga um vantraust á stjórnina og
að bætt hafði ver-ið inn í stjórn-
arskrárfrumvrap hennar sjálfrar,
að með lögum mætti ákveða, að
þingmenn skuli kosnir hhitbundn-
um kosningum, þ. e. að það á-
kvæði skyldi ekki vera óhagga-n-
legt án nýrrar stjórnarskrárbreyrí
ingar, að þingmienn utan Reykja-
víkur skuli vera kosinir óhlut-
bundnum kosningum, — ákvæði-,.
sem komst af tilviljun inn i
stjórnarskrána árið 1915, þegar
landskjör var siamþykt, en hafði
alls ekki veriö í henni áður. Ot
af þessu hafi stjórnin rofið þing-
ið, og síðan hafi framb jóðendur
„Framsóknar“ reyrit að æsa kjós-
endur upp með því að brigzla
andstæðingum síntim um, að þeir
væru að svíkja bændur. Þrátt fyr-
ir allar æsingar og svikabrigzl
hafi henni þó ekki tekist að fá
nema rúmlega þriðjung kjós-enda,
þótt hún hafi ná'ð meiri hluta
þingsæta, og nú m-uni henni þó
reynas-t örðugra að blekkja kjós-
endurna í annað sinn á fxenna
hátt, því að nú hafi „Framsókn-
ar“-flokkurinn á þingi sjálfur við-
urkent ranglæti hins misjafría
fcosningaréttar, fyrst mieð því að
gangast fyrir skipun kjördæma-
skipunarnefndarinniar og nú síð-
ast með því að bjóðast tíl að
fjölga þingmönnum í Reykj.avík
og ákveða nokkur uppbótar-
þingsæti, og þar með sann-
að, að svikabrigzlin um þá, sem
vilja fá lei-ðréttingu par á, voru
staðleysiii stafir.