Morgunblaðið - 25.04.1987, Qupperneq 50

Morgunblaðið - 25.04.1987, Qupperneq 50
VRGI jÍJjqA ?.S 3RTJOÁG5TAOIJAJ íTJ<?AvIírt4TT05JCVM MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. APRÍL 1987 Kosningarnar Um 26.000 nýjir kjósendur Fyrstu atkvæðatölur birtar á tólfta tímanum í kvöld UM 26.000 íslendingar eiga í dag rétt til að greiða atkvæði í kosn- ingum til Alþingis fyrsta sinni. Alþingi lækkaði lágmarksaldur kjósenda úr 20 árum í 18 ár með lögum árið 1984 og bætast þvi sex árgangar, á aldrinum 18-23 ára við kjörskrána. Lögum sam- kvæmt eiga kjördeildir í kaup- stöðum að opna ekki síðar en kl. 10.00. en kl. 12.00 á öðrum stöð- um. I þéttbýli hefst kjörfundur víðast hvar kl. 9.00 árdegis og lýkur kl. 23.00. Samkvæmt veð- urspá verður vott á landinu í dag, en veður milt og skaplegt að öðru leiti. Talning atkvæða hefst fyrir lukt- um dyrum í fjölmennustu kjördæ: munum um kvöldmatarleytið. í Reykjavík ætti að verða hægt að birta fyrstu tölur á tólfta tímanum og þá ættu líka að koma tölur úr Reykjaneskjördæmi og Norðurlandi vestra. í öðrum kjördæmum eru aðdrættir kjörgagna erfiðari og samtöl blaðamanns við formenn kjörstjóma í gær leiddu í ljós að hugsanlega gæti dregist fram á þriðjatímann aðfaranótt sunnudags að fyrstu tölur liggji fyrir í öllum kjördæmunum átta. Á Austurlandi, Vesturlandi, Suð- urlandi og Norðurlandi eystra notast kjörstjómir við flugvélar sem flytja lq'örkassa á Egilsstaði, ísa- fjörð, Selfoss og Akureyri. Frá Selfossi ættu fyrstu tölur að berast fyrir miðnætti, en formenn hinna kjörstjómanna sögðust ekki geta lofað fyrstu tölum fyrr en á milli 1.00-2.00 um nóttina gangi allt eftir áætlun. Þeir sem fróðastir em telja að nýju kosningalögin valdi því að ekki verði hægt að spá áreið- anlega um skiptingu þingsæta fyrr en búið er að telja umtalsverðan hluta atkvæða í öllum kjördæmum. Kjósendum fjölgar mest í Reykjanesi Á kjörskrá eru um 171.400 manns, sem eru 14% fleiri en við Alþingiskosningar árið 1983. Kjós- endum fjölgar mest í Reykjanes- kjördæmi. Þar eru 39.200 á lq'örskrá, 18% fleiri en við síðustu kósningar.í Reykjavík eru 67.400 manns á kjörskrá, um 14% fleiri en í síðustu kosningum. Fjölgun í öðrum kjördæmum er undir landsmeðaltali, á Austurlandi eru 9.000 á kjörskrá og fjölgar kjós- endum um 12%, á Norðurlandi eystra eru 17.900 á kjörskrá, fjölg- ar um 11% og á Suðurlandi 13.600, íjölgar jafn mikið. Á Vesturlandi eru 10.100 á kjörskrá. Þar er fjölg- unin um 9% eins og á Norðurlandi vestra þar sem kjósendur eru 7.300. Fámennasta kjördæmið eru Vest- firðir, með 6.800 kjósendur, 6% fleiri en í síðustu Alþingiskosning- um. Þessar tölur geta breyst þegar kjörstjómir hafa lokið við að úr- skurða um kærur vegna kjörskrár. Útstrikanir og breytingar leyfðar Allir kjósendur geta valið á milli a.m.k. sjö framboðslista við þessar kosningar. Flestir listar eru í fram- boði í Norðurlandi eystra, eða 9 alls. Auk þess að veita ákveðnum lista atkvæði sitt, er leyfilegt að breyta röð á framboðslistanum eða hafna einstökum frambjóðendum með því að strika nöfn þeirra út. Vilji kjósandi breyta nafnaröð á þeim lista er hann kýs setur hann tölustafinn 1 fyrir framan það nafn er hann vill hafa efst, töluna 2 fyr- ir framan þann frambjóðanda er hann vill hafa annan í röðinni og svo framvegis. Ef hann hyggst hafna frambjóðanda á þeim lista strikar hann yfir nafn hans. Ólafur Walter Stefánsson skrifstofustjóri dómsmálaráðuneytisins sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að til þess að hnika manni til á lista þyrfti um helmingur kjósenda list- ans að breyta röðun hans. Ekki má gera önnur merki á kjörseðilinn en þessi og ef kjósandi haggar við öðrum listum en þeim sem hann kýs er seðilinn þar með ógildur. Rigning sunnanlands en bjart fyrir norðan Veðurspáin gerir ráð fyrir vax- andi sunnanátt og rigningu um landið vestanvert, en bjart veður framan af degi á Norðausturlandi og Austurlandi. Síðdegis þykknar einnig upp í þeim kjördæmum og rignir eitthvað í kvöld. Þá tekur við suðvestanátt með skúrum eða slydduéljum á vesturlandi. Sjá veðurkort á bls. 4 og auglýs- ingu kjörstjórnar í Reykjavík á bls. 33. Kosið um útsvar og áfengis verslun í TVEIMUR bæjarfélögum gefst kjósendum kostur á að taka þátt í skoðanakönnun samhliða kosn- ingu til Alþingis. Kjósendur á Akranesi verða spurðir um afstöðu til þess að út- svarsprósenta hækki um 5% til þess að standa straum af kostnaði við byggingu dvalarheimilisins Höfða. A Seltjamarnesi er spurt um af- stöðu kjósenda til þess að opnuð verði áfengisútsala í kaupstaðnum. Morgunblaðið/Pétur Þorsteinsson VIÐ KJÖRBORÐIÐ Jón Björnsson hreppsstjóri Reykholtsdalshrepps fyllir út gögn á eldhússborðinu í Deildartungu vegna utankjörstaðarkosning- ar Odds Albertssonar fulltrúa úr Reykjavík. A meðan það fer fram, mætti ætla að Oddur og Narfi, sonur Jóns hreppsstjóra, hefðu eitthvað að segja um alla þessa framboðslista, sem birtir eru I Lögfoirtingarblaðinu.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.